Morgunblaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss og Árni Friðriksson
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lómur fer í dag. Selfoss
kemur til Straumsvíkur
í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Fé-
lagsvist kl. 14, sam-
söngur þriðjudag kl. 14.
Verslunarferð í Hag-
kaup miðvikudag kl. 10,
skáning í Aflagranda, s.
562 2571, kaffi í boði
Hagkaupa.
Opið hús fimmtudaginn
9. janúar kl. 19.30, spiluð
félagsvist.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofa, kl.
11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–12
bútasaumur, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–11
samverustund, kl. 13.30–
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13–16 bútasaumur.
Uppl. í s. 568 5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfing
kórs eldri borgara í
Damos.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerðastofan opin
frá kl. 10. Skrifstofan
Gullsmára 9 er opin kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 9 mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhald.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 10
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 9–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 9–
12 myndlist, kl. 13–16
körfugerð, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13–16 spilað,
kl. 10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Böðun kl. 9–
12, opin handavinnu-
stofan kl. 9–16.30, fé-
lagsvist kl. 14, hár-
greiðslustofan opin
9–14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið opnað í dag,
mánudaginn 6. janúar.
Pútt kl. 10, tréskurður
kl. 13 og félagsvist og
saumaskapur kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Línudans fyrir byrj-
endur kl. 18. Dans-
kennsla Sigvalda,
samkvæmisdansar
framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. Skrif-
stofa félagsins er í Faxa-
feni 12 sími. 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 15.15
dans hjá Sigvalda. Alla
virka daga er fjölbreytt
vetrardagskrá í boði.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–17, kl. 10.45, róleg
leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kynning verður á
starfseminni frá janúar
til maí miðvikud. 8. jan-
úar kl. 14.
Skráning á námskeið á
sama tíma. Leikfimin
byrjar í dag.
Opið frá kl. 9–17, heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, perlu-
saumur og fótaaðgerð,
kl. 10 bænastund, kl.
13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og föndur, kl. 13
spilað, kl 13.30 ganga,
fótaaðgerðir. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–11
ganga, kl. 9–15 fótaað-
gerð, kl. 9–12 myndlist,
kl. 9–16 opin handa-
vinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálning, kl.
9.15–15.30 alm. handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl. 10.30–11.30
jóga, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing. Lyfjafræð-
ingur á staðnum kl. 13
fyrsta og þriðja hvern
mánudag.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband, bútasaumur
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Gullsmárabrids – brids-
deild FEBK, Gullsmára.
Næst verður spilað
fimmtudaginn 9. janúar
kl. 12.45 á hádegi.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, félagsheimilið,
Hátúni 12. Kl. 19. brids.
Minningarkort
Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588 7555
og 588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi), 2. hæð, s.
552 2154. Skrifstofan er
opin miðvikud. og
föstud. kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er sím-
svari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861 6880
og 586 1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15.
Sími 568 8620. Bréfas.
568 8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minningar-
kort eru afgreidd alla
daga í s. 533 1088 eða í
bréfas. 533 1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: Í síma 588 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd
á skrifstofutíma í síma
552 4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfasími
562 5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafnar-
fjarðar (KH) er hægt að
fá í Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 64, 220
Hafnarfirði, s. 565 1630,
og á skrifstofu KH, Suð-
urgötu 44, II. hæð, sími
á skrifstofu 544 5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans, Kópa-
vogi (fyrrverandi Kópa-
vogshæli), síma
560 2700, og skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551 5941 gegn
heimsendingu gíróseð-
ils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565 5727.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í síma
588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Í dag er mánudagur 6. janúar, 6.
dagur ársins 2003. Þrettándinn.
Orð dagsins: Vakna þú, sál mín,
vakna þú harpa og gígja, ég vil
vekja morgunroðann.
(Sálm. 57, 9.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 letingja, 8 dulið, 9 hljóð-
færið, 10 aðgæti, 11 trjá-
gróðurs, 13 synja, 15
karlfugl, 18 uppgerðar-
veiki, 21 skúm, 22 borga,
23 rándýr, 24 skaplyndi.
