Morgunblaðið - 23.11.2002, Side 72
72 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
LAUGARDAGINN 2. nóvember sl.
birtist grein í Mbl. frá Sigurði Guð-
mundssyni landlækni þar sem hann
fór mikinn í gagnrýni sinni á fæðu-
bótarefni og fann þeim allt til for-
áttu. Meðal annars fullyrti hann að í
besta falli gagnist þau fólki alls ekki
og í versta falli skiljist þau óbreytt út
úr líkamanum.
Það skýtur óneitanlega skökku við
og er reyndar með ólíkindum þegar
landlæknir mælir gegn heilsusam-
legu líferni fólks. Milljónir manna
um heim allan nota heilsusamleg
fæðubótarefni daglega og varla þarf
að fara mörgum orðum um alla þá
sem náð hafa árangri í báráttunni við
aukakílóin með hjálp fæðubótarefna.
Er það virkilega staðföst skoðun
landlæknis að allt þetta fólk hafi
rangt fyrir sér og að neysla þeirra á
fæðubótarefnum sé öll á misskilningi
byggð? Ef svo er þá held ég að hann
hefði átt að kynna sér málið betur því
staðreyndirnar eru aðrar. Fjöldi
rannsókna um heim allan hefur fært
sönnur á að flest öll fæðubótarefni
innihalda öll þau næringarefni sem
líkaminn þarf á að halda. Maður
skyldi ætla að eitt mikilvægasta hlut-
verk landlæknisembættisins væri að
uppfræða almenning um heilsusam-
legt líferni en ekki vekja tortryggni
og vantrú. Vert er að minna á að
landlæknir kom sjálfur, persónu-
lega, fram í auglýsingu þar sem hann
mælir eindregið með mjólkurafurð-
um án þess að minnast einu orði á þá
staðreynd að fjölmargir Íslendingar
hafa ofnæmi fyrir mjólkursykri og
neysla mjólkurafurða getur reynst
heilsu þeirra skaðleg.
Ekki má svo gleyma því að fjöl-
margar mjólkurvörur innihalda
mjög mikið magn af viðbættum sykri
sem hingað til hefur ekki flokkast
undir hollt mataræði. Í flestum
fæðubótarefnum er búið að taka út
þau efni sem valda ofnæmi hjá fólki
auk þess að fitu- og sykurinnihald er
mun lægra en í langflestum mjólk-
urafurðum. Það má því færa rök fyr-
ir því að kaldhreinsað mysuprótein,
sem er uppistaða flestra prótein-
blandna, henti mun fleirum en
mjólkurpróteinið sem landlæknir
mælir svo mikið með í auglýsingum
sínum.
Við hljótum að gera þær kröfur til
landlæknisembættisins að það halli
ekki réttu máli og vinni ekki gegn
heilsusamlegum hagsmunum al-
mennings. Ef Sigurður Guðmunds-
son hefði haft fyrir því að kynna sér
rækilega þær rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið á fæðubótarefnum;
rannsóknir sem taka af allan vafa um
ágæti þeirra, hefði hann án efa hugs-
að sig tvisvar um áður en hann skrif-
aði umrædda grein.
SVAVAR JÓHANNSSON,
framkvæmdastjóri Fitness Sport.
Landlæknir á
villigötum!
Frá Svavari Jóhannssyni:
HINAR sífelldu ágjafir íhaldsforust-
unnar til lands og sjávar ganga yfir
þjóðina eins og mannskæð sótt.
Röð hvers konar áfalla Sjálfstæð-
isfl. er nánast daglegur viðburður
fjölmiðla, þetta er eins og spennandi
framhaldssaga um sakamál, fjár-
málaafbrot, pretti og svik alþingism.
hlýtur dóm, sem leiðir til afsagnar
hans, sjávarútvegsmálaráðhr. dæmd-
ur fyrir meiðyrði, prófkjörsreglur
þverbrotnar með ævintýralegum og
einstæðum hætti, Landssímaskan-
dallinn, sem leiddi til afsagnar stjórn-
ar o.fl. mætti tilgreina.
Eins og einkavæðingarnefnd, þar
sem stjórnarform. og nefndarmaður
segja upp störfum vegna ágreinings
um framkvæmd nefndarinnar. Öll
þessi mál tengjast með einum eða
öðrum hætti mönnum í forustusveit
Sjálfstæðisfl. Ástæður fyrir þessum
vandræðum öllum, sem teygja rætur
sínar vítt og breitt um þjóðfélagið
virðast ekki fjarlægar eða flóknar
þegar innviðir flokksins eru skoðaðir
í ljósi hinnar spilltu frjálshyggju, ein-
orkunar og fákeppni, sem einkennist
af fégræðgi og yfirgangi.
Eitt sinn hélt ég til haga ýmsum
setningum sem forsætisráðhr. lét sér
um munn fara við ýms tækifæri er
varðar ýmsa málaflokka og stofnanir
í þjóðfélaginu. Þegar á leið fannst
mér tíma mínum illa varið við slíka
gangasöfnun, sem væri hvorttveggja
í senn hundleiðinleg og hefði náttúr-
lega engan tilgang.
Það er þekkt að vald spillir mönn-
um og því fylgir yfirgangur og hroki.
Enn meiri hætta er á þessum eigin-
leikum þegar menn hafa setið lengi á
valdastóli. Hvort ýms ummæli for-
sætisráðhr. bendi í þá átt læt ég les-
endum eftir, en tilgreini hér nokkur
sýnishorn: Í umræðum á Alþingi um
réttarfarsdómstól þar sem málsmeð-
ferð í Geirfinnsmálinu kom inn í um-
ræðuna, sagði Davíð m.a. að ekki að-
eins eitt dómsmorð verið framið
heldur mörg og að endurupptaka
málsins hafi verið hundahreinsun fyr-
ir íslenska dómsmálakerfið.
Þá má ennfremur nefna ummæli
Davíðs um útdeilingu Mæðrastyrks-
nefndar til fátækra, að það væri alltaf
til fólk sem hlypi til eftir ókeypis mat
og fatnaði. Skoðanir Davíðs um að
Evrópubandalagið sé ólýðræðisleg-
asta skrifstofubákn sem hefur verið
fundið upp er enn eitt dæmið um af-
gerandi skoðanir án nokkurs rök-
stuðnings. Sama má reyndar segja
varðandi ummæli hans um há-
skólaprófessora, sem væru ósammála
honum um fiskveiðistjórnunina og
hvers konar óviðeigandi orðahnipp-
ingar við Kaupþing, Baug, Sam-
keppnisstofnun, Orca-hópinn o.fl.
Það verður að gera þær kröfur til for-
sætisráðháðherra að hann komi skoð-
unum sínum á framfæri með rökvísi
og á skilvirkan hátt og sýni samborg-
urum sína fulla virðingu og heilindi.
Það er vitað að Davíð ræður öllum
innviðum Sjálfstæðisfl. og lyklar
hans ganga að öllum skráargötum
hinna rétttrúuðu auðsveipu þjóna.
Flokkseinræði í formi lýðræðis getur
leitt til aðstæðna sem kjósendur
hafna, en fyrirboði þess er að menn
skynji ekki lengur hagsmuni lands og
þjóðar.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fyrrv. deildarstj.
Þrautaganga íhaldsins
Frá Kristjáni Péturssyni: