Morgunblaðið - 06.01.2003, Síða 26

Morgunblaðið - 06.01.2003, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. M ARGIR gætu áreiðanlega vel hugsað sér að til væri einföld leið til að svara erf- iðum pólitískum spurningum eins og til dæmis spurningunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Að einfaldlega væri hægt að slá inn í tölvu kosti og galla aðildar, þrýsta á hnapp og fá afdráttarlaust svar. En þannig er þetta náttúrulega ekki. Það er vissulega hægt að staðreyna margt. Við getum upplýst hver tekur ákvarðanir hjá Evrópusambandinu um hversu mikið hvert aðildarríki má veiða af fiski á hverju ári. Við getum út frá gefnum forsendum svarað hagrænum álitaefnum, svo sem hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu kosti Íslendinga ár- lega eftir fjölgun aðildarríkja um tíu. Svör við afmörk- uðum álitaefnum geta varpað ljósi á stóru spurninguna og gert hana skýrari en aldrei svarað henni. Svarið ræðst af pólitískri sannfæringu hvers og eins. Erum við til í að fórna a til að fá b? Til að geta myndað okkur skoð- un á því þurfum við eins áreiðanlegar og hlutlægar upp- lýsingar um a og b og mögulegt er. Hvað er a og hvað er b? Er hvort fyrir sig eftirsóknarvert? Er nauðsynlegt að fórna a til að fá b? Er hægt að fá b eftir öðrum leiðum? Og ef a er fórnað, fáum við þá örugglega b í staðinn? Evrópusambandið er frekar flókið fyrirbæri. Þar af leiðandi hefur umræðan hér á landi verið það líka. Það er tæplega hægt að ætlast til þess að fólk sé nú svo upplýst um Evrópumál að það sé raunverulega reiðubúið til að svara spurningunni um aðild. Ég held annars vegar að fólk viti lítið um hvaða fórnir þarf að færa. Og hins vegar viti fólk lítið um hvað kemur í staðinn. Fólk getur sett fingurinn á hverrar skoðunar einstakir stjórnmálamenn eru og endurtekið það sem þeir hafa fullyrt. Fólk hefur heyrt fullyrðingar um að vextir og matvöruverð muni lækka við aðild að Evrópusambandinu, en hefur hvorki fengið upplýsingar um á hverju fullyrðingarnar byggjast né tækifæri til að skoða forsendurnar. Við vitum ekkert um hvort fullyrðingar sem þessar eru byggðar á hlut- lægri vísindalegri úttekt eða hvort þær eru bara út í loft- ið. Fólk getur tæplega sjálft metið hvort fullyrðingarnar eru réttar eða rangar án frekari skýringa. Ég treysti mér að minnsta kosti ekki til þess einn og óstuddur. Margt hefur verið fullyrt í þessari umræðu án fylgi nokkur nánari rökstuðningur. Formaðu ingarinnar hefur t.d. fullyrt að hann hafi k arútvegsstefnu Evrópusambandsins til mer um skoðun í kjölfarið og sé þess nú fullviss að ekki missa stjórn á auðlindinni við aðild. Fram er þannig að það er engu hægt að treysta um yrðingin sé marktæk. Hún hefur staðið nánas síðan hún var sett fram og við eigum bara að t blindni að hún sé rétt. Sem gengur náttúruleg Málefnalegt framl Eftir Birgi Tjörva Pétursson D AVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra viðraði þá hugmynd í áramótagrein hér í blaðinu á gamlársdag að koma á fót þverpólitískri nefnd um Evr- ópumál. Með þessu virðist forsætisráð- herra vera að ganga fram fyrir skjöldu og hvetja til vopnahlés í Evrópusambandsmál- inu. Að „stríðandi“ fylkingar þeirra sem vilja skoða aðild að ESB og þeirra sem telja enga þörf á slíku slíðri stílvopnið á meðan málið er tekið fyrir í áðurnefndri nefnd. Það eru óneitanlega nokkur tíðindi að yf- irherforingi ESB-andstæðinga, sem hefur staðið grár fyrir járnum þegar málið ber á góma, skuli flagga hvíta flagginu með þess- um hætti og lýsa yfir vilja til að stíga upp úr skotgröfunum – hætta vígaferlum og ræða málin. Hvað býr að baki þessum hug- myndum forsætisráðherra? Er hann að fara fram í þessu máli með góðu fordæmi eða er um að ræða hernaðartaktík til þess ætluð að fresta frekari vígaferlum fram yfir kosningar í vor? Sáttaleið eða hernaðarkúnst Það er kunnara en frá þurfi að segja að á hinum pólitíska vígvelli getur verið þægi- legt að fresta átökum eða forðast þau um einstök mál með því að setja á fót nefnd sem hefur það hlutverk að ræða tiltekið mál með það að markmiði að leita sátta og skila áliti. Svo fer það eftir eðli viðkomandi máls hvort nefndin skili af sér eða hvort málið hreinlega sofni í meðförum nefndarinnar og komi aldrei til afgreiðslu. Í þessu tilfelli er óhætt að fullyrða að málið kemur ekki til með að sofna svefninum langa í meðförum hinnar þverpólitísku ESB-nefndar – hér er um slíkt stórmál að ræða. Hins vegar getur þessi nefndarleið haft áhrif á umfjöllun um Evrópumál í aðdraganda Alþingiskosninga á komandi vori. Nú er allsendis óljóst hversu mikið næstu kosningar munu snúast um Evr- ópumál. Það fer allt eftir þróun innanlands- og alþjóðamála á næstu misserum. Yfirvof- andi stríð í Írak getur haft mikil áhrif þar á að ógleymdum viðræðum um framtíð EES- samningsins í ljósi væntanlegrar stækk- unar ESB sem fyrirhugað er að hefjist 9. janúar. Hvernig þær viðræður fara af stað getur haft afgerandi áhrif á Evrópuumræð- una í kosningabaráttunni. Hvernig sem þessi mál koma til með að þróast læðist sá grunur að undirrituðum að nefndarleiðin hafi verið teiknuð upp í forsætisráðuneyt- inu og lögð fram af forsætisráðherra með það að markmiði að drepa málinu eins mik- ið á dreif og mögulegt er fram yfir kosn- ingar. Málið er í nefnd og þar með ekki á dagskrá fyrr en nefndin hefur skilað nið- urstöðu! Þrátt fyrir að ofangreind skýring á þessu nefndarupphlaupi forsætisráðherra sé lík- leg, þ.e. að markmiðið sé að þæfa málið eins og hægt er fram yfir kosningar, er ekki hægt að útiloka þann möguleika að Davíð Oddsson sé að mýkjast í afstöðu sinni til ESB. Niðurstaða nefndarinnar gæti þess vegna orðið til þess að forsætisráðherra skipti aftur um skoðun en Davíð hefur lýst því yfir að Íslendingar ættu að sækja um aðild að ESB. Í skýrslu aldamótanefndar Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1989 fjallar Davíð Oddsson um viðræður sem EFTA- ríkin áttu þá í við ESB (þá EB) og segir að í þeim kunni að nást samkomulag sem við getum sætt okkur við til frambúðar. „Hugsanlega verður þó skynsamlegast að óska beinlínis eftir viðræðum um inngöngu í Evrópubandalagið, þótt menn séu um leið reiðubúnir að láta inngönguna ráðast af því, hvort þau skilyrði, sem henni kunna að fylgja, þykja aðgengileg eða ekki. Verði sú niðurstaðan, að þau séu óaðgengileg talin, hafa menn heldur engar brýr brotið að baki sér. Og þrátt fyrir allt er líklegt að smæð okkar verði styrkur ásamt með því að við erum að véla við bandalagsþjóðir okkar í Atlantshafsbandalaginu og margar hefð- bundnar vinaþjóðir, þar sem við njótum trausts. Það er því óheppilegt að borið hef- ur á því, að við séum sjálfir að búa okkur til skilyrði og mála skrattann á vegginn og þar með að veikja okkar eigin samningsstöðu er við mætum með sjálfskapaða annmarka til viðræðna við Evrópubandalagið Við megum síst af öllu ganga að þessu viðfangs- efni með þrá fyrir forna innilokun og ein- angrun, alteknir af ótta og kjarkleysi. Við verðum að sýna reisn og styrk og forðast einangrunarþörf og minnimáttarkennd. Til slíkra viðræðna hljótum við að ganga sann- færðir um það að reyna að ná fram hinu bezta, en jafnframt tilbúnir að hverfa frá þeirri leiðinni, ef niðurstaðan er ekki þol- anleg.“ Svipuð ummæli viðhafði Davíð Oddsson í bókinni Island – Arvet Från Thingvellir eftir Hannes H. Gissurarson sem kom út í Svíþjóð árið 1990. Þar sagði Davíð að við yrðum að laga okkur að þeirri staðreynd að meirihlutinn af viðskiptum okkar væri við ESB og að hann hafi lagt til opinberlega a ild. Það hefur neinum að Da umpólast frá 13 árum. En skipt um skoð aftur. Hlut Á undanför sætisráðherr máti ekki flík vilja til að kau ingu er ráðhe ing þeirra sem inga að skilgr það í huga að Menn myndu sér með því a með slík sam Ólíkt því sem herrann nú u legan málflut skapaðir ann viðræðna við ræða að gang um að reyna framt vera til inni, ef niðurs er þó hægt að Oddsson sé a sinni og hver Það er alveg verður að ver baki, önnur e kosningar, ve uð stjórnmála sitja fulltrúar skólasamféla slík nefnd á a urstöðu þarf hátt í hugarlu okkar eru ef v að sækja um getur hún ek grein fyrir ko nokkru viti. M Davíð Oddsso Evrópuumræ þau sjónarmi greina samni kostur er. Hv farið er ómög víst að nefnda lega í snið og Vopnahlé í Evrópumá Eftir Úlfar B. Hauksson Höfundur e stjórnarma MORGUNBLAÐIÐ Á MÁNUDÖGUM Á NÝ Í dag hefst útgáfa Morgunblaðsinsá nýjan leik á mánudögum enblaðið kom út sjö daga vikunnar frá stofnun þess 2. nóvember 1913 til júníloka 1919. Þá var útgáfu blaðsins á mánudögum hætt en í stað þess gaf Árvakur hf., útgáfufélag Morgun- blaðsins, út vikublaðið Ísafold á mánudögum fram á síðari hluta árs 1921, þegar útgáfa Ísafoldar færðist yfir á miðvikudaga. Ísafold hóf göngu sína sem þjóðmálablað haustið 1874. Er þessi saga öll rakin í fróðlegri grein eftir Freystein Jóhannsson, blaðamann, sem birtist í Morgun- blaðinu í dag. Eftir að reglulegri útgáfu Morgun- blaðsins á mánudögum var hætt sum- arið 1919 kom blaðið við og við út á mánudögum, þegar stórtíðindi urðu. Síðasta útgáfa á mánudögum af því tagi var útgáfa Morgunblaðsins hinn 3. janúar árið 2000 í tilefni árþús- undaskipta. Mánudagsútgáfa Morgunblaðsins hefur verið reglulega til umræðu í stjórn útgáfufélags Morgunblaðsins, Árvakurs hf., undanfarna áratugi, þótt ekki hafi komið til þess fyrr en nú að hún hæfist á nýjan leik. Har- aldur Sveinsson, stjórnarformaður Árvakurs hf., sem tók sæti í stjórn út- gáfufélagsins árið 1951 og hefur setið alla stjórnarfundi síðan, ýmist sem stjórnarmaður, stjórnarformaður eða framkvæmdastjóri, segir í samtali í Morgunblaðinu í dag, að „í hörðum átökum í kringum 1920 hafi prentarar náð fram sterkri stöðu og vinnu á sunnudögum settir slíkir afarkostir að ekki var áratugum saman talið fært að setja hana á. Almennar prent- smiðjur voru þungamiðjan í samtök- um prentsmiðjueigenda og forráða- mönnum þeirra fundust hagsmunir blaðanna léttvægir í samanburði við annað.“ En hvers vegna nú? Hallgrímur B. Geirsson, fram- kvæmdastjóri Morgunblaðsins, tók ákvörðun um það sl. haust að leggja til við útgáfustjórn Morgunblaðsins að útgáfa Morgunblaðsins á mánu- dögum yrði hafin í byrjun þessa árs. Tillaga hans var samþykkt á fundi stjórnar Árvakurs hf. hinn 28. nóv- ember sl. Hallgrímur B. Geirsson skýrir þessa ákvörðun í Morgun- blaðinu í dag með þessum orðum: „Samverkandi forsendur fyrir ákvörðun stjórnar nú voru í fyrsta lagi að sæmilega hefur tekizt til um aðhalds- og hagræðingaraðgerðir undanfarin tæp tvö ár, sem hefur skapað grunn að þessari ákvörðun, þótt