Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. VÍSITALA neysluverðs miðuð við verðlag í byrjun þessa mánaðar hef- ur hækkað um 1,4% síðastliðna tólf mánuði samkvæmt mælingu Hag- stofu Íslands. Í janúar á síðasta ári hafði vísitalan hækkað um 9,4%. Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur hjá ASÍ, segir að þessi mæling sýni að mikil umskipti hafi orðið á verðbólgunni og mæling Hagstof- unnar hljóti að teljast mjög jákvæð. Hann bendir þó á að einstakar hækkanir stingi í augu, m.a. hækkun matvöruverðs. „Atvinnuleysi er helsta áhyggju- efni okkar í verkalýðshreyfingunni og verðbólgustigið núna hlýtur að ýta undir vaxtalækkun frekar en hitt,“ segir Ólafur Darri. Hann segir að hjól atvinnulífsins þurfi að fara að snúast af meiri krafti. Ef rétt sé á málum haldið telji hann að verðbólgan geti orðið hófleg. Hafa þurfi varann á, ekki síst ef horft sé fram á aukin umsvif í efna- hagslífinu, en búast megi við aukn- um verðbólguþrýstingi þegar fer að líða á árið. Allar forsendur séu þó til að hafa skynsamlega stjórn á því. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að markaðurinn stefni í átt að verðhjöðnun, sem sé andstæða verðbólgu. Það sé ekki síð- ur hlutverk Seðlabankans að sporna gegn verðhjöðnun en verðbólgu. Of mikil hækkun krónunnar kalli á fall hennar síðar og því sé eðlilegt í því ljósi að bankinn stuðli að stöð- ugra gengi hennar. Full ástæða sé fyrir Seðlabankann að athuga hvort ekki beri að beita vöxtunum og öðr- um aðgerðum eins og að greiða niður erlend lán, til að stöðva þessa geng- ishækkun. Verðbólgustigið ýtir undir vaxtalækkun  Mikil umskipti/13             G% I% GHH GHHG A Markaðurinn stefnir í verðhjöðnun UNNIÐ er að því hjá Toyota í Evrópu og Toyota á Íslandi að halda svokallað Eyðimerkur- rall Toyota hér á landi í sumar. Toyota býður að jafnaði þriðja hvert ár blaðamönnum hvaðan- æva úr heiminum til aksturs á nýjum gerðum jeppa á fram- andi slóðum og í fyrra var Eyði- merkurrallið haldið í Suður- Afríku. Ef af þessu verður er talið að um 150 manns heimsæki landið og aki um fjöll og firnindi á Toyota-jeppum. Vilja halda Eyðimerk- urrall hér  Toyota/C 2 OPINBER heimsókn Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra til Japans hófst í gær. Hann ávarpaði þá stofnfund Íslenska verslunarráðsins í Japan sem haldinn var í sendiráði Íslands í Tókýó. Um 35 stofnfélagar sóttu fundinn en þeir hafa ýmist ver- ið í viðskiptum við Íslendinga eða hafa hug á því. Formaður ráðsins er dr. Eyþór Eyjólfsson og með honum í stjórn eru fjórir japanskir athafna- menn. Í ræðu sinni ræddi Davíð m.a. um ástand við- skipta- og efnahagsmála á Íslandi. Davíð reifaði einnig alþjóðlega samvinnu Íslendinga við aðrar þjóðir og sagði frá því hvers vegna það kæmi Ís- landi vel að standa utan Evrópusambandsins. Ingimundur Sigfússon, sendiherra Íslands í Japan, telur að verslunarráðið verði mikilvægur vettvangur fyrir viðskipti milli þjóðanna. Hið fá- menna sendiráð og verslunarráðið muni fá stuðn- ing hvort af öðru. Hin göfuga list ikebana Á þessum fyrsta degi heimsóknarinnar sóttu Ástríður Thorarensen, eiginkona Davíðs, og Val- gerður Valsdóttir sendiherrafrú sýningu og leið- sögn í ikebana sem er göfug japönsk listgrein sem Íslendingar kalla blómaskreytingar. Sýn- ingin fór fram í Ohara-skólanum í Tókýó sem er 200 ára gamall og nýtur mikillar virðingar á þessu sviði. Morgunblaðið/Einar Falur Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen heilsa gestum í móttöku sem haldin var þeim til heiðurs í gærkvöldi eftir stofnfund Íslenska verslunarráðsins í Japan. Haruyo Jiukuchi leiðbeinir Ástríði Thorarensen í ikebana þar sem útlitið eitt skiptir máli en ekki ilmur blómanna. Íslenskt verslunar- ráð stofnað Opinber heimsókn forsætisráðherra til Japans  Mikill áhugi/6 BÆJARSTJÓRN Bolungarvíkur hefur vísað