Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MINNA FYRIR MJÖLIÐ Færri krónur fást fyrir fiskimjöl og -lýsi nú í upphafi vetrar- loðnuvertíðar en við upphaf síðustu vertíðar, að teknu tilliti til gengis- breytinga og verðlækkana á heims- markaði. Þannig hefur verð á lýsi lækkað um þriðjung frá því í fyrra. Verðbólgan hjaðnar Vísitala neyzluverðs miðuð við verðlag í byrjun þessa mánaðar hef- ur hækkað um 1,4% síðastliðna tólf mánuði samkvæmt mælingu Hag- stofu Íslands. Í janúar á síðasta ári hafði vísitalan hækkað um 9,4%. Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur hjá ASÍ, segir að þessi mæling sýni að mikil umskipti hafi orðið á verðbólgunni. Forsætisráðherra í Japan Opinber heimsókn Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra til Japans hófst í gær. Hann ávarpaði þá stofn- fund Íslenska verslunarráðsins í Japan sem haldinn var í sendiráði Íslands í Tókýó. Davíð hittir for- sætisráðherra og ríkisarfa Japans á morgun, fimmtudag. Styðja virkjunarábyrgðir Meirihluti borgarfulltrúa hefur ákveðið að samþykkja að Reykjavík- urborg gangist í ábyrgðir fyrir lán vegna byggingar Kárahnjúkavirkj- unar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og allir sex borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýstu yfir stuðningi við málið í gær. Kreppa í landstjórn Færeyja Jørgen Niclassen, sjávar- útvegsráðherra í færeysku land- stjórninni, sagði af sér embætti í gær, eftir að ljóst varð að meirihluti lögþingsmanna myndi samþykkja vantraust á hann. Málið olli klofningi á milli Þjóðveldisflokksins og Fólka- flokksins, flokks Niclassens og An- finns Kallsbergs, lögmanns Fær- eyja, og mikil óvissa ríkir um framhaldið. Handtökur í rísín-máli Einn lögreglumaður var stunginn til bana og fjórir aðrir særðust er sveit lögreglumanna réðst til inn- göngu í hús í Manchester í gær- kvöldi til að handtaka þar menn í nafni hryðjuverkavarnalaga. Hand- tökurnar tengjast rannsókn á hugs- anlegri árás með rísín-eitri.  LÚXUS Í OVERLAND  EYÐIMERKURRALL TOYOTA  MAYBACH-JEPPI VÉLSLEÐAR Á LANGJÖKLI  VIÐREISN MITSUBISHI  DAKAR-RALLIÐ  VOLVO XC 90 JEPPI ÁRSINS Alhliða lausn í bílafjármögnun Suðurlandsbraut 22 540 1500 www.lysing. is Umboðs- og þjónustuaðili fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá Clifford og Avital. FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! 2003  MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A MAREL BALDVINSSON SELDUR TIL LOKEREN Á 25 MILLJÓNIR / B3, B4 Guðmundur valdi þann kost að fara meðtvo markverði í keppnina, þá Guðmund Hrafnkelsson og Roland Val Eradze, og sagði að það hefði verið niðurstaða sín að það hentaði þessum hópi best. „Nokkur önnur lið, meðal annars Svíar, hafa farið þessa leið í gegnum tíðina. Það er reyndar enn svigrúm til breytinga ef eitthvað kemur upp á varð- andi meiðsli áður en keppnin hefst, og síðan getum við farið þá leið að tilkynna 15 manna hóp í byrjun hennar og haldið 16. sætinu opnu eins lengi og við viljum,“ sagði Guð- mundur. Þeir 14 útileikmenn sem fara til Svíþjóðar og Portúgals eru eftirtaldir: Guðjón Valur Sigurðsson, Gústaf