Morgunblaðið - 15.01.2003, Side 6
Davíð Oddsson forsætisráðherra ávarpar stofnfund Íslenska verslunarráðsins í Japan sem fram fór í sendiráði Íslands í Tókýó í gær.
UM þrjátíu og fimm aðilar sóttu
stofnfund Íslenska verslunarráðsins í
Japan, sem fram fór í íslenska sendi-
ráðinu í gær. Þetta var fólk í japönsku
viðskiptalífi sem hafa ýmist verið í
viðskiptum með íslenska vöru og
þjónustu eða hafa hug á því, auk þess
að vilja örva samskipti þjóðanna. Dr.
Eyþór Eyjólfsson var kjörinn forseti
verslunarráðsins og með honum í
stjórn fjórir japanskir framkvæmda-
menn úr ólíkum sviðum viðskiptalífs-
ins.
Í ávarpi sínu við stofnun Íslenska
verslunarráðsins í Japan í gær, sagði
Ingimundur Sigfússon sendiherra
viðtökurnar og áhugann fyrir hinu
nýja verslunarráði hafa farið fram úr
sínum björtustu vonum og enn og aft-
ur sýnt fram á sterk tengsl og vináttu
milli þjóðanna. Um þrjátíu og fimm
stofnendur voru mættir á fundinn,
auk heiðursgestsins, Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra, en opinber heim-
sókn hans til Japans hófst í gær.
Í ræðu sinni reifaði Davíð ástand
viðskipta- og efnahagsmála á Íslandi.
Hann greindi frá því hvernig þjóðin
hefði á liðinni öld brotist frá örbirgð
og byggi nú við einhverja mestu vel-
megun sem þekkist meðal þjóða
heimsins. Fiskveiðar væru enn horn-
steinn að samfélaginu en þjóðin ætti
aðrar auðlindir, eins og í endurnýj-
anlegri orku, og hlutur álframleiðslu
væri mjög vaxandi þáttur í verð-
mætasköpun. Þá sagði Davíð meðal
annars frá þróun einkavæðingar rík-
isstofnana síðasta áratug og frá sam-
starfi Íslands og þjóða, eins og innan
NATÓ og EES, auk þess sem hann
útskýrði hvers vegna það kæmi Ís-
landi vel að standa utan Evrópusam-
bandsins.
Eftir að forsætisráðherra hafði lýst
opinberlega yfir stofnun Íslenska
verslunarráðsins í Japan, lagði Ingi-
mundur Sigfússon fram tillögu um
skipan stjórnar, sem var samþykkt
með lófataki.
Formaður stjórnarinnar er dr. Ey-
þór Eyjólfsson, heiðurskonsúll Ís-
lands í Japan og forstjóri fyrirtækis í
ferðaþjónustu, K.K. Viking. Auk hans
sitja í stjórninni Kanji Ohasi, stjórn-
arformaður Grand Hyatt hótelsins í
Tókýó, Sadahiko Hir-
ose, stjórnarformaður
@ Net.Home sem er vel
þekkt fyrirtæki í dreif-
ingu sjónvarpsefnis á
breiðbandi, Keijiro
Dohi, forseti Nishikawa
Dori sem flytur inn æð-
ardún frá Íslandi og Hi-
roshi Suzuki, varafor-
seti fyrirtækisins
Nichiro sem er vel
þekkt í matvælaiðnaði í
Japan og hefur keypt ís-
lenskar sjávarafurðir
um árabil.
Eyþór segir fyrsta
tilgang verslunarráðs-
ins vera að nýta þau sambönd sem
stofnað hefur verið til af hálfu sendi-
ráðsins síðan það tók til starfa. „Í
öðru lagi er að koma áfram til félag-
anna þeim upplýsingum sem sendi-
ráðið og menn sem eru í
viðskiptum búa yfir. Í
þriðja lagi er mjög virkt
samstarf milli evr-
ópskra verslunarráða
og við munum starfa
með þeim félagsskap.
Hann hefur oft beitt sér
hér til að koma vörum
inn á Japansmarkað, til
að lækka tolla og svo
framvegis. Það mun
gera Íslendingum auð-
veldara við að selja sín-
ar vörur hérna. Í fjórða
lagi er það síðan að að-
stoða þá sem eru að
koma hingað að halda
fyrirlestra og kynna vörur, og að
kynna Ísland almennt.“
Eyþór hefur reynslu af starfi
Norska verslunarráðsins í Japan, en
hann var varaformaður þess og síðan
formaður á árunum 1996 til 2000.
