Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. kl. 5.30 og 9. DV RadíóX Sýnd kl. 5, 6.30, 8 og 10. B.i.12. “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL YFIR 57.000 GESTIR Sýnd kl. 6, 8 og10 DV RadíóX “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i Sýnd kl. 5.45. B.i. 12 ára YFIR 57.000 GESTIR ALLIR sem hafa horft eitthvað að ráði á tón- listarsjónvarpsstöðina MTV þekkja Trevor Nelson. Þessi geðþekki Breti sér um þáttinn The Lick, þar sem spiluð er nýjasta r&b- og hipphopp-tónlistin. Á laugardagskvöldið verður haldin dansveisla á vegum The Lick á skemmtistaðnum Broad- way í Reykjavíkinni og kemur Trevor af því til- efni hingað til lands. Hann verður ekki einn á ferð heldur kemur um 12 manna hópur frá MTV með honum. Myndatökumenn eru að sjálfsöguðu með í för og verða herlegheitin tek- in upp og sýnd í þættinum The Late Lick tveimur vikum síðar. Trevor er gestgjafi kvöldsins og hann verður einnig plötu- snúður. Með honum verða tveir plötusnúðar til viðbótar, Dodge og Hanif, gamlir félagar hans, er mæta til leiks í Lick-partý að venju. Tækifæri til að sjást á MTV „Við spilum mikið hipphopp í þessum partýjum. Það er það sem virkar vel á klúbbunum. Við spilum auðvitað líka r&b,“ segir Trevor og útskýrir að gott andrúmsloft sé venjulega ráðandi. „Fólk er alltaf í svo góðu skapi því það fær tækifæri til að sjást á MTV,“ grínast hann. Trevor er ánægður með hvað þátturinn hefur notið mikilla vinsælda, ekki síst á Norð- urlöndum, en um þessar mundir eru fimm ár síðan þátturinn fór fyrst í loftið. Hann segist hafa velt fyrir sér strax í upphafi hvernig hægt væri að gefa almenningi tækifæri til að taka þátt í sjónvarpsþætti. Fyrir honum var svarið að ferðast um og halda partý. „Sjónvarp getur verið svo fjarlægt þrátt fyrir að það sé í stofunni hjá þér eða svefn- herberginu. Ég hef alltaf verið plötusnúður. Partýin eru leið mín til að ná til fólksins og til að láta vita af þættinum,“ segir Trev- or og bætir við að þau hafi gengið vel frá upphafi. Hann hefur mikla reynslu af plötusnúðastarfinu og af því að skipuleggja uppákomur sem þessar. Trevor var lengi plötusnúður hjá út- varpsstöðinni Kiss FM og starfar nú hjá BBC Radio 1. Leynigestur með í för Hann stendur fyrir Lick- dansveislum um það bil einu sinni í mánuði. Hann hefur oft ferðast um Bretland í þessum tilgangi en hygg- ur nú á frekari Evrópuferðalög. Hann segist eiga marga vini í Noregi og Danmörku, sem áreiðanlega eigi eftir að verða móðgaðir yfir að hann skuli heimsækja Ísland á undan þeim. Leynigestur slæst alltaf í för með Trevor í þessar uppákomur, einhver tónlistarmaður. Hann hefur bæði verið með þekkt tónlistarfólk í heimsókn hjá sér sem og nýja listamenn. Ekk- ert er látið uppi um hver tónlistarmaðurinn með óvæntu uppákomuna verður að þessu sinni frekar en venjulega. Þess má ennfremur geta að í tilefni Íslands- fararinnar var efnt til leiks á vef MTV í Bret- landi en vinningurinn var ferð fyrir tvo hingað og að sjálfsögðu miðar á Lick-partýið. Spáð í spilin í tónlistinni Trevor er ánægður með tónlistarárið sem er að líða. Aðspurður segist hann spá því hvað vin- sældatónlist varðar að Justin Timberlake eigi eftir að gera það gott. „Hann er mjög hæfi- leikaríkur. Það eina sem ég get gagnrýnt hann fyrir er að aðdáun hans á Michael Jackson er of augljós. En hann kemst upp með það því hann hefur hæfileikana,“ segir hann og hlær. Trevor ræðir velgengni Ms. Dynamite á síð- asta ári en er ekki viss um að ný stórstjarna í r&b-heiminum komi fram í Bretlandi á þessu ári. Hann bendir þó á að tilraunastarfsemi í tónlist sé alltaf við lýði. „Fólk er alltaf að prófa sig áfram og reyna eitthvað nýtt hérna. Þetta er ekki eins og í Bandaríkjunum þar sem hægt er að slá því föstu að ef um er að ræða hæfi- leikaríka unga svarta manneskju fæst hún við r&b eða hipphopp,“ segir hann en óhætt er að taka mark á orðum þessa manns, sem tímaritið Muzik kallaði eitt sinn „áhrifamesta mann innan svarta tónlistargeirans í Bretlandi“. Hann á afmæli í dag … „Þetta á eftir að verða mjög skemmti- legt. Ég hlakka mjög til og tökuliðið líka. Það eru allir svo spenntir að komast til Ís- lands,“ segir Trevor. Hann verður þó svekkt- ur þegar hann fréttir af snjóleysinu sem hefur „hrjáð“ höfuðborgarbúa í vetur og óskar þess heitt að það snjói fyrir helgina. Kannski fær Trevor Nelson snjókomu í af- mælisgjöf en hann á einmitt afmæli í dag. „Ég held nú sjaldnast sérstaklega upp á það. Ætli ég verði ekki bara að fagna þeim mun meira á Íslandi um helgina!“ Vonandi að Íslendingar flykkist á Broadway til að dilla sér með Trevor og félögum hans á laugardaginn við taktfasta tónlist. Til hamingju með daginn Trevor! MTV-dansveisla á Broadway Vill snjókomu í afmælisgjöf Trevor Nelson er þekktur þáttastjórnandi á sjónvarps- stöðinni MTV. Inga Rún Sig- urðardóttir ræddi við hann um fyrirhugaða Íslands- heimsókn og dans- veislu á vegum þáttar hans, The Lick. TENGLAR ........................................................................ www.mtv.co.uk ingarun@mbl.is The Lick-partý á Broadway laugardagskvöldið 11. janúar. Húsið opnað kl. 23. Miðaverð er 1.800 krón- ur. Forsala á Broadway á milli 13 og 19. Trevor Nelson er stjórnandi þáttarins The Lick á MTV en hann er á leið til Íslands. Síðumúla 24 • Sími 568 0606 Sjónvarpsskápur 139.000 Kr KONFEKTMÓT matarlitir smákökumót Mikið úrval PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Góðir skór Skóbúðin Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.