Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÆRRI YFIRRÁÐUM
ORCA-hópurinn var mjög nálægt
því markmiði sínu síðastliðinn vetur
að ná yfirráðum yfir Íslandsbanka.
Ráðandi meirihluta tókst á síðustu
stundu að koma í veg fyrir það.
Þetta kemur fram í annarri grein af
fjórum í greinaflokknum Baráttan
um Íslandsbanka í blaðinu í dag.
Loðnuvertíð í fullan gang
Loðnuvertíðin er hafin af fullum
krafti út af Austfjörðum. Um 25 skip
eru nú á miðunum og var mokveiði
þar í gær og nokkur skip á landleið
með fullfermi. Freysteinn Bjarna-
son, útgerðarstjóri Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað, sagði vertíðina
lofa mjög góðu.
Deilt um komugjöld
BSRB og ASÍ gagnrýna þær
hækkanir á komugjöldum sjúklinga í
heilbrigðiskerfinu sem heilbrigð-
isráðherra tilkynnti í gær og segja
þær bitna á þeim sem minnst mega
sín. Heilbrigðisráðherra bendir hins
vegar á að komugjöld fyrir börn,
aldraða og öryrkja séu mun lægri en
fyrir almenna sjúklinga.
Sautján umsækjendur
Umsóknarfrestur um embætti
forstöðumanns Kvikmyndamið-
stöðvar Íslands rann út sl. föstudag.
Sautján umsóknir bárust.
Palestínumenn í farbanni
Ísraelsk stjórnvöld meinuðu í gær
sendinefnd palestínsku heimastjórn-
arinnar að sækja ráðstefnu í Lund-
únum um friðarhorfur fyrir botni
Miðjarðarhafs. Þau ákváðu enn-
fremur að loka þremur palest-
ínskum háskólum. Þessar ráðstaf-
anir Ísraelsstjórnar voru meðal
viðbragða hennar við skæðu sjálfs-
morðssprengjutilræði sem framið
var í Tel Aviv í fyrradag. 22 fórust
og 100 særðust.
Átján mánaða hernám
Í áætlunum Bandaríkjastjórnar
um það hvað taki við að afloknu
stríði við Írak, fari svo að til hern-
aðarátaka komi, er gert ráð fyrir
hernámi í að minnsta kosti 18 mán-
uði, réttarhöldum yfir hæst settu
mönnum Saddams Husseins og yf-
irtöku olíulinda, eftir því sem The
New York Times greindi frá í gær.
Þriðjudagur
7. janúar 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur
komið við í Sóltúni 26, hringt í síma 540 5000 eða sent
tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan
hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem
veitt er til allt að 25 ára gegn veði í fasteign.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 7,5% 8,5% 9,5% 10,5% 11,5%
5 ár 20.000 20.500 21.000 21.500 22.000
15 ár 9.300 9.800 10.400 11.000 11.700
25 ár 7.400 8.100 8.700 9.400 10.200
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Allt að 75%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
FR
JÁ
LS
I
FJ
Á
R
FE
ST
IN
GA
RBANKINN
1982–2002
ára
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Vandaðar
íbúðir
Háhýsi í
Reykjanesbæ 26
Inniíjörðinni
Þekkthúsvið
Öldugötu
Óvenjulegt hús í Bretagne 32
Stýrimanna-
skólinn 44
Í DAG er síðasti dagur til að skila
kauptilboðum í byggingarrétt á
nýjum lóðum í Grafarholti, sem
Reykjavíkurborg auglýsti útboð á í
síðustu viku. Um er að ræða bygg-
ingarrétt fyrir fjölbýlishús, raðhús
og parhús.
Fjölbýlishúsalóðirnar eru fjórar
með 12-52 íbúðum á lóð, raðhúsa-
lóðirnar eru níu með 3-5 íbúðum á
lóð og parhúsalóðirnar eru fimm
fyrir tvær íbúðir á lóð. Lóðirnar
eru allar byggingarhæfar nú þeg-
ar.
Fjölbýlishúsalóðirnar standa við
Kristnibraut, Þórðarsveig og Þor-
láksgeisla. en parhúsin við Þorláks-
geisla og Jónsgeisla og raðhúsin
við Þorláksgeisla og Biskupsgötu.
Byggingarrétturinn er boðinn út
til einstaklinga og fyrirtækja og
þarf hæstbjóðandi að vera reiðubú-
inn að leggja fram upplýsingar um
fjármál sín og áætlun um fjár-
mögnun framkvæmda við viðkom-
andi húsbyggingu, áður en afstaða
er tekin til tilboðs hans.
