Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 39 TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Kjölmiðar Með ártalinu 2003 PILOT SUPER GRIP kúlupenni Verð 75 kr/stk STABILO kúlupenni 10 í pakka. Verð 299 kr/pk Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum. Geisladiskar í miklu úrvali☞ Teygjumöppur af flestum gerðum Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Beinn sími sölumanna 5628501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is Búa ekki í Reykjavík Heimilisfang tveggja frambjóð- enda Framsóknarflokksins í Norð- austurkjördæmi var ranglega til- greint í Reykjavík í frétt um listann. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra er til heimilis að Lómatjörn og Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra á Egilsstöðum. LEIÐRÉTT Sorpmagn í desember Í frétt Morgunblaðsins á mánudag um sorpmagn sem barst Sorpu var ranglega sagt að magnið hefði verið 9.800 tonn á síðasta ári og 8.800 tonn árið 2001. Þessar tölur eiga hins veg- ar einungis við desembermánuði ár- anna. Fyrirlestur um foreldraást verður í dag, miðvikudaginn 15. janúar, kl. 19.30 á Ljósheimum, Brautarholti 8, 2. hæð t.v. Fyrirlesturinn er fyrir foreldra sem vilja bæta uppeldis- aðferðir: mismunandi uppeldis- aðferðir, óljós misnotkun, mörk, til- finningagreind o.fl. Fyrirlesari er Gitte Lassen og fer fyrirlesturinn fram á ensku. Aðgangseyrir er 2.000 kr. Foreldra- og kennarafélag Lækj- arskóla heldur fund í kvöld, mið- vikudaginn 15. janúar, kl. 20 í sal gamla Lækjarskóla. Tilefni fund- arins er ákvörðun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að fresta um ótil- tekinn tíma byggingu íþróttahúss og sundlaugar við nýja Lækjarskólann. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri kemur á fundinn og gerir grein fyrir áform- um bæjaryfirvalda og svarar spurn- ingum. Námskeiðin Sjálfstyrking ung- linga eru haldin í Foreldrahúsinu í Vonarstræti 4b. Námskeiðið er ætlað fyrir unglinga 13–17 ára. Fyrir ung- linga sem hafa lítið sjálfstraust, hafa lent í einelti, eru feimin eða eru óör- ugg með sjálfa sig. Námskeiðinu er ætlað að efla sjálfstraust og félags- lega færni unglinga. Allar nánari upp- lýsingar er að fá í Foreldrahúsinu og á heimasíðunni www.foreldrahus.is. Í DAG Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp fimmtudaginn 16. janúar kl. 20 í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Nám- skeiðið tekur 4 kvöld eða 16 kennslu- stundir. Meðal þess sem verður kennt á námskeiðinu er endurlífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna, beinbrotum, blæðingum úr sárum, o.fl. Að námskeiði loknu fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Skráning er hjá Reykjavíkurdeild RKÍ. Rannsóknastofa í kvennafræðum, í samvinnu við mannfræðiskor Há- skóla Íslands, stendur fyrir opnum rabbfundi í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 12–13 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesari er dr. Emily Martin, prófessor í mann- fræði við New York University. Hún kynnir nýjustu rannsókn sína en þar skoðar hún geðslag (mood) út frá mannfræðilegu sjónarhorni. Fyr- irlesturinn fer hann fram á ensku. Rabbfundir Rannsóknastofu í kvennafræðum eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Fræðsla um skattamál verður í Al- þjóðahúsinu Hverfisgötu 18, á morg- un, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 20.15. Sérfræðingur frá ríkisskatt- stjóra fjallar almennt um íslenskt skattkerfi, staðgreiðslu, persónu- afslátt, framtalið og fleira. Samtök iðnaðarins og Samiðn boða til málþings um iðn-, verk- og tæknimenntun á Menntadegi iðn- aðarins sem verður haldinn í fyrsta sinn á morgun, fimmtudaginn 16. jan- úar kl. 10–12, í Versölum, Hallveig- arstíg 1. Fjallað verður m.a. um framtíð iðn- og tæknimenntunar í ljósi aukinnar þekkingarþarfar fyr- irtækjanna. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri menntamálaráðu- neytisins, flytur ávarp. Þingmenn- irnir Bryndís Hlöðversdóttir, Hjálm- ar Árnason, Kjartan Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Margrét Sverrisdóttir greina frá stefnu sinni og flokka sinna í iðn-, verk- og tækni- menntun. Aðrir framsögumenn eru Sveinn Hannesson, Finnbjörn Her- mannsson og Haraldur Friðriksson, greina þeir frá áherslum iðnaðarins í menntamálum. Á MORGUN Guðrún og Guðlaugur Bergmann standa fyrir námskeiði á höfuðborg- arsvæðinu, laugardaginn 18. janúar, í blóðflokkamataræði sem byggt er á kenningum náttúrulæknisins Pet- er J. D’Adamo. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 10–18 og verður farið í helstu þætti blóðflokkamataræð- isins. Fjallað verður um þann mis- mun sem er á milli blóðflokkanna, hvað hentar hverjum og einum best og hvað ber að forðast, segir í fréttatilkynningu. Nánari upplýs- ingar og frásagnir af árangri má finna á www.blodflokkar.is Sólarkaffi Ísfirðinga verður á Hótel Sögu föstudaginn 24. janúar. Forsala aðgöngumiða og borð- apantanir verða í anddyri að Súlna- sal Hótel Sögu laugardaginn 18. janúar kl. 14–16. Miðarnir að sólar- kaffinu gilda líka sem happdrætt- ismiðar. Fram koma m.a: Gunnar Þórðarson og félagar, Helga Braga og Rottweilerhundar. Ísfirðinga- hljómsveitin Pönnukökur með rjóma leikur fyrir dansi. Ræðumað- ur verður Jón A. Bjarnason og veislustjóri verður Heimir Már Pét- ursson. Á NÆSTUNNI ALMENNA landskeppnin í efna- fræði fyrir framhaldsskólanema var haldin í annað sinn 5. nóvember sl. Alls tóku þátt, 121 nemandi frá 10 framhaldsskólum landsins. Megin- markmið keppninnar er að vekja áhuga framhaldsskólanema á efna- fræði og auka þekkingu og færni þeirra í greininni. Verkefnið sem nemendur glímdu við var nokkuð erf- itt og langt, en reynt var að sníða það að sem flestum grunnþáttum efna- fræðinnar. Sigurvegari keppninnar var Helga Dögg Flosadóttir, frá Menntaskólan- um í Reykjavík. Tíu efstu keppend- urnir fengu bókaverðlaun en þeir eru: Helga Dögg Flosadóttir, MR, Berg- lind Gunnarsdóttir, MR, Gunnar Þór Pálsson, VÍ, Ólafur Margeirsson, MR, Einar Bergur Ingvarsson, VÍ, Ísak Sigurjón Bragason, MA, Magn- ús Bergur Magnússon, MR, Sveinn Ólafsson, MR, Elín Ingibjörg Magn- úsdóttir, MH og Anna Kristín Þór- hallsdóttir, MA. Efstu 43 keppendunum í Almennu landskeppninni býðst að halda áfram í úrslitakeppnina sem verður í febrúar og mars 2003. Eftir úrslitakeppnina verða valdir 4 nemendur til þess að taka þátt í 35. Ólympíukeppninni sem fram fer í Grikklandi næsta sumar. Efnafræðifélag Íslands