Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 9 „Nemendur sem eru eldri og ekki eru í framhaldsskóla greiða allt að þriðjungi kennslukostnaðar. Það skýrir þessa hækkun.“ Sölvi segir að fjarnám í FÁ hafi verið langódý- rasta fjarnám á landinu fyrir áramót og sé ennþá í ódýrara kantinum. Hægt er að taka allt að níu ein- ingum í fjarnámi hjá FÁ. Kostnaður fyrir framhaldsskólanema með skráningargjaldi og námsefni er 5.750 krónur. Þeir sem ekki stunda nám í dagskóla þurfa að greiða 24.500 krónur fyrir níu eininga nám. Þessir nemendur þurftu að greiða sama gjald og dagskólanemendur á síðasta hausti. Enn í ódýrari kantinum „Þetta hefur ekki dregið úr að- sókn,“ fullyrðir Sölvi. Hann segir að Fjölbrautaskólinn við Ármúla hafi verið tilraunaskóli með notkun upp- lýsingatækninnar við nám og kennslu í nokkur ár. Haustið 2001 hafi 50 nemendur stundað fjarnám NEMENDUR í fjarnámi í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla greiða tæplega 20 þúsund krónum hærri skólagjöld í ár en fyrir áramót. Þetta á við nemendur sem ekki stunda nám í einhverjum af fram- haldsskólum landsins. Sölvi Sveinsson, skólameistari í FÁ, segir að menntamálaráðuneyt- inu hafi þótt eðlilegt að skipta nem- endum í fjarnámi upp eins og í öðr- um í framhaldsskólum landsins. „Nemendur sem eru í venjulegum dagskóla borga aðeins innritunar- gjald auk efniskostnaðar. Eldri nemendur, sem eru í kvöldskóla, greiða allt að þriðjungi áætlaðs kennslukostnaðar. Þennan hátt vildi ráðuneytið hafa á fjarnáminu okkar líka,“ segir Sölvi. Framhaldsskólanemendur greiða skráningargjald Það þýðir að frá áramótum greiða nemendur í framhaldsskólum ein- ungis skráningargjald í fjarnám. við skólann og um vorið hafði þeim fjölgað í 100. „Þá kviknaði hugmynd að hafa slagorð, fjarnám allt árið – þitt nám þegar þér hentar, og við sóttum um heimild til menntamálaráðuneytis- ins að bjóða upp á slíkt nám. Þessar hugmyndir voru samþykktar í til- raunaskyni þá. Við auglýstum fjar- nám fyrir sumarið 2002 og þá skráðu sig nær 700 nemendur,“ seg- ir Sölvi. Aftur fjölgaði nemendum síðasta haust þegar 1.100 manns skráðu sig í fjarnám. Sölvi segir að þegar litið var yfir farinn veg núna um áramót- in hafi menntamálaráðuneytinu þótt eðlilegt að skipta nemendum upp eins og í öðrum skólum og þeir sem ekki séu í framhaldskólum greiði hærra verð. Innritun í fjarnám fyrir vormiss- eri lýkur í FÁ í kvöld. Sölvi segir að þegar séu komnar á tólfta hundrað skráningar og lítur því út fyrir að aðsókn aukist enn frekar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla hækkar gjöld fyrir fjarnám Nemendur greiða allt að þriðjung kostnaðar Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Stórútsala Engjateigi 5, sími 581 2141. ALVÖRU ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: Flíspeysa 3900 900 Bómullarpeysa 6900 1900 Jakkapeysa 5800 900 Tunika 3900 1200 Dömublússa 3100 900 Gallajakki 4800 1900 Teinóttur blazer 5900 900 Hlýrakjóll 4600 1200 Sett bolur og pils 7800 1900 Dömugallabuxur 4900 1900 Rúskinnsbuxur 8900 2900 Herrapeysa 6100 1900 Herraskyrta 3100 1200 ...og margt margt fleira 60—80% afsláttur Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Opið frá kl. 10.00-18.00 www.friendtex.is Stærðir frá 36-52 Bolir á útsölunni Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Flísjakkapeysur kr. 2.500 Laugavegi 34, sími 551 4301 Laugavegi 63, sími 551 4422 STÓR Ú T S A L A Viðbótar- afslættir NÁNARI samvinna heilbrigðis- starfsfólks, þar með talinna lyfja- fræðinga, og rafrænn gagnagrunnur með upplýsingum um lyfjanotkun sjúklinga og sjúkrasögu þeirra eru einar helstu forsendur þess að hægt verði að draga úr misnotkun lyfseð- ilsskyldra lyfja hér á landi. Þetta kom m.a fram á málþingi um lyfjaávísanir og eftirlit með þeim á Læknadögum sem nú standa yfir. Á þinginu kom fram að í kjölfar mikillar umræðu um svokallað „læknadóp“ sl. vor hafi ýmsar tillög- ur til úrbóta komið fram. Nú liggi t.d. fyrir Alþingi tillögur um breytingar á lyfjalögum, læknalögum og almanna- tryggingalögum í þessum tilgangi. Á þinginu komu einnig fram þau sjón- armið að hert eftirlit eitt og sér væri ekki nóg, læknar þyrftu að geta með einföldum hætti séð hvort viðkom- andi sjúklingur hafi fengið ávísun á lyf hjá öðrum lækni, hversu mikið og hversu oft, í þeim tilgangi að koma auga á hugsanlega misnotkun. Enn sem komið er er enginn slíkur persónugreinanlegur gagnagrunnur til en með breytingu á lækna- og lyfjalögum gæti hann orðið að veru- leika að sögn Hauks Valdimarssonar, aðstoðarlandlæknis. Hann segir að gerð slíks gagnagrunns gæti tekið tvö ár. Þá eru einnig hjá landlækni tillög- ur varðandi verkjamiðstöð, þ.e. stofn- un eða deild sem gæti tekið til með- ferðar sjúklinga sem ofnota verkjalyf og önnur lyfseðilsskyld lyf. Ýmsar aðrar tillögur til að draga úr „lækna- dópi“ voru viðraðar á málþinginu. Magrét Georgsdóttir, yfirlæknir á Heilsugæslustöð Miðbæjar, benti á að ef læknar væru ekki heimilislækn- ar sjúklings sem til þeirra leitar eftir ákveðnum lyfjum ættu þeir aðeins að skrifa út lyf til 1–2 daga í senn. Síðan ætti að senda upplýsingar um út- gefna lyfseðla til heimilislæknis við- komandi sjúklings svo hann fengi hugmynd um heildarnotkun. „Læknar eiga að taka afstöðu til lengdar meðferðar með sterkum verkjalyfjum og svefnlyfjum og fá sjúklinginn til samvinnu um að með- ferð ljúki á eðlilegum tíma og að með- ferðinni stjórni einn læknir,“ sagði Margrét. Morfínnotkun hefur þrefaldast á 10 árum Orðið „læknadóp“ er notað yfir þau lyf sem fíkill eða söluaðili fær ávísað hjá lækni án þess að þurfa á þeim að halda vegna sjúkdóma eða verkja og annarra óþæginda t.d. í kjölfar slysa eða í mun meira magni en eðlilegt getur talist. Lyf sem fíklar sækjast í hjá læknum eru vímugefandi ávana- bindandi lyf, sterk verkjalyf, svefn- lyf, róandi lyf og örvandi lyf. Einar Axelsson, vímuefnalæknir á Vogi, sagði að af þeim 1.800 einstak- lingum sem kæmu inn á Vog árlega eigi 400 í vanda vegna „læknadóps“. Haukur aðstoðarlandlæknir benti á að morfínneysla hefði þrefaldast und- anfarin tíu ár og sömuleiðis hefði notkun sterkra verkjalyfja farið ört vaxandi. Í máli Unnar Björgvinsdóttur lyfjafræðings kom fram að alltaf væri töluverður fjöldi af fölsuðum lyfseðl- um í umferð á ávanabindandi lyf og önnur lyfseðilskyld lyf. Með tilkomu nýrra seðla fyrir nokkrum mánuðum var vonast til að minna yrði um fals- anir en fljótlega fór að bera á því að seðlunum var breytt eða að lyfseð- ilsheftum var stolið. Þá er að sögn Unnar allaf eitthvað um það að fólk sé að nota aðrar kennitölur til að fá lyfseðla í gegnum síma, leiti til margra lækna og fái sömu lyfin hjá þeim öllum, hvort sem tilgangurinn er einkaneysla eða sala. Tillögur um lyfjaávísanir og eftirlit ræddar á Læknaþingi Rafrænar sjúkra- skrár nauðsyn- legt hjálpartæki Til að nálgast lyfseðilsskyld lyf eru lyfseðlar m.a. falsaðir en misnotkun á slíkum lyfjum hefur færst í vöxt á undanförnum árum. Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.