Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Jim Smart ÞETTA auglýsingaskilti sem stendur við Austurvöll varð fyrir barðinu á skemmdarvörgum á dögunum. Búið var að mölbrjóta glerið öðrum megin og lá það á víð og dreif um gangstétt- ina vegfarendum til ama. Hans Kaalund, framkvæmdastjóri AFA JCDecaux á Íslandi, sem sér um rekstur á 41 auglýsingaskilti, seg- ir að talsverða kunnáttu þurfi til að brjóta glerið sem sé mjög sterkbyggt, átta millimetra þykkt hert gler. Ekki dugi að sparka í það og ekki sé sama hvar sé barið í það. Augljóst sé því að sá eða þeir sem brutu skiltið hafi not- að til þess verkfæri og vitað hvar ætti að láta höggin dynja. Að hans sögn voru átta slík skilti brotin um liðna helgi, flest á miðborgarsvæðinu. Auk skiltanna sér fyrirtækið um rekstur á um 200 strætisvagnab- iðskýlum en nokkuð hefur borið á því að rúður í skýlunum séu brotnar. Að sögn Hans er það með meira móti að átta skilti skulu brotin um eina helgi. Ekki eitt einasta skilti hafi verið brotið um jólin og eitt á gaml- árskvöld. Þess má geta að nýtt gler með ísetningu kostar um 20 þúsund krón- ur og samtals voru því mölvaðar rúð- ur í þessum tilteknu skiltum fyrir hátt á annað hundrað þúsund um síð- ustu helgi. Hans vildi ekki gefa upp hversu miklu tjóni fyrirtækið hefði orðið fyr- ir vegna rúðubrota og skemmd- arverka en sagði að það væri „allt of mikið“. Fyrirtækið hefur starfað hér á landi síðan 1998. Það þarf kunnáttu til … Gler í átta auglýsingaskiltum í Reykjavík voru brotin um helgina FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 11 JÓHANN Kjartansson, formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, segir að það sé ekki kjörnefndar að taka fyrir kærur vegna prófkjörsins fyrir áramót heldur sé það hlutverk stjórnar kjördæmisráðsins. Þórólf- ur Halldórsson, formaður stjórnar- innar, segir að niðurstöður próf- kjörsins standi en kærur verði ræddar á næsta stjórnarfundi. Guðrún Stella Gissurardóttir sagði sig úr kjörnefndinni eftir fund nefndarinnar á sunnudag, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær, vegna þess að nefndin vildi ekki taka til umfjöllunar kærur frá Vilhjálmi Egilssyni, alþingismanni, og stuðningsmönnum hans. Stein- inn hefði tekið út þegar formaður nefndarinnar hefði sagt að hann hefði ekki áhuga á að lesa grein- argerð Vilhjálms. „Ég hef ekki séð þessa grein- argerð,“ segir Jóhann, „og hún hef- ur ekkert verið til umræðu í kjör- nefnd enda kjörnefnd ekki vettvangur fyrir svona hluti. Kær- ur eru eingöngu teknar fyrir í stjórn kjördæmisráðsins og þær eru ekki á könnu kjörnefndar, en hún vinnur að því að stilla upp lista.“ Prófkjörið fór fram 9. nóvember og hlutu alþingismennirnir Sturla Böðvarsson, Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Kristjánsson og Guð- jón Guðmundsson kosningu í fjögur efstu sætin. Vilhjálmur Egilsson varð í fimmta sæti, en fyrir liggur að hann verður ekki á listanum. Að sögn Jóhanns er stefnt að því að ganga frá niðurröðun á listann um næstu helgi en næsti stjórnarfund- ur kjördæmisráðs Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi verður síðar í þessari viku. Þórólfur Halldórsson segir að þá verði erindi Vilhjálms tekið fyrir eins og önnur erindi, en eins og fram hafi komið áður, m.a. í Morg- unblaðinu 17. desember, standi nið- urstöður prófkjörsins, og bréf Vil- hjáms breyti engu þar um. Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi Ekki á könnu kjörnefndar HEIMILDAMYNDIN „Norðureyr- arjarlinn“ var sýnd á lokaðri for- sýningu á Suðureyri á sunnudag en myndin fjallar um Þorleif Guðna- son, öðru nafni Leifa Nogga, bónda frá Norðureyri við Súgandafjörð, sem nú er búsettur á Suðureyri. Í frétt Bæjarins besta af sýningu myndarinnar kemur fram að Þor- leifur stundaði aukabúgreinar eins og veiðar og verkun á hrognkels- um og hákarli. Í myndinni er stikl- að á ævi hans auk þess sem farið er með Leifa og Örlygi Ásbjörnssyni, samstarfsmanni hans, til rauð- magaveiða, fylgst með þeim við verkun rauðmagans og rætt við þá félaga. Framleiðandi er kvikmynda- félagið „Í einni sæng“, sem m.a. hefur gert kvikmyndina „Í faðmi hafsins“, en handritið skrifaði Sig- urður Ólafsson yfirverkstjóri á Suðureyri. Kvikmyndatakan var í höndum Lýðs Árnasonar læknis á Flateyri en það er Carl Johan Carlsson á Flateyri sem leikur Leifa ungan í myndinni. Heimildamynd gerð um Leifa Nogga Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Við sýningu myndarinnar bar Þor- leifur heiðursmerki sem honum var veitt við hátíðlega athöfn á Norður- eyri á Sæluhelgi Súgfirðinga 11. júlí 1998, þegar hann varð áttræður. LÍFEYRISSJÓÐURINN Fram- sýn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana sem fram hafa kom- ið í fjölmiðlum um örorkumat. „Lífeyrissjóðurinn Framsýn vís- ar algerlega á bug þeim ásökunum sem formaður Sjálfsbjargar á höf- uðborgarsvæðinu hefur borið fram í fjölmiðlum að undanförnu á hend- ur sjóðnum og trúnaðarlækni hans. Formaðurinn hefur haldið því fram að Framsýn hafi markvisst unnið að því að lækka örorkumat sjóð- félaga í því skyni að losna við að greiða bætur. Þessum fullyrðingum hafnar sjóðurinn alfarið sem ósann- indum. Sjóðurinn harmar að for- maðurinn skuli hafa valið að fara með mál þessi beint í fjölmiðla án þess að leita fyrst til forráðamanna sjóðsins. Framsýn undrast einnig það sem fram hefur komið í fjölmiðlum að fjölmargir sjóðfélagar álíti sig hlunnfarna af sjóðnum. Hvorki trúnaðarlækni né öðrum starfs- mönnum sjóðsins hafa borist kvart- anir frá sjóðfélögum vegna þessa. Ef kvartanir berast eða nýjar upp- lýsingar frá sjóðfélögum, fer sjóð- urinn yfir þær með faglegum hætti. Réttur sjóðfélaga er að þessu leyti tryggður í samþykktum sjóðsins og þeir geta jafnframt skotið málum til gerðardóms. Í gerðardómi sitja þrír sérfræðingar; einn tilnefndur af sjóðfélaga, einn af sjóðnum og oddamaður af Fjármálaeftirlitinu. Enn fremur hefur verið látið að því liggja í fjölmiðlum að óeðlilegt sé að trúnaðarlæknir Framsýnar skuli ekki skoða þá sjóðfélaga sem hann metur. Tekið skal fram að trúnaðarlæknir sjóðsins byggir mat sitt á ítarlegum gögnum um heilsu- far sjóðfélaga og er þetta venju- bundin tilhögun. Þetta hefur m.a. verið staðfest af tryggingayfirlækni Tryggingastofnunar ríkisins. Rétt er að taka fram að forsend- ur mats á örorku eru ekki þær sömu hjá Tryggingastofnun ríkis- ins og hjá lífeyrissjóðum. Að gefnu tilefni er rétt að geta þess að sjóðurinn getur ekki fjallað um mál einstakra sjóðfélaga og mun ekki gera það.