Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BOGI ÓLAFSSON skipstjóri, Dalbraut 18, Reykjavík, sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 16. janúar kl. 13.30. Jón Örn Bogason, Guðrún Kristín Antonsdóttir, Sigurbjörg Auður Jónsdóttir, Marteinn Karlsson, Bogi Jónsson, Laufey Oddsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HJÖRDÍS GEIRDAL, Laufengi 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 16. janúar kl. 13.30. Guðmundur Áki Lúðvígsson Erna Steina Guðmundsdóttir, Gestur R. Bárðarson, Sigríður Guðmundsdóttir, Erna Geirdal, Ingólfur Geirdal og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, ÞÓRARINN HJÖRLEIFSSON, Háaleitisbraut 28, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 17. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á vatnsverkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar í Afríku, s. 562 4400. Guðlaug Guðmundsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR EDWALD, sem lést þriðjudaginn 7. janúar, verður jarð- sungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 18. janúar og hefst athöfnin kl. 14.00. Jóhanna Halldóra Ásgeirsdóttir, Pétur Guðmundsson, Samúel Ásgeirsson, Gunnar Ásgeirsson, Fríða Á. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, AUÐAR BRYNÞÓRU BÖÐVARSDÓTTUR. Bjarnfinnur Hjaltason, Erna Jónsdóttir, Ingunn Hjaltadóttir, Agnar Friðriksson, Rannveig Hjaltadóttir, Jónas Ágústsson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA BJÖRNSDÓTTIR, Hringbraut 50, áður til heimilis í Rofabæ 29, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 17. janúar kl. 13.30. Ragnheiður Th. Andersson, Mats Andersson, Hrafnhildur Þorgrímsdóttir, Rafn Kristjánsson, Björn Ingi Þorgrímsson, Jóhanna Kristín Jósefsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku Marta. Ég á bágt með að trúa að ég komi ekki til með að sjá þetta geislandi bros þitt þegar ég kem næst í heimsókn. Þú varst alltaf svo lífsglöð og varst fljót til að koma mér til að brosa ef eitthvað bjátaði á. Það má segja að ég hafi verið heim- MARTA SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR ✝ Marta Svein-björnsdóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 14. nóvember 1927. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi 2. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grafarvogs- kirkju 9. janúar. alningur á heimili ykkar fyrir nokkrum árum og tókst þú þá alltaf svo vel á móti mér. Alltaf öf- undaði ég Söndru af því að eiga svona góða ömmu og þar sem ég átti enga fékk ég að kalla þig ömmu. Elsku amma Marta, ég á margar yndislegar minningar um þig sem aldrei gleymast. Takk fyrir mig. Elsku Pétur, Sandra og Maggi. Guð veri með ykkur í sorg ykkar og veiti þann styrk sem hann einn getur fært á slíkum tíma. Guðríður Sæmundsdóttir (Gauja). Hann Herbjörn, Bjössi á móti eins og nágrannarnir nefndu hann gjarnan, er dáinn. Hann andaðist að morgni jóladags, mitt í andakt fæðingarhátíð- ar frelsarans, á hátíð barnanna eins og þessi tímamót skammdegisins eru gjarnan nefnd. Fór ef til vill vel á því. Bjössi var ekki síst vinur barna og ungmenna. Það var blankalogn er Herbjörn var til grafar borinn. Skýjaður him- inn. Hljóðbært. Er úr kirkju kom leituðu augu mín sem óafvitandi upp túnið og námu staðar við Stöðul- barðið. Þaðan bárust köll og ærsl, vafalaust úr sálardjúpinu. Greini- lega