Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 23 JÓLIN voru kvödd á þrettándagleði í Reykjaneshöll í gærkvöldi og álfa- brennu og flugeldasýningu á Iða- völlum. Reykjanesbær stóð fyrir þrettándagleðinni sem var með hefðbundu sniði. Yngsta kynslóðin fjölmennti í Reykjaneshöllina seinnipart dags til þess að fá andlitsmálun og hoppa í hoppukastölum sem bærinn hafði sett þar upp. Ekki spillti heldur fyr- ir að fá hressa sveiflutóna frá Létt- sveit Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar, sem sá um að hita fólk upp fyrir þrettándagleðina, ásamt fé- lögum úr Leikfélagi Keflavíkur sem skemmtu yngstu kynslóðinni. Rétt áður en kveikt var á álfabrennunni við Iðavelli fóru íbúar Reykjanesbæjar og aðrir gestir í skrúð- göngu ásamt Grýlu, Leppalúða og öðru jólahyski sem vildi kveðja áður en haldið yrði heim á leið. Gönguna leiddi álfakónur og álfadrottning, ásamt fylgdarliði þeirra og þegar komið var að bálkestinum var boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá. Meðal annars voru sungin áramóta- og þrettándalög. Margir Suðurnesjamenn mættu þrátt fyrir að ekki hafi viðrað til útiskemmtana fram eftir kvöldi. Raunar rættist úr veðrinu áður en kveikt var í brennunni. Að venju voru jólin í Reykja- nesbæ kvödd með veglegri flug- eldasýningu á vegum Björg- unarsveitarinnar Suðurnes við mikla hrifningu brennugesta. Jólin kvödd á viðeigandi hátt Ljósmynd/Hilmar Bragi Ýmsar furðuverur, þessa heims og annars, voru við álfabrennuna á Iðavöllum í Keflavík í gærkvöldi. Reykjanesbær Drengirnir náðu sér í stríðsmálningu áður en haldið var til brennu. NÝ mynd mánaðarins hefur verið sett upp í Kjarna, Hafnargötu 57 í Keflavík. Listamaður þessa mánaðar í Reykjanesbæ er Steinar H. Geir- dal. Mynd mánaðarins er kynning á myndlistarmönnum í Reykjanesbæ sem menningar-, íþrótta- og tóm- stundasvið bæjarins annast. Hver mynd er til sýnis í Kjarna í mánuð. Steinar H. Geirdal er fæddur í Reykjavík árið 1938 og ólst þar upp. Hann hóf störf hjá Keflavíkurbæ ár- ið 1972 og hefur búið í Reykjanesbæ síðan. Steinar lauk námi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og síð- an í byggingarfræði frá Bygnings- konstruktörskolen í Kaupmannahöfn árið 1966. Hann vann sem byggingarfulltrúi hjá Keflavíkurbæ 1972 til 1984 en opnaði þá teiknistofuna Artik í Reykjanesbæ og hefur rekið hana síðan. Fram kemur í fréttatilkynningu frá menningarfulltrúa að Steinar hóf nám í myndlist árið 1976 hjá Eiríki Smith í Baðstofunni, félagi áhuga- fólks um myndlist í Reykjanesbæ, og var þar næstu tíu árin. Hann sótti einnig ýmis námskeið hjá Myndlist- arskóla Reykjavíkur frá 1987 og voru kennarar hans þar m.a. Val- gerður Bergsdóttir, Katrín Briem, Hringur Jóhannesson og Daði Guð- björnsson. Steinar hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum á vegum Baðstofunn- ar og nemendasýningum á vegum Myndlistarskóla Reykjavíkur. Hann hefur einnig haldið einkasýningar bæði í Keflavík og Kaupmannahöfn. Steinar Geirdal er í upphafshópi Baðstofunnar sem hlaut menningar- verðlaun Reykjanesbæjar árið 2002. Steinar Geirdal myndlistarmað- ur mánaðarins Reykjanesbær Steinar Geirdal við mynd janúarmánaðar. GLEÐIÓP barst út þegar fjórir jóla- sveinabræður birtust á sviðinu í Stapa sl. sunnudag. Þá fór fram ár- legt jólaball Sparisjóðsins í Keflavík en á það er öllum meðlimum í krakkaklúbbnum boðið. Króni og Króna dönsuðu með krökkunum í kringum jólatréð. Rúsínan í pylsu- endanum var svo sælgætispokinn sem hvert barn fékk afhent. Birgitta Hallgrímsdóttir var greinilega ekki hrædd við Giljagaur og settist í kjöltu hans. Skyldi hann vera að segja: hittumst að ári? Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Hittumst að ári Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.