Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 62

Morgunblaðið - 23.11.2002, Síða 62
VEGNA framfara hefur hlutfall heilbrigðisþjónustu af vergri landsframleiðslu alls staðar í heim- inum farið vaxandi á undanförnum árum og er því ekki einangrað fyr- irbæri hér á landi. Munu útgjöld til þessa málaflokks aukast gríð- arlega ef ekki verður gripið í taumana og aðhald aukið. Þegar um er að ræða 20% af útgjöldum ríkissjóðs er ljóst að aðgerðir eru löngu tímabærar. Allt fyrir alla? Á Íslandi og á Norðurlöndunum öllum hefur því lengi verið haldið fram að heilbrigðisþjónustan sé ókeypis, að allir eigi að fá alla þjónustu fyrir ekki neitt. Á sama tíma er kvartað undan of háum sköttum. Fullljóst er því að kostn- aðarvitund verður að aukast. Lyk- illinn að því er skilvirk kostnaðar- greining. Einhvers konar forgangsröðun verður að hafa af hálfu þeirra sem um sameiginlega sjóði okkar halda og bera ábyrgð á útgjöldunum. Í því samhengi er nauðsynlegt að kanna hagkvæmni ýmissa rekstr- arforma, svo sem þjónustusamn- inga, einkareksturs og annarra hugsanlegra rekstrarforma. Fyrir liggur þó að auðvitað ber okkur að sinna öllum brýnum verkefnum strax. Lögin um heilbrigðisþjónustu eiga fyrst og fremst að tryggja að ákveðin þjónusta og gæði séu fyrir hendi en ekki binda í tíma og rúmi mönnunarmunstur einstakra stofn- ana sem ekki eru í takti við þær framfarir og breytingar sem orðið hafa og munu verða. Nauðsynlegt er að tryggja að þeir sem fara með stjórn þessara mála beri bæði fjár- hagslega og stjórnunarlega ábyrgð. Að undanförnu hefur skortur á heimilislæknaþjónustu komist í há- mæli og verið rætt um kjör heim- ilislækna. Að mínu mati hafa fast- launasamningar þeirra ekki skilað árangri. Þegar unnið er eftir af- kastakerfi er slíkt yfirleitt hvati til þjónustuaukningar og hagræðing- ar í kerfinu. Í þessu tilliti tel ég rétt að leggja áherslu á að sérfræðilækn- isþjónusta utan sjúkrahúsa er í dag hið eina form heilbrigðisþjón- ustunnar þar sem hver aðgerð, hver skoðun, nál og stunga, hefur verið metin til fjár og kostnaðar- greind að fullu. Þar með eru ít- arlegustu upplýsingar um heild- arkostnað vegna meðferðar sjúklinga fyrir hendi. Ég tel því afar nauðsynlegt að kostnaðar- greining á þjónustu heimilislækna verði færð til sama horfs og gildir meðal sérfræðilækna. Ekki er unnt að greiða allt fyrir alla. En með þessu móti er unnt að halda kostnaðargreiningu og kostnaðarvitund í heilbrigðisþjón- ustu, bæði hjá veitendum og hjá neytendum. Heilbrigðisþjónusta til framtíðar Eftir Láru Margréti Ragnarsdóttur Höfundur er alþingismaður og sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Einhvers konar for- gangsröðun verður að hafa af hálfu þeirra sem um sameig- inlega sjóði okkar halda og bera ábyrgð á út- gjöldunum.“ UMRÆÐAN 62 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÚ er prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík framundan. Mik- ilvægt er að listar flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur verði skipaðir mál- efnalegum og drengilegum stjórn- málamönnum sem eru til forystu falln- ir. Birgir Ármanns- son aðstoð- arframkvæmdastjóri Verslunarráðs er afar vel til þess fallinn að taka sæti á þingi og vinna þar að mál- efnum Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir að vera aðeins rúmlega þrítug- ur að aldri hefur hann mikla reynslu af stjórnmálum