Bjarna- son, Einar Örn Jónsson, Sigfús Sigurðsson, Róbert Sighvatsson, Gunnar Berg Viktors- son, Rúnar Sigtryggsson, Heiðmar Felixson, Snorri Steinn Guðjónsson, Aron Kristjáns- son, Sigurður Bjarnason, Patrekur Jóhann- esson, Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðs- son. Þrettán af þessum 16 voru í hópnum í Evr- ópukeppninni í Svíþjóð fyrir ári en þeir Rol- and Valur, Snorri Steinn og Heiðmar hafa leyst þá Bjarna Frostason, Ragnar Óskars- son og Halldór Ingólfsson af hólmi. „Þetta er sterkasti hópurinn sem völ var á fyrir þessa keppni, að mínu mati,“ sagði þjálfarinn, en aðrir sem voru í æfingahópnum verða til taks ef gera þarf breytingar á síðustu stundu eða eftir að keppnin er hafin. Ögrandi verkefni að mæta Svíum rétt fyrir HM „Það er mjög ögrandi verkefni á loka- sprettinum fyrir HM að mæta Svíum og það á þeirra heimavelli. Þetta er svipað og fyrir Evrópukeppnina í fyrra, þá lukum við und- irbúningnum með því að mæta heimsmeist- urum Frakka og nú leikum við gegn Evr- ópumeisturum Svía,“ sagði Guðmundur. Hann verður með tvær æfingar í Svíþjóð á föstudaginn en á laugardag fer liðið þaðan til Viseu í Portúgal þar sem það spilar í riðla- keppni HM. Guðmundur sagði að undirbúningur liðs- ins hefði verið stuttur og snarpur. „Nú í jan- úar höfum við náð tíu æfingum og spilað sex leiki og höfum því þurft að nýta tímann vel. Mikill tími hefur farið í varnarleikinn, sér- staklega 6/0 vörnina, en um leið höfum við þurft að leggja áherslu á atriði eins og aðrar útfærslur af vörninni, mismunandi sóknar- leik, fara yfir hvernig við spilum manni fleiri eða færri, í sókn sem vörn, viðbrögð við því þegar Ólafur Stefánsson er tekinn úr um- ferð, og fleira í þeim dúr. Við höfum því líka nýtt tímann á milli æfinga og leikja með fundum og leikmenn hafa getað grandskoð- að sjálfa sig og leik liðsins í tölvum. Núna á lokasprettinum erum við að fínpússa leik- kerfin okkar og vonandi höfum við heppnina með okkur og sleppum við frekari meiðsli, en þau hafa sett strik í reikninginn hjá okkur að undanförnu,“ sagði Guðmundur Þ. Guð- mundsson. Handknattleikslandsliðið fer með tvo markverði á HM í Portúgal „Sterkasti hópur sem völ var á“ GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, fór þá leið sem flestir reiknuðu með og skildi eftir þá Róbert Gunnarsson línumann og Birki Ívar Guðmundsson markvörð þegar hann valdi endanlegan hóp fyrir heimsmeist- arakeppnina. Guðmundur tilkynnti hópinn í gær og fer með hann af landi brott í dag. Íslenska liðið mætir Svíum í Landskrona annað kvöld og fer þaðan til Portú- gals á laugardaginn en fyrsti leikurinn á HM er gegn Ástralíu næsta mánudag. Reuters Ég á lítinn skrítinn skugga... Sænski tennisleikarinn Magnus Larsson í leik í gær á opna ástralska tennismótinu. Hann varð að sætta sig við ósigur fyrir ástralska tenniskappanum Lleyton Hewitt, sem er talinn sigurstranglegastur. Sjá nánar á B4. UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hefur ákveðið að Slóvakar verði að leika næsta heima- leik sinn í Evrópukeppni landsliða fyrir luktum dyrum. Úrskurður UEFA kemur í kjölfarið á hegðun slóvenskra