deil- um vegna uppkaupa á íbúðarhúsum í bænum, sem standa á hættusvæði snjóflóða, til héraðsdóms Vestfjarða. Stefnt er að því að þingfesta málið nú í janúar. Elías Jónatansson, forseti bæjarstjórnar, segir málið vera viðkvæmt innan bæjarfélagsins og bæj- arstjórnin hafi neyðst til að fara með málið fyrir dómstóla til að skera úr um ágreininginn. Andri Árnason, lög- maður Bolungarvíkur- kaupstaðar, segir dóms- mál í undirbúningi þar sem reyni á grunn- ágreining um forsendur verðmiðunar vegna uppkaupa á eignum sem standi á hættusvæðum. „Ágreiningurinn snýst um hvort eigi að leggja til grundvallar, mark- aðsverð eða endurstofn- verð.“ Markaðsverð er það verð sem er áætlað að fengist fyrir eignirnar í frjálsri sölu og var met- ið af sérstökum matsmönnum. Endurstofnverð er hins vegar endurbyggingarkostnaður sem er miklu hærri, að sögn Andra. „Spurningin er hvort fólk, sem missir eignir sínar við þessar aðstæður, eigi rétt á að fá markaðsverð eða endurbygging- arkostnað greiddan.“ Hann segir að matsnefnd eignarnámsbóta hafi í þessum tilvikum talið að bæta yrði eignirnar í Bol- ungarvík, sem standi við Dísarland, með endur- byggingarverði. Kostnaður af uppkaupunum sé því miklu meiri fyrir Ofanflóðasjóð og kaupstaðinn en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Ofanflóðasjóður vill láta á þetta reyna upp á fordæmið að gera,“ segir Andri. Ekki hafi áður verið skorið úr fyrir dómstólum hvort verðið eigi að gilda við þessar aðstæður. Samkvæmt áætlun- um Ofanflóðasjóðs sé miðað við uppkaup á mark- aðsverði en ef miðað sé við endurstofnverð muni um tugi milljóna króna í viðbótarútgjöldum fyrir sjóðinn. Stefnt er að því að hefja byggingu varnarmann- virkja á Bolungarvík á þessu ári. Málaferlin gætu þó tafið það frekar. Elías Jónatansson segir að Framkvæmdasýsla ríkisins sé að undirbúa for- hönnun á varnarvirkinu en ekki sé enn búið að taka endanlega ákvörðun um hvernig þau verði ná- kvæmlega. Deilur vegna eignarnáms á hættusvæði til dómstóla  Ráðgert að bjóða /11 Íbúðarhús við Dísarland í Bolungarvík. LÆKNAR þyftu með einföldum hætti að geta séð hvort sjúklingur hafi fengið ávísun á lyf hjá öðrum lækni, hversu mikið og hversu oft, í þeim tilgangi að koma auga á hugs- anlega misnotkun. Sjónarmið þess efnis voru reifuð á málþingi um lyfjaávísanir og eftirlit með þeim á Læknadögum sem nú standa yfir. Fram kom í máli aðstoð- arlandlæknis að morfínneysla hefði þrefaldast undanfarin tíu ár. Morfínneysla þrefaldast  Rafrænar sjúkraskrár/9 SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og ná- grennis greiddi 900–1.400 milljónum króna of mikið fyrir Frjálsa fjárfest- ingarbankann, samkvæmt verðmati endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte & Touche. Verðmatið var unnið að beiðni Búnaðarbankans fyrir fimm- menningana sem gerðu tilboð í stofnfé SPRON í fyrrasumar. SPRON keypti Frjálsa fjárfesting- arbankann af Kaupþingi í lok sept- ember í fyrra á rúma 3,8 milljarða króna og að auki fékk Kaupþing 330 milljóna króna arðgreiðslu. Þegar lækkað verðmæti Frjálsa fjárfesting- arbankans vegna arðgreiðslunnar hefur verið tekið með í reikninginn er bankinn 2,4–2,9 milljarða króna virði að mati Deloitte & Touche. Pétur H. Blöndal, einn fimmmenn- inganna, segir að skýrslan sýni að stjórn SPRON hafi keypt Frjálsa fjárfestingarbankann á allt of háu verði og að sparisjóðurinn virðist hafa tapað um 1.000 milljónum króna á við- skiptunum en Kaupþing grætt að sama skapi. Pétur segir ljóst að þetta mál verði til umræðu á fundi stofn- fjáreigenda SPRON, hvort sem það verði á aðalfundi SPRON eða á fundi sem haldinn verði fyrr ef stofnfjáreig- endur muni óska þess. Verðmat endur- skoðunarfyrirtækisins Deloitte og Touche Frjálsi fjár- festingar- bankinn keyptur á yfirverði  Bankinn/12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.