Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 15 BLOSSI ljósmyndavélar lýsir á Ger- hard Schröder, kanzlara Þýzkalands, er hann fær sér sæti á blaðamanna- fundi í Berlín í gær. Schröder lýsti því yfir í fyrsta sinn í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna ætti að afgreiða nýja ályktun um Írak áður en vopnavaldi yrði beitt. Þetta viðhorf er nýjung í stefnu þýzku stjórnarinnar og með því tók kanzl- arinn afstöðu með Jacques Chirac Frakklandsforseta til hernaðaríhlut- unar í Írak. Schröder átti viðræður við Chirac um það í Berlín í gærkvöld. Sagði Schröder á blaðamannafund- inum að Þjóðverjar, sem fengu aðild að öryggisráðinu nú um áramótin og gegna formennsku í því í febrúarmán- uði, myndu „að öllum líkindum“ vinna náið með evrópskum bandamönnum sínum að því að greidd verði atkvæði um nýja ályktun um Írak, fari svo að stjórnvöld í Bagdad teljist hafa brotið gegn fyrri ályktun ráðsins um vopna- eftirlit í landinu. Schröder tók þó fram, að fulltrúar Þýzkalands í öryggisráðinu myndu lýsa andstöðu við hvers konar árásir og Þjóðverjar myndu ekki taka þátt í slíkum aðgerðum. Hann gaf þó engin skýr svör um það hvernig Þjóðverjar myndu greiða atkvæði um SÞ-álykt- un þar sem kveðið yrði á um heimild fyrir hernaðaríhlutun. Schröder vill nýja SÞ-ályktun Reuters LÖGREGLAN í Indónesíu hefur handtekið tvo menn til vegna rannsóknar á hryðju- verkinu á Balí í október sl. en það kostaði 190 manns lífið. Er annar þeirra sagður hafa komið fyrir þeirri sprengjunni, sem varð flestum að bana. Áður hafði lögreglan handtekið 15 manns og leitar enn níu. Er stefnt að því, að réttarhöld yfir sakborningunum hefjist í næsta mánuði. Óvissa um Erdogan YFIRVÖLD í Tyrklandi hafa frestað um einn mánuð eða til 9. mars að endurtaka kosning- ar í hér- aðinu Siirt í suðaustur- hluta lands- ins. Búist var við, að Recep Ta- yyip Erdog- an, leiðtogi Réttlætis- og þróunar- flokksins, sem fer með stjórn í landinu, myndi bjóða sig fram í þeim en honum var meinað lög- um samkvæmt að bjóða sig fram í þingkosningunum 3. nóvember síðastliðinn. Var það vegna dóms, sem hann hafði hlotið trúarlegan undirróður. Verði Erdogan kjörinn á þing í kosningunum í Siirt, getur hann tekið við forsætisráð- herraembættinu eins og flokks- menn hans vilja en ríkissak- sóknarinn í Tyrklandi heldur því hins vegar fram, að í Siirt verði ekki um að ræða nýja kosningar, heldur endurtekn- ingu kosninganna frá því í nóv- ember og þá aðeins á milli þeirra, sem þá buðu sig fram. Eru margir lögspekingar sam- mála því. Aðstoðuðu við smíði risabyssu TVEIR þýskir kaupsýslumenn komu fyrir rétt í Mannheim í gær en þeir eru sakaðir um að hafa selt Írökum vopn og bún- að til að smíða langdræga fall- byssu, sem nota má til að skjóta kjarnorkusprengjum eða öðr- um gereyðingahleðslum. Bún- aðinn keyptu þeir hjá ýmsum þýskum fyrirtækjum en hann var fluttur til Jórdaníu og það- an til Íraks. Saksóknarinn Hu- bert Jobski sagði í október sl., að með búnaðinum hefði átt að bora út 10 metra langt hlaup með hlaupvíddinni 209 mm. Fylgst með ísnum GERVIHNETTI, sem ætlað er að fylgjast með breytingum á ísbreiðunum á heimskautun- um, var skotið upp á sunnudag frá Vandenberg-flugherstöð- inni í Kaliforníu. Voru hnettirn- ir raunar tveir, mjög misstórir, og gekk allt að óskum við að koma þeim á braut. Vonast er til, að hnettirnir geti skorið úr um það hvort heimskautaísinn er að minnka eða aukast og einnig hvaða áhrif hugsanlegar breytingar kunni að hafa á sjávarhæð. STUTT Nýjar handtök- ur á Balí Erdogan Ú T S A L A Stórútsala á teppasettum Rúm úr sýningarsal Komdu og gerðu góð kaup Heilsunnar vegna w w w .d es ig n. is © 20 03 20-30%afsláttur Skápar úr sýningarsal Ótrúlegt verð ® Takmarkaðmagn Lúxus hægindastólar Evrópskst útlit, amerísk þægindi Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Opið: mán. - fös. frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-15 20-70%afsláttur 15-40%afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.