og hefur þegar verið öflugur málsvari fyrir flokkinn auk þess að gegna ábyrgðarstörfum fyr- ir unga sjálfstæðismenn og sitja um árabil í miðstjórn flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn þarf nýja menn á Alþingi en hann þarf jafn- framt menn sem er treystandi til að halda vel á málum með vönduðum og traustum málflutningi. Birgir er ein- mitt slíkur maður. Veitum honum brautargengi og kjósum hann í sjötta sæti listans. Veitum Birgi brautargengi Bragi Björnsson, héraðsdómslögmaður, skrifar: MIKIÐ einvala lið býður sig fram í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem fram fer dagana 22. og 23. nóvember nk. Sérstakt ánægjuefni er, hversu mikil sú breidd er, sem hópur frambjóðenda spannar, eða allt frá ungu hugsjónafólki, að Davíði Oddssyni, formanni Sjálfstæð- isflokksins. Þessi breidd er forsenda þess að prófkjörið þjóni þeim mik- ilvæga tilgangi sínum, að mynda sterkan og samstilltan framboðslista sjálfstæðismanna í báðum Reykja- víkurkjördæmum fyrir alþingiskosn- ingarnar í vor. Framundan er hörð og snörp kosningabarátta og treysti ég engum betur til að leiða þann slag en Geir H. Haarde, varaformanni Sjálfstæðisflokksins og fjár- málaráðherra, ásamt Sólveigu Pét- ursdóttur, dómsmálaráðherra, undir forystu eins mikilhæfasta stjórn- málaleiðtoga þjóðarinnar, Davíðs Oddssonar. Geir á að baki afar far- sælan feril sem fjármálaráðherra og Sólveig hefur svo sannarlega staðið undir væntingum sem þróttmikill og áræðinn stjórnmálamaður í forystu- sveit Sjálfstæðisflokksins. Fylkjum liði um ráðherra Reykvíkinga Margrét Theodórsdóttir skólastjóri skrifar: FORMAÐUR Sambands ungra sjálfstæðismanna, Ingvi Hrafn Ósk- arsson, er í hópi öflugra frambjóð- enda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ingvi er lögfræðingur og starfar nú sem að- stoðarmaður dóms- og kirkjumálaráð- herra. Honum er hvarvetna treyst til forystustarfa. Hann var formaður Vöku, formaður Heim- dallar og kjörinn formaður SUS í fyrra. Við kynntumst í stjórn Heim- dallar árið 1997. Hreifst ég þar af dugnaði hans og hugmyndaauðgi við að koma baráttumálum okkar á fram- færi. Ingvi hefur ávallt verið ötull talsmaður frelsisins og minni ríkisaf- skipta. Hann er fylginn sér og fastur fyrir í skoðunum en þó laus við allar öfgar. Hann er vel liðinn og nýtur virðingar út fyrir raðir sjálfstæð- ismanna. Hefur hann ávallt reynst góður félagi og ráðvandur þegar á reynir. Það væri fengur fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að hafa Ingva í þing- flokknum ásamt öðru ungu fólki. Hann sækist eftir 8. sæti og hvet ég þátttakendur til að styðja hann. Ingva Hrafn í 8. sætið Magnús Þór Gylfason, formaður Heimdallar, skrifar: BJÖRN Bjarnason, alþingismaður og borgarfulltrúi, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykja- vík sem nú stendur yfir. Allir sem kynnst hafa Birni vita hversu hæfi- leikaríkur og dugleg- ur stjórnmálamaður hann er. Enda nýtur Björn mikils og breiðs stuðnings flokksmanna, jafnt eldri sem yngri. Rétt eins og það er nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa þaulreynda stjórnmálamenn eins og Björn í forystu, þarf einnig að huga að eðlilegri endurnýjun. Vinur minn, Sigurður Kári, sækist eftir 7. sæti. Siggi Kári er baráttujaxl sem lætur engan vaða yfir sig. Hann berst af krafti fyrir lækkun skatta, auknu per- sónufrelsi og afnámi viðskiptahafta. Veitum