Morgunblaðið - 23.11.2002, Page 80
80 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
PLATA þessi er afrakstur þriggja
ára samstarfs söngkonunnar bráð-
ungu, Þórunnar Antoníu, og föður
hennar, Magnúsar
Þórs Sigmundsson-
ar, sem er lands-
þekktur sem einn
okkar besti laga-
smiður. Hann legg-
ur til lög og texta og
feðginin fá til liðs við sig einvalalið
hljóðfæraleikara. Ung og metnaðar-
full tónlistarkona getur varla fengið
næringarríkara veganesti eða traust-
ari grunn, en hún kemur líka inn með
ferska og tilfinningaríka túlkun og
getur verið sátt með „útskriftarverk-
efni“ sitt, eins og það er kallað á um-
slaginu.
Lögin á plötunni eru flest rólegar
ballöður og ástarsöngvar í léttpopp-
uðum, hefðbundnum stíl með gamal-
kunnugri hljóðfæraskipan: trommur,
bassi og gítar í forgrunni með píanó-
nótum og strengjum hér og hvar.
Lögin hneigjast til að vera byggð upp
í kringum stór og dramatísk viðlög
sem reyna á flytjandann og Þórunn
Antonía stendur undir því, hefur fal-
lega og umfram allt tilfinningaríka
rödd. Upphafslagið, „I really wanna
know“ er létt og grípandi lag og
trommuleikur Birgis Baldurssonar er
skemmtilega breiður og afslappaður
og reyndar er allur hljóðfæraleikur-
inn þægilega náttúrulegur og dálítið
„fuzzy“ – það er nettur hippaandi yfir
þessu. Eitt besta lag plötunnar er
„Play me“, klassísk ballaða sem
manni finnst eiginlega ótrúlegt að
ekki sé búið að semja áður, svo eðli-
lega raðast nóturnar saman í einlæga
og fallega laglínu. Þórunn Antonía
syngur lagið blíðlega og lágvært og
glittir í barnslegan tón inn á milli sem
er mjög sjarmerandi – vonandi slípast
þetta ekki af henni þótt röddin eigi
eftir að þroskast og mótast meir. Tit-
illagið „Those little things“ hefur yfir
sér þjóðlagaanda eða ævintýrablæ,
viðlagið tárbólgið og treginn undir-
liggjandi, og Þórunn Antonía túlkar
átökin sannfærandi. Þessi laglína
hljómar lengi í kollinum eftir að disk-
urinn hefur tekið enda. Fiðla og slæd-
gítar í ljúfu dægurflugunni „Claim on
your heart“ gefur því lagi kántríblæ
sem hæfir vel blíðri og angurværri
röddinni.
Lögin eru alls 12 á disknum og fara
að hljóma nokkuð einsleit eftir því
sem á líður og ef til vill mætti óska eft-
ir frumlegri smíðum, en kostirnir eru
fleiri en hitt. Með þetta próf upp á
vasann ættu allir möguleikar að
standa Þórunni Antoníu opnir og þeg-
ar síðast fréttist var stúlkan búin að
skrifa undir þriggja platna útgáfu-
samning við breskt útgáfufyrirtæki.
Þessir litlu hlutir eiga greinilega eftir
að vaxa.
Tónlist
Útskrifuð
Þórunn Antonía
Those little things
1001 nótt
Þórunn Antonía syngur en lög og textar
eru eftir Magnús Þór Sigmundsson,
(nema Drift Away e. Dobie Gray). Ýmsir
hljóðfæraleikarar koma við sögu, Magn-
ús Þór á kassagítar og einnig á raf-
magnsgítar ásamt Eðvarði Lárussyni og
Guðmundi Péturssyni, Jakob Frímann
Magnússon o.fl. á hljómborð, Birgir Bald-
ursson á trommur, Friðrik Sturluson og
Jakob Magnússon á bassa auk strengja-
leikara. Stjórn upptöku: Magnús Þór.
Hljóðblöndun: Ken Thomas.
Steinunn Haraldsdóttir
Það er nóg að gera hjá Þórunni Ant-
oníu því hún hefur, ásamt nýrri hljóm-
sveit, gert þriggja platna samning við
BMG og er með sólóplötu á leiðinni.
SKRÁR yfir útgefna íslenska tón-
list eru brotakenndar og getur
verið snúið að komast að því hvað
hver hefur gefið út og hvenær. Í
gær kom aftur á móti út á marg-
miðlunardiski Íslensk hljóm-
plötuskrá, sem er uppfletti- og
skráningarforrit með gagnagrunni
er geymir skráningu á íslenskum
hljómplötum frá því fyrsta hljóm-
platan kom á markað 1907 og til
ársins 2002. Verkið er unnið af
þeim Bárði Erni Bárðarsyni
Scheving og Hjálmari Snorrasyni
og styrkt af menntamálaráðuneyt-
inu og Sambandi flytjenda og
hljómplötuframleiðenda.
Bárður hefur unnið verkið að
mestu og var upphafsmaður þess.
