Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í TILEFNI þess að Morgunblaðið kemur nú út alla daga vikunnar með útgáfu mánudagsblaðs gafst landsmönnum í gær tækifæri til að fá blað- ið án endurgjalds á öllum helstu sölustöðum út um landið á meðan upplag entist. Þá fengu gest- ir Kringlunnar og Smáralindar einnig blaðið í hendur. Er ekki annað að sjá en að mánudags- útgáfunni hafi verið vel tekið af háum sem lág- um. Morgunblaðið/Þorkell Mánudags- útgáfu tekið vel SAMKVÆMT skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmála- flokkanna og afstöðu til ríkisstjórn- arinnar sem birt var í gær mælist fylgi Samfylkingarinnar nú 39,3% á landsvísu og fengi flokkurinn 25 menn kjörna en flokkurinn fékk 17 þingmenn í síðustu kosningum. Könnunin var gerð á laugardag og miðast fylgi flokkanna við þá sem tóku afstöðu. Samkvæmt henni fengi Fram- sóknarflokkurinn 10% atkvæða og sex menn kjörna en flokkurinn fékk 18,4% í alþingiskosningunum árið 1999 og 12 menn kjörna. Sjálfstæð- isflokkurinn fengi 37,0% og 24 þing- menn en hann fékk 40,7% atkvæða í síðustu kosningum og 26 þingmenn. Frjálslyndir fengju 2,1 prósent at- kvæða og einn mann kjörinn, þeir fengu 4,2% atkvæða í síðustu kosn- ingum og tvo menn kjörna. Vinstri grænir bæta við sig fylgi samkvæmt könnuninni, þeir fengju 11,1% at- kvæða og sjö menn kjörna en þeir fengu 9,1% fylgi í síðustu kosningum og sex menn kjörna. Úrtakið í könnuninni var 600 manns á kosningaaldri og skiptust þeir jafnt á milli kynja og hlutfalls- lega á milli landsbyggðarkjördæma og þéttbýliskjördæma samkvæmt áætluðum kjósendafjölda í alþingis- kosningum í vor. Fjórðungur að- spurðra var óákveðinn, 5,5% sögðust ekki ætla að kjósa og 4,7% neituðu að svara. Þá var einnig spurt hvort fólk væri fylgjandi eða andvígt ríkisstjórninni. 41,7% aðspurðra sögðust fylgjandi henni og 40,7% andvíg. 13,8% voru óákveðin og 3,8% neituðu að svara. Af þeim sem tóku afstöðu voru 50,6% fylgjandi ríkisstjórninni en andvíg 49,4%. R-listi tapar meirihluta Samkvæmt skoðanakönnun DV sem gerð var í fyrrakvöld um fylgi borgarstjórnarflokkanna og birt var í gær tapar R-listi meirihluta í borg- arstjórn, fengi sjö menn kjörna og missti þar með einn mann ef kosið væri nú, en Sjálfstæðisflokkurinn fengi átta menn kjörna. Frjálslyndi flokkurinn fengi engan mann kjör- inn. Úrtakið í könnuninni var 600 manns og var skipt jafnt á milli kynja. Afstöðu tóku 82,6% og af þeim sögðust 48,2% myndu kjósa D-lista, 46,4% R-lista, 4,6% ætluðu að kjósa F-lista og 0,8 myndu kjósa aðra lista. Í borgarstjórnarkosningum sl. vor fékk D-listi 40,2% atkvæða, R-listi fékk 52,6% og F-listi 6,1%. Fram kemur í frétt DV að í und- anförnum könnunum hafi um þriðj- ungur aðspurðra ekki tekið afstöðu en í könnuninni nú hafi hlutfallið ver- ið 17,4%. Skoðanakannanir DV og Fréttablaðs- ins um fylgi stjórnmálaflokka Samfylkingin með 39,3% fylgi á landsvísu ÞAÐ ER erfitt fyrir flugfélag að hafna fullyrðingum farþega um að þeir hafi orðið mjög hræddir vegna atvika sem koma upp í flugi og að ekki hafi verið veittar nægar upplýsingar. Fólk verður ávallt hrætt ef