Birni Bjarnasyni og Sig- urði Kára Kristjánssyni glæsilega kosningu. Björn Bjarnason í 3. sæti og Sig- urð Kára í 7. sæti. Hafsteinn Þór Hauksson, 1. varaformaður SUS, skrifar: GRUNDVÖLLUR raunverulegs lýðræðis er virðing og umhyggja fyr- ir einstaklingum og viðurkenning á því að einstaklingar hafa ólíkar þarf- ir og hæfileika sem þeir verða að hafa svigrúm til að sinna og þroska. Ég legg áherslu á mikilvægi virkrar þátttöku sem flestra í umræðum og töku ákvarðana um sameiginlega hagsmuni okkar þegnanna. Einstak- lingurinn ber vitanlega ábyrgð á gjörðum sínum en hafa verður í huga að aldrei verður horft fram hjá þörf- um annarra þegar ákvarðanir eru teknar um eigin hag. Þeir sem gegna opinberum ábyrgðarstörfum verða að bera fulla lýðræðislega ábyrgð á ákvörðunum sínum og athöfnum. Þá hef ég alla tíð barist fyrir því að kyn- ferði og félagslegar aðstæður útiloki ekki einstaklinga frá virkri þátttöku í lýðræðislegri stefnumótun eða dragi úr möguleikum þeirra til að geta náð árangri á þeim sviðum sem þeir vilja hasla sér völl. Ég er fylgjandi því að gæta fyllsta sparnaðar í rekstri ríkisins. Skatt- heimta má aldrei vera svo há að hún dragi úr frumkvæði fólks eða vilja til að leggja sitt af mörkum. Skatt- tekjur standa hins vegar undir sam- félagsþjónustunni og samstaða ríkir um að við réttum hvert öðru hjálp- arhönd á erfiðum tímum. Í gegnum samtrygginguna höfum við Íslend- ingar t.d. byggt upp fjölbreytt heil- brigðis- og menntakerfi sem og mik- ilvægt öryggisnet í löggæslu og samgöngum. Allir þessir þættir treysta lýðræðislegan og efnahags- legan grundvöll samfélagsins. Engu að síður er nauðsynlegt að vera stöð- ugt vakandi fyrir nýjum leiðum til að nýta sem best þá fjármuni sem varið er til samfélagslegrar þjónustu. Ég hef alltaf verið talsmaður frels- is í viðskiptum og lagt áherslu á mik- ilvægi öflugrar samkeppni. Ísland er smáríki sem á efnahagslega velferð sína undir skynsamlegri stjórn efna- hagsmála og líflegum viðskiptum. Ég tel að náið samráð við hagsmuna- aðila og frelsi í alþjóðaviðskiptum treysti efnahagslegan stöðugleika. Fiskveiðar hafa lengi verið undir- staða hagsældar Íslendinga og verða það áfram. En á síðustu árum hefur útflutningur á öðrum vörum s.s. áli, hátæknivörum og þjónustu orðið sí- fellt mikilvægari tekjulind. Erlendar fjárfestingar eru mikilvæg forsenda uppbyggingar íslensks atvinnulífs. Efnahagsleg framþróun Íslands er þó ekki síst háð áframhaldandi upp- byggingu íslenska menntakerfisins og kröftugri innlendri rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Ég vil bjóða fram krafta mína í þágu framsækinnar uppbyggingar íslensks þjóðfélags. Sjálfstæði, frelsi, framtak Eftir Stefaníu Óskarsdóttur Höfundur sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Efnahags- leg framþró- un Íslands er ekki síst háð áfram- haldandi uppbyggingu menntakerfisins og kröftugri rannsóknar- og þróunarstarfsemi.