áhorfenda á leik Slóvakíu og Englands í október en þá fengu ensku leikmenn- irnir Emile Heskey og Ashley Cole, sem eru dökkir á hörund, að heyra það frá áhorfendum. UEFA tekur hart á öllu kynþáttahatri og dæmdi Slóvaka í 27.000 punda sekt, en það jafngildir 3,5 milljónum króna, en þeir áfrýjuðu þeim úrskurði. Niðurstaða UEFA var að lækka sektina í 5.000 pund, um 650.000 krónur, og luktar dyr á næsta heimaleik í undankeppni Evrópukeppninnar 2004. Slóvakar taka á móti Liechtenstein 2. apríl og þá mega engir áhorfendur fylgjast með. Tómur völlur í Slóvakíu KNATTSPYRNUSAMBAND Ís- lands leitar logandi ljósi að verk- efni fyrir íslenska A-landsliðið í knattspyrnu áður en það mætir Skotum í undankeppni EM í Glas- gow þann 29. mars. Að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra KSÍ, er alþjóðlegur leik- dagur 12. febrúar og hefur KSÍ reynt að fá landsleik á þeim degi festa einn vináttuleik á árinu, gegn Finnum ytra 29. apríl en lokaleikirnir í riðlakeppni EM verða á móti Færeyjum á Laugar- dalsvelli 7. júní, gegn Litháum úti 11. júní, 20. ágúst verður spilað við Færeyinga í Þórshöfn, 6. sept- ember við Þjóðverja á Laugar- dalsvelli og við Þjóðverja í Ham- borg 11. október. er ákveðið vandamál þegar vin- áttuleikir eru annars vegar. Þá er ekki leyfilegt að hafa leikmenn- ina nema í skamman tíma og það gerir þetta erfiðara,“ sagði Geir í samtali við Morgunblaðið. Geir segir að KSÍ sé með öll spjót úti enda telur hann mjög æskilegt að landsliðið fái einn leik fyrir átökin við Skota. Búið er að án árangurs. „Þessi leikdagur er mjög erfiður fyrir þjóðir í Mið- og Norður-Evrópu enda aðstæður ekki upp á það besta á þessum árstíma. Okkur hafa borist óskir um að spila á fjarlægum slóðum og á dögunum barst fyrirspurn frá Íran. Við gáfum það frá okkur strax enda viljum við spila ein- hvers staðar nálægt okkur. Það Íranar vildu leika við Ísland Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 24/31 Viðskipti 12/13 Minningar 32/36 Erlent 14/16 Kirkjustarf 37 Höfuðborgin 17 Staksteinar 38 Akureyri 18 Bréf 40/41 Suðurnes 19 Dagbók 42/43 Landið 20 Fólk 44/49 Listir 21/23 Bíó 46/49 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 Viðhorf 30 Veður 51 * * * JÓHANNES M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala – háskólaskjúkrahúsi, segir það staðreynd að lyf sem spítalinn kaupi hér á landi séu dýrari og í sumum tilvikum miklu dýrari en á hinum Norðurlöndunum. Hann segir að forsvars- menn Landspítalans hafi beint því að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti að skoða gaumgæfilega þróun lyfjaverðs hér á landi og ástæður mikillar hækkunar undanfarin þrjú ár. Jóhannes segir ekki hægt að kyngja þeirri skýr- ingu eingöngu að ástæðan fyrir háu heildsöluverði á lyfjum sé vegna smæðar markaðarins. Skýringa gæti einnig verið að finna í fákeppni. „Það er ljóst að mörg lyfjafyrirtæki hafa verið að sameinast und- anfarið. Mörg þeirra lyfja, sem eru sömu tegundar og hafa sömu grunnefnin, eru komin á eina hendi hjá sama umboðsaðila hér á landi. Í þeim tilvikum er um einokun að ræða en ekki bara fákeppni.“ Jóhannes segir að það kreppi að fjárhagslega hjá Landspítalanum og leita verði allra leiða til að draga úr sívaxandi lyfjakostnaði. Spítalinn sjái sjálfur um að kaupa lyf sem eingöngu eru notuð þar, svokölluð S-merkt lyf. „Þau hækka svo gríð- arlega á milli ára. Á síðasta ári hækkuðu þau um 28% þrátt fyrir hagstæða gengisþróun. Meðal- hækkun á milli ára, mörg undanfarin ár þar á und- an, var um 12 til 14%, sem er tvöföld til þreföld hækkun miðað við almennt verðlag.“ Hann segir að spítalinn hljóti að reyna að spyrna fótum við þessari þróun. Halldór Árnason, formaður lyfjaverðsnefndar, staðfestir orð Jóhannesar og segir að lyf hér á landi hafi hækkað um 10 til 15% að raungildi undanfarin ár. Nefndin miði við að lyf sem heyri undir hana séu um 15% dýrari hér en á Norðurlöndum. Sé mun- urinn meiri sendi nefndin lyfjafyrirtækinu bréf og fari fram á lækkun. Annaðhvort bregðist fyrirtækið við þeirri beiðni eða svari erindinu og rökstyðji verðmuninn. Lyf sem eingöngu eru notuð á spítöl- um heyra ekki undir nefndina heldur lyfseðilskyld lyf. Skráð lyf eru háð eftirliti lyfjaverðsnefndar. Hins vegar er hægt að fá undanþágu frá skráningu lyfja og þá er álagning á þeim frjáls. Jóhannes segir slá- andi dæmi til um algeng og ódýr lyf sem áður voru skráð en síðan afskráð. Verð hafi hækkað í kjölfarið og enginn annar tilgangur hafi verið sjáanlegur með afskráningunni. Jóhannes bendir á aðrar skýringar sem gætu haft áhrif til hækkunar á lyfjaverði. Sem dæmi sé skylt að láta notkunarleiðbeiningar á íslensku fylgja með öllum lyfjapakkningum. Þá séu reglur um skráningu lyfja þunglamalegar. Fyrirtæki þurfi að leggja í nokkurn kostnað og vinnu til að skrá lyf og halda þeim þar. „Við viljum athuga hvort mögulegt sé að auð- velda okkur að vera með í stærri útboðum, t.d. nor- rænum útboðum á lyfjum,“ nefnir Jóhannes sem leið til að lækka lyfjakostnað Landspítalans. Hann segir algengt að sjúkrahús og jafnvel heilu löndin slái saman í útboð til að halda niðri verðinu. „Hækkunin á þessum sjúkrahúslyfjum hefur orðið svo gríðarlega mikil að þetta getur ekki annað en endað með ósköpum,“ segir Jóhannes. Fyrir þremur árum hafi um milljarður króna farið í lyfja- kaup á S-merktum lyfjum. Nú sé áætlað að sú upp- hæð verði á þessu ári 1,5 milljarðar. „Svona getur þetta ekki haldið áfram án þess að það hrikti í ein- hverju.“ Lækningaforstjóri segir lyfjakostnað Landspítalans fara sívaxandi Telur fákeppni skýra hátt verð á lyfjum ÞAÐ var kuldalegt um að litast í Reykjavík í gær og víða föl á götum borgarinnar. Þessar konur höfðu þó vaðið fyrir neðan sig og klæddust vetrarflíkum þar sem þær örkuðu upp Barónsstíginn. Framan af þess- um vetri hafa vetrarflíkur komið í litlar þarfir víðast hvar enda hefur einmuna blíða ríkt á landinu í vetur. Útlit er þó fyrir kólnandi veður á næstu dögum og í dag og á morgun verður frost víða 1–8 stig. Morgunblaðið/Kristinn Kappklæddar upp Barónsstíginn VLADIMÍR Pútín Rússlandsforseti hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands um að koma hingað til lands í opinbera heimsókn. Að sögn Örnólfs Thors- sonar, sérfræðings á skrifstofu for- seta