og Félag framhaldsskólakennara skipuleggja keppnina en eftirtalin fyrirtæki og stofnanir hafa styrkt hana: Banka- stjórn Seðlabankans, Ensímtækni ehf., Málning ehf., Prokaria ehf., Gen- is ehf. og Sementsverksmiðjan hf., segir í frétt frá Ólympíunefnd Efna- fræðifélags Íslands. Keppni í efnafræði fyrir framhaldsskólanema Þingmenn VG á ferð um Vest- urland Alþingismenn Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs, Jón Bjarnason og Árni Steinar Jóhanns- son verða í Stykkishólmi í dag, mið- vikudag. Þeir munu funda með Hvanneyringum um málefni Land- búnaðarháskólans á fimmtudag og sækja Borgnesinga heim á föstudag. Þingmennirnir munu ræða við heimamenn um þau mál sem efst eru á baugi. STJÓRNMÁL JÓN Arnar Magnússon og Sig- urbjörg Ólafsdóttir, frjáls- íþróttafólk úr Breiðabliki, voru kjörin íþróttakona og íþróttakarl Kópavogs fyrir árið 2002 á íþróttahátíð Kópavogs sem fram fór í Félagsheimili Kópavogs 12. janúar sl. Jón Arnar varð í 4. sæti í sjöþraut á Evrópumeistarmótinu innanhús og einnig í 4. sæti í tugþraut á Evr- ópumeistaramótinu utanhúss. Þá varð Jón Arnar í 4. sæti í sam- anlagðri stigakeppni tugþrauta- manna í heiminum á liðnu ári. Hann stóð sig vel með landsliði Íslands í Evrópubikarkeppni landsliða í Lettlandi og varð auk þess þrefald- ur Íslandsmeistari innan- og utan- húss og fjórfaldur bikarmeistari á árinu. Sigurbjörg Ólafsdóttir varð Ís- landsmeistari í fjölda greina, bæði innan- og utanhúss í sínum aldurs- flokki á árinu auk þess að setja einnig nokkur Íslandsmet í sínum flokki. Hún varð m.a. bikarmeistari í flokki fullorðinna í 100 m grinda- hlaupi auk þess að vinna til fjölda annarra verðlauna. Hún var valin í landslið Íslands og keppti m.a. í Evrópubikarkeppninni í Lettlandi á síðasta ári. Þá varð hún í 2. sæti á Norðurlandamóti unglinga 20 ára og yngri í 100 m hlaupi. Hún sigraði í langstökki á Gautaborgarleik- unum í Svíþjóð og einnig á Eyr- arsundsleikunum í Helsingborg. Jón Arnar og Sigurbjörg fengu að launum farandbikar og eign- arbikar vegna kjörsins, jafnframt því sem Sigurður Geirdal bæj- arstjóri afhenti þeim 75 þús. kr. ávísun til viðurkenningar frá bæj- arstjórn Kópavogs. Jón Arnar og Sigurbjörg voru valin úr hópi 32 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu ÍTK eftir til- nefningar frá íþróttafélögunum í bænum. Íþróttakona og íþrótta- maður Kópavogs Morgunblaðið/Jim Smart Formaður frjálsíþróttadeildar, Böðvar Sigurjónsson, sem tók við verðlaunum fyrir Jón Arnar Magnússon, og Sigurbjörg Ólafsdóttir. NÝR Volvo, Volvo XC90, sem er fyrsti jeppinn sem sænski bílaframleiðandinn setur á markað, var frum- sýndur hjá Brimborg um helgina. Sala hans hófst í Bandaríkjunum í nóvember síðastliðnum en í þessum mánuði í Evrópu. Alls komu milli 1.500 og 2.000 manns að skoða jepp- ann um helgina, að sögn Egils Jóhannssonar, fram- kvæmdastjóra Brimborgar. Hann segir að búið sé að selja 23 bíla en umboðið fái 47 bíla til að selja á árinu. Reiknar hann með að búið verði að selja alla bílana fyrir lok febrúar, en hver bíll kostar milli 5,5 og 6 milljónir króna, eftir því hversu stór vél jeppans er. Á annað þúsund skoðaði Volvo- jeppann Morgunblaðið/Þorkell Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.