“ ENN er enn séð fyrir endann á afleiðingum skipskaða undan norð- anverðri strönd Spánar þar sem olíuflutningaskipið Prestige sökk. Enn eru 70.000 tonn af olíu í skip- inu, en 6.000 tonn af olíu fóru í hafið. Skýrar reglur um siglingaleiðir Árið 1997 var samþykkt á Al- þingi þingsályktunartillaga sem ég flutti um skipan nefndar til að setja reglur um skip sem sigla með hættulegan varning innan lög- sögu Íslands. Þar segir að mótaðar verði skýrar reglur um tilkynn- ingaskyldu og afmörkun siglinga- leiða olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning inn í íslenska efnahagslögsögu, m.a. heimildir til tafarlausrar stöðvunar ef vart verður meng- unar. Reglurnar nái einnig til olíu- skipa í siglingum milli hafna hér á landi. Ennfremur verði sett skýr ákvæði er banna öllum skipun los- un á sjóballest nema í ákveðinni, tiltekinni fjarlægð frá landi (eða á ákveðnu dýpi). Jafnframt verði mótaðar reglur um hvaða ráðu- neyti og stjórnsýslustofnanir fari með forræði um allar aðgerðir sem grípa þarf til þegar mengunarslys verða á sjó eða við strendur lands- ins. Hvers vegna þessar reglur? Með lögum nr. 14/1979 var rík- isstjórninni veitt heimild til að staðfesta fyrir Íslands hönd þrjá alþjóðasamninga um varnir gegn mengun sjávar af völdum olíu. Þeir samningar mæla annars veg- ar fyrir um íhlutun strandríkis á úthafinu þegar óhöpp verða sem valda eða geta valdið olíumengun og hins vegar um ábyrgð á tjóni af völdum olíumengunar. Þá eru einnig í gildi lög nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar. Fram- angreind lög og samningar veita strandríkjum þó ekki rétt til að gera neinar ráðstafanir er tak- markað geta umferð olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning um efnahags- lögsögu þeirra. Hvert ríki getur þó sett lög þar um. Fjölmörg strandríki hafa sett reglur um losun á sjóballest til að koma í veg fyrir mengun sjávar og vernda lífríkið. Mikið er í húfi fyr- ir Íslendinga í þessum efnum eins og áður segir og rétt að hafa í huga að mistök í þessum efnum geta vissulega valdið miklum skaða. Alvarleg mengunarslys hér á landi hafa sem betur fer ekki orðið. Full ástæða er þó til ýtrustu varkárni í því efni, sbr. fjölmörg mengunarslys af völdum skipstapa olíuskipa. Nefndin var skipuð og lauk störfum að því er ég best veit fyrir tæpum tveim árum, en hefur ekki enn skilað af sér. Það er hrikalegt til þess að vita að enn skuli ekki hafa verið mótaðar reglur sem lúta að siglingum þessara skipa svo mjög sem Íslendingar byggja af- komu sína á nýtingu auðlindar hafsins umhverfis Ísland. Umhverfisslys við Íslands- strendur vegna skipskaða? Eftir Guðmund Hallvarðsson Höfundur er þingmaður Reykvík- inga og gefur kost á sér í 5. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. „Mikið er í húfi fyrir Ís- lendinga í þessum efnum.“ MÉR er það mikið ánægjuefni að mæla með því við kjósendur í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík nú um helgina að þeir tryggi Stefaníu Ósk- arsdóttur, varaþing- manni og stjórn- málafræðingi, góða kosningu í öruggt þingsæti. Stefanía sækist eftir sjötta sætinu. Ég hef þekkt Stefaníu um árabil og veit að hún er víðsýn og vönduð og hefur þann bakgrunn sem nýtast mun henni og Sjálfstæðisflokknum vel í störfum á Alþingi. Einnig er ekki vafi á að með kjöri hennar er listi flokksins færður nær miðjunni og honum gefin aukin breidd. Auk starfa að jafnréttismálum hefur Stefanía lagt áherslu á öflugt menntakerfi, en einkum hefur mér fallið vel sú áhersla hennar að al- þingismenn líti fyrst og fremst á sig sem ábyrga gæslumenn almanna- hagsmuna sem setji hag neytenda og skattgreiðenda í öndvegi og standi vörð um athafnafrelsi ein- staklinganna. Kjósum Stefaníu í sjötta sætið. Stefanía breikkar hópinn Lilja Hilmarsdóttir leiðsögumaður skrifar:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.