Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12. kl. 5.30 og 9.30. DV RadíóX Sýnd kl. 5 og 8. B.i.12. “Besta Brosnan Bond-myndin” GH Kvikmyndir.com i „Turnarnir gnæfa yfir bestu myndir ársins“ SV. MBL ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com 1/2HK DV „Besta mynd ársins“ FBL YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI YFIR 70.000 GESTIR Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.14 ára FRÁ FRAMLEIÐENDUM LEON OG LE FEMME NIKITA Sýnd kl. 6, 8 og10. B.i. 12. Sýnd kl. 6 og 11.15. B.i. 16 ára GÓÐAR stundir eru í vændum fyrir kvikmyndaáhugafólk því framundan er Frönsk kvik- myndahátíð á veg- um Film-undurs og Alliance Franc- aise. Sýndar verða átta athyglisverð- ar kvikmyndir frá Frakklandi en há- tíðin stendur yfir frá föstudeg- inum 17. til mánudagsins 27. jan- úar í Háskólabíói. Boðið verður uppá ólíkar myndir þannig að breiddin verði sem mest. Myndirnar eru Hótel Mamma (Tanguy), Stúlkan frá París (Une hirondelle a fait le printemps), Sex is Comedy, Allt um ástina (Eloge de l’amour), Harry er vin- ur í raun (Harry, un ami qui veut du bien), Æfingin (La Repetition) Gott starf (Beau Travail) og Ró yfir borginni (La Ville est Tran- quille). Sérstakt tilboð verður fyrir fé- laga í Film-undri á hátíðina, eða tveir fyrir einn. Opnunarmynd hátíðarinnar Hótel Mamma er opnunarmynd hátíðarinnar en hún er frá árinu 2001. Leikstjóri myndarinnar er Etienne Chatiliez en hún fjallar um Tangy, sem var afskaplega gott og sætt barn. Hann er enn sætur 28 ára gamall og býr í for- eldrahúsum. Lífið hjá Guetz- fjölskyldunni virðist vera í himna- lagi, að minnsta kosti á yfirborð- inu. Flytur til Suður-Frakklands Stúlkan frá París eftir Christian Carion er metaðsóknarmynd frá árinu 2001, sem var tilnefnd til tvennra Cesar-verðlauna. Hún fjallar um unga konu, Sandrine, sem ákveður að kaupa búgarð í Suður-Frakklandi. Selj- andi er gamall bóndi sem leikinn er af Michel Serrault og æxlast mál þannig að hann fær að búa á búgarðinum þrátt fyrir breyttar aðstæður. Leikstjóri í vandræðum Myndin Sex is Comedy eftir Catherine Breillat, er frá síðasta ári en hún var kynnt á Cannes- kvikmyndahátíðinni. Anne Paril- laud leikur þekktan leikstjóra sem er að lenda í vandræðum með leik- ara sína þegar hún fær ekki fulla dýpt í veigamikilli kynlífssenu myndarinnar. Hins vegar er kynlífið ekki mik- ilvægasti hlekkurinn í myndinni heldur hin mikla persónulega nálgun sem leikstjóri þarf til að virkja leikarana í tengslum við viðfangsefni myndarinnar. Tilfinningaríkir endurfundir Aðalleikarar myndarinnar Æf- ingarinnar frá árinu 2001 eru Emmanulle Béart og Pascale Bus- síere en leikstjóri er Catherine Corsini. Myndin fjallar um Louise og Nathalie, sem hittast eftir 10 ára aðskilnað þegar þær eru um þrítugt. Afskiptasemi Louise hefur það síðan í för með sér að endur- fundir þeirra verða tilfinningaríkir og samskiptin viðkvæm. Mynd eftir Jean Luc Godard Á myndinni verður sýnd mynd eftir leikstjórann Jean Luc God- ard. Myndin, sem kallast Allt um ástina, var í