Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú gerir meiri kröfur til
sjálfs þín en annarra og hef-
ur ótvíræða leiðtogahæfi-
leika.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn hentar vel til
skemmtunar. Slepptu
engu tækifæri til að njóta
samvista við vini og
vandamenn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að venja þig af
því að vera alltaf á síð-
ustu stundu með alla
hluti. Reyndu að horfast í
augu við staðreyndir
mála.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hlustaðu á gagnrýni á
störf þín án þess að
stökkva upp á nef þér.
Láttu það ekki valda þér
vonbrigðum, heldur vera
þér lærdómur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það kemur upp ágrein-
ingur milli ástvina.
Vandamálin eru til þess
að leysa þau svo gakktu
hreint til verks og út-
kljáðu málin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gerðu draum þinn að
veruleika og leitaðu á vit
ævintýranna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert í toppformi bæði
andlega og líkamlega og
nýtur athygli. Nú ríður á
að halda sínu striki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert svo kappsfullur að
þér hættir til að sýna öðr-
um óþolinmæði. Mundu
að nú er ekki rétti tíminn
til að tala hreint út um
hlutina.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Leggðu þig fram um að
sættast við þann sem þú
hefur átt í þrætum við.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér finnst um of sótt að
þér úr öllum áttum, en
þér verður mikið úr verki
í dag þrátt fyrir mótlæti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Yfirmenn þínir eru
ánægðir með störf þín svo
þú getur baðað þig í
sviðsljósinu um sinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu neikvæðnina ekki
ná tökum á þér. Haltu ró
þinni, hvað sem á dynur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sýndu gát í fjármálum.
Aðgæsluleysi nú getur
reynst þér dýrkeypt því
oft er erfitt að vinna aftur
það sem tapast hefur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
Í SJÖTTU umferð
Reykjavíkurmótsins stóðu
nokkrir sagnhafar frammi
fyrir því erfiða verkefni að
spila sex grönd í suður.
Norður
♠ G108
♥ ÁKD752
♦ 94
♣K6
Suður
♠ ÁK6
♥ 8
♦ ÁD1063
♣Á1085
Hvernig myndi lesandinn
spila með laufdrottningu út?
Þetta er andstyggilegt
spil, ekki síst eftir útkomuna.
En við skulum reyna að kort-
leggja möguleikana: Ef
hjartað brotnar 3-3 eru slag-
irnir 11 og þá er nóg að ein
svíning af tveimur heppnist í
framhaldinu. Sem er allgott.
Slemman er ekki alveg von-
laus ef hjartað er 4-2, því tíg-
ullinn gæti reynst slagaupp-
spretta og spaðadrottning
legið fyrir svíningu. Allt í
lagi – en hvernig á að spila?
Tvær leiðir koma helst til
greina:
(1) Drepa fyrsta slaginn á
laufás, taka spaðaás og spila
svo ÁKD í hjarta. Falli lit-
urinn er líklega best að svína
tvisvar í tígli fyrir tólfta
slagnum. Ef hjartað brotnar
ekki kemur til greina að spila
fjórða hjartanu og svína síð-
an fyrir spaðadrottningu og
tígulkóng.
(2) Taka á laufkóng og láta
tígulníuna rúlla yfir. Þá er
hugmyndin að treysta á tíg-
ulinn ef hjartað bregst. Eigi
austur KGx í tígli gefur lit-
urinn fimm slagi og þá þarf
ekki að leita frekar, en fjórir
slagir á tígul gætu líka dugað
ef spaðasvíningin heppnast.
Sem sagt: Ef vestur drepur á
tígulgosa og spilar hjarta,
tekur sagnhafi ÁKD í litn-
um. Ef hann brotnar ekki er
spaðagosa svínað. Heppnist
það er aftur svínað í tígli.
Þetta er sannarlega flókið
spil:
Norður
♠ G108
♥ ÁKD752
♦ 94
♣K6
Vestur Austur
♠ D954 ♠ 732
♥ 106 ♥ G943
♦ 85 ♦ KG72
♣DG432 ♣97
Suður
♠ ÁK6
♥ 8
♦ ÁD1063
♣Á1085
En eins og landið liggur er
sama hvað sagnhafi rembist,
hann fer alltaf niður.
Reyndar unnust sex
grönd á þremur borðum, en
það var eftir útspil í spaða
frá drottningunni. Sex
hjörtu er mun betri slemma,
sem alltaf vinnst með því að
svína tíguldrottningu og frí-
spila fimmta tígulinn. En að-
eins tvö pör spiluðu þá
slemmu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 15.
janúar, er sjötugur Frið-
björn Gunnlaugsson, fyrr-
verandi skólastjóri, Rauða-
læk 44, Reykjavík. Hann er
að heiman í dag.
LJÓÐABROT
Undrast öglis landa
eik, hví vér erum bleikir.
Fár verðr fagr af sárum.
Fann eg örva drif, svanni.
Mig fló málmr inn dökkvi
magni keyrðr í gögnum.
Hvasst beit hjarta ið næsta
hættlegt járn er vætta eg.
