Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 13

Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 13
                                                                       ! "  "  !     !" # $% & ' & !" # $% &   ( ) * +" , &-+ !&. *&   / #   -0  +" , &1 * +" $%'23 - #  +" !" # $%   - 4- & 2 +" 5/!       ! "      #$   "     "    " !     6 !" # $% & ' & ) * +" !" # $% &   ( !" # $%   - 4- / #   -0  +" & 2 +" $%'23 - #  +" $2 " -  "7 - & & +" , &-+ !&. *&   5/!       ! "  68 +&-+ "& ) * 0&- #- 9 &  "2   & $     : 3  ;< = 3+%&  > :, &< = 2' 2 & & :70- < = 3+% & & :+&-&    2  - & : & :+&-&   +&-  & :+&-&    % &'  & &  - & &    &  ) *  &'?(--* 2 $0  1  < =    * 2  #$&' ) * 3 - & -- "  (% '& & '  '   * 2  @ < = 3+% &   ('9#$%"&  '    &  +&--A% B  8 -  52 " 'A% C "  &  +&- .+%+" #-1 +&-   ' "& &  #   "&  ' - -2 &   +&- * 2   # -  1'    +&- +7-'  fá FBA til sameiningar en það var FBA kapps- mál að sameinast Íslandsbanka. Forsvarsmenn Íslandsbanka sáu auðvitað að FBA var helsti fjármögnunaraðili í íslenskum sjávarútvegi og iðnaði, þannig að það var hreint ekki eftir svo litlu að slægjast. Valur Valsson sá að sjálfsögðu mikil sóknarfæri í því fyrir Íslandsbanka að fá til sín sjóði atvinnuveganna. Jafnframt var talið að mikil samlegðaráhrif yrðu af sameiningu bankanna og ýmsir hagræð- ingarkostir fyrir hendi. Sameiningin gekk ótrúlega vel Bjarni fékk Eyjólf Sveinsson til að starfa náið með sér að undirbúningi sameiningar bankanna með vitund og vilja þeirra Jóns Ásgeirs og Þor- steins Más og afskiptaleysi Jóns Ólafssonar. Það var auðvitað meðvituð ráðstöfun af hálfu Bjarna að hafa Eyjólf Sveinsson svo mikið með í sameiningarviðræðunum því hann var á þessum tíma viðurkenndur forsvarsmaður Orca-hóps- ins, sem átti um 45% í FBA. Út frá því sjón- armiði að vinna sameiningarhugmyndinni stuðning Orca-hópsins var því vissulega hyggi- legt að hafa Eyjólf náið með í ráðum og framan af var hans þátttaka í ferlinu því meira áberandi en þátttaka formannsins, Magnúsar Gunnars- sonar. Enda hefði enginn meirihluti náðst fyrir sameiningu bankanna FBA-megin, ef Eyjólfur, Jón Ásgeir og Þorsteinn Már hefðu ekki verið henni hlynntir. Jón Ólafsson mun ekki hafa verið ýkja spenntur fyrir þessari sameiningu, því hann var frá upphafi þeirrar skoðunar að Orca-hópurinn ætti að stefna að því að eignast ráðandi hlut í FBA og stefna svo að því að sameina bankann Kaupþingi, en það var upphaflegt markmið bæði Kaupþingsmanna og Orca-hópsins, sem rann svo út í sandinn, vegna þess að geysilegur munur var á þeim verðhugmyndum, sem menn gerðu sér um Kaupþing, eftir því hvort þeir voru Kaupþingsmegin eða FBA-megin, eins og skýrt var frá í fyrstu grein. Jákvæð afstaða þeirra Jóns Ásgeirs og Þor- steins Más til hugmyndarinnar um sameiningu bankanna mun ekki síst hafa mótast af því, að þeir töldu sig þannig vera að standa betur vörð um geysimikla fjárfestingu sína og að fjárfest- ingin yrði verðmeiri eftir sameiningu bankanna. Það var Orca-hópnum einnig ákveðinn léttir, að FBA og Íslandsbanki skyldu renna saman í einn banka, því þannig voru þeir auðvitað orðnir stór- ir eigendur að viðskiptabanka, sem