Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 23 SVEINHILDUR Torfa- dóttir lýkur á föstudag fyrri- hluta meistaraprófs síns í klarinettuleik frá Konung- legu tónlistarakademíunni í Gent í Belgíu. Í tilefni af því fékk Sveinhildur Tryggva M. Baldvinsson tónskáld, til að semja fyrir sig einleiks- konsert sem hún leikur á próftónleikunum með Blás- arasveit skólans undir stjórn Tryggva, en það er fátítt að nemendur panti sér tónverk til slíkra nota. „Kennarinn minn stakk upp á því að ég hefði prófið mitt svolítið sérstakt,“ sagði Sveinhildur. „Hann vildi hafa fjölbreytni, en ekki bara verk fyrir klarinettu og pí- anó. Hann vissi af því að Tryggvi hefði áður samið fyrir mig verk, – en það var Seiður, sem ég fékk hjá honum þegar ég útskrifaðist á Íslandi. Kennarinn spurði mig þá hvort ég gæti ekki bara fengið annað verk hjá Tryggva, og ég tók hann á orðinu, fannst þetta snilld- arhugmynd, og Tryggvi var meir en til í þetta. Persónulega finnst mér músíkin hans æðisleg, þannig að ég var viss um að ég fengi frábæran konsert, og það gekk eftir. Þetta er meiriháttar stykki og almenn ánægja með það hér.“ Verk Tryggva er í þremur þáttum og stórri kadensu fyrir einleikarann. „Fyrsti kaflinn byrjar svolítið spúkí, maður veit ekkert hvað mun gerast. Þá kemur inngangur, þar sem klarin- ettan kemur öllu á fleygiferð með miklum krafti. Annar þátturinn er líka mjög myst- ískur, og Tryggvi vill að við spilum hann þannig. Á æf- ingu í morgun sagði hann að undirspilið ætti að vera eins og þoka, meðan klarinettan fær að leika lausum hala. Þetta er mjög flott. Eftir þetta kemur einleikskadens- an, hávaða og látum og öllu tilheyrandi, en þriðji þáttur- inn er svo mjög hraður og fjörugur, þar sem virkilega er tekið á, en með ljóðrænum litlum kafla innan í. Þetta er erfitt en mjög skemmtilegt.“ Sveinhildur segir að fyrsta æfingin í gærmorgun, með Tryggva sjálfan við stjórn- völinn hafi gengið mjög vel, og að kennaranum hennar hafi líka litist mjög vel á verkið. „Það er fínt fyrir mig, því þessi kennari er mjög strangur, og verður í dómnefndinni á föstudag- inn.“ Seiður, verkið sem Tryggvi samdi fyrir próf Sveinhildar frá Ís- landi, hefur ílenst í Belgíu, því einn samnemandi hennar ætlar að leika það á sínu lokaprófi í vor. „Orðspor Tryggva er farið að berast út hérna og allir sem heyra músík eftir hann verða virkilega hreyknir af henni. Þetta er góð kynning fyrir íslenska tónlist almennt, en auðvitað mest fyr- ir Tryggva sjálfan.“ Sveinhildur kem- ur heim í febrúar og leikur verk Tryggva með Blásarasveit Reykja- víkur á Myrkum músíkdögum. Pantaði sér prófverkefni Sveinhildur Torfadóttir Tryggvi M. Baldvinsson ÍSLENSKI myndlistarmaðurinn Ólöf Björnsdóttir opnaði í gær sýn- ingu í galleríinu The Showroom í Lundúnum og mun vera opin til 23. febrúar. Sýningin ber heitið Wollen- maiden! og er þar um að ræða sömu Lopameyju og fram hefur komið á sýningum Ólafar undanfarin ár, meðal annars á einkasýningu henn- ar í i8 árið 2000. Að sögn Ólafar mun Lopameyja að þessu sinni með- al annars sýna færni sína og tilburði við að stökkva upp á hleðslur og steina á myndbandi sem sýnt er á sýningunni. Ljósmyndir, myndbönd og gjörningar „Wollenmaiden eða Lopameyja er búin að vera að velkjast um í ferða- töskunum hjá mér alveg frá því að ég flutti til Lundúna fyrir nærri sex árum. Markmiðið er að gera gömlu lopapeysuna hans pabba að fræg- ustu lopapeysu myndlistarsögunnar og hún er trúlega nærri því marki. Lopameyja hefur alltaf vakið at- hygli og aðdáendur hennar kröfðust þess orðið að hún fengi sýningu nefnda eftir sér,“ segir Ólöf í sam- tali við Morgunblaðið. Á sýningunni gefur að líta ljósmyndir og mynd- bönd af Lopameyju, ferðalögum, kindum og ævintýrum, að sögn Ólaf- ar. Í fremri sýningarsalnum hefur hún byggt stóran skáp og þar inni komið fyrir ljósmyndum og skjá- listaverkum. Í miðjum salnum er svo herbergi, eins konar vetrargarður með blómum og tilheyrandi. Í innri salnum er svigrúm fyrir gjörninga sem Ólöf mun gera meðan á sýning- unni stendur, hún byggir fær- anlegar tröppur, fataskáp og hefur þannig pláss til að syngja og fara með húslestur. Í tilkynningu frá The Showroom segir að Ólöf muni breyta eðli rýmisins í galleríinu á róttækan hátt og skapa þar töfrum vafið norrænt umhverfi. „Mér var boðin einkasýning fyrir tæpu ári síðan af Kirsty Ogg, stjórn- anda gallerísins,“ segir Ólöf um til- urð sýningarinnar. „Undanfarna mánuði hef ég verið að spá í hvernig væri best að gera þetta. The Showroom er mjög skemmtilegt gallerí í Bethal Green í East End Lundúna, rekið með opinberu fé og hjálp styrktaraðila. Það er sérlega ánægjulegt að sýna þar því það er ekki rekið í hefðbundnum sölugall- erísstíl. Galleríið er einungis með fjórar sýningar á ári, yfirleitt einka- sýningar, og valdir listamenn sem standa á tímamótum í list sinni á ein- hvern hátt. Svigrúmið og frelsið er nær algert, ég hafði galleríið og að- stoðarmenn mér til handargagns í tvo mánuði fyrir sýninguna. Sem ég var reyndar mjög ódugleg að brúka til að byrja með þar sem ég er ekk- ert vön slíkum lúxus.