Sumar af þessum lóðum hafa
ekki verið auglýstar áður en sumar
hafa gengið til baka eftir fyrri út-
boð.
Viðbrögð við þessu útboði munu
væntanlega varpa ljósi á eftir-
spurnina eftir nýbyggingalóðum
nú, en lóðaútboð í Grafarholti hef-
ur ekki farið fram á vegum borg-
arinnar síðan sl. vor.
Reiknað er með að fyrir vorið
fari fram útboð á þeim lóðum, sem
eftir eru í austurhluta Grafarholts,
en eftir eru tvær lóðir fyrir fjöl-
býlishús, fimm lóðir fyrir raðhús
og síðan eru lóðir fyrir svokallaða
þyrpingu við Grænlandsleið, en það
eru fjórar íbúðir í parhúsum og
fjögur einbýlishús með aukaíbúð.
Hröð uppbygging
Íbúum í Grafarholti fer nú ört
fjölgandi, en um 1.000 manns eru
þegar sestir að í hverfinu og upp-
byggingin nú er það hröð, að gera
má ráð fyrir, að annar eins fjöldi
setjist að í hverfinu á þessu ári. Í
hverfinu eru bæði grunnskóli og
leikskóli.
Samgöngur til og frá hverfinu
eru líka allt aðrar og betri en áður
eftir að brú var lögð yfir Vest-
urlandsveg á móts við Víkurveg
með mislægum gatnamótum.
Útboð á lóðum í Grafarholti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikil uppbygging á sér nú stað í austurhluta Grafarholts. Byggingakranar og nýbyggingar, misjafnlega langt á veg komn-
ar, setja sinn svip á umhverfið, sem breytist að kalla með hverjum mánuðinum sem líður.
Uppdráttur af Grafarholti. Brúnlituðu reitirnir sýna þær lóðir, sem nú eru boðn-
ar út og bláu reitirnir þær lóðir, sem boðnar verða út fyrir vorið.
! "#
$!
"#
%&'()*
%&'
(
)* +
!
"#$% $
"$ $"&&'
,$-#."#
$!.**$
/0$12*
345"/ *
'0*0.6* *
7*12*
&$!8*
!
9#*:
$!9#*:
# *$-*
9#*:
$!9#*:
;
;
(
'$<( !$!*#
=$*.)0!$(>>>0*
=! .?*@;;A )
)
)
)
! !"+
! !#+
$%
)*
.?@A "+
,
"
-
.
'
&
/.
,$"-,
"01#
/
/010
,,1/
;;
2! 3
! $ '&$,"$
0$,$"&&'
7$!*"#
%!
$!!*
"
"
;
$ $ $ $
2003 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HVAÐ SEGJA GAMLIR REFIR UM LANDSLIÐIÐ? B2, B3
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
Kristján sagði við Morgunblaðið í gær aðhann hefði verið í miklu sambandi við
Danina að undanförnu. „Það eru mjög spenn-
andi hlutir að gerast í dönskum kvennahand-
bolta, félögin hafa góð fjárráð, áhuginn er mik-
ill og margir leikir sýndir í sjónvarpi.
Skovbakken/Brabrand ætlar sér stóra hluti
næsta vetur, liðið er sem stendur í fallsæti en
hefur styrkt sig mikið og kemst örugglega það-
an, og mun væntanlega leika undir nafni Århus
í framtíðinni. Danirnir hafa þrýst mjög á mig
um að svara tilboði þeirra en ég er fjölskyldu-
maður og þarf því að huga að ýmsu áður en ég
tek endanlega ákvörðun. Ég ætla því að gefa
mér lengri tíma,“ sagði Kristján. Haslum hefur
vegnað mjög vel undir stjórn Kristjáns í vetur.
Félagið lék í 1. deild fyrir áramót en vann sér
sæti í „millispili B“ og er þar í góðri stöðu. „Við
eigum góða möguleika á öðru tveggja efstu
sætanna og förum þá í úrslitakeppni með úr-
valsdeildarliðunum um norska meistaratitilinn,“
sagði Kristján.
Bækkelaget er í basli um þessar mundir, sit-
ur á botni úrvalsdeildarinnar. „Félagið hefur
bætt fjárhagsstöðu sína og er að fá til sín
sterka leikmenn, en það er sísti kosturinn af
þessum þremur að taka við Bækkelaget,“ sagði
Kristján Halldórsson.
