Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 13. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 mbl.is
Franskar
myndir
Frönsk kvikmyndavika að hefj-
ast í Háskólabíói Fólk 46
Víðförul
lopapeysa
Ólöf Björnsdóttir sýnir lopa-
peysu um allan heim Listir 23
Spánskt
fyrir sjónir
Rúnar Sigtryggsson segir frá
lífinu á Spáni Íþróttir B2
JØRGEN Niclassen, sjávarútvegsráðherra
Færeyja, sagði af sér embætti í gær. Stóð
þá yfir umræða í Lögþinginu um vantraust
á hann og ljóst, að það yrði samþykkt. Mikil
óvissa er nú í færeyskum stjórnmálum.
Dagar Niclassens í embætti voru taldir
þegar Høgni Hoydal, leiðtogi Þjóðveldis-
flokksins, tilkynnti í umræðunum, að flokk-
ur hans, sem á aðild að landstjórninni, ætl-
aði að greiða vantraustinu atkvæði.
Niclassen hefur verið sakaður um að
brjóta lög í sambandi við skuldbreytingu
hjá útgerðum þriggja rækjutogara og lög-
fræðinganefnd, sem Lögþingið skipaði til að
fara ofan í málið, komst að þeirri niður-
stöðu, að hann hefði ekki farið eftir settum
reglum. Flokksbróðir Niclassens, Anfinn
Kallsberg lögmaður og leiðtogi Fólka-
flokksins, sýknaði hann þó í raun og sagði,
að málið snerist um ólíka túlkun á lögunum.
Þá ákvað stjórnarandstaðan að bera fram
tillögu um vantraust á Niclassen.
Fyrir umræðuna í Lögþinginu í gær hafði
Kallsberg hótað Þjóðveldisflokknum hörðu
ef hann styddi vantrauststillöguna og gaf þá
í skyn, að landstjórnin yrði leyst upp.
Færeyska
landstjórnin
í kreppu
FÆRRI krónur fást fyrir fiskimjöl
og -lýsi nú í upphafi vetrarloðnu-
vertíðar en við upphaf síðustu ver-
tíðar, að teknu tilliti til gengis-
breytinga og verðlækkana á heims-
markaði. Þannig hefur verð á lýsi
lækkað um þriðjung frá því í fyrra.
Fiskimjölsverksmiðjur greiddu
sjómönnum mest um 9.500 krónur
fyrir loðnutonnið við upphaf vetr-
arloðnuvertíðarinnar á síðasta ári
en verðið við upphaf vertíðarinnar
sem nú er nýhafin er um 7.500
krónur. Lækkunin nemur því rúmu
21% sem aðallega má rekja til
gengisþróunar íslensku krónunn-
ar. Þar að auki hefur afurðaverð á
mjöli og lýsi lækkað nokkuð að
undanförnu.
Verð á hefðbundnu mjöli hefur
reyndar ekki lækkað á síðastliðnu
ári, er nú í kringum 450 pund, en
var um 420 pund í upphafi síðasta
árs. Gengi pundsins gagnvart ís-
lensku krónunni hefur hinsvegar
lækkað um rúm 13% á síðastliðnu
ári. Þannig fást nú rúmar 57 þús-
und krónur fyrir tonnið af mjöli,
borið saman við rúmar 62 þúsund
krónur í upphafi síðasta árs, sem er
um 8% lækkun.
Um þriðjungur mjölframleiðsl-
unnar hérlendis á síðasta ári var
svokallað gæðamjöl. Það er að
mestu selt til Noregs og greitt í
norskum krónum. Í upphafi árs
2002 voru greiddar rúmar 6 norsk-
ar krónur fyrir kílóið af gæðamjöli
en verðið er nú komið niður í 5,5
norskar krónur.
Afurðaverð hefur lækkað
Gengi norsku krónunnar hefur
ekki breyst gagnvart íslensku
krónunni á síðastliðnu ári og verð-
lækkunin er því aðeins vegna
lægra afurðaverðs. Nú fást rúmar
60 þúsund krónur fyrir tonnið af
gæðamjöli, borið saman við um 66
þúsund krónur í upphafi síðasta
árs, sem er um 9% lækkun.
Lýsisverð hefur hinsvegar lækk-
að umtalsvert á liðnu ári. Lýsi er
aðallega selt í dollurum og í upp-
hafi síðasta árs fengust um 630
dollarar fyrir lýsistonnið en verðið
er nú um 540 dollarar fyrir tonnið.
Ríflega 20% lækkun á gengi doll-
arans hefur sömuleiðis leitt til þess
að enn minna fæst fyrir lýsið í
krónum talið.
Miðað við gengi íslensku krón-
unar gagnvart dollara í upphafi síð-
asta árs fengust rúmar 64 þúsund
krónur fyrir lýsistonnið. Nú fást
um 43 þúsund krónur fyrir tonnið
af lýsi. Þannig hefur styrking krón-
unnar og afurðaverðslækkun leitt
til þess að verð á lýsi hefur lækkað
samtals um 21 þúsund krónur fyrir
tonnið eða um 33%.
Þrátt fyrir að heimsmarkaðs-
verð á mjöli og lýsi hafi lækkað
nokkuð í erlendri mynt að undan-
förnu er það engu að síður fremur
hátt í sögulegu samhengi. Verðvísi-
tala loðnumjöls í nóvember sl. var
þannig um 26% hærri en hún var í
janúar árið 2001 og verðvísitala
loðnulýsis hafði hækkað um 42%.
