Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.01.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MARGAR þjóðir eru andvígar því að taka þátt í baráttunni gegn hryðju- verkum með Bandaríkjamönnum vegna þess að stjórnvöld í Wash- ington hneigjast til þess að hunsa mannréttindi ef þau eru talin flækjast fyrir í baráttunni. Mjög skorti á sam- kvæmni í málflutningi Bandaríkja- stjórnar, hún sýni tvöfalt siðgæði er hún fordæmi mannréttindabrot í Írak en sjái í gegnum fingur sér með sams konar brot í Sádi-Arabíu og Ísrael. Kemur þetta fram í ítarlegri skýrslu samtakanna Human Rights Watch um ástand mannréttindamála í heim- inum sem nú er komin út. „Það er ekki nóg með að það sé uggvekjandi hvernig Bandaríkja- stjórn hneigist til að hunsa mannrétt- indi í baráttunni gegn hryðjuverk- um,“ segir í skýrslu Human Rights Watch. „Þetta framferði er hættulegt vegna þess að það kemur síðar í bakið á mönnum. Það hefur þau áhrif að undir niðri kraumar andúð sem getur valdið því að auðveldara verði að fá nýja liðsmenn inn í raðir hryðju- verkasamtaka, hrekur á brott þá sem hefðu ella getað orðið bandamenn í baráttunni og dregur þrótt úr tilraun- um til að hafa hemil á hryðjuverkum.“ Kínverjar ganga á lagið Bent er á að ríkisstjórn George W. Bush forseta hafi gagnrýnislaust stutt Pervez Musharraf, forseta í Pakistan, sem hrifsaði völdin með byltingu árið 1999. Stjórnvöld í Wash- ington hafi einnig gert lítið úr kúgun sem stjórn Kína beitir gegn múslím- um í Xinjiang-héraði í vestanverðu landinu og gegn Tíbetum. Kommún- istastjórnin í Peking ver aðgerðirnar með því að hún sé að berjast gegn hryðjuverkamönnum. Loks er sagt að túlkun Bandaríkja- stjórnar á Genfarsamningnum frá 1949 um réttindi stríðsfanga valdi því að menn sem teknir voru í Afganistan og hafðir eru í haldi í Guantanamo- herstöð Bandaríkjamanna á Kúbu svífi nú í lagalegu tilliti í lausu lofti. Um öll Miðausturlönd, frá Mar- okkó til Írans, hafi brot stjórnar Bush á alþjóðalögum valdið mikilli gremju og einnig stuðningur við stjórn Ariels Sharons í Ísrael er beiti Palestínu- menn mikilli hörku. Röksemd Banda- ríkjastjórnar sé að grundvallarrétt- indi og reglur sem eigi að tryggja þau hljóti að víkja þegar neyðarástand ríki en það séu „einmitt sömu rökin og ríkisstjórnir á svæðinu hafa lengi not- að til að réttlæta umfangsmikil brot á mannréttindum eigin borgara“. Fjallað er um mannréttindamál í alls 58 ríkjum á árinu 2002 og tekið fram að sums staðar hafi þokast í rétta átt, til dæmis hafi verið bundinn endi á ófrið á Sri Lanka og í Sierra Leone og friðarviðræður hafist milli deiluaðila á Sri Lanka. En eftir sem áður séu óbreyttir borgarar drepnir á átakasvæðum víða um heim, meðal annars í Kólumbíu og í Tétsníu, í Kongó og í átökum Ísraela og Palest- ínumanna. Og stjórnvöld í Kína, Búrma [Myanmar], á Kúbu, í Íran, Írak, Líberíu og Víetnam haldi áfram að fylgja kúgunarstefnu. Evrópuríki búin að gefast upp „Bandaríkin er alls ekki versta dæmið um þá sem brjóta gegn mann- réttindum,“ sagði Kenneth Roth, framkvæmdastjóri Human Rights Watch. „En stjórnin í Washington er svo valdamikil að þegar hún virðir ekki mannréttindi skaðar það málstað mannréttinda um allan heim.