Morgunblaðið - 06.01.2003, Side 39

Morgunblaðið - 06.01.2003, Side 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 39 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Tannlæknastofa óskar eftir að ráða til starfa aðstoðarfólk. Umsækjendur þurfa að hafa til að bera hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og hlýtt viðmót. Um er að ræða aðstoð við sér- fræðing, móttökustarf og/eða gagnatöku. Umsóknum ásamt mynd ber að skila til auglýs- ingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: T—13159, fyrir föstudaginn 10. janúar. R A Ð A U G L Ý S I N G A R KENNSLA Leirmótun í Leirkrúsinni Ný námskeið á nýju ári  Handmótun byrjendur  Mótun á rennibekk  Upprifjun og annað nýtt Framhald í handmótun og mótun á rennibekk Helgar- dag- og kvöldtímar Upplýsingar á www.leir.is og í síma 564 0607. Leirkrúsin, Hákotsvör 9, Álftanesi. Kvöldskóli í Grafarvogi Innritun í kvöldskóla Borgarholtskóla verður eftirfarandi daga: mánudaginn 6. janúar frá 13—19 þriðjudaginn 7. janúar frá 10—19 miðvikudaginn 8. janúar frá 10—19 fimmtudaginn 9. janúar frá 10—19 föstudaginn 10. janúar frá 10—19 laugardaginn 11. janúar frá 10—14 Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir al- mennt bóknám og málmiðngreinar: DAN-102 BÓK-102 GRT-103 ENS-102 FÉL-102 GRT-203 ENS-202 EFM-212 ITM-213 ENS-212 ÍSL-102 ITB-allir áfangar ÍSL-102 ÍSL-202 TTÖ-102 STÆ-102 TÖL-102 VFR-102 STÆ-122 CAD-113 ÖRF-101 Einnig eru kenndar allar suðugreinar, s.s. MIG/MAG, TIG, log- og rafsuða. Allir áfangar í rennismíði eru kenndir, ásamt hand- og plötuvinnu. Ath: Einhverjir ofantalinna áfanga geta fallið niður náist ekki nægur fjöldi í hópa. Námið er ætlað málm- og véltækninemum en einnig eru almennar greinar opnar öllum sem vilja hefja framhaldsskólanám. Þeim sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum gefst hér einnig kostur á að bæta sig. Kennsla hefst mánudaginn 13. janúar og lýkur laugardaginn 10. maí. Innritunargjald er kr. 14.000 og til viðbót- ar kr. 1250 á hverja bóklega einingu og kr. 2500 fyrir hverja einingu í verklegum áföngum. Nánari upplýsingar á heimasíðu: www.bhs.is . Skólameistari. ÞJÓNUSTA Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum í uppslætti, þökum og klæðningum. Er með góð mót. Upplýsingar í síma 698 2261. ÝMISLEGT Hús skáldsins Sigurhæðir - Davíðshús Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri 1. Tvær skrifstofur í Sigurhæðum til boða þeim sem sinna vilja hvers konar orð- list í hvetjandi umhverfi. Leigjast gegn vægu gjaldi nokkrar vikur eða mánuði í senn. 2. Gestaíbúð í Davíðshúsi stendur skáldum, rithöfundum og öðrum lista- eða fræðimönnum til tímabundinnar dvalar gegn vægu þjónustugjaldi. Í umsóknum komi m.a. fram: a) stutt kynning á umsækjanda og verkum hans, b) að hverju umsækjandi hyggst vinna, c) æskilegt tímabil og tímaskeið dvalar. Umsóknarfrestur vegna afnota á árinu 2003 er til 20. janúar nk. Allar nánari upplýsingar veita forstöðumaður, Erlingur Sigurðarson, s. 462 6648; skaldhus@- akmennt.is, eða menningarfulltrúi, Þórgnýr Dýrfjörð, s. 460 1461; torgnyr@akureyri.is . mbl.is ATVINNA ✝ Heba OttósdóttirHertervig fæddist í Reykjavík 24. maí 1933. Hún lést á líkn- ardeild Landsspítalans 16. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ottó J. Ólafsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 7. mars 1902, d. 25. desember 1994, og kona hans Borghildur Ólafsdótt- ir, f. 16. október 1905, d. 11. október 1989. Systur Hebu eru Guðrún Sigríður, látin, og Helga Kristín. Heba giftist í febrúar 1956 Há- koni Hertervig arkitekt, f. 20. júní 1932, d. 16. júlí 2001. Hann var son- ur hjónanna Óla Jakobs Hertervig, bakarameistara og bæjarstjóra á Siglufirði, og Abelínu Guðrúnu Sig- urðardóttir. Börn þeirra Hebu og Hákons eru 1) Borghildur G Hert- ervig bankamaður, f. 25. október 1956, maki Ísleifur Friðriksson járnsmíðameistari, börn þeirra eru Bárður, f. 25. ágúst 1991, og Kári 17. febr- úar 1996. Synir Ísleifs frá áður eru Ragnar Már og Friðrik Rafn. 2) Óli Jón Hertervig tæknifræðingur, f. 14. desember 1958, maki Ingibjörg Gunnars- dóttir kennari, börn þeirra eru Svandís Rós Hertervig, f. 3. apríl 1980, Óli Hákon Her- tervig, f. 28. maí 1986, og Jón Gunnar Herter- vig, f. 30. júlí 1994. 3) Heba Herter- vig arkitekt, f. 21. júlí 1963, maki Sigurður Jónsson veðurfræðingur, börn þeirra eru Davíð Sigurðarson, f. 8. október 1985, og Snorri Sigurð- arson f. 28. ágúst 1989. Heba lauk verslunarskólaprófi og starfaði hjá utanríkisráðuneyt- inu þar til hún stofnaði heimili. Síð- ar vann Heba fyrir Menningarstofn- un Bandaríkjanna í rúm tuttugu ár. Útför Hebu var gerð í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Mig langar að minnast Hebu tengdamóður minnar með örfáum orðum. Þessi fíngerða kona með fal- legu brúnu augun var mér afar kær. Hún tók mér opnum örmum og sýndi mér ávallt ómetanlega ástúð og um- hyggju. Ég gleymi aldrei ástúðinni sem skein úr augum hennar þegar hún hélt á barnabörnunum sínum í fyrsta sinn. Henni þótti afar vænt um þau öll og fylgdist alltaf vel með því hvað þau voru að gera. Heba var félagslynd og átti fallegt heimili. Hún naut þess að hafa fólkið sitt og vini í kringum sig. Ógleyman- legar eru allar helgarnar þar sem fjölskyldan var saman komin við veisluborð. Öll aðfangadagskvöldin og áramótin. Þegar Hákon tengda- faðir minn lést fyrir rúmu ári síðan, missti Heba mikið því þau voru mjög náin. Söknuður hennar var sár en nú eru þau sameinuð á ný. Þau lifa í minn- ingunum og verða þannig alltaf ná- læg okkur. Ég kveð Hebu mína með sömu orðum og ég kvaddi Hákon. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Að lokum vil ég þakka öllum sem hjálpuðu og glöddu Hebu í veikindum hennar og sérstakar þakkir fær Hrund besta vinkona hennar. Ingibjörg Gunnarsdóttir (Inga tengdadóttir). Þegar við nú kveðjum Hebu Hert- ervig hvarflar hugurinn aftur í tím- ann. Við kynntumst Hebu fyrst, þegar Óli Hákon Hertervig, bróðir undirrit- aðrar, Ingu Dóru, kynnti okkur fyrir henni. Mun það hafa verið á árinu 1955. Þau gengu síðan í hjónaband í byrjun árs 1956. Bjuggu þau um tíma í Bandaríkjunum, en fluttu aftur til Ís- lands 1959, þegar Hákon lauk þar námi í arkitektur. Við vorum nágrannar um langt ára- bil í Kópavogi og nánast daglegur samgangur milli heimilanna. Þágum