eitthvað ber út af í flugi en fyrsta skylda flugáhafnar er að einbeita sér að því að bregðast við vandanum og lenda vélinni, allt annað hlýtur að víkja meðan unnið er að því. Þetta grunnatriði vill stundum falla í skuggann af frétt- um um skelfilega lífsreynslu far- þeganna,“ segir Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, þegar hann er spurður um flugatvikið við Malaga. Talað fjórum sinnum við farþegana Guðjón segir að farþegarnir með Flugleiða- vélinni hafi fengið góðar upplýsingar. „Hægri hreyfill vélarinnar bilaði skömmu eftir flugtak. Flugstjórinn stöðvaði hreyfilinn, sneri vélinni við og flaug inn til lendingar. Við bilunina heyrð- ist hvellur og glampar sáust úr farþegarýminu. Á þeim tólf til fimmtán mínútum sem þetta flug tók gaf áhöfnin fjórum sinnum upplýsingar um það sem gerðist. Flugstjórinn og fyrsta flug- freyja skýrðu farþegum frá því að hreyfill hefði bilað, að slökkt hefði verið á honum, að ekkert væri að óttast, að snúið yrði inn til lendingar í Malaga og beðist væri velvirðingar á þessum óþægindum.“ Guðjón leggur áherslu á að þegar frávik eins og þetta verði skömmu eftir flugtak sé öryggi flugsins algjört forgangsatriði áhafnarinnar. Hún styðjist við vinnureglur, þjálfun og reynslu til að koma í veg fyrir að hætta skapist. „Við vilj- um held ég öll að þessi forgangsröð sé einmitt þannig, þótt það sé einnig mikilvægt að upplýsa farþega um það sem er að gerast. Krafan um upplýsingagjöf má þó aldrei trufla vinnu áhafnar við að tryggja ör- yggið. Við viljum fremur fá á okk- ur gagnrýni fyrir skort á upplýs- ingum en fyrir skort á öryggi.“ Guðjón segir að atvikið verði ekki rannsakað sérstaklega og þarna hafi ekki verið um nauð- lendingu að ræða. „Flugstjórarnir slökktu einfaldlega á öðrum hreyflinum þegar eldur kom upp og lentu á hinum. Þegar búið var að skoða vélina var henni flogið heim á báðum hreyflum þannig að það var nú ekki meira að en það.“ Aðspurður hvort flugfreyjur eigi að setjast í sæti og spenna ör- yggisbelti við aðstæður sem þess- ar segir Guðjón svo vera, það sé hluti af öryggisreglum. „Ef ástandið er metið þannig geta þær gengið um og róað farþega. En reglurnar eru mjög einfaldar; þar til flugstjór- inn gefur merki um annað eiga flugfreyjur að halda kyrru fyrir í sætum sínum eins og aðrir. Það er einfaldlega verið að hugsa um líf og limi þeirra eins og farþeganna.“ Guðjón segist engan veginn vilja gera lítið úr ótta fólks: „Það hafa verið nefndar tölur um að í venjulegu flugi eigi á milli 10 og 20% farþega við umtalsverða flughræðslu að stríða og þegar eitt- hvað bregður út af hækkar sú prósentutala hratt.“ Guðjón segir að Flugleiðir telji sig hafa staðið vel að málum við að koma fólki á hótel og síðan heim. „En það er ómögulegt að fara út í opinber skoðanaskipti við farþega um slíkt, jafnvel þótt viðkomandi farþegi hafi augljóslega einhverja sérshagsmuni að leiðarljósi. Það er því mjög snúið mál þegar birtast æsifregnir í fjölmiðlum eins og í þessu tilviki. Við höfum farið yfir þessi mál með okkar fólki og við getum ekki séð að það hafi staðið sig illa.