Morgunblaðið - 07.01.2003, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 41
SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI
SUBWAY) SÍMI 533 3109
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 12.00-18.00
LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00-16.00
LOKAÐ
Toppskórinn er
lokaður dagana
7. og 8. janúar
Útsalan hefst
fimmtudaginn
9. janúar kl. 12.00
Viðskiptafélagi
Auglýst er eftir sameiganda að þekktu veitingarhúsi í kvosinni í
Reykjavík. Þarf að vera kokkur eða vanur að stjórna í eldhúsi. Líkur
á mikilli aukningu framundan og því leitað eftir duglegum og traust-
um aðila.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Heimasíðan er www.fyrirtaeki.is .
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.
SÚ hefð hefur skapast að flug-
áhugamenn á höfuðborgarsvæðinu
hittast á gamlársdag. Fyrir utan
það að skrafa og gera upp atburði
ársins skella margir sér í flugferð,
efnt var til hópflugs og list-
flugmenn sýna einnig listir sínar ef
þannig viðrar og svo var að þessu
sinni. Margir koma í gamla flug-
turninn á Reykjavíkurflugvelli til
að spjalla og fá kaffisopa og fé-
lagsmenn í flugklúbbnum Þyti hitt-
ast í Fluggörðum yfir hákarli og
harðfiski.
Einar Páll Einarsson sem gert
hefur upp Piper Cub vélina TF-
CUP segist hafa varið til þess
fimm til sex árum. Hann kom
fljúgandi úr Mosfellsbæ til stefnu-
móts við aðra flugáhugamenn og
hélt tilbaka eftir skamma viðdvöl.
Farþegi hans var Arngrímur Jó-
hannsson, einn eigenda Flug-
félagsins Atlanta, sem stundar flug
á smáflugvélum innan um og sam-
an við. Sjá mátti einnig fleiri vélar
frá Flugklúbbi Mosfellsbæjar á
sveimi í höfuðborginni.
Smávélar skemmtilegri
Vænn hópur var hjá flug-
klúbbnum Þyti og þar varð Ottó
Tynes formaður fyrir svörum.
„Klúbburinn er orðinn 15 ára og
við eigum í dag sex flugvélar en
byrjuðum með eina,“ segir formað-
urinn sem nú er í embættinu í ann-
að sinn en hann var einnig fyrsti
formaðurinn. Fyrir utan að koma
saman á gamlársdag yfir harðfiski
og hákarli sem skolað er niður með
ýmsum vökvum hittast félagar
Þyts á sumarstefnumóti og árshá-
tíð. Á hverjum degi koma líka
nokkrir félagar við í síðdegiskaffi
enda segir Ottó um fjórðung fé-
lagsmanna vera eftirlaunamenn í
fluginu sem hafi þokkalegan tíma.
„Þá hittumst við og segjum sömu
sögurnar aftur og aftur.“ Fé-
lagsmenn eru nú 39 og segir Ottó
alla eiga ævistarf við flugið sam-
eiginlegt. Tveir félagsmenn, fyrr-
verandi flugvélstjórar, sjá um við-
hald á flotanum.
Einn félagsmanna Þyts er Guð-
mundur Hilmarsson, flugstjóri hjá
Cargolux, en tugur íslenskra flug-
manna þar er í Þyt. Hann var að
búa sig undir flugferð með syni
sínum, Jóni Engilbert, á einni vél
klúbbsins. „Þetta er það skemmti-
lega við flugið, að fljúga smávél-
unum, sem er ekkert sambærilegt
við að fljúga þotum,“ segir Guð-
mundur sem í starfi sínu flýgur
747-breiðþotu. Hann kveðst koma
til landsins nokkrum sinnum á ári
og alltaf reyna að taka í vél hjá
Þyti.
Flugfélagið Geirfugl tók nýtt
bókunarkerfi í notkun á gaml-
ársdag og hittust félagsmenn til að
fagna þeim áfanga. Einn fé-
lagsmanna, Matthías Arngrímsson,
tjáði Morgunblaðinu að síðan
hefðu allir sem gátu haldið í loftið
og vélar félagsins verið vel nýttar
þennan dag.
Flugáhugamenn gerðu upp liðið ár eins og þeir eru vanir að gera á gamlársdag
„Segjum sömu sög-
urnar aftur og aftur“
Morgunblaðið/RAX
Nokkrir félagsmenn flugklúbbsins Þyts eru hér við hluta flugflotans á gamlársdag.F.v. Einar P. Einarsson, Arngrímur Jóhannsson og Erlendur Arngrímsson.
BISKUPSSTOFA og samkirkju-
nefnd boða til opins fundar þar
sem kynnt verður norsk skýrsla
um samband ríkis og kirkju þar í
landi. Fundurinn verður í dag,
þriðjudag, kl. 16-18 í safnaðar-
heimili Grensáskirkju.
Dr. Trond Bakkevik prófastur í
Osló verður gestur og aðalfyrir-
lesari fundarins. Hann var for-
maður nefndar norsku kirkjunn-
ar, sem fjallaði um samband ríkis
og kirkju í Noregi og skilaði síðan
tillögum og skýrslu á síðasta ári.
Niðurstaða þessarar nefndar var
sú að vegna jafnræðissjónarmiða
þyrfti að breyta norskri löggjöf
um ríki og kirkju í ýmsum veiga-
miklum atriðum, m.a. stjórnar-
skrárákvæðum um stöðu norsku
þjóðkirkjunnar.
Í framhaldi af útgáfu skýrslu
nefndarinnar hafa miklar umræð-
ur orðið um samband ríkis og
kirkju í Noregi. Til að mynda
brugðust sóknarnefndir neikvætt
við niðurstöðum skýrslunnar.
Vegna umræðunnar hafa stjórn-
völd ákveðið að halda starfinu
áfram með stofnun stjórnarnefnd-
ar. Tillögur og umræður í Noregi
geta orðið til gagns vegna umræð-
unnar hér í landi. Því er boðað til
fundarins og vonast til að hann
verði til upplýsingar.
Bakkevik hefur unnið bæði fyr-
ir ríki og kirkju. Um tíma var
hann aðstoðarmaður utanríkis-
ráðherra Noregs. Þá var hann
framkvæmdastjóri samkirkjuráðs
norsku kirkjunnar og er nú pró-
fastur í Osló eins og áður segir. Þá
er Bakkevik talinn koma til greina
sem næsti framkvæmdastjóri Al-
kirkjuráðsins. Fundurinn er öll-
um opinn.
Fundur um samband
ríkis og kirkju í Noregi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111