GUÐRÚN Sigurðardóttir úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar fékk Sjómannabikarinn á Nýárssundi
fatlaðra barna og unglinga sem nú var haldið í
20. sinn. Guðrún fékk 629 stig fyrir 50 metra
baksund sem hún synti á 42,48 sekúndum.
Jóna Dagbjört Pétursdóttir úr ÍFR varð
önnur með 484 stig fyrir 50 metra flugsund
sem hún synti á 46,12 sekúndum og Hulda
Hrönn Agnarsdóttir, Íþróttafélaginu Firði í
Hafnarfirði, varð þriðja með 447 stig fyrir 50
metra bringusund sem hún synti á 1.01,22.
Sjómannabikarinn er bikar sem Sigmar Óla-
son, sjómaður á Reyðarfirði, gaf til þessa móts
fyrir tveimur áratugum.
Þrjú Íslandsmet féllu á mótinu. Jóna Dag-
björt setti Íslandsmet þegar hún synti 50
metra baksund á 45,14 sekúndum. Pálmi Guð-
laugsson, Firði, setti tvö Íslandsmet, fyrst er
hann synti 50 metra baksund á 1.02,18 og síð-
an þegar hann synti 50 metra með frjálsri að-
ferð á 45,13.
Á myndinni eru Jóna Dagbjört, Guðrún og
Hulda Hrönn ásamt Kristínu Rós Hákonardótt-
ur.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún hlaut Sjó-
mannabikarinn Kristján á leið
til Danmerkur?
KRISTJÁN Halldórsson handknattleiksþjálfari, sem stýrir karlaliði Haslum í Noregi, er með
þrjú tilboð í höndunum. Danska félagið Skovbakken/Brabrand vill fá hann til að taka við
kvennaliði sínu fyrir næsta tímabil, Haslum vill halda honum og þá hefur honum verið boðið
að taka við kunnasta kvennaliði Noregs, Bækkelaget.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Listir 30/31
Viðskipti 17 Viðhorf 30
Erlent 18-20 Minningar 33-37
Höfuðborgin 21 Kirkjustarf 37
Akureyri 22 Bréf 40
Suðurnes 23 Dagbók 42/43
Landið 24 Kvikmyndir 46
Neytendur 24 Fólk 46-49
Menntun 25 Ljósvakar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
ÞRJÁR íslenskar óperusöngkonur
sungu öll þrjú aðalkvenhlutverk í
óperu Mozarts, Töfraflautunni, á
nýársdag í Óperunni í Wiesbaden í
Þýskalandi. Þóra Einarsdóttir var
í hlutverki Paminu, Hlín Péturs-
dóttir var í hlutverki Papagenu og
Sigrún Pálmadóttir í hlutverki
Næturdrottningarinnar. Það fer
gott orð af íslenskum söngvurum í
Wiesbaden og fjölmargir íslenskir
söngvarar hafa verið ýmist fast-
ráðnir þar eða sungið sem gestir.
Fyrir nokkrum árum sungu þeir
Viðar Gunnarsson, Kristinn Sig-
mundsson og Gunnar Guðbjörns-
son allir í sömu sýningu þar, þegar
þeir voru fastráðnir við húsið.
Þóra Einarsdóttir segir að sýn-
ingin á nýársdag hafi gengið mjög
vel, og það hafi verið sérlega gam-
an að hafa íslenskar vinkonur sín-
ar með sér á sviðinu. „Þetta var
alveg rosalega gaman og fólki hér
í húsinu fannst þetta mjög sér-
stakt. En það er svosem ekkert
nýtt að maður sé spurður að því
hvað valdi því að svo margir
söngvarar komi frá Íslandi, sér-
staklega ekki hér í Wiesbaden þar
sem svo margir Íslendingar hafa
sungið.“ Þóra segir að tveir karl-
anna í aðalhlutverkum hafi verið
frá Þýskalandi og einn frá Sviss,
og því er augljóst að Ísland átti
fjölmennasta hópinn í aðal-
hlutverkum í Wiesbaden þetta
kvöldið.
Sigrún Pálmadóttir tekur undir
orð Þóru um að sýningin hafi
gengið mjög vel. „Það var mjög
skemmtilegt að vera svona þrjár
saman, og það skapaði líka góða
stemmningu. Viðar Gunnarsson
kom á sýninguna með konunni
sinni, af því tilefni að við vorum
þrjár að syngja, en hann býr hér.
Óperan í Wiesbaden virðist draga
að sér Íslendinga og þá alltaf að
minnsta kosti nokkra í einu,“ segir
Sigrún, og bætir því við að þótt ís-
lenskir óperusöngvarar séu orðnir
margir í erlendum óperuhúsum,
þá hafi þetta verið viðburður sem
gerist ekki á hverjum degi.