Frá janúar á síðasta ári og fram í
nóvember sl. lækkaði vísitala mjöl-
verðs hinsvegar um tæp 10% og
lýsisverðs um rúm 9%.
Þróun gengisins hefur áhrif á mjöl- og lýsisverð
Allt að þriðjungs
verðlækkun á lýsi
MEIRIHLUTI borgarfulltrúa
hefur ákveðið að samþykkja að
Reykjavíkurborg gangist í ábyrgð-
ir fyrir lán
vegna bygging-
ar Kárahnjúka-
virkjunar. Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir
borgarstjóri og
allir sex borgar-
fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
lýstu yfir stuðn-
ingi sínum við
málið í gær.
„Það er alveg
ljóst að ég mun
ekki bregða
fæti fyrir þetta
verkefni,“ segir
Ingibjörg Sól-
rún. „Ég hef
metið það ann-
ars vegar út frá
þeim ábyrgðum sem borgin gengst
í gagnvart Landsvirkjun og þeirri
áhættu sem er á því að ábyrgðir af
lánum falli á borgina, sem ég tel að
sé lítil þótt hún sé alltaf til staðar,
og hins vegar útfrá arðseminni.“
Eftir að hafa farið yfir fyrirliggj-
andi gögn telja borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins að samþykkja
beri ábyrgðina. Björn Bjarnason,
oddviti sjálfstæðismanna, segir að
aldrei hafi verið ágreiningur um
málið. „Við ákváðum að taka af
skarið og tilkynna afstöðu okkar
formlega í borgarráði því það var
augljóst af umræðum á þeim fundi
sem við sátum þar að það átti enn
að draga málið á langinn, afla enn
meiri gagna og efna til funda til
þess að spyrja og skeggræða.“
Borgarstjóri um
virkjunarábyrgð
Bregð ekki
fæti fyrir
verkefnið
Meirihluti fyrir/10
Ingibjörg Sólrún
Björn
EINN lögreglumaður var stunginn til bana
og fjórir aðrir særðust er sveit lögreglu-
manna réðst til inngöngu í hús í Manchester í
gærkvöldi til að handtaka þar menn í nafni
hryðjuverkavarnalaga.
Að sögn brezkra yfirvalda eru hinir hand-
teknu, þrír menn sem sagðir eru vera frá
Norður-Afríku, taldir tengjast rannsókninni
á hryðjuverkaárás með rísín-eitri, sem grun-
ur hefur leikið á að væri í undirbúningi í
Bretlandi frá því vottur af þessu sterka eitur-
efni fannst í Lundúnum fyrr í mánuðinum.
Þegar lögreglan kom að hinum grunuðu í
íbúð í norðurhluta Manchester í gærkvöld
snerust þeir til varnar með hnífum með þeim
afleiðingum að einn lögreglumaður hlaut
banvæn sár í brjóstið, annar særðist alvar-
lega og þrír aðrir minna, að sögn sjúkrahúss-
starfsfólks.
AP
Tæknideildarmenn lögreglunnar á vett-
vangi við húsið í Manchester í gærkvöldi.
Lögreglu-
maður stung-
inn til bana
Handtökur í Manchester í
tengslum við rísín-málið
Lundúnum. AP.
ÞRÍHLIÐA viðræður standa yfir
um sölu á hluta lóðar Landspít-
alans – háskólasjúkrahúss í Kópa-
vogi. Lóðin sem um ræðir er við
voginn þar sem Kópavogshæli var
áður til húsa. Fyrirhugað er að
selja 8,5 hektara lands. Nú er þar
m.a. starfrækt endurhæfingar- og
líknardeild Landspítalans.
Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna
Landspítalans, segir að ekki sé
stefnt að því að hrófla við þeirri
starfsemi sem þegar er á svæðinu.
Kópavogur hefur þegar lagt
drög að skipulagningu svæðisins,
sem verður í samhengi við um-
hverfi og starfsemi spítalans.
„Þetta er til að fjármagna
breytingar og uppbyggingu í
tengslum við sameiningu spít-
alanna,“ segir Ingólfur.
Kópavogur
falast eftir lóð
Landspítalans
♦ ♦ ♦
Roskinn Palestínumaður reykir vatnspípu í verzlun
sinni í Gaza-borg í gær og fylgist með fréttum af ráð-
stefnu um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum, sem fór
fram í brezka utanríkisráðuneytinu í Lundúnum.
Fulltrúar palestínsku heimastjórnarinnar hétu því á
ráðstefnunni, sem þeir gátu ekki sótt vegna ferða-
banns sem þeir sæta af hálfu ísraelskra yfirvalda, að
leggja fljótlega fram uppkast að nýrri stjórnarskrá
fyrir sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna. Í gegn um
fjarfundabúnað frá Vesturbakkanum tjáðu þeir öðr-
um þátttakendum að pólitísk lausn á deilum Palest-
ínumanna og Ísraela sé útilokuð nema sjálfsmorðs-
árásum linni og höftum sem ísraelsk stjórnvöld beita
Palestínumenn verði aflétt.
Reuters
Sjálfsmorðsárásum linni
Lundúnum. AP, AFP.