við gagnkvæm heimboð og var oft glatt á hjalla. Margar ferðir fórum við líka saman innanlands. Eru margar góðar minn- ingar frá þeim árum. Heba eignaðist marga vini og kunn- ingja, því að hún var mannblendin og viðræðugóð. Þessir eiginleikar komu sér vel við starf hennar hjá Menning- arstofnun Bandaríkjanna, þar sem hún vann um árabil, þar til sú stofnun var lögð niður hér á landi. Síðustu árin vann hún á Kjarvalsstöðum. Hjónaband Hebu og Óla Hákons var mjög ástríkt. Voru þau hjónin mjög samhent og samrýmd. Það var því mik- ið áfall fyrir hana þegar Hákon lést 16. júlí 2001 eftir langvarandi veikindi. Heba veiktist í byrjun þessa árs. Sýndi hún óvenju-mikið andlegt þrek og sálarró í baráttu sinni við ólækn- anlegt krabbamein. Aldrei heyrðist hún kvarta, þrátt fyrir þjáningar og vitneskju um að hverju stefndi. Í veikindunum var henni það þó mikil stoð, að börnin önnuðust hana af ein- stakri umhyggju og ástúð. Ennfrem- ur kom þá í ljós hve hún átti margar sannar vinkonur sem léttu henni mjög raunirnar síðustu mánuðina með umönnun og heimsóknum. Við viljum að lokum þakka Hebu fyrir vináttu og margar ánægju- stundir undanfarna áratugi. Börnum Hebu, barnabörnum og tengdafólki eru færðar innilegar samúðarkveðjur. Inga Dóra Hertervig og Agnar Gústafsson. HEBA OTTÓS- DÓTTIR HERTERVIG Margs er að minnast og margs er að sakna. Nú hefur Didda eins og hún var alltaf kölluð kvatt okkur. Við vorum bekkjarsyst- ur úr Menntaskólanum í Reykjavík og urðum stúdentar vorið 1948. Það fór mjög vel á með okkur. Hún var góð, skemmtileg, létt í skapi og stutt í hláturinn. Góður námsmaður var hún og mikil íþróttakona, enda hlaut KRISTRÚN J. KARLSDÓTTIR ✝ Kristrún J.Karlsdóttir fædd- ist í Keflavík 14. ágúst 1928. Hún lést í Sjúkrahúsinu á Húsavík 26. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Húsavíkur- kirkju 7. desember. hún titilinn sund- drottning Suðurnesja á unglingsárum, þegar hún átti heima í Kefla- vík. Hún kynntist eigin- manni sínum, Ásmundi Bjarnasyni, ættuðum frá Húsavík, fljótlega eftir að hún lauk námi og fluttust þau til Húsa- víkur, hvar hún bjó æ síðan. Didda sat ekki auðum höndum, því að hún kenndi við Framhaldsskólann á Húsavík og ól upp sex börn þeirra Ásmundar. Ég hef heyrt mjög vel látið af henni sem kennara. Fjarlægðin milli okkar var þó nokkur öll þessi ár en á hverju sumri fórum ég og fjölskylda mín í sum- arleyfi til Akureyrar í heimsókn til ættingja og vina og þá var leiðin til Húsavíkur orðin stutt. Nutum við hjónin þess að heimsækja þau Ás- mund í fallega húsið þeirra í hlíðinni. En allt hefur sinn endi. Á liðnu sumri hitti ég vinkonu mína á Reykjalundi, þar sem hún var sér til lækninga og heilsubótar. Þótt hún væri mikið veik og langt leidd var fallega brosið enn á sínum stað og dillandi hláturinn vantaði ekki. Það geymi ég með mér til minningar um þessa gömlu, góðu bekkjarsystur og vinkonu mína. Það var farið að halla af degi. Það fór ekki framhjá mér. Megi hún næð- is og hvíldar njóta. Blessun Drottins sé með henni. Eiginmanni og fjöl- skyldu sendi ég mínar innilegustu kveðjur. Ingibjörg Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.