LÓÐRÉTT:
2 blóðsugan, 3 gera rík-
an, 4 ávextirnir, 5 fingur,
6 foxillir, 7 elska, 12
nægilegt, 14 tré, 15 ham-
ingjusamur, 16 voru í
vafa um, 17 sögn, 18 list-
ar, 19 snúa heyi, 20 krota.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 kústs, 4 fimur, 7 lotin, 8 öngul, 9 der, 11 seig,
13 bann, 14 ætlar, 15 hass, 17 úlpa, 20 hné, 22 mælir, 23
tolla, 24 assan, 25 rósin.
Lóðrétt: 1 kólfs, 2 sótti, 3 sund, 4 fjör, 5 mugga, 6 rólan,
10 eklan, 12 gæs, 13 brú, 15 himna, 16 sulls, 18 lulls, 19
afann, 20 hrun, 21 étur.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur lengi taliðbagalegt að fá ekki að láta ljós
sitt skína á mánudögum. Hefur
hann fundið víða í samfélaginu að
margir eru sama sinnis. Er Víkverji
sjálfur handviss um að meginorsök
þess að ákveðið var að ráðast nú í
mánudagsútgáfu á Morgunblaðinu
sé sú að lesendur blaðsins hafi gert
eigendum þess ljóst að við svo búið
yrði ekki unað lengur; fólk vilji sinn
Víkverja með morgunkaffinu í upp-
hafi nýrrar viku og ekkert múður!
En frá og með deginum í dag geta
landsmenn semsé gengið að Vík-
verja vísum á mánudögum sem öðr-
um dögum. Í kaupbæti fá lesendur
síðan helstu fréttir, auk umfjöllunar
um menningu og listir, að ekki sé
talað um íþróttaúrslit helgarinnar.
x x x
VÍKVERJI er mikill áhugamað-ur um kvikmyndir. Þarf ekki
að hafa mörg orð um þá byltingu
sem hefur átt sér stað í bíómálum á
Íslandi undanfarin ár. Samt sem áð-
ur er Víkverji ekki viss um að þró-
unin hafi öll verið af hinu góða. Efa-
semdum um að við hefðum gengið
götuna til góðs skaut alltént upp í
huga hans er hann las bíósíðurnar í
Morgunblaðinu að morgni aðfanga-
dags. Víkverji gat nefnilega ekki séð
að hann hefði ýkja mikið val um það
hvaða mynd hann færi að sjá á öðr-
um degi jóla. Hringadróttinssaga
var sýnd í nánast hverjum bíósal í
borginni.
Víkverji tók sig til og taldi hversu
margar bíómyndir voru á boðstólum
yfir jólin, skv. aðfangadagsblaðinu.
Ekki var verið að sýna nema fimm-
tán bíómyndir í Reykjavík, jafnvel
þó að 26 bíósalir séu í borginni, skv.
útreikningum Víkverja. Hins vegar
komst Víkverji að raun um að skv.
Morgunblaðinu sunnudaginn 22.
desember 1991 var um 38 kvik-
myndir að velja fyrir bíóáhugamenn
þau jólin. Staðfestir þessi mjög svo
vísindalega rannsókn Víkverja (eða
þannig) þann grun hans, að þó að
myndirnar hafi áður fyrr ekki borist
jafnhratt til landsins þá var til
skamms tíma um öllu meiri fjöl-
breytni að ræða.
Það væri auðvitað synd og skömm
ef alger flatneskja yrði afleiðing bíó-
byltingarinnar, eða er ekki svo?
EITT er það sem setti svip sinn áárið 2002 framar öllu öðru: hin
vályndu veður í heimsmálunum. Þar
er vísað til hryðjuverkaógnarinnar,
átaka í Mið-Austurlöndum, spennu
á Kóreuskaganum og hugsanlegrar
hernaðarárásar Bandaríkjanna á
Írak. Ekki er útlit fyrir annað en að
sömu mál verði efst á baugi á nýju
ári, jafnvel enn frekar en á árinu
2002.
Það vakti því óneitanlega athygli
Víkverja að hvorki forseti landsins
né forsætisráðherra minntust á
þessi mál í áramótaávörpum sínum
til íslensku þjóðarinnar. Ekki sáu
þáttastjórnendur Kryddsíldar á
Stöð 2 og Silfurs Egils á Skjá einum
heldur ástæðu til að brydda upp á
þessu umræðuefni, svo neinu næmi,
þegar árið 2002 var gert upp á gaml-
ársdag.