Hlín Pétursdóttir segir að sýn-
ingin á nýársdag hafi verið alveg
sérstaklega hátíðleg, og að það
hafi haft sitt að segja að vera með
Þóru og Sigrúnu á sviðinu. „Það
voru allir í hátíðarskapi og sýn-
ingin tókst alveg glimrandi vel.
Það var heldur ekki verra að hafa
Viðar í salnum. Það er eiginlega
með ólíkindum að við skulum hafa
náð þessu; Ísland er á við smáborg
hér í Þýskalandi, og það þætti frá-
leitt í 260 þúsund manna borg hér
að hægt væri að manna þrjú aðal-
hlutverk með heimafólki. En ís-
lenskir óperusöngvarar eru hér
alls staðar; í Regensburg, Nürn-
berg, München, Frankfurt, Bonn,
Berlín og Wiesbaden og svona
mætti halda lengi áfram ef lausa-
fólkið er talið með.“ Hlín hefur áð-
ur sungið með tveimur Íslend-
ingum í sýningu. Það var árið
1999 í Bonn, þegar Viðar Gunn-
arsson og Ólafur Árni Bjarnason
sungu með henni í Boris Godunov
við óperuhúsið þar í borg.
Íslensk-
ar dívur
í Wies-
baden
Pamína, Næturdrottningin og Papagena. Þóra Einarsdóttir, Sigrún Pálmadóttir og Hlín Pétursdóttir.
RAGNHILDI Jónsdóttur brá held-
ur betur í brún á nýársdag þegar
hún sá tvo svarta hrafna hamast
við að hrekja hvítan hrafn frá
gamla frystihúsinu á Stokkseyri
en þar hjá höfðu þeir fyrrnefndu
áður gert sér hreiður.
„Þetta var alveg stórkostleg
sjón og ég er ekki alveg búin að
ná þessu ennþá,“ segir Ragnhild-
ur, sem er meðhjálpari á Stokks-
eyri. Hún var á leiðinni út í kirkju
á nýársdag þegar hún varð vör
við undarleg læti í hröfnum sem
voru á vappi við frystihúsið.
„Maður fylgist nú alltaf svolítið
vel með hröfnunum af því að þeir
boða alltaf eitthvað sérstakt,“
segir hún. „Ég fór því að athuga
hvað var í gangi og þá sátu þar
tveir hrafnar sem höfðu verpt
þarna í hreiður í sumar og fyrra-
sumar. Ég hélt fyrst að góða
veðrið hefði ruglað svona náttúr-
una í þeim en svo fór ég að horfa
á þá betur og trúði ekki mínum
eigin augum að sjá þarna hvítan
hrafn. Mér datt ekki í hug að
þetta væri til.“
Hún segir svörtu hrafnana tvo
hafa elt hinn hvíta meðbróður
sinn og rekið hann í burtu enda
hafi hann verið á þeirra svæði.
„Svo flaug hann yfir þakið á
kirkjunni og þá kom að hrafnager
sem hélt áfram að flæma hann í
burtu og á endanum flaug hann í
vesturátt.“
Með hvítan gogg
Að sögn Ragnhildar var fuglinn
ekki bara hvítur á skrokkinn
heldur var goggur hans einnig al-
hvítur. Hún segist hafa spurst fyr-
ir um það hjá þeim sem þekkja til
fugla, m.a. hjá Náttúrufræðistofn-
un, hvort þetta gæti verið rétt hjá
sér og fengið þær upplýsingar að
hvítir hrafnar væru vissulega til
þótt þeir væru sjaldséðir eins og
segir í máltækinu. „Enda er
hrafninn engum líkur þannig að
það er ekki hægt að taka feil á
þessu.“
Hún segist strax hafa farið að
hugsa um hvort það boðaði eitt-
hvað að sjá tvo svarta hrafna
slást við hvítan hrafn á nýársdag.
„Ég er nú að vona að það boði
mér gæfu að sjá þetta en ég hef
ekki komist að niðurstöðu með
það,“ segir Ragnhildur.
Hvítur hrafn í
harðri baráttu
PÁLL Halldórsson, formaður upp-
stillingarnefndar Samfylkingarinnar
í Reykjavík, segir að uppstillingar-
nefnd muni ekki hafa frumkvæði að
því að færa til þá átta einstaklinga
sem lentu í efstu sætum prófkjörs
Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ef
hliðrað verður til á listanum vegna
innkomu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, fráfarandi borgarstjóra,
verði frumkvæðið að koma frá þeim
sem hlutu kosningu í prófkjörinu.
