Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 52

Morgunblaðið - 07.01.2003, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÞAÐ var engu líkara en sjálfur himnafaðirinn væri að kíkja niður til Vestmannaeyja af himn- um ofan til að athuga hvort allt væri þar með felldu í upphafi nýs árs þegar glóandi geislar sólarinnar þröngvuðu sér í gegnum þykk ský- in á þriðja degi ársins. Svo virðist sem eldur brenni á bak við skýjaþykknið, svo sterk er birtan séð frá ströndinni austan við Stokks- eyri. Morgunblaðið/RAX Sólstafir yfir Vestmannaeyjum Á NÝLIÐNU ári lögðu lögregla og tollgæsla hald á meira af hassi og kókaíni en nokkru sinni fyrr en aðeins var lagt hald á 781 e-töflu sem er mun minna en fjögur undanfarin ár, skv. bráðabirgðatölum frá ríkislögreglu- stjóra. Þá hefur aðeins einu sinni áður náðst meira af amfetamíni. Samkvæmt nýrri verðkönnun SÁÁ hefur e-taflan aldrei verið ódýrari og verð á hassi sjaldan verið lægra. Guðmundur Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir erfitt að segja til um hvað valdi sveiflum í magni fíkniefna sem lög- regla og tollgæsla leggja hald á. Varð- andi e-töflurnar segir hann að breyt- ingin liggi fyrst og fremst í því að minna var tekið af fíkniefninu á landa- mærum en áður. Þá bendir hann á að þungir dómar og umræða um skað- semi e-taflna kunni að hafa áhrif. Þetta kunni að vera ein skýringin. „Eitt er víst, að lögregla og tollgæsla hafa ekki dregið úr eftirlitinu, þvert á móti, enda hefur verið lagt hald á meira magn af öðrum fíkniefnum,“ segir hann. Þá verði að hafa í huga að undangengin tvö ár hafi verið lagt hald á mikið af e-töflum á Keflavík- urflugvelli sem voru ætlaðar á mark- að á Íslandi. Má í því sambandi benda á að árið 2001 náðust yfir 67 þúsund e- töflur sem voru ætlaðar á Bandaríkja- markað. Á árinu 2002 hafi ekkert slíkt mál komið upp. Hinn 30. desember var götuverð á fíkniefnum kannað meðal allra innrit- aðra sjúklinga SÁÁ á Vogi. Þar kom fram að verð á e-töflum hefur aldrei verið lægra, tæplega 2.000 krónur stykkið. Þetta er um 600 krónum lægra en meðalverð síðustu tveggja ára, skv. könnunum SÁÁ. Bráðabirgðatölur um fíkniefnainnflutning hingað til lands árið 2002 Lagt hald á 57 kg af hassi ( 4   5  6 7   7 6 / 08833 088 0888 3 30 33 ,"1.&# /,1-"# "-1-'# /-1+-# 0#1//# 2 34*6 ,1,'# &10&# 01&.# ,1""# ,1'+# C  34*6 ,1++# 01&+# ,&1"## ,1&"# #1&0# 8! ! 34*6 ,1&+# &1.-# &1.0# &1-&# ,1+0# ? 34*6 "$,/+!-## #$/#+!-## ""$&0-!-## .'$#,0!-## #+,!-## > .6< E-töflur aldrei verið ódýrari  Stóru/27 HINN þekkti þáttastjórnandi Trev- or Nelson frá sjónvarpsstöðinni MTV er á leið til Íslands. Hann kemur í fylgd tökuliðs og ætlar að mynda dansveislu er haldin verður á Broadway um næstu helgi. Gleð- skapurinn er á vegum þáttarins The Lick, er Trevor stjórnar. Trev- or er jafnframt útvarpsmaður hjá BBC Radio 1. Trevor Nelson MTV heim- sækir Ísland  Vill snjókomu/46 BSRB og ASÍ gagnrýna þær hækkanir á komu- gjöldum sjúklinga í heilbrigðiskerfinu sem heil- brigðisráðherra tilkynnti í gær og segja þær bitna á þeim sem minnst mega sín. Heilbrigð- isráðherra bendir hins vegar á að komugjöld fyrir börn, aldraða og öryrkja séu mun lægri en fyrir almenna sjúklinga. Hann óttast ekki að hækkanirnar muni ógna stöðugleikanum í þjóð- félaginu. Gjöldin hækka frá 50 og upp í 500 krónur og á hækkunin að taka gildi þann 15. janúar næst- komandi. Alls eru tekjur ríkissjóðs vegna hækk- ananna áætlaðar um 83 milljónir króna á ári. Þar af greiða þeir sem leita til heilsugæslunnar um 27 milljónum krónum meira fyrir þjón- ustuna á heilu ári en áður en þeir sem leita til sérfræðilækna greiða samtals um 56 milljónum krónum meira en áður. Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra bendir á að fyrir utan lægri komugjöld fyrir aldraða, öryrkja og börn en aðra sé í gildi reglugerð um endurgreiðslur til þeirra sem eru undir tekjumörkum. Þá eigi hækkanirnar ekki að koma neinum í opna skjöldu þar sem þær hafi í raun verið ákveðnar í fjárlögum sem samþykkt voru í desember síð- astliðnum. „Það var gerð grein fyrir því í athugasemdum fjárlaga að þetta væri ein af forsendunum fyrir því að ná heilbrigðiskaflanum saman.“ Í ályktun BSRB um málið segir að athuganir hafi leitt í ljós að efnalítið fólk veigri sér við að leita sér lækninga og geti ekki keypt sér nauð- synleg lyf vegna peningaleysis. Er hækkunun- um mótmælt. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir hækkanirnar koma á óvart enda séu þær úr takti við aðgerðir verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda í fyrra til að hafa hemil á verðbólg- unni. Þá stingi hækkanirnar í stúf við um- ræðuna um fátækt í samfélaginu. „Auðvitað er hluti af því fólki sem á hvað bágast í okkar sam- félagi sjúklingar sem verða þarna fyrir enn frekari hækkunum á nauðsynlegri þjónustu,“ segir hann. Tekjur ríkissjóðs aukast um 83 milljónir Launþegasamtökin gagn- rýna harðlega hækkun komugjalda sjúklinga  Komugjöld/10 HARÐUR árekstur tveggja fólksbíla og hrossahóps varð á móts við Hafnará við Hafnarfjall rétt fyrir klukkan níu í gær- kvöldi. Beita þurfti klippum til að ná öðrum ökumanninum út úr bíl sínum en ekki er vit- að hversu alvarleg meiðsl hans reyndust. Talið er víst að hrossin hafi fælst við flug- eldaskot í tilefni af þrettándanum. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi voru bílarnir í samfloti á norðurleið þegar hrossahópur hljóp út úr myrkrinu í veg fyr- ir þá. Fremri bíllinn lenti þá þegar á hross- unum en aftari bíllinn fór fyrst á eitt hross áður en hann skall á bílinn sem var á undan. Beita þurfti klippum Eins og áður segir þurfti að beita klipp- um til að ná ökumanni fremri bifreiðarinnar út, en alls var fernt í bílnum, þar á meðal börn. Voru ökumaður og farþegar fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi. Ekki var vitað hversu alvarleg meiðsl ökumannsins voru en að sögn lögreglu stóðu vonir til að meiðsl farþeganna væru minniháttar. Tveir voru í hinni bifreiðinni og sluppu þeir ómeiddir. Þrjú af hrossunum drápust samstundis við áreksturinn og þurfti að aflífa tvö til við- bótar. Að sögn lögreglunnar tepptist um- ferð í rúman hálftíma og kom lögreglan á Akranesi til aðstoðar vegna þess. Óásættanlegt að mati yfirdýralæknis Mörg dæmi eru um að hross hafi fælst við flugeldaskothríð um áramótin og týnst. Dæmi eru um að hross hafi hlaupið fyrir björg og drepist. Þá vita eigendur gælu- dýra að sprengingarnar leggjast illa í dýrin. Þannig hafa t.d. hundaeigendur gefið sepp- unum róandi lyf um áramótin til að auð- velda þeim lífið. Halldór Runólfsson, yfir- dýralæknir, segir að skoteldasprengingar séu komnar út fyrir eðlileg mörk og bendir á að skothríðin hafi staðið yfir í marga daga jafnt fyrir og eftir áramótin. „Þetta er kom- ið út í öfgar og þessi læti eru eiginlega orðin óásættanleg, ekki síst með tilliti til dýranna því þeim er mörgum mjög illa við þetta. Mér finnst þetta hafa verið verra fyrir þessi áramót en mörg önnur,“ segir Halldór. Ekkert hefur spurst til rauðjörpu hryss- unnar sem fældist við flugeldaskot í Elliða- árdal á laugardagskvöld. Fældust vegna flugelda- skota Óku á hrossahóp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.