“ Höfundar segja að Evrópusam- bandið hafi reynst ófært um að taka forystu í baráttu fyrir mannréttind- um vegna þess að sambandið sé svo upptekið af því að ná fram málamiðl- un um ýmis mál að það sé oft eins og lamað. Leiðtogar Evrópuríkjanna hafi í reynd gefið upp á bátinn allar tilraunir til að fá Rússa, bandamenn í baráttunni gegn alþjóðlegum hryðju- verkasamtökum, til að beita mildari aðferðum í stríðinu í Tétsníu. Segja ríkisstjórn Bush hunsa mannréttindabrot Human Rights Watch minnir á að kúgun ali oft af sér nýja liðsmenn hryðjuverkahópa Washington. AP, AFP. FJÖRUTÍU til fimmtíu þúsundir Kýpur-Tyrkja söfnuðust í gær saman í Nikósíu, hinni skiptu höf- uðborg eyjarinnar, til að krefjast endursamein- ingar landsins, gríska og tyrkneska hlutans, en hún er helsta forsendan fyrir Evrópusambands- aðild eyjarinnar. „Við viljum ekki vera fangar lengur“ sagði meðal annars á mótmælaspjöldum og beindi fólkið ekki síst spjótunum að eigin leið- toga, Rauf Denktash, sem það kallaði „fornald- areðlu“ en hann hefur verið andvígur ESB-aðild. Voru tveir námsmenn handteknir fyrir að vera með borða þar sem tyrkneski herinn, sem réðst inn í tyrkneskan hluta Kýpur 1974, var kallaður „hernámslið“. „Við verðum að horfa til fram- tíðar,“ sagði einn mótmælendanna, maður á sjö- tugsaldri, „tryggja frið og aðild að ESB.“ Mikil þátttaka í mótmælunum þykir sæta tíðindum og telja fréttaskýrendur hugsanlegt að vatnaskil séu að verða í tyrkneska hlutanum nú þegar andstaða við Denktash fer svo vaxandi sem raun ber vitni. Reuters Krefjast sam- einingar Kýpur ÞAR til fyrir um tíu árum var Bekaa-dalurinn í Líbanon alræmdur fyrir þá hassræktun sem þar var stunduð og fyrir að geyma bækistöðvar íslamskra skæruliðahópa, sem á tímum borg- arastríðsins í landinu rændu Vesturlandabúum í tugatali. Um þessar mundir er dalurinn hins vegar í umræðu manna í millum sökum þeirrar „vínbyltingar“ sem þar hefur átt sér stað. Víngerð á sér djúpar rætur í líbanskri menn- ingu. Undanfarinn áratugur hefur hins vegar þótt afar góður að þessu leytinu til. Útflutn- ingur hefur tvöfaldast, ný vínræktarbú sprott- ið upp og það er ekki síst á grundvelli hinna ágætu vína sem reynt hefur verið reynt að markaðssetja Líbanon sem ferðamannastað síðustu misserin. Á milli fimm og sex milljón vínflöskur eru framleiddar árlega og breska tímaritið Dec- anter útnefndi Líbanon nýverið sem sérlega efnilegt vínræktarland. Framleiðslan er ekki jafn umfangsmikil og í hinum gamalgrónari vínræktarlöndum en gæði vínsins eru hins veg- ar mikil, að mati þeirra sem til þekkja. Mörg af bestu veitingahúsum Evrópu leggja það í metnað sinn að geta boðið upp á líbönsk úr- valsvín. „Þetta eru spennandi tímar fyrir vínfram- leiðendur í Líbanon,“ segir Michel de Bustros, forstjóri Chateau Kefraya, sem er eitt af helstu vínbúunum þar í landi, en það er í um 900 hæð yfir sjávarmáli, mitt á milli tveggja fjallabálka. Víngerð hefur verið stunduð í Líbanon í um 4.000 ár og er það vel skiljanlegt, enda gott ræktarland þar að finna og sólin skín þar sjö mánuði á ári, hið minnsta. Þessu til staðfest- ingar byggðu Rómverjar á sínum tíma hof til heiðurs Bakkusi, vínguðinum, í borginni Baal- bek í Bekaa-dal. „Líbanon er vínlandið góða. Víngerð er stór hluti menningar landsmanna,“ segir Gabriel Rivero, spænskur víngerðarmað- ur hjá Kefraya. Kefraya og Ksara-víngerðin, sem er sú elsta í Líbanon – var sett á laggirnar af jesúítaprest- um árið 1857 – ráða um 70% markaðarins í landinu. Um þriðjungur framleiðslu