Hann segir kveikju þess hafa
verið er hann vann skrár fyrir
Silju Aðalsteinsdóttur í bókina
Bubbi 1990. „Eftir útgáfu hennar
komu ýmsir til mín og spurðu
hvort ég ætti slíka útgáfulista eða
skrár yfir aðra íslenska tónlist eða
tónlistarmenn. Svo var þó ekki, en
hugmyndin fæddist og 1992 byrj-
aði ég á skránni, fyrst með það í
huga að setja saman einfalda upp-
flettibók með lista yfir plötuheiti
og flytjendur ásamt útgefendum
og útgáfunúmerum og vann það í
hjáverkum. Um síðustu áramót
tók ég svo ákvörðun um að ljúka
við verkið,“ segir Bárður, en með
skránni fylgir ýmislegt sem teng-
ist íslenskri útgáfu, þar á meðal
saga nokkurra stæstu útgáfufyr-
irtækjanna eftir Jónatan Garð-
arsson.
Mismikið er skráð um hverja
plötu, bæði vegna þess að heim-
ildir eru mistraustar, en einnig
segir Bárður að tíma- og fjár-
skortur hafi háð. Útgáfan núna sé
ekki síst til þess ætluð að fá fram
viðbrögðum manna og at-
hugasemdum um það sem betur
megi fara svo hægt sé að miða
verkinu áfram. Í skránni eru inn-
skráningarmöguleikar gagna þrí-
skiptir: Grunnupplýsingarnar; þ.e.
plötuheiti og flytjandi, útgáfu-
skráning; þ.e. nafn útgefenda, út-
gáfunúmer útgáfuformat og út-
gáfuár, og lagaskráning; þ.e.
lagaheiti, tími lags, flytjandi lags,
höfundur lags og höfundur texta.
Á eftir nöfnum og heitum er svo
hægt að setja inn athugasemdir,
texta lagsins og ISRC-lykil.
Í skránni nú eru taldar 5.000 út-
gáfur og 46.000 lög. Bárður segist
ekki halda því fram að skráin sé
tæmandi og erfitt reyndar að gera
tæmandi skrá á þessu sviði. Reynt
hafi verið að skrá sem flestar op-
inberar útgáfur, en að hluta var
unnið eftir skrá Landbókasafnsins
– Háskólasafns yfir plötur frá
1979. „Framan af var þar þó að-
eins að finna hluta þeirra platna
sem komu út. Eldri gögn voru
skráð eftir plötunum sjálfum og
bók sem Jón R. Kristjánsson tók
saman 1955, en auk þess fékk ég
skrár frá Trausta Jónssyni sem er
kunnur plötugrúskari og veit mik-
ið um gamlar útgáfu. Einnig eru
til útgáfulistar frá útgefendum á
sínum tíma, eins og Fálkanum og
Íslenskum tónum. Þá reyndist
Videósafnarinn í Ingólfsstrætinu
mér vel og ég var í nokkuð góðu
sambandi við Eið Arnarsson út-
gáfustjóra hjá Skífunni,“ segir
Bárður og bætir við að einhvers
staðar verði að setja mörkin um
hvað fari inn í skrá sem þessa.
„Sennilega er því ekki mikið af
einkaútgáfum í þessari skrá þar
sem aðgengi að þeim er takmark-
að.“
Bárður skráir allar vínylplötur,
geisladiska og nokkuð af kass-
ettum. „Sett var sú regla að skrá
ekki kassettur nema þær hafi ekki
komið út í öðru formi og þá að
þær hafi verið settar í almenna
sölu. Til dæmis eru stóru bílakas-
setturnar sem SG hljómplötur
gáfu út skráðar þarna og Lysti-
snekkjan Gloria sem Grammið gaf
út. Sú plata virðist yfirleitt gleym-
ast á listum yfir verk Bjarkar
Guðmundsdóttur, en á henni les
hún nokkur eigin ljóð. Hinsvegar
var kassettusafni Dr. Gunna sleppt
enda einhver óheyrilegur fjöldi
sem aldrei fór í almenna dreif-
ingu, heldur eftir því sem ég
komst næst aðeins gerð örfá ein-
tök að sumum þeirra og alveg nið-
ur í að aðeins var gert eitt ein-
tak.“
Skrá yfir
íslenskar
hljóm-
plötur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 461
Stundum er það sem
að þú leitar að..
þar sem þú skildir það eftir.
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem
hefur fengið frábærar viðtökur
og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese
Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
1/2
KRINGLA
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Vit 468
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 10.20.
8 Eddu
verðlaun
Sýnd kl. 4. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og POWERSÝNING kl. 23.15.
Yfir 51.000 áhorfendur
Sýnd kl. 3.30, 5.45 með enskum texta 8 og 10.10. B.i. 12.
Sýnd kl. 1.50. Sýnd kl. 1.45.
Roger Ebert
1/2 Kvikmyndir.is
DV
WITH
ENGLIS
H
SUBTIT
LES
AT 5.4
5
HL. MBL
SK RadíóX
HK DV
Sýnd kl. 8.
Ísl. texti. B.i. 16.