“ Yfirlýsing frá Lífeyrissjóðnum Framsýn Framsýn vísar ásök- unum alfarið á bug MÖRG dæmi eru um að dómkvaddir matsmenn hafi hrakið niðurstöður örorkumata Lífeyrissjóðsins Fram- sýnar og komist að þeirri niðurstöðu að lækkun örorkumatanna ætti ekki rétt á sér, en mið þýddi að viðskipta- vinir sjóðsins töpuðu réttindum. Að sögn Jóhannesar Alberts Sæv- arssonar hæstaréttarlögmanns sem rak tæpan tug mála á hendur Lífeyr- issjóðnum Framsýn á árunum 1998 til 2000 fékkst leiðrétting á langflest- um þeirra með því að lífeyrissjóður- inn féllst á niðurstöðu dómkvaddra matsmanna. Til Jóhannesar leitaði fólk sem lífeyrissjóðurinn hafði lækkað niður fyrir 50% örorku, sem er lágmarksörorka fyrir greiðslu úr sjóðnum. Þegar dómkvaddir mats- menn voru fengnir til að endurskoða ákvörðun sjóðsins komust þeir oftast að því að ekki voru efni til lækkana niður fyrir þetta mark og gat fólkið því sótt rétt sinn á hendur sjóðnum á grundvelli niðurstöðu matsmann- anna. Þar sem algengast var að sjóð- urinn féllist á niðurstöðu matsmann- anna fóru málin ekki svo langt að þeim lyki með dómsuppsögu. Jóhannes segir að fróðlegt væri að vita hversu margir viðskiptavinir líf- eyrissjóðsins hafi farið niður fyrir 50% orkutap eftir ákvörðun sjóðsins um lækkun örorkumatanna, en hann telur að flesta skorti beinlínis þrek til að standa á rétti sínum. Fólk skynji vissulega að það sé órétti beitt þegar það er svipt örorkulífeyri en sættir sig við þau svör sem fást hjá sjóðnum þegar eftir þeim er leitað. Þannig virðist margir gefast upp í stað þess að leita eftir leiðréttingu. Lækkun örorku- mats átti oftast ekki rétt á sér GENGIÐ hefur verið frá fram- boðslista Vinstrihreyfingarinn- ar-græns framboðs í Norð- austurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor og var tillaga uppstillingarnefnd- ar afgreidd á fundi kjördæm- isráðs. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG, skipar efsta sætið á listanum. Listann skipa eftirtaldir: 1. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, Þistilfirði. 2. Þuríður Backman, alþing- ismaður, Egilsstöðum. 3. Hlynur Hallsson, mynd- listarmaður, Akureyri. 4. Bjarkey Gunnarsdóttir, skrifstofumaður og leið- beinandi, Ólafsfirði. 5. Trausti Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri, Húsa- vík. 6. Jóhanna Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðs- stofu Austurlands, Seyð- isfirði. 7. Ríkey Sigurbjörnsdóttir, aðstoðarskólastjóri, Siglu- firði. 8. Karólína Einarsdóttir, nemi, Neskaupstað. 9. Inga Margrét Árnadóttir, leiðbeinandi og bóndi, Þórisstöðum Svalbarðs- strandarhreppi. 10. Hörður Flóki Ólafsson, nemi, Akureyri. 11. Gunnar Pálsson, bóndi, Refsstað, Vopnafirði. 12. Anna Margrét Birg- isdóttir, íslensku- og bókasafns- fræðingur, Breiðdalsvík. 13. Þórhildur Örvarsdóttir, verslunarmaður, Ak- ureyri. 14. Skarphéðinn Þórisson, líf- fræðingur, Egilsstöðum. 15. Gunnar Ólafsson, kennari, Neskaupstað. 16. Björn Valur Gíslason, stýrimaður, Ólafsfirði. 17. Bjarni Guðleifsson, náttúrufræðingur, Möðru- völlum, Arnarneshreppi. 18. Margrét Ríkharðsdóttir, þroskaþjálfi, Akureyri. 19. Kristján Ásgeirsson, fv. bæjarfulltrúi, Húsavík. 20. Málmfríður Sigurð- ardóttir, fv. alþing- ismaður, Akureyri. Listi VG í Norðaust- urkjördæmi tilbúinn Steingrím- ur og Þur- íður í efstu sætum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.