Hann segir árangur starfs þess hafa
verið augljósan. „Norðmenn hafa
samt mun stærra sendiráð en við og
meiri peninga til að kynna vörur sínar
og ferðamennsku en það gerir þetta
nýja verslunarráð okkar enn mikil-
vægara fyrir bragðið. Ég efast ekki
um að þetta ráð muni skila árangri og
þess vegna var líka mjög mikilvægt
að fá góða menn í stjórnina.“
Góð viðbrögð
Þetta er í annað skipti sem Ingi-
mundur Sigfússon er viðriðinn stofn-
un íslensks verslunarráðs erlendis,
því skömmu eftir að hann kom sem
sendiherra til Þýskalands, árið 1995,
var stofnað íslenskt verslunarráð þar
í landi.
„Við erum í mjög góðu samstarfi
við Verslunarráð Íslands og það er af-
skaplega mikilvægt,“ segir Ingi-
mundur. „Það var gott tækifæri að
stofna verslunarráðið núna fyrst for-
sætisráðherra var að koma í heim-
sókn hingað. Viðbrögð forsvars-
manna fyrirtækja voru miklum mun
betri en við höfðum þorað að vona.“
Ingimundur segir stofnendurna
vera fólk sem kemur víða að og hefur
margt sýnt Íslandi mikinn áhuga.
„Það hefur verið ánægjulegt að stofna
til kynna við áhugaverða aðila hér í
landi, margir þeirra taka þátt í stofn-
un ráðsins. Um leið og Japanir fá að
vita meira um Ísland verða þeir
áhugasamir, enda eiga þessar þjóðir
svo margt sameiginlegt. Hvorart-
veggja eru eyjaskeggjar, báðar þjóðir
þurfa að vernda lífríkið í hafinu í
kringum sig, eru upp á náttúruna
komnar, báðar þjóðir hafa heitt vatn
og eldfjöll. Á margan hátt eigum við
ekki ósvipaða menningu; við eigum
Íslendingasögurnar og þeir hafa sínar
fornu listir. Þetta er allt mjög þýðing-
armikið í þessum samskiptum.
Verslunarráðið mun verða mjög
mikilvægur vettvangur á sviði við-
skipta milli þjóðanna. Sendiráðið er
fámennt en verslunarráðið og sendi-
ráðið geta stutt við hvort annað og
komið fleiru í framkvæmd en ella.
Verslunarráðið mun koma að allskyns
hlutum. Þetta er svo blandaður hóp-
ur, menn með ólík starfssvið og
áhugamál. Vissulega vona ég að hægt
verði að koma á miklu meiri sam-
skiptum milli þjóðanna. Ekki bara í
sambandi við viðskipti heldur líka
hvers kyns menningarsamskipti og
sýningar, til dæmis á íslenskum
vörum og iðnaði. Ég er þeirrar skoð-
unar að menningin leiði af sér við-
skipti, öflug menningarsamskipti eru
gífurlega mikilvæg.“
Mikill áhugi fyrir ís-
lensku verslunarráði
Morgunblaðið/Einar Falur
Ingimundur Sigfússon
Davíð Oddsson lýsti op-
inberlega yfir stofnun
Íslenska verslunarráðs-
ins í Japan við athöfn í
Tókýó í gær. Einar Fal-
ur Ingólfsson fylgdist
með fundinum.
efi@mbl.is
IKEBANA er heitið á
japönsku listformi
sem Íslendingar kalla
blómaskreytingar. Í
Japan er ikebana
meira en skreyting;
það er göfug listgrein
þar sem árstíðin er
túlkuð með þeim
plöntum sem eru í
blóma á hverjum tíma.
Auk þess hafa margar
plantnanna ríka tákn-
ræna merkingu.
Þannig standa nú á
nýju ári í flestum
stofnunum og fyr-
irtækjum í Japan
skreytingar með furu-
greinum og bamb-
usstilkum, sem boða langlífi og vel-
megun.
Á fyrsta degi opinberrar heim-
sóknar Davíðs Oddssonar og eig-
inkonu hans, Ástríðar Thorarensen,
til Japans fengu Ástríður og Val-
gerður Valsdóttir, sendiherrafrú,
sýningu og leiðsögn í ikebana í Oh-
ara-skólanum í Tókýó. Þetta er einn
virtasti skóli sinnar tegundar, stofn-
aður fyrir meira en 200 árum og við
stofnandann er kennd ein helsta
tegund blómaskreytinga.
„Í japönskum blómaskreytingum
er grundvallaratriði að hafa enga
miðlægni,“ útskýrði Haruyo Jiuk-
uchi um leið og hún mundaði klipp-
ur og raðaði saman furugreinum,
orkídeum, kamillu- og sinn-
epsblómum, sírenum og fleiri
plöntum sem nú blómstra í Japan.
Hún setti saman þrenns konar
skreytingar, þær stærstu eiga að
vera eins og málverk sem sýna eft-
irmynd náttúrunnar.
„Í skreytingum verður að vera
efni og innihald,“ sagði hún og að-
stoðaði Ástríði við að gera fallega
skreytingu með orkídeu, sírenu og
sinnepsblómum. Þegar Ástríður
dáðist að ilmi plómublóma sem
Haruyo notaði hló hún og sagði:
„Hér skiptir ilmurinn ekki máli. Það
er útlitið eitt sem við dáumst að.“
Skreytingar sem boða
langlífi og velmegun
Ástríður Thorarensen, eiginkona Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra, og Valgerður Valsdóttir,
sendiherrafrú, fá tilsögn í fornum skóla í Tókýó
sem kennir ikebana, blómaskreytingar. Það er
forn japönsk list sem enn er í hávegum höfð.
Morgunblaðið/Einar Falur
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLUMENN sættu of-
beldi 81 sinnum á árinu 2001
samkvæmt úttekt ríkislög-
reglustjóra og telst fjöldi mál-
anna nokkuð færri en árið á
undan. Algengast er að ráðist
sé á lögreglumenn í kjölfar þess
að fyrirmælum þeirra er ekki
hlýtt en sú var raunin í 60% til-
vika. Í 20% tilvika var um að
ræða fyrirvaralausar árásir á
lögreglumenn og í tæplega 10%
tilvika voru þeir hindraðir í
starfi. Þá var þeim hótað í 6%
tilvika og í 4% tilvika var um
aðrar orsakir að ræða.
Í umræddu 81 máli voru 98
einstaklingar kærðir, 82 karlar
og 16 konur.
Lögreglumenn hlutu meiðsl
50 sinnum, þar af voru sextán
þeirra kýldir, ellefu bitnir,
sparkað í níu og átta slösuðust í
átökum við handtekna menn,
þrír voru skallaðir í andlit og
jafnmargir hlutu meiðsl þegar
vopnum var beitt.
Til að sýna dæmi um hvernig
ofbeldi brýst út gegn lögregl-
unni í daglegum störfum henn-
ar er birt eftirfarandi frásögn
af heimasíðu lögreglunnar:
Ungur piltur sparkaði í
andlit lögreglumanns
Lögreglumenn voru sendir
að skóla vegna rúðubrota, sem
unglingsdrengir voru grunaðir
um. Þeir voru einnig grunaðir
um að hafa ráðist að manni í
hverfinu. Lögreglumennirnir
fundu piltana og þurfti nokkur
átök við handtöku þeirra. Þeg-
ar lögreglumaður var með einn
drengjanna í tökum og var að
færa hann í handjárn kom 15
ára gamall piltur og sparkaði í
andlit lögreglumannsins. Pilt-
urinn komst undan á hlaupum
en borgarar hlupu á eftir hon-
um og sáu til hans þar sem
hann hoppaði niður af háum
bakka og fótbrotnaði við það.
Pilturinn var fluttur á slysa-
deild vegna áverkanna. Sama
var með lögreglumanninn, en
hann hlaut heilahristing og yf-
irborðsáverka á enni. Gleraugu
hans brotnuðu og föt rifnuðu.
Pilturinn var dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi.
Í málaskrá lögreglu eru um-
rædd brot flokkuð sem brot
gegn valdstjórninni. Hámarks-
refsing getur numið allt að sex
og átta ára fangelsi.
Lögreglumenn voru
81 sinni beittir of-
beldi í starfi árið 2001
Sextán
kýldir
og ellefu
bitnir
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar var
fluttur með sjúkrabifreið á Land-
spítala–háskólasjúkrahús eftir harð-
an árekstur við dráttarbifreið á Suð-
urlandsvegi skammt vestan Þjórsár í
gær.
Áreksturinn varð um kl. 13 og að
sögn lögreglunnar á Selfossi voru til-
drögin þau að fólksbifreiðinni var ek-
ið út á Suðurlandsveg af afleggjara
upp að Urriðafossi og lenti framan á
dráttarbifreiðinni sem kom aðvífandi
á þjóðvegahraða. Fólksbifreiðin er
ónýt eftir áreksturinn en ökumaður
hennar slasaðist þó ekki lífshættu-
lega að sögn lögreglu. Ökumaður
hinnar bifreiðarinnar slapp með
minniháttar meiðsl.
Harður
árekstur ná-
lægt Þjórsá