“ Sýnir næst í Hong Kong Sýningin er meðal annars styrkt af íslenska fyrirtækinu Ístex og hef- ur það lagt til heilmikla ull. Ólöf er búsett í London en segist alltaf vera með annan fótinn á Íslandi og víðar. „Það er svo dýrt að búa hér úti að maður lærir fljótt að spara með því að halda sig fjarri borginni,“ segir hún, en hún hefur verið búsett þar síðan árið 1997. Sama ár lauk hún námi við fjöltæknideild MHÍ og var eftir það í tvö ár í Goldsmith’s Coll- ege, þaðan sem hún lauk MA-gráðu árið 1999. Ólöf hefur sýnt á margvíslegum sýningum, mest í Evrópu en einnig í öðrum álfum, á undanförnum árum. Lopameyja hefur einnig ferðast víða, og tók meðal annars þátt í Tir- ana Biennalnum, tvíæringi sem Giancarlo Politi, ritstjóri tímaritsins Flash Art, stóð fyrir í Albaníu. „Ég var valin þangað af kúrator hér í London, Patriciu Ellis, og styrkt af British Council, en sá þegar bækl- ingurinn kom út að ég hafði verið sett á blað sem fulltrúi Íslands með aðsetur í Reykjavík, væntanlega til að fjölga löndunum á sýningunni. Nú vil ég fá íslenskan styrk fyrir ómakið!“ segir Ólöf. Eftir að sýningunni í The Show- room lýkur, heldur hún til Hong Kong ásamt fjórum öðrum lista- mönnum og tekur þátt í sýningu sem styrkt er af British Council. „Þemað er skemmtilegt, ólíkir lista- menn voru valdir sem vinna með mismunandi skynfæri, t.d. hljóð. Ég var valin af því að ég hef unnið með snertingu gegn um „betrunar- kreist“, þar sem ég nudda fólk. Við verðum í tvær vikur í Hong Kong, eigum að verða fyrir áhrifum sem koma svo fram í sýningunni sem verður opnuð um miðjan mars,“ út- skýrir hún. Í apríl verður Ólöf svo með einkasýningu í galleríi í Torino sem ber heitið Velan. „Svo þarf ég nú einhvern veginn að finna tíma til að þróa áfram hlutina og kasta mæðinni, skella mér í kaffiboð og sund á Íslandi.“ Hægt er að nálgast upplýsingar um sýningu Ólafar á heimasíðu The Showroom, www.theshowroom.org. Lopameyja sýnir færni sína og tilburði við að stökkva upp á hleðslur og steina á myndbandi sem sýnt er á sýningu Ólafar Björnsdóttur í The Showroom í London. Frægasta lopapeysa myndlistarsögunnar Skrifstofutækni 250 stundir! Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj- andi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru:  Handfært bókhald  Tölvugrunnur  Ritvinnsla  Töflureiknir  Verslunarreikningur  Glærugerð  Mannleg samskipti  Tölvubókhald  Internet STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word- ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!. Steinunn Rósq, þjónustu- fulltrúi, Íslenska Útvarpsfélaginu Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli Íslands B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6 Opið til kl. 22.00 Félag íslenskra fræða stendur fyr- ir fundi í Sögufélagshúsinu, Fischer- sundi 3, kl. 20.30 í tilefni af því að jólabókaflóðið er nýrunnið. Horft yf- ir „flóðasvæðið“ og hugað að bók- unum sem eftir liggja. Fram- sögumaður verður Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi. „Jólabókavertíðin var um margt forvitnileg og vekur ýmsar spurningar: Eru viðtalsbæk- urnar aftur að taka völdin eftir nokk- ur góð ár fyrir íslenskan skáldskap? Er ljóðið endanlega búið að gefa upp öndina? Er sögulega skáldsagan al- gerlega að taka völdin meðal eldri höfunda? Hversu biblíufróður þarf maður að vera til að fá botn í íslensk- ar samtímabókmenntir? Og síðast en ekki síst: Komin er fram ný og áber- andi sterk kynslóð ungra höfunda. Þau afneita því hvert fyrir sig í hverju viðtalinu af öðru að þau eigi nokkuð sameiginlegt, getur það verið satt?“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Að erindi loknu taka við almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn. Pétur Pétursson sýnir málverk á Caffé Kúlture, Hverfisgötu 18, til 26. janúar. Sýninguna nefnir hann Him- inn & jörð og eru þar 12 nýjar mynd- ir frá árinu 2002, málaðar með akríl- málningu á striga. Um er að ræða landslagsmyndir sem eru allt frá smámyndum upp í 150 x 100 cm að stærð. Myndirnar verða til sölu með- an á sýningu stendur. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.