þeir gátu nýtt fyrir viðskipti eigin fyrirtækja einnig, þótt þeir færu ekki með ráðandi hlut í bankanum. Vildu vera kjölfestufjárfestir Töldu þeir að sameinaður banki gæti orðið mjög sterkur og að þeir gætu komið fram sem kjölfestufjárfestir í hinum nýja banka. Eftir á að hyggja telja menn í Orca-hópnum að gerð hafi verið ákveðin mistök – reginmistök – sem hafi á ýmsan hátt staðið bankanum fyrir þrifum. Mistökin segja þeir hafa verið, að það skuli hafa verið ákveðið að hafa tvo aðalbanka- stjóra. Það sé einfaldlega meginregla í rekstri, að það sé einn karl í brúnni. Í huga Orca-hópsins var Bjarni Ármannsson framtíðarbankastjóri Íslandsbanka-FBA. Hann var þeirra maður og á hann hugðust þeir veðja. Innan Orca var það einnig rætt að kanna hvort Valur Valsson væri reiðubúinn til þess að semja um starfslok á ein- hverjum tilteknum tíma, en sú umræða fjaraði út. Í Íslandsbanka sá Orca-hópurinn einnig ákveðið öryggi, banka með mjög sterka stöðu sem viðskiptabanki og afar traustvekjandi lána- samsetningu, þannig að hvor aðili um sig átti ekki í neinum erfiðleikum með að sjá kostina við samruna við hinn aðilann. Það verður að teljast vel að verki staðið hjá þeim, sem stóðu fyrir sameiningarviðræðunum, að hafa getað leitt þær til jákvæðra lykta á jafn- skömmum tíma og raun bar vitni. Viðræður gengu hratt og vel og 30. mars árið 2000 var send tilkynning inn á Verðbréfaþing um að bankarnir hefðu náð saman um samein- ingu. Löng og ströng samningahelgi Laugardagurinn 1. apríl og sunnudagurinn 2. apríl reyndust samningamönnum og forsvars- mönnum lífeyrissjóðanna langir og erfiðir samn- ingadagar, því ítrekað komu samningsaðilar saman til þess að takast á um skiptahlutföllin. Á einhverju stigi töldu aðilar sig hafa náð sam- komulagi um að skiptahlutföllin yrðu 50%–50%, en því var með öllu hafnað í Íslandsbanka. Krafa ákveðinna ráðamanna Íslandsbanka og fulltrúa lífeyrissjóðanna var upphaflega að eðlileg skipti væru 53% hlutur Íslandsbanka gegn 47% hlut FBA. Aðrir í Íslandsbanka voru ekki með jafn- eindregnar kröfur, en fljótlega í sameiningar- viðræðunum varð ljóst, að Íslandsbanki myndi ekki sætta sig við að skiptahlutföllin yrðu jöfn. Þetta var á vissan hátt erfiður hjalli á leiðinni til samkomulags, því bæði félögin voru almenn- ingshlutafélög á markaði og verðmat þeirra á markaði var afskaplega svipað, svo að það var ekki auðvelt að rökstyðja að mikill munur ætti að vera á eignarhlutföllum. Fulltrúar lífeyrissjóðanna í eigendahópi beggja bankanna komu saman til fundar á sunnudeginum á heimili Guðmundar H. Garð- arssonar, sem átti sæti í bankaráði Íslands- banka fyrir hönd Lífeyrissjóðs verslunarmanna og þar var Þórarni V. Þórarinssyni, formanni Lífeyrissjóðsins Framsýnar, falið að hafa sam- band við Bjarna Ármannsson og tjá honum að það yrði ekki fallist á 50%–50% skiptahlutföll. Bjarni hafði svo samband við Þórarin á nýjan leik og bauð upp á 51% gegn 49%. Eftir nokkurt þóf og þref samþykktu fundarmenn þetta hlut- fall. Þegar þetta var, hafði hin eiginlega samn- inganefnd, þ.e. bankastjórarnir, formenn og varaformenn bankaráðanna gengið frá öllum öðrum samningsatriðum og drög