aðalkeppninni í Cann- es 2001 og keppti um gullpálmann. Í fyrsta hluta myndarinnar er rætt um verkefni tengt ástinni, sem tekur á fjórum þáttum henn- ar, fyrstu fundum, ástríðunni, rifr- ildum og aðskilnaði og loks sátt- um. Litið er á þessa hluti í gegnum þrenn hjón á mismunandi aldri, ung, miðaldra og gömul. Síðari hluti myndarinnar gerist tveimur árum fyrr en hlutarnir tengjast með ýmsum hætti. Starfsmaður bandaríska sendi- ráðsins í París, sem er á vegum kvikmyndaframleiðanda í Holly- wood, fer til fundar við gömul hjón er höfðu barist í and- spyrnuhreyfingunni. Hann býður þeim að kaupa réttinn að ást- arsögu þeirra og baráttu gegn yf- irráðum nasista. Spurningin, sem varpað er fram, er hvort bandarísk kvik- myndafyrirtæki hafi yfirhöfuð rétt til að gera sér mat úr þeim vænt- ingum, sem gerðu vart við sig undir lok síðari heimsstyrjald- arinnar. Franskur Hitchcock Sálfræðispennumyndinni Harry er vinur í raun eftir leikstjórann Dominik Moll hefur verið líkt við meistaraverk Alfreds Hitchcocks. Sumir vilja meina að hér sé á ferðinni ein besta franska spennu- mynd sem gerð hefur verið. Myndin vann til fernra Cesar- verðlauna auk þess sem Sergei Lopez, sem leikur Harry, hlaut evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Í myndinni segir frá því þegar Michel hittir gamlan skólafélaga sinn, Harry, og tekur líf hans miklum stakkaskiptum. Harry á sér dökka fortíð og það líður ekki á löngu þar til hann lætur til skar- ar skríða. Afbrýðisemin getur tortímt Kvikmyndin Gott starf frá árinu 1999 í leikstjórn Claire Denis fjallar um Galoup, fyrrverandi for- ingja í Útlendingahersveitinni. Hann minnist gamalla og góðra daga þegar hann stjórnaði sveit í Djibouti. Voru það ánægjulegir tímar en Galoup verður afbrýðisamur útí unga manninn Sentain, sem lofar góðu. Honum finnst hann verða að stöðva hann og koma í veg fyrir að Sentain fái athygli yfirmanna. Að lokum tortímir afbrýðisemi Galoups bæði Sentain og honum sjálfum. Rólegt í Marseille? Ariane Ascaride, Jean-Pierre Darroussin og Pierre Banderet fara með aðalhlutverkin í mynd- inni Ró yfir borginni eftir Robert Guédiuian. Í myndinni fléttast saga tíu ólíkra persóna saman í tíma og rúmi, þ.e. árið 2000 í Marseille. Myndin gefur góða innsýn í líf verkamanna í Marseille og gefur til kynna að borgin eigi í vandræð- um. Frönsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói Ást, afbrýði og spenna                                                             !" # $%&' '  ()*  +   ! , '#- ' ('  *    !" . /"('0   !" +   ! , '#- ' ('  *    !" . /"('0 +   ! , '#- ' ('  *    !" +   ! , '#- ' ('  *    !" . /"('0  /. 1 (2''' * 3!#4 / (5'/ 6' # 7 '. 8/ ($"*   +   ! , '#- ' ('  *  # $%&' '  ()*   /. 1 (2''' * # 7 '. 8/ ($"*     !" # $%&' '  ()*  3!#4 / (5'/ 6'  /. 1 (2''' *   !"  /. 1 (2''' * 3!#4 / (5'/ 6' +   ! , '#- ' ('  *   "(+ 5 ( " 1 /  / # 7 '. 8/ ($"*     !" # 7 '. 8/ ($"*   +   ! , '#- ' ('  *  . /"('0  "(+ 5 ( " 1 /  / +   ! , '#- ' ('  *  . /"('0 3!#4 / (5'/ 6'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.