Þeir hafi áunnið sér valrétt til að
taka sæti á listanum.
Páll segir að ekki sé búið að
ákveða hvenær fundur í fulltrúa-
ráðinu verði boðaður til að sam-
þykkja framboðslista Samfylkingar-
innar í Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur.
„Mér sýnist að það geti orðið fljót-
lega og dragist ekki lengi. Við tökum
okkur þann tíma sem við þurfum,“
sagði Páll, spurður um hvenær hann
reiknaði með að boða fulltrúaráðið
saman. Hann segir hræringar sem
urðu í pólitíkinni í Reykjavík fyrir
áramót hafa tafið þetta ferli. „Ég
ætla að gefa þessu þann tíma sem
þarf.“
Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík
Hefur ekki frumkvæði
að því að færa menn til
EIGENDANEFND Landsvirkjun-
ar hefur skilað af sér skýrslu um
Kárahnjúkavirkjun og þá arðsemis-
útreikninga sem fram hafa farið hjá
fyrirtækinu vegna verkefnisins.
Nefndin sat á fundi í allan gærdag og
lauk störfum seint í gærkvöldi.
Skýrslan verður ekki gerð opinber
fyrr en að loknum fundum ríkis-
stjórnarinnar, borgarráðs Reykja-
víkur og stjórnar Landsvirkjunar,
sem fram fara í dag.
Nefndina skipuðu Friðrik Már
Baldursson hagfræðingur, sem er
fulltrúi ríkisins, Sigurður Ármann
Snævarr borgarhagfræðingur, skip-
aður af Reykjavíkurborg, og Arnar
Árnason endurskoðandi, sem var
fulltrúi Akureyrarbæjar. Nefndinni
var ekki ætlað að koma með sjálf-
stæða arðsemisútreikninga á Kára-
hnjúkavirkjun heldur að fara yfir þá
útreikninga sem Landsvirkjun hefur
látið gera og kanna forsendur þeirra.
Stjórn Landsvirkjunar kemur aft-
ur saman á föstudag til að fjalla um
hvort forstjóra fyrirtækisins verði
gefin heimild til að skrifa undir raf-
orkusaminga við Alcoa.
Skýrsla eig-
endanefndar
kynnt eigend-
um LV í dag
ÞEIR sem greiddu afnotagjald
Ríkisútvarpsins með gíróseðli á
síðasta ári fengu endurgreitt
gjald, sem lagt var á þá vegna
kostnaðar, nú í janúar. Þor-
steinn Þorsteinsson, forstöðu-
maður markaðssviðs RÚV,
segir að afnotagjald hvers og
eins hafi verið lækkað til sam-
ræmis við gírógjald, sem lagt
var á hvern gíróseðil, sem send-
ur var út.
Í áliti umboðsmanns frá því í
mars á síðasta ári segir að út-
sending gíróseðla til greiðenda
afnotagjalda sé liður í því að
innheimta lögbundin gjöld. Ef
almenningur eigi að standa
undir kostnaði vegna þáttar,
sem teljist til almenns rekstrar
opinberrar stofnunar, þurfi að
mæla fyrir slíkri skyldu með
sérstakri lagaheimild.
Álit frá umboðsmanni
Að sögn Þorsteins var hætt
að innheimta þetta gírógjald í
haust eftir að umboðsmaður Al-
þingis komst að þeirri niður-
stöðu að það væri ekki heimilt
samkvæmt lögum. Þeir sem
greiði með gíróseðli í dag fái
sendan greiðsluseðil fjórum
sinnum á ári og greiði afnota-
gjald fyrir þrjá mánuði í senn.
Greiðsluseðlarnir séu sendir út
í upphafi hvers tímabils en
frestur til að greiða gjaldið sé
einn og hálfur mánuður. Þann-
ig reyni RÚV að mæta þeim,
sem kjósa þennan greiðslu-
máta, á miðri leið. Ekkert
aukagjald er innheimt. Eftir
sem áður er afnotagjald þeirra,
sem greiða með beingreiðslum
eða greiðslukorti, gjaldfært
mánaðarlega.
Þorsteinn segir að áður hafi
greiðsluseðlar verið sendir út á
tveggja mánaða fresti. Með
þessu nýja fyrirkomulagi dragi
úr kostnaði þar sem seðlarnir
séu sendir sjaldnar út.
Gírógjald
RÚV end-
urgreitt