Morgunblaðið - 06.01.2003, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 35
var kosin til að gegna. Orð hennar um
að hún gefi ekki eftir þau sjálfsögðu
réttindi sem hún hafi eins og aðrir til
að setjast á lista og fylgja sinni póli-
tísku sannfæringu eru meðal annars
til vitnis um það.
Borgarstjóri ætlaði sér eins og hún
marglýsti yfir að vera hvort tveggja í
senn sameiningartákn og verkstjóri
Reykjavíkurlistans en jafnframt í
einhvers konar tímabundnu hluta-
starfi í framboði fyrir Samfylk-
inguna. Mér finnst ógeðfellt hvernig
hún beitti stöðu sinni og valdi og
reyndi að beygja og kúga samstarfs-
menn sína og samstarfsflokka Sam-
fylkingarinnar í kjölfar þess að skoð-
anakönnun leiddi í ljós að hún gæti
orðið til að þyngja heldur pundið í
Samfylkingunni. Það var auðvitað
fráleitt af henni að ætla að hinir
flokkarnir féllust á þessa ætlan henn-
ar og eðlilegt að þeir gerðu þá kröfu
að hún veldi á milli þess að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart þeim
og borgarbúum eða fylgja nýlega op-
inberri pólitískri sannfæringu sinni.
Hún verður sjálf að axla ábyrgðina af
vali sínu og þeirri forgangsröðun að
fórna borgarstjórastólnum fyrir
Samfylkinguna.
– Við höfum orðið margs vísari á
síðustu dögum. Ingibjörg Sólrún er
vissulega ekki öfundsverð af því
klúðri sem hún og Össur Skarphéð-
insson, svili hennar, hafa komið henni
í og vísast margt sem hún vildi hafa
látið ógert og ósagt. Ofan á annað
hefur hún á nýliðnum vikum sýnt af
sér slíkan pólitískan sjálfsbirgings-
hátt að gengur drambi næst. Hún vill
á þing og setja málefni borgarinnar á
dagskrá í kosningunum því … það
skorti umræðu og skilning hjá ráða-
mönnum á mikilvægi hennar fyrir
þjóðfélagsþróunina og Ísland á þess-
ari öld. Eftir kjördæmabreytinguna á
sveitarfélagið Reykjavík 22 þingsæti.
Treystir hún engum þeirra sem skipa
munu þau sæti til að tryggja umræðu
og auka skilning á mikilvægi Reykja-
víkur – ekki einu sinni þingmönnum
Samfylkingarinnar? Hún prísar á
hinn bóginn óflokksbundna óháða
borgarfulltrúa sérstaklega sem
„ … fólk sem hefur mikinn áhuga á
borgarmálum og vill leggja borgar-
málum lið og krafta sína. Hvað ætlar
hún öllum hinum borgarfulltrúunum?
Og Ingibjörgu Sólrúnu líkar ekki
heldur það sem hún segist á liðnum
vikum hafa séð til stjórnmálaflokk-
anna. Þeir virðast henni ekki þókn-
anlegir, jafnvel ekki Samfylkingin, en
Framsóknarflokkurinn, sem þó á
heiðurinn af því að bjarga Reykjavík-
urlistanum, finnst henni þó verstur.
Ég get fullvissað Ingibjörgu Sólrúnu
um að til bjargar Reykjavíkurlistan-
um var innan Framsóknarflokksins
unnið eftir leikreglum lýðræðisins í
víðtæku samráði við að leita lausna á
þeim vanda sem hún og formaður
Samfylkingarinnar skópu.
Brotthlaup Ingibjargar Sólrúnar
og atburðir undanfarinna tveggja
vikna vekja hvorki hjá mér ótta né
reiði. Ég finn fyrst og fremst til von-
brigða við að sjá á bak borgarstjóra,
sem ég til skamms tíma taldi verðuga
þess trausts er ég og svo margir aðrir
báru til hennar. Til komandi alþing-
iskosninga horfi ég hins vegar full
bjartsýni.
(Tilvitnanir eru í viðtal við ISG í
Mbl. 30. des. 2002.)
Höfundur er alþingismaður.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
www.starri.is
Sérhæfing í
Intel-vörum
Móðurborð - Örgjörvar
- Flatir skjáir
3ja ára ábyrgð