Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 49 Kvimyndir.is Sýnd kl. 9. E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I DV ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK Sýnd kl. 4, 5.45, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. Vit 496 ÁLFABAKKI KRINGLAN KEFLAVÍK AKUREYRI EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.45, 8 og 10.10. B. I. 16. VIT 497. Hún var flottasta pían í bænum Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! RadíóX Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Vit 487 ÁLFABAKKI KEFLAVÍK Sýnd kl. 3.45 og 5.45. Vit 485 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 7. Vit 494  1/2 Kvikmyndir.is 04.01. 2003 4 6 1 6 0 7 4 4 1 8 4 5 6 16 38 13 01.01. 2003 7 17 25 32 35 43 34 39 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. … RONAN Keating hefur árangurs- laust reynt að fá Oasis-bræðurna Liam og Noel til að samþykkja bón sína um að fá að syngja lag þeirra, „Cigarettes and Alcohol“ á næstu plötu sinni. Svarið er þvert nei og Gallagher-bræður töldu þetta vera grín. Er þetta tilraun til að grófpússa glansímynd þá sem Keating hefur en hann mun dvelja í Ástralíu næsta hálfa árið við upptökur á næstu plötu sinni og á nú að gera tilraun til að ráð- ast inn á Bandaríkjamarkað. Meðal annars hefur hann samið nokkur lög í félagi við Bryan Adams … Svo virðist sem Christina Aguilera, sem eins og Keating vill rokkaðri ímynd, fari full- geyst í þeim mál- um. Þannig hefur fjölskylda hennar lýst yfir þungum áhyggjum af áfengisneyslu og partílíferni Aguil- era sem um þess- ar mundir er næsta stjórnlaus. Frændi hennar Johann hefur beðið hana opinberlega að hugsa sinn gang en lífið hefur ekki beinlínis leikið við söngkonuna und- anfarið þrátt fyrir frægð og frama, m.a. fékk hún taugaáfall á dögunum. Aguilera er ekki nema 22 ára … Elt- on John hefur boðið Eminem að gista hjá sér og kærasta sínum, Dav- id Furnish. Elton kom öllum að óvör- um er hann söng dúett með rapp- aranum snemma árs 2001 á Grammy-verðlaunahátíðinni. „Hann er algert yndi og ég dáist að honum,“ segir Elton. „Hann er afar hæfileikaríkur.“ … Mynddiskaútgáfa af Hringadróttinssaga: Föruneyti hringsins, sem er fyrsti kafli þríleiks- ins, hefur slegið Bretlandsmet í sölu á þess háttar formum – og ryður þar með Titanic af toppnum. Tvær og hálf milljón eintaka seldist fyrstu vikuna. Radiohead er búin að taka upp nýja plötu og það aðeins á átta vikum. Þetta var gert til að forðast sams konar tafir og urðu á vinnslu tveggja síðustu platna, Kid A og Amnesiac. Nú á bara eftir að hljóðblanda plöt- una og verður það gert í vor … Það eru gömul brýni sem eru að hala inn aura af tónleikahaldi vestur í Banda- ríkjunum, ekki þeir ungu og fersku. Aðdáendur munar ekki um að punga út háum fjárhæðum til að sjá goðin sín en vinsælir listamenn eins og Paul McCartney, Rolling Stones og Cher settu tiltölulega hátt verð á miða sína og það dæmi virðist vera að ganga upp. FÓLK Ífréttum ÞÆR ERU fáar kvikmyndirnar sem beðið hefur verið með eins mikilli eftirvæntingu og þriðja myndin í Tortímanda-röðinni. Svo óþreyjufullir hafa þeir verið, unn- endur myndanna tveggja sem komnar eru, að heill hellingur af handritstillögum að söguþræði þriðju myndarinnar er fáanlegur á Netinu enda velta menn mjög svo vöngum yfir því hvað gerist næst í þessari óborganlega fjarstæðu- kenndu sögu af eilífu stríði manna og véla í fortíð, nútíð og framtíð. Tökum lauk í september á síð- asta ári á þriðju myndinni sem mun heita Rise of the Machines og liggja nokkur atriði fyrir – loks- ins. Í fyrsta lagi mun Arnold Schwarzenegger endurtaka sitt frægasta hlutverk sem sjálfur Tor- tímandinn. En þar með eru upp taldir leikararnir sem komu fram í fyrri myndunum. Nýir leikarar eru Nick Stahl (In the Bedroom, Man Without A Face), sem mun leika John Connors 25 ára gaml- an, Claire Danes (Romeo + Juliet) og nýstirnið Kristanna Loken sem mun leika nýjustu ógnina, T-X, fullkomnara vélmenni en áður hef- ur komið fram í myndunum. James Cameron leikstýrir ekki þriðju myndinni, líkt og þeim fyrri, heldur hefur hann látið stól- inn sinn eftir Jonathan nokkrum Mostow, sem hefur getið sér gott orð fyrir Breakdown og U-57. Og svo er það mál málanna, sagan sem svo mikið hefur verið skrafað og skrifað um. Hún ku vera eitthvað á þá leið að þráð- urinn er tekinn upp áratug eftir að John Connor hjálpaði Tortím- andanum að koma í veg fyrir Dómsdaginn (í annarri myndinn) og bjarga þannig mannkyninu frá gereyðingu. En hann er samt ennþá á stöðugum flótta undan Skynet – þessu háþróðaða neti vél- menna sem komu úr framtíðinni í því skyni að koma honum fyrir kattarnef og fyrirbyggja þar með uppreisnina sem hann á eftir að stjórna. Flókið? Vissulega. En ekki fyrir innvígða unn- endur Tortímand- ans. Þeir vita vel hvað klukkan slær og þeir fá líka nett áfall þegar háþró- aðri vél úr framtíð- inni (T-X) tekst loks- ins að hafa upp á Connor og að þessu sinni er kvenfeg- urðin eitt hættuleg- asta vopnið. Og að sjálfsögðu er Tor- tímandinn eina von Connors og er mættur á svæðið áð- ur en Schwarzen- egger getur sagt Kennedy. Gríðarlegu púðri hefur verið eytt í að The Rise of the Machines uppfylli væntingar og segir sagan að framleiðslukostnaður sé kom- inn upp í 170 milljónir dala, 13 milljarða króna, sem gerir hana að einni dýrustu mynd sögunnar. Það sést svo í sumar hvort aur- unum hefur verið vel varið en myndin verður frumsýnd vest- anhafs 2. júlí og hér heima 18. þess mánaðar samkvæmt nýjustu upplýsingum. Terminator 3: Rise of the Machines Vélarnar vakna Kristanna Loken í hlutverki vélmennisins ógurlega T-X eða Terminatrix.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.