enn gæti nokkuð óhagstæðra ytri rekstrarskilyrða og áframhaldandi aðhalds sé þörf. Í öðru lagi hefur sam- keppni almennt á fjölmiðlamarkaði farið vaxandi og þá ekki sízt meðal prentmiðla. Í þriðja lagi fannst mönnum rétt, þrátt fyrir verulegan kostnað umfram áætlaðar tekjur í upphafi, að líta á mánudagsútgáfuna og möguleg tæki- færi, sem henni fylgdu til beinnar og óbeinnar hagræðingar, sem fjárfest- ingu sem gæti skilað arði þegar til lengri tíma væri litið, auk þess sem fjárfestingin styrkti samkeppnisstöð- una. Í fjórða lagi sakaði svo ekki að það ár, sem nú fer í hönd, er 90. af- mælisár Morgunblaðsins og hvatning þess vegna til að efla og styrkja hag þess enn.“ Útgáfa Morgunblaðsins á mánu- dögum mun verða til þess að bæta mjög þjónustu blaðsins við lesendur þess. Undanfarna áratugi hafa fréttir verið skrifaðar fram að hádegi á laug- ardögum en síðan hafa fréttir af at- burðum, sem gerzt hafa frá því síð- degis á laugardag og fram á mánudagskvöld, ekki birzt fyrr en í þriðjudagsblaði. Um helgar er jafnan mikið um að vera í íþróttum og frá- sagnir af þeim viðburðum hafa heldur ekki birzt fyrr en í þriðjudagsblaði. Nú munu fréttir af viðburðum heima og heiman um helgar birtast á mánu- dögum eða sólarhring fyrr. Þetta er ekki sízt fagnaðarefni fyrir starfs- menn Morgunblaðsins sem hafa alla tíð talið mjög eftirsóknarvert að blað- ið kæmi út á mánudögum, þannig að ekki væri verið að skrifa á mánudög- um gamlar fréttir í þriðjudagsblað. Þjónusta blaðsins við lesendur mun batna að öðru leyti vegna þessara breytinga. Minningargreinar vegna útfara á mánudögum hafa birzt í sunnudagsblaði en munu nú birtast á útfarardegi eins og tíðkast aðra daga vikunnar. Útgáfa blaðsins sjö daga vikunnar styrkir stöðu blaðsins sem vettvangs fyrir almennar þjóðfélags- umræður, sem mikill fjöldi lands- manna tekur þátt í á ári hverju á síð- um Morgunblaðsins og svo mætti lengi telja. Með útgáfu Morgunblaðsins sjö daga vikunnar verður þjónusta við auglýsendur einnig aukin. Þeir eiga þess nú kost að birta auglýsingar í blaðinu alla daga vikunnar. Auk þess má minna á að á sl. ári var útgáfudög- um Morgunblaðsins fjölgað að öðru leyti með útgáfu á ýmsum frídögum, sem áður höfðu ekki verið útgáfudag- ar blaðsins. Árvakur hf. starfrækir annan fjöl- miðil, auk Morgunblaðsins, sem er netútgáfa blaðsins, mbl.is. Netútgáfa Morgunblaðsins nýtur mikilla vin- sælda og er ljóst að Morgunblaðið sjö daga vikunnar auk netútgáfu, sem er svo mikið notuð sem raun ber vitni, eru sameiginlega mjög fýsilegur kost- ur fyrir auglýsendur, sem vilja ná til breiðs hóps landsmanna. Hinn 2. nóvember sl. varð sú rót- tæka breyting á Morgunblaðinu, að innlendar fréttir voru færðar að hluta til á forsíðu blaðsins. Sú venja, að ein- göngu erlendar fréttir væru á forsíðu, var ekki eins gömul og margir héldu. Innlendar fréttir mótuðu mjög for- síðu blaðsins alveg fram undir 1970 og töluvert fram undir 1980 en þá að vísu vegna tveggja þorskastríða fyrst og fremst. Síðustu tvo áratugi hafa erlendar fréttir hins vegar verið yf- irgnæfandi á forsíðu blaðsins. Með útgáfu Morgunblaðsins sjö daga vikunnar og þeim breytingum, sem sl. haust voru gerðar á forsíðu þess, er ljóst að fréttaþjónusta blaðs- ins hefur verið efld og slagkraftur Morgunblaðsins hefur aukizt mjög. Það er von útgefenda Morgunblaðsins og starfsmanna þess, að lesendum blaðsins og auglýsendum muni þykja þessar breytingar nokkurt framfara- spor.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.