Kefraya er ætlaður til útflutnings. Vínin frá Kefraya hafa unnið til verðlauna á erlendum vettvangi, eins og Bustro þreytist ekki á að rekja, en ekki er nema um aldarfjórðungur síðan fyrirtækið tók til starfa. Eiga í harðri samkeppni Borgarastyrjöldin í Líbanon á árunum 1975–1990 gerði auðvitað næstum því út af við vínræktarframleiðsluna í landinu. Skriðdrekar skemmdu ræktarlandið, ofbeldi dró úr allri framtakssemi framleiðenda og iðnaðurinn var í upplausn. Raunar eru ekki nema fjögur ár síð- an Evrópusambandið varaði líbönsk stjórnvöld við því að setja þyrfti skýrar reglur um fram- leiðslu víns í landinu, ella væri hætta á því að banna þyrfti innflutning vína þaðan til ESB- ríkjanna. Friðsamlegra er nú um að litast í Líbanon og einnig samþykkti þing landsins lög í tæka tíð til að koma mætti í veg fyrir aðgerðir af hálfu ESB. Fyrir vikið hefur víngerðariðnaðurinn tekið kipp, sem fyrr segir. Áfengi er að vísu lit- ið hornauga víða í arabaheiminum en í Líbanon – þar sem trúarhópar eru margir og misjafnir (um 40% af þeim 3,5 milljónum manna sem búa í Líbanon eru kristin) – hafa menn reynt að stuðla að vexti greinarinnar. „Markmið okkar er að búa til vín á heims- mælikvarða,“ segir Ramzi Ghosn, einn af eig- endum Massaya, fyrirtækis sem stofnað var 1998 en sem er í hvað mestri sókn á líbönskum markaði. Hann segist telja að öll vínræktarbú- in í Líbanon eigi að vinna saman. „Við erum all- ir í sama liðinu,“ segir hann. „Sameiginlega eigum við í samkeppni við vín frá Chile, Ástr- alíu og Suður-Afríku.“ AP Líbanskir verkamenn safna saman vínberjum í Kefraya-þorpi í Bekaa-dalnum. „Vínbylting“ í stað borgarastríðs Kefraya. AP. Gæði líbanskra vína þykja nú vera með þeim mestu sem bjóðast á markaðnum SÍAMSTVÍBURARNIR Maria Ter- esa og Maria de Jesus Quiej Alvar- ez, sem voru aðskildar í Bandaríkj- unum sl. sumar, eru nú komnar heim til foreldra sinna í Gvatemala en þær voru útskrifaðar af barna- sjúkrahúsi Kaliforníu-háskóla í Los Angeles í fyrradag eftir sjö mánaða dvöl þar. Þeim var vel fagnað við heimkomuna en forsetafrú Gvate- mala, Evelyn Morataya, fór fyrir opinberri móttökunefnd. Stúlkurnar fæddust í þorpi í Gvatemala fyrir 17 mánuðum. Höf- uð þeirra voru samvaxin og stúlk- urnar sneru hvor í sína áttina. Að meðaltali fæðast fimm síams- tvíburar á hverja milljón barnsfæð- inga og þar af eru aðeins 2% tvíbur- anna með samvaxin höfuð. Heilar stúlknanna voru ekki sam- vaxnir. Áhættusamasti þáttur að- gerðarinnar var að aðskilja æðar sem tengdu höfuð stúlknanna. Hætta var á að stúlkurnar fengju heilablóðfall ef læknunum tækist að aðskilja æðarnar þannig að blóð streymdi til heilanna. Slík aðgerð hafði áður verið gerð fjórum sinn- um á síðustu tíu árum og nokkur barnanna dóu. Jorge Lazareff, yfirtaugalæknir á sjúkrahúsinu þar sem aðgerðin fór fram, sagði að allt útlit væri fyr- ir að báðar stúlkurnar myndu ná góðum bata. Stúlkurnar, sem eru eins og hálfs árs, þurfa þó að gang- ast undir fleiri aðgerðir, m.a. vegna afbrigðilegs höfuðlags, þegar þær verða fjögurra eða fimm ára. Um 50 læknar og hjúkrunarfræð- ingar tóku þátt í aðgerðinni sem kostaði tæpar 130 millj. kr. þótt margir hefðu gefið vinnu sína. Sjúkrahúsið stóð einnig fyrir söfn- un ásamt líknarsamtökunum Heal- ing the Children. AP Vel fagnað við heim- komuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.