Vissulega var eðlilegt að væntan-
legt þingframboð borgarstjórans í
Reykjavík bæri nokkuð á góma.
Getur samt ekki verið að menn hafi
misreiknað sig aðeins, er þeir lögðu
niður fyrir sér hvaða málefni skiptu
mestu máli á því herrans ári, 2002?
Frábært Skaup
MÉR fannst Áramóta-
skaupið vera alveg frábært.
Fyndin og skemmtileg
ádeila á atburði ársins
2002. Það er enn ein fjöðrin
í hatt þeirra Óskars, Hall-
gríms og Hjálmars og jafn-
gott og skaupið 2001. Það
er erfitt verkefni að
skemmta allri þjóðinni á
einni klukkustund en sumir
eru einfaldlega fæddir
spaugarar. Skaupið var
ekki einungis fyndið heldur
virkilega vel unnið og allur
leikur til fyrirmyndar.
Strákar, þið eruð æviráðn-
ir.
Valdimar Leó
Friðriksson.
Áramótaskaupið 2002
MÉR fannst Áramóta-
skaupið 2001 og 2002 frá-
bært. Skari skrípó stendur
sig alveg í stykkinu. Það á
að leyfa honum að sjá um
næsta skaup pottþétt. Það
var mikið af skemmtilegum
húmor og öllum í fjölskyld-
unni minni og vinnunni
minni fannst það frábært
og öll tóku þau undir að
skaupið væri frábært. Syst-
ur minni, sem kom alla leið
frá Danmörku, fannst það
alveg ómótstæðilegt. Mér
finnst að Skari skrípó og
allt samstarfsfólk og allir
sem komu að skaupinu eigi
að halda upp á þennan ár-
angur allhressilega og
hrósa sjálfum sér fyrir frá-
bæra vinnu. Því ef skaupið
er ekki gott er stór partur
af gamlárskvöldinu farinn á
haugana.
Takk æðislega fyrir að
gera gamlárskvöld kraft-
mikið og frábært.
Kveðja,
Engli úr firðinum.
Eldri borgara
afsláttur
VIÐ erum eldri borgarar í
Kópavogi og fórum í Hús-
dýragarðinn nýlega þar
sem við þurftum að borga
fullt gjald.
Við fengum sem sagt
ekki neinn eldri borgara af-
slátt þar sem við erum ekki
Reykvíkingar. Finnst okk-
ur að önnur sveitarfélög
ættu að styrkja þessa starf-
semi svo eldri borgarar úr
öðrum sveitarfélögum fái
afslátt eins og tíðkast á
mörgum opinberum stöð-
um. Finnst okkur þetta
mjög óréttlátt.
Sigríður.
Íslendingar
í New Jersey
ÉG er 20 ára og bý í New
Jersey og hef mikinn áhuga
á að komast í samband við
aðra Íslendinga búsetta
þar. Þeir sem hefðu áhuga
vinsamlega hafið samband í
tölvupósti: siggavald@vis-
ir.is eða í síma 856 3071106.
Sigríður
Valdimarsdóttir,
New Jersey.
Hvað þarf
mörg gull?
HVAÐ þarf Kristín Rós
mörg gull til að verða valin
íþróttamaður ársins? Er
það af því hún er bæði kona
og fötluð að hún hefur ekki
orðið fyrir valinu?
Ein reið.
Tapað/fundið
Gullarmband týndist
GULLARMBAND týndist
í ágúst, líklega við Hótel
Esju eða á Suðurlands-
braut/Lágmúla. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 617 6661. Fundarlaun.
Karlmannsúr
týndist
GROVA-karlmannsúr gull-
litað með gulllitaðri keðju,
týndist aðaranótt nýárs-
dags, sennilega nálægt
Hafnarstræti. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
588 8663 eða 692 6053.
Fundarlaun.
Svört kápa týndist
SVÖRT Mia-kápa týndist á
Sóloni á gamlárskvöld.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 866 9252.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli