Morgunblaðið - 15.01.2003, Síða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tillaga að breytingu á Svæðis-
skipulagi Eyjafjarðar 1998 - 2018.
Hólshús í Eyjafjarðarsveit,
íbúðarsvæði.
Með vísan til 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997 m. s. b. aug-
lýsir sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hér með breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar
1998 - 2018. Breytingin felst í því að 28,9 ha svæði úr jörðinni Hólshúsum verður
íbúðarsvæði í stað landbúnaðar. Sveitarstjórn mun taka að sér að bæta það tjón
sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna.
Tilagan hefur verið send til kynningar þeim sveitarstjórnum, sem aðild eiga að
svæðisskipulaginu. Tillagan mun einnig send Skipulagsstofnun, sem gerir tillögu til
umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar. Aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag
sama svæðis hefur áður verið auglýst. Nánari upplýsingar eru fyrirliggjandi á skrif-
stofu Eyjafjarðarsveitar að Syðra-Laugalandi.
F. h. Eyjafjarðarsveitar.
Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri.
HELGA Steinunn Guðmundsdóttir,
formaður KA, er mjög ósátt við að
hugmyndin um lagningu Dalsbraut-
ar í gegnum KA-svæðið sé enn og
aftur kominn upp á borðið, eins og
hún orðaði það í ræðu sinni í afmæl-
ishófi KA á dögunum. „Mér finnst
það satt að segja undarleg hug-
myndafræði að leggja hraðbraut í
gegnum gróið íbúðasvæði, steinsnar
frá einum af grunnskólum bæjarins
og KA-heimilinu,“ sagði Helga Stein-
unn. Hún gat þess jafnframt að með
lagningu brautarinnar væri verið að
skerða verulega núverandi KA-
svæði og því hlyti hún að mótmæla
kröftuglega. „Ég trúi ekki öðru en
frá þessum hugmyndum verði horf-
ið,“ sagði hún.
Verulega þrengt að félaginu
og brýnt að fá ný svæði
Formaður KA sagði að verulega
væri þrengt að félaginu varðandi
landrými og að mjög brýnt væri að
það fengi nýtt útisvæði á nýjum
byggingasvæðum á Suður-Brekk-
unni. Að því verkefni þyrfti fyrr en
síðar að vinna og einkum og sér í lagi
ef þær hugmyndir yrðu að veruleika
að leggja Dalsbraut gegnum KA-
svæðið, „eins og nú virðist vera uppi
á teningnum“.
Guðmundur Jóhannsson, formað-
ur umhverfisráðs, sagði að sam-
kvæmt framkvæmdaáætlun væri
fyrirhugað að leggja Dalsbraut, frá
Borgarbraut og upp að Þingvall-
astræti nú í haust, 2003. Engar áætl-
anir lægju fyrir með framhaldið, en
hann benti á að til margra ára hefði
samkvæmt skipulagi legið fyrir að
Dalsbraut yrði lögð á umræddu
svæði. Hann sagði að með þeim fram-
kvæmdum sem hafist yrði handa við í
haust myndi létta mjög álagi á neð-
anverðu Þingvallastræti, þ.e. neðan
Mýrarvegar. Þar væri mikil umferð
og íbúðarhús á báða bóga, auk þess
sem gangandi vegfarendur væru þar
í miklum mæli á ferðinni.
Umhverfisráð skipaði fyrir nokkru
starfshóp sem í eiga sæti formaður
umhverfisráðs, formaður bæjarráðs
og sviðsstjóri tækni- og umhverfis-
sviðs til að fara yfir kosti og galla við
legu Dalsbrautar sunnan Þingvall-
astrætis að Naustahverfi og Miðhús-
abrautar frá Þingvallastræti að Dals-
braut. Þá var samþykkt að bjóða
einum fulltrúa íbúa á Suður-Brekku
að sitja í starfshópnum.
Verkefni hópsins verður að fara
yfir núverandi stöðu og valkosti og
afla frekari upplýsinga, m.a. varð-
andi mögulega legu tengibrautar auk
þess að gera frumkostnaðarmat
leiða, athuga nýtingu svæðisins m.t.t.
þéttingar byggðar og skoða hvort
aðrir möguleikar séu á tengingu við
Naustahverfi. Hópnum er ætlað að
gera greinargerð um málið og skila
eigi síðar en 1. apríl næstkomandi.
Formaður KA ósáttur ef Dalsbraut verður lögð gegnum félagssvæðið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Horft til suðurs og yfir KA-svæðið, en samkvæmt margra ára gömlu skipulagi er ætlunin að leggja framhald Dalsbrautar þar í gegn og að Naustahverfi,
næsta íbúðabyggingasvæði á Akureyri. Formanni KA finnst það undarleg hugmyndafræði og trúir ekki öðru en fallið verði frá hugmyndum um það.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Framkvæmdir við lagningu Dalsbrautar frá Borgarbraut upp að Þingvallastræti hefjast næsta haust, en brautin
mun liggja eftir svæðinu sem sést á myndinni.
Skerðir svæðið verulega
AKUREYRI verður á meðal við-
komustaða í franskri sigl-
ingakeppni sem haldin verður í
sumar.
Siglingakeppnin fór fyrst fram
árið 2000 en það var Paimpol-bær á
Frakklandi sem skipulagði keppn-
ina til að minnast siglinga franskra
sjómanna á fengsæl fiskimið við Ís-
landsstrendur fyrr á tímum, en
margir sjómenn frá Paimpol veiddu
við Íslandsstrendur. Tilgangurinn
er þannig einnig að efla tengsl við
land og þjóð.
Akureyri hefur nú verið bætt við
sem áfangastað í keppninni, en svo
var ekki fyrir þremur árum. Siglt
verður af stað 1. júní næstkomandi,
en leiðin er Paimpol-Reykjavík-
Akureyri-Paimpol.
Gera má ráð fyrir að glæsilegar
skútur sigli inn Pollinn dagana 19.
og 20. júní næstkomandi og brott-
för er svo áætluð 22. júní.
Gert er ráð fyrir að um 30 skútur
taki þátt í keppninni en síðast tók
ein íslensk skúta þátt í henni og er
þess vænst að þær verði fleiri núna
í sumar.
Búist er við að 3–500 ferðamenn
komi til bæjarins í tengslum við
keppnina.
Minnast siglinga franskra
sjómanna á Íslandsmið
Akureyri meðal
viðkomustaða
UM miðjan febrúar hefst sjötta
námskeiðið í AtvinnuLífsins-
Skóla um rekstur og viðskipta-
lífið almennt. Námskeiðinu hef-
ur verið vel tekið af
vinnumarkaðnum að því er
fram kemur í frétt um nám-
skeiðið, en nú þegar hafa um
100 manns tekið þátt í því.
Námskeiðinu er ætlað
stjórnendum/eigendum lítilla
fyrirtækja og millistjórnendum
í stærri fyrirtækjum. Sérstak-
lega er höfðað til þeirra sem
ekki hafa langskólamenntun á
sviði viðskipta. Um er að ræða
tveggja vikna námskeið í sam-
anþjöppuðu formi um grunnat-
riði í rekstri, markaðsfræðum,
stjórnun og stefnumótun. Þátt-
takendur fá innsýn í íslenskt
efnahagskerfi og „nýju hag-
fræðina.“ Lögð er áhersla á
samspil atvinnurekstrar við
aðra þætti í þjóðlífinu eins og
menningu og mannlíf og að fyr-
ir árangur í rekstri skipti lík-
amsrækt og hollir lífshættir
miklu máli.
Námskeiðið er haldið að
Öngulsstöðum lll í Eyjafirði og
er kennt fimm daga í senn með
mánaðar millibili. Hægt er að
ská sig á vef Endurmenntunar
Háskóla Íslands.
AtvinnuLífsinsSkóli
Sjötta
námskeiðið
ÁKVÖRÐUN um refsingu tæplega
þrítugs karlmanns var frestað í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra í vikunni
og hún felld niður haldi hann almennt
skilorð í eitt ár. Maðurinn var ákærð-
ur fyrir líkamsárás með því að hafa í
apríl á liðnu ári á veitingastað á Húsa-
vík snúið upp á handlegg stúlku með
þeim afleiðingum að hún marðist eða
tognaði og bólgnaði upp.
Tilefnið má rekja til þess að brota-
þoli var ósátt við að vinkona mannsins
„var að „gaula“ í svonefnt karaoke-
tæki og haft uppi ítrekaðar athuga-
semdir þar um,“ eins og segir í dómn-
um. Mislíkaði manninum ummæli
brotaþola og viðhafði því að lokum þá
háttsemi sem ákært var fyrir.
Maðurinn játaði brot sitt. Hann
hefur ekki áður gerst sekur við hátt-
semi, sem hafði áhrif í þessu máli.
Skaðabóta var ekki krafist en mann-
inum gert að greiða sakarkostnað.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Mislíkaði
ummæli og
sneri upp á
handlegg