fótbolti í gangi. Upp úr kliðnum barst rödd: ,,Teygðu úr ristinni / nei, ég get ekki skipt, ég er haltur / dekkaðu manninn, hann er hættu- legur …“ Margt fleira barst ofan frá Stöðulbarðinu sem horfið er í sam- fellu túna Heydalastaðar. Er þarna samt. Það vitum við Bjössi báðir. Verður. Tíminn líður ótrúlega hratt. ,,Fyrr en varir flytjumst vér / fölur nár til grafar“ yrkir Einar heitinn Björns- son í Eyjum. Tíminn missir ekki úr spor á ferð sinni. Ef til vill finnst okkur hann miskunnarlaus á stund- um – en er lögmál. Mannsævin grein í því lögmáli. Við Bjössi hættir fyrir löngu að ,,teygja úr ristinni“. Samt er ótrúlega stutt síðan. Bjössi lagði skóna á hilluna nokkru á undan mér. Aldursmunurinn tuttugu ár. ,,Brot af tímans straumi“. Brot af eilífðinni sem vakir úti í blámanum, þrátt fyrir skýjaðan himin í dag. Allt á sínum stað. Jafnvel Stöðulbarðið – minn- ingarnar. ,,Ég get ekki skipt, ég er haltur.“ Þessi orð sýna best hve Bjössi var heill og sannur. Þótt aðeins væri um æfingu að ræða var kapp hans og metnaður það mikill að hann taldi að haltur maður ætti ekki að kjósa í lið. Það væri óréttlátt. Mótherjana kaus maður óhaltur, þótt heltin ein og sér þyrfti ekki að hamla því að hann gæti kosið meðspilara. Öllum ber saman um að bernsku- og unglingsár móti manninn mest. Skiptir ekki máli þótt tuttugu ár HERBJÖRN BJÖRGVINSSON ✝ Herbjörn Björg-vinsson fæddist á Hlíðarenda í Breið- dal 19. nóvember 1917. Hann lést 25. desember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Eydala- kirkju 30. desember. skilji að liðsmenn í knattspyrnuliði. Í fót- bolta (síðar meir talað um knattspyrnu) kynntist ég Herbirni á Hlíðarenda, Bjössa. Raunar aðeins til einn Bjössi í huga mínum lengst af. Þau kynni hófust í sláturtíðinni laust fyrir 1950. Þá var ég gærustrákur. Eftir að vinnu lauk söfnuðust allir fótboltamennirnir, sem unnu í sláturhús- inu, saman úti á Bakka til að spila fótbolta. Við stráklingarnir fengum að vera með. Þar fékk ég og félagar mínir fyrstu alvörutilsögnina í hinni göfgu íþrótt. Sú tilsögn dugði í hart nær aldar- fjórðung. Bjössi var fremstur í flokki að segja okkur nýliðunum til. Hrós- aði okkur ef bærilega tókst til en lét okkur heyra ef við vorum of væru- kærir. Allt var það samt á vinsam- legum nótum. Það kom mér fyrst á óvart hve hlýr Bjössi var. Hann virk- aði kannski ekki sem slíkur við fyrstu sýn. Dálítið þumbaralegur og hrjúf röddin vakti vissan kvíða. En það breyttist. Ég efast um að margir hafi haft betri og jákvæðari áhrif á unga pilta en Bjössi á Hlíðarenda. Hann spilaði í knattspyrnuliði Umf. Hrafnkels Freysgoða í liðlega þrjá- tíu ár, ávallt sem bakvörður. Hann var afar öruggur fótboltamaður, fylginn sér en ekki grófur. Hreinsaði kröftuglega frá, enda maður þéttur á velli og í lund. Innprentaði okkur ný- iliðunum að við yrðum að vera harðir en ekki grófir. Á því væri reginmun- ur. Vera drenglyndir og rétta fölln- um andstæðingi hönd. Taka boltann viðstöðulaust ef færi byðist, enda lærisveinn sr. Róberts Jack. Öll þessi heilræði og sannleika geymi ég enn í hugskotinu. Ég hef ætíð verið skeptískur á minningargreinar. Hef samt á stundum ritað þær. Eitthvað úti í blámanum gerir vart við. Segir að maður hafi gleymt einhverju meðan tækifæri gafst. Ef til vill þakklæti sem ekki var komið á framfæri, viss samsvörun. Fyrstu kynni okkar Bjössa á fótboltavellinum á bakkan- um við Drangalækinn kalla fram þessi orð. Þau koma af þörf. Eru op- inbert eintal okkar Bjössa. Verða alltaf, þótt Bjössi sé kominn á annan völl. Rétti þar úr ristinni. Hreinsi frá marki sínu. Herbjörn Björgvinsson var fædd- ur á Hlíðarenda í Breiðdal. Foreldr- ar hans voru hjónin Sigurbjörg Er- lendsdóttir frá Hvammi í Fáskrúðs- firði og Björgvin Jónasson frá Hlíðarenda, af Stuðlaætt, búendur þar. Þetta voru vinir móður minnar og mat hún þau mikils. Börn Sig- urbjargar og Björgvins urðu tíu tals- ins, tvær stúlkur og átta drengir. Af þeim náðu báðar stúlkurnar og sex drengir fullorðinsárum. Fimm þess- ara drengja náðu því að spila saman í knattspyrnuliði Umf. Hrafnkels Freysgoða. Taldist fágætt á þeim ár- um. Er vafalítið enn fágætara í dag, þar sem mun færri börn fæðast á hverju heimili en áður. Ofanrituð orð flugu um hugann er ég kom heim að lokinni útför míns gamla knattspyrnufélaga er fór fram að Heydölum hinn 30. des. sl. Áðan skrapp ég út til að sækja fánann. Það nálgast myrkur. Lognið er al- gert. Kliðurinn af Stöðulbarðinu hljóðnaður. Ég skynja í dökku húm- inu að einn af vinum unglingsáranna, ekki síst, er farinn – en tíminn held- ur sínu striki. Lognvær vetrarnótt á næstu grösum, óræð, veit örlög. Herbjörn Björgvinsson hefur kvatt sveitunga sína, vini og vandamenn. Megi sá guðdómur er vér trúum að vaki yfir okkur og leiði til eilífra bú- staða verða Bjössa hjálplegur við leiðarlok hans hér. Við hjónin þökk- um samleiðina. Guðjón í Mánabergi. Enn leitar hugur til horfinnar tíð- ar, þegar til foldar er fallinn einn þessara tryggu og góðu félaga sem gjörðu hlut róttækrar vinstri stefnu svo ágætan sem raun bar vitni, kosn- ingar eftir kosningar eystra. Herbjörn var einn hinna fjöl- mörgu góðu félaga í Breiðdalnum sem ævinlega var gott að hitta og hlýða á, enginn var hann jábróðir, hispurslaus og hreinskiptinn og kom skoðunum sínum vel á framfæri í annars eðlislægri hógværð sinni. Vel man ég eftir honum á fundum þar sem meitlaðar athugasemdir hans og umvandanir, ef því var að skipta, voru settar fram af íhygli hins greinda alþýðumanns sem virtist svo næmur á allar hræringar í umhverfi sínu og komu sér því ætíð vel fyrir þann sem valinn hafði verið til nokk- urs trúnaðar. Vel man ég einnig frá- sagnir manna af vinnustöðum Her- björns, þar sem hann fylgdi málum fast eftir og hélt fram af einurð sín- um róttæku lífsviðhorfum og lét engan eiga neitt hjá sér, þó prúður væri í orðræðu allri. Vel man ég samfundi alla þar sem hann var svo gefandi í hlýju sinni og einlægni og bezt þó er við Þórir Gíslason frændi minn gistum hjá honum eftir erfiðan fund og ótæpar voru veitingar hans að morgni og farsældaróskir fylgdu okkur úr hlaði. Herbjörn mun hafa verið hinn ágætasti verkmaður að hverju sem gengið var, verkaglaður og verka- trúr og vildi í engu láta sitt eftir liggja. Hann var greindur vel og var einkar vel heima um svo margt, þess varð maður ágætlega áskynja í sam- tölum öllum við þennan athugula og glögga drengskaparmann. Einlæg fer þökkin austur um loft- in blá fyrir kynni svo kær og fylgd- ina góðu og trúföstu um svo langan veg. Samúðarkveðjur hlýjar eru fólki hans sendar. Það er heiðríkja björt yfir mætri minningu Herbjarnar míns, þessa góða og sanna sonar Breiðdalsins. Helgi Seljan. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.