“ Verðum alltaf að setja öryggið í fyrsta sæti Guðjón Arngrímsson Skelfing greip um sig þegar eldur kom upp í leiguvél frá Flugleiðum sem lenti á Malaga á Spáni Leon Dahl var með fjölskyldu og vinum í Flugleiðavélinni Sátum bara dauðskelfd í myrkrinu Ljósmynd/NF- Joergen Jessen Leon og Inger Dahl. LEON Dahl, sem var á leið frá Spáni með leiguvél Flugleiða með konu sinni, fjölskyldu, ættingjum og vinum, alls 28 manns, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ósáttur við hvernig áhöfn flugvélarinnar brást við að- stæðum. Að hans mati skorti töluvert á að nógu faglega hafi verið tekið á málum. Dahl segir þær mínútur hafa verið skelfi- legar þegar vélinni var flogið einhvers staðar yfir Miðjarðarhafinu með eldtungurnar út úr hreyflinum. Farþegarnir hafi setið í myrkr- inu án þess að hafa verið greint nokkuð frá því hvað væri að gerast. Það hafi ekki verið fyrr en að um tíu mínútum liðnum að flug- stjórinn hafi sagt að þetta myndi fara vel og beðið fólk að halda ró sinni. Viðbrögð áhafnarinnar ekki nógu fagleg „Ég vil nú ekki vera að gagnrýna flug- félagið að óþörfu en myndi vilja orða þetta þannig að áhöfn Flugleiðavélarinnar hafi alls ekki brugðist rétt við eða komið faglega fram við þær aðstæður sem þarna sköpuðust. Þetta var ekki skemmtileg upplifun, við sáum út um gluggana að það logaði í hreyflinum. Við sát- um bara í myrkrinu í vélinni sem sveimaði einhvers staðar yfir Miðjarðarhafinu. Þetta var ákaflega óþægileg ef ekki hreinlega skelfileg upplifun. Þetta var dauðans alvara meðan á þessu stóð. Fólk reyndi samt að halda ró sinni og sem betur fer var enginn sem missti alveg stjórn á sér. En menn voru órólegir, það heyrðist víða grátur í vélinni á milli þess sem grafarþögn ríkti eins og við jarðarför. Það er frekar óskemmtilegt að leiða hugann að því að ef illa hefði farið hefði öll fjölskylda mín farist á einu bretti,“ sagði Dahl en hann var eins og áður segir í flugvél- inni í hópi 28 ættingja og vina. Sátu kyrrar og sögðu ekki neitt Dahl segir að sér finnist að flugfreyjurnar hafi ekki átt að sitja kyrrar í sætum sínum all- an tímann. „Þær hefðu átt að fara um á meðal farþeganna og róa þá. Þarna var t.d. tólf ára drengur einn á ferð sem grét stöðugt. Flug- freyjurnar sátu bara í sætum sínum með belt- in spennt eins og við hin, þær hvorki gerðu né sögðu nokkurn skapaðan hlut til þess að róa farþegana meðan á þessu stóð. Þær hafa hlot- ið þjálfun til þess að bregðast við svona að- stæðum og hefðu átt að nýta hana til þess að róa okkur hin en gerðu ekki neitt.“ Dahl segir að langflestir farþeganna í vél- inni hafi verið Danir en auk þeirra hafi þarna verið einhverjir Svíar. „En það litla sem við heyrðum flugstjórann og síðan flugfreyj- urnar segja í gegnum frekar lélegt hátal- arakerfið var á ensku. Það hefði örugglega virkað vel á farþegana að fá upplýsingarnar á dönsku eða að minnsta kosti á skandinav- ísku. Fyrst Flugleiðir leigja vélar sínar til Krone Rejser, sem er dönsk ferðaskrifstofa, finnst mér að það eigi þá að minnsta kosti að vera einn í áhöfninni sem getur talað dönsku.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.