að samkomu- lagi á milli aðila höfðu þegar verið samþykkt í stjórnum bankanna. Ákvörðun hafði jafnframt verið tekin um að láta ágreininginn um skipta- hlutföllin bíða lokalotu samninganna. Á endanum varð niðurstaðan sú, að hlutföllin væru 51% gegn 49% Íslandsbanka í hag og var sú tilhögun samþykkt í bankaráðum beggja bankanna á sunnudagskvöldinu. Þá þótti orðið ljóst, að ef þessum hlutföllum væri hafnað, rynnu sameiningarviðræður einfaldlega út í sandinn. Fullyrt er, að ekkert hefði orðið af sam- einingu bankanna, ef Íslandsbanki hefði ekki gefið eftir að þessu leyti, því fulltrúar FBA voru á þessu stigi reiðubúnir að slíta samningavið- ræðunum fremur en gefa meira eftir. Þegar bankaráð Íslandsbanka kom síðan saman, þá lá þetta samkomulag fyrir og var svo samþykkt í ráðinu. Að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins heimilaði Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð- herra samruna bankanna, í samræmi við lög um viðskiptabanka og sparisjóði. Orca-hópurinn var við samrunann virkur eigandi í Íslandsbanka- FBA, því samkvæmt 10. grein laga um við- skiptabanka og sparisjóði miðast virk eignarað- ild við 10% eign, en Orca átti eins og áður segir 14,64%. Orca-hópurinn telur sig hafa náð mjög góðum samningi við samruna bankanna og því hafi það ekki verið neitt tiltökumál fyrir hann að gefa eft- ir þessi tvö prósentustig og láta skiptahlutföllin vera 51% hjá Íslandsbanka og 49% hjá FBA. Þriðjudaginn 4. apríl var svo undirritaður samningur milli bankanna um sameiningu og 15. maí var haldinn hluthafafundur og nýtt banka- ráð kjörið. Þeir sem voru kjörnir í bankaráð Íslands- banka fyrir hönd Orca-hópsins voru Eyjólfur Sveinsson, sem var kjörinn varaformaður, Jón Ásgeir Jóhannesson og Finnbogi Jónsson (frændi Þorsteins Más Baldvinssonar og stjórn- arformaður Samherja). Vildu að ferlið gengi snurðulaust Í samningaviðræðunum fyrir sameiningu bankanna var það afráðið að formaður og vara- formaður bankaráðs ásamt bankastjórunum tveimur, þeim Val Valssyni og Bjarna Ármanns- syni, tækju allar ákvarðanir sem máli skiptu sameiginlega í fjögurra manna hópi, a.m.k. á milli bankaráðsfunda, og að bæði formaður bankaráðsins og varaformaður væru viðræðu- aðilinn gagnvart framkvæmdastjórn Íslands- banka, ekki einvörðungu formaður ráðsins eins og ávallt hafði tíðkast. Þessi ákvörðun var tekin til þess að tryggja að sameiningin gengi snurðu- laust og að ekki væri hætta á að fulltrúar stærsta eiganda FBA, þ.e. Orca-hópurinn, fyllt- ust tortryggni í garð nýrra samstarfsaðila og meðeigenda að nýjum og sameinuðum banka. Við sameininguna við Íslandsbanka eignaðist Orca-hópurinn tæplega 15% hlut í hinum sam- einaða banka, í gegnum 100% dótturfélag sitt FBA Holding og um 5% að auki í gegnum eign- arhald í félögum tengdum Orca, sem áttu í bank- anum, og frá aðalfundinum í mars og fram til hluthafafundarins 15. maí hélt Orca-hópurinn áfram að kaupa bréf í hinum sameinaða banka, þannig að þegar fundurinn var haldinn, réð hann yfir 25% til 26% hlutafjár í bankanum. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 13 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.