Íslands, hefur ekki verið ákveð- ið hvenær af heimsókn hans verður en rætt er um að hann komi til lands- ins næsta haust en líklegast á næsta ári. Örnólfur segir að hér sé um mik- ilvæga heimsókn að ræða í samskipt- um ríkjanna og að mikið verði lagt upp úr að vanda til undirbúnings hennar. Pútín muni væntanlega eiga viðræður við íslenska ráðamenn þar sem rædd verði ýmis mál, menning- arlegs og viðskiptalegs eðlis, sem snerti báðar þjóðir. Ólafur Ragnar fór sem kunnugt er í opinbera heimsókn til Rússlands á síðasta ári og bauð þá Pútín að koma í heimsókn hingað tl lands. Pútín þiggur boð um heimsókn TVEIR hundar komu við sögu lög- reglunnar í Kópavogi í gærkvöldi. Annar þeirra hljóp fyrir bíl á Engi- hjalla og drapst. Þá hljóp hundur fyrir bíl á Kringlumýrarbraut um kl. 22 og þurfti ökumaður að snögg- hemla og fékk við það bifreið aftan á sig. Ekki urðu slys á fólki, en þegar bílstjórinn sem lenti í aftanákeyrsl- unni kom heim til sín í Smárahverfi hafði hundurinn elt hann heim. Öku- maðurinn tók hundinn inn til sín og lét lögregluna í Kópavogi vita og sagðist vilja losna við þennan hund – hann væri búinn að gera nóg af sér. Lögreglan sótti hundinn og kom honum fyrir í hundageymslu. Hundur elti ökumann heim til sín UMDÆMISDÓMSTÓLL í Flórída- ríki í Bandaríkjunum hefur fellt úr gildi lögbann á að Jón Gerald Sullen- berger selji skemmtibátinn Thee Viking. Gaumur hf., fjárfestingar- félag í aðaleigu Jóhannesar Jónsson- ar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, hafði krafist lögbannsins. Umdæmisdómstóllinn í Dade- sýslu hafði áður fallist á lögbanns- kröfuna en síðastliðinn mánudag var tekið fyrir staðfestingarmál vegna hennar. Í afriti af framburði fyrir dómn- um, kemur fram að lögbannið byggð- ist á eiðsvarinni yfirlýsingu frá Jó- hannesi Jónssyni. Yfirlýsingin er rituð á ensku en fyrir dómi sagðist Jóhannes ekki sjálfur geta lesið ensku. Hann staðfesti að hafa fengið dóttur sína til að lesa yfirlýsinguna yfir og hún hafi síðan ráðlagt honum að skrifa undir. Þegar þetta kom fram lýsti dómarinn því yfir að yf- irlýsingin væri úr gildi fallin. Og þar sem lögbannið byggðist á yfirlýsing- unni, sem sá sem skrifaði undir hana vissi ekki hvað innihéldi, felldi hann lögbannið úr gildi. Í lögbannskröfunni kemur m.a. fram að Gaumur hefði lánað rúmlega 465 þúsund Bandaríkjadali, jafnvirði um 37 milljóna íslenskra króna, til kaupa og reksturs á Thee Viking. Þetta hefði verið gert gegn því að Jón Gerald myndi gefa út hlutabréf í fyrirtæki sem skráð var fyrir bátn- um. Það loforð hefði hann svikið og hygðist hann nú selja bátinn til að greiða skuldir sínar. Lögmenn Gaums kröfðust að fá afhent öll skjöl varðandi viðskipti með bátinn fyrir dómi en auk þess fóru þeir fram á að fá afhent öll skjöl um samskipti Jóns Geralds við íslensk lögregluyfirvöld og íslenskar stofnanir. Í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Gerald að hann færi fram á 1,2 milljónir bandaríkjadala fyrir Thee Viking, jafnvirði um 95 milljóna ís- lenskra króna. Lögbann á sölu á Thee Viking fellt úr gildi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.