Þormóður Bessason Kolbrúnarskáld
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. Dc2 0-0 5. a3 Bxc3+ 6.
Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8. e3 d6
9. f3 Rbd7 10. Bd3 c5 11.
Re2 Hc8 12. 0-0 h6 13. Bh4
d5 14. cxd5 Rxd5 15. De1 g5
16. Bf2 cxd4 17. exd4 Df6 18.
Dd2 Hfd8 19. Bg3 e5 20.
Be4 exd4 21. Dxd4 Rc5 22.
Dxf6 Rxf6 23. Bf5 Ha8 24.
Hfd1 Rb3 25. Hab1 Rd2 26.
Hbc1 Rb3 27. Hxd8+ Hxd8
28. Hc3 Rc5 29. b4 Re6 30.
Hd3 Rd5 31. Be4 Kf8 32.
Be5 Ke7 33. Rg3 Ref4 34.
Rf5+ Ke6 35. Bxf4 gxf4 36.
Rxh6 Hh8 37. Rxf7 Hc8 38.
Rg5+ Ke5 39. h4 Hc1+ 40.
Kh2
Staðan kom upp í lokaum-
ferð Rilton Cup sem
lauk fyrir skömmu í
Stokkhólmi. Til að
sigra á mótum sem
þessum þarf lukkan
að vera manni hlið-
holl. Sigurvegari
mótsins, Jonas Bark-
hagen (2.458) hafði
svart og þrátt fyrir að
vera tveimur peðum
minna í endatafli
tókst honum að þyrla
nógu miklu moldviðri
til að rugla andstæð-
ing sinn í ríminu en sá
var rússneski stórmeistar-
inn Sergey Ivanov (2.561).
40. … Re3! Eina von svarts
til að fá sprikl. 41. Bxb7
Rf1+ 42. Kh3 Hvítur yrði
mát eftir 42. Kg1 Rg3+ 43.
Kf2 Hf1#. 42. … Re3 43.
Hxe3+! Hvítur vildi að sjálf-
sögðu ekki sætta sig við
jafntefli eftir 43. Kh2 Rf1+.
43. … fxe3 44. Ba6 Ha1 45.
Kg3 Hxa3 46. f4+ Kd4 47.
Rf3+? 47. Be2 var einfald-
ara og betra. 47. … Kc3 48.
b5? Enn var 48. Be2 einföld
vinningsleið. Í framhaldinu
gerði hvítur sig sekan um
enn fleiri mistök og tapaði
þar með skákinni. 48. …
Ha1 49. Bc8 Hf1 50. Rg1
Hxg1 51. Bg4 Kd2 52. h5 a5
53. bxa6 Ha1 54. h6 Hxa6
55. Kh4 b5 56. Kg5 b4 57.
h7 Ha8 58. Kg6 b3 59. Be6
b2 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Guðmundur Þ. Brynjólfsson,
sjúkraþjálfari, B.Sc., MT,
hefur hafið störf hjá Hreyfigreiningu ehf.
við greiningu og meðferð háls- og
bakvandamála.
Höfðabakka 9, 110 Rvík, sími 511 1575
Afmælisþakkir
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim fjöl-
mörgu sem minntust mín með margvíslegu
móti á 80 ára afmæli mínu 9. janúar sl.
Gæfan fylgi ykkur.
Þráinn Valdimarsson.
Tilboðsdagar í Remedíu
10%—25% afsláttur
Sendum í
póstkröfu.
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511.
15%-25% afsláttur
af amerísku sjúkraskónum frá
Nurse Mates og Soft Spots.
10% afsláttur
Nýkomin sending af þýskum
handunnum sjúkraskóm frá
Shürr
Kynningarafsláttur
á hinum alsjálfvirka
blóðþrýstingsmæli frá
AND
15%
afsláttur
áfram á hinum
vinsælu flug- og
stuðningssokkum,
bæði fyrir dömur
og herra.
ÚTSALA
Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu
Innritun á námskeið hefst 15. jan.
Síðumúla 35, s. 553 3770. Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl.11-14.
BÚTASALA - AFSLÁTTARDAGAR
15.-25. janúar
35 - 40% afsláttur af bútum.
20% afsláttur af öðrum vörum.
Kennslugreinar: Klassík, undirleikur með hljómum
og grunnatriði í rokk- og djassgítarleik.
Kennsla í nótnalestri, tón- og hljómfræði innifalin.
Mjög reyndur kennari.
Örfá pláss laus.
Sími 821 3637
Gítarkennsla í einkatímum
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 14. september 2002 í
Árbæjarkirkju af sr. Önnu
Sigríði Pálsdóttur þau Hlín
Guðjónsdóttir og Gunn-
laugur Melsteð. Heimili
þeirra er í Reykási 41,
Reykjavík.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin
voru saman 26. októ-
ber 2002 í Kópavogs-
kirkju af sr. Ægi
Sigurgeirssyni þau
Sigrún Guðjónsdótt-
ir og Jón Davíð
Hreinsson. Heimili
þeirra er í Kópavogi.
Með þeim á mynd-
inni eru börn þeirra
Davíð Snær og
Birna Rán.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík