Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 22

Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR eitthvert safnanna áÍslandi heldur yfirlitssýn-ingu á verkum eldri mynd-listarmanna þjóðarinnar kemur ósjaldan upp spurning um kynjahlutfallið, þar sem konur eru jafnan í afgerandi minnihluta. Á síð- ari tímum hefur hlutfallið þó jafnast út enda hafa mun fleiri konur en karlmenn verið að sækja myndlist- arnám undanfarin ár. Í raun hefur dæmið snúist við ef dæma má aðsókn í Listaháskóla Íslands þetta árið, en af 26 nemendum sem skráðir eru á fyrsta ári eru 2 karlmenn og 24 kon- ur. Í bókum um alþjóðlega listasögu fyrri alda, þ.e. fyrir 20. öldina, er sjaldgæft að kona sé nefnd á nafn. Þó hafa þær eins og karlmenn unnið að myndlist, en í minni mæli sökum samfélagslegra aðstæðna. Fyrr á öldum var konum ætlað að vera heima við og fást við saumaskap á meðan karlmennirnir fengust við „al- varlega“ listsköpun. Þó er vitað um allnokkrar listakonur sem sköpuðu metnaðarfulla myndlist allt aftur til 15. aldarinnar, en fyrir þann tíma mannkynssögunnar voru listaverk sjaldan merkt höfundi og því lítið vit- að um kyn þeirra sem sköpuðu lista- verkin. Yfirleitt voru það munkar sem sáu um myndsköpun á miðöld- um og því ósennilegt að margar kon- ur hafi verið að skapa myndlist í þá daga. Í byrjun 20. aldarinnar þegar hlut- verk myndlistar var óskilgreint urðu konur meira áberandi í myndlist enda höfðu margar þeirra, svo sem Sophie Tauper, Sonia Delaunay, Meret Oppenheim, Louise Nevelson og Georgia ÓKeefe, mótandi áhrif á stefnur myndlistarinnar. Enn voru þær þó í miklum minni- hluta og féllu oft í skuggann af körl- unum eins og listakonurnar Lee Krasner og Elaine de Kooning eru gott dæmi um, en þær voru eig- inkonur listamannanna Jackson Poll- ock og Willem de Kooning og voru ósýnilegar í myndlistarheiminum þangað til eiginmenn þeirra voru látnir. Þá fyrst fór eitthvað að bera á verkum eiginkvennanna. Á áttunda áratugnum var femínísk umræða farin að hafa umtalsverð áhrif á listsköpun kvenna og mynd- uðust hópar eins og LACWA (Los Angeles Council of Women Artists), WEB (West-East Bag) og WCA (Womeńs Caucus for Art) sem börð- ust fyrir jafnrétti listakvenna. Á ní- unda áratugnum fór myndlist- arheimurinn loks að meðtaka femíníska list og listakonur sem unnu verk um ímyndir og samfélags- stöðu kvenna, eins og Cindy Sherm- an og Barbara Kruger, urðu áber- andi í myndlistarumræðu bæði hjá konum og körlum. Ein listakonan sem þá var hvað mest í umræðunni var franski skúlp- túristinn Louise Bourgeois, en hún hafði verið leiðandi í femínískri myndlist í um fjóra áratugi án þess að hljóta þá athygli sem henni bar. Louise Bourgeois hafði flust til New York skömmu fyrir síðari heims- styrjöldina og starfaði þar að list- sköpun. Árið 1947 sýndi hún málverk og teikningar þar í borg sem hún nefndi „Femme maison“ (Konu hús). Myndirnar sýndu líkama kvenna með hús í stað höfuðs og voru þær dæmdar sem súrrealísk verk. En Bourgeois var ekki upptekin af hugmyndum súrrealistanna heldur var hún að velta fyrir sér stöðu kvenna í samfélaginu og í listum. Hún sagði konur vera fanga heimilis- ins og að helsta togstreita lista- kvenna væri á milli listsköpunnar og heimilishalds. „Femme maison“ eru fyrstu verkin þar sem hún tekur meðvitað fyrir femínísk málefni og marka þau tímamót í listþróun henn- ar sem og í femínískri myndlist. Sama ár og hún sýndi „Femme mais- on“ fór Bourgeois að vinna í skúlptúr og hefur hún haldið sig við þrívíða list æ síðan. Tvö form hafa verið áberandi í verkum hennar. Ann- arsvegar fallískt form reðursins og hinsvegar belgform sem ýmist minna á brjóst eða þungun. Und- anfarið hefur fígúran verið að koma aftur í ljós í verkunum. Á Docu- menta-sýningunni í Þýskalandi síð- astliðið sumar sýndi hún m.a. fígúra- tífa skúlptúra úr taui sem hún læsti í búri. Verkin nefndi hún „Klefar“ og eru, eins og flest hennar verk, byggð á óuppgerðum tilfinningum listakon- unnar og æskuminningum. Að því leyti er Bourgeois frábrugðin flest- um listamönnum af sinni kynslóð sem yfirleitt leituðu í dulspeki og spíritisma. Hún notar sitt eigið líf til að fjalla um mannlega þætti. Bour- geois verður 92 ára gömul á árinu. Hún er á meðal áhrifamestu skúlp- túrista 20. aldarinnar og er enn starf- andi og afkastamikil listakona. Louise Bourgeois og femínisminn Eftir Jón B.K. Ransu Konuhús, olíumálverk frá árinu 1947. Louise Bourgeois með skúlptúr undir hendi árið 1982. Verkið Klefi XVIII (portrett) frá árinu 2000 byggist á æskuminn- ingum listakonunnar. Höfundur er myndlistargagnrýnandi á Morgunblaðinu. ENGUM þeim sem til Skálholts koma dylst það sérstaka andrúms- loft sem þar ríkir. Helgi staðarins verður varla útskýrð með orðum en einstök staðsetning Skálholts, hið fallega guðshús og síðast en ekki síst áhrifamikil altaristafla, Kristsmynd Nínu Tryggvadóttur, lætur engan ósnortinn. Um árabil hefur Skálholtsstaður verið mikilvæg miðstöð tón- listarlífs á Suðurlandi. Auk blómlegrar tón- listarstarfsemi sem tengd er kirkjuhaldinu að Skálholti hafa þar verið haldnar árvissar tónlistarhátíðir að sumarlagi, Sumartón- leikar í Skálholti, en aðal hvatamaður og skipuleggjandi þessar- ar tónlistarhátíðar hef- ur verið Helga Ingólfs- dóttir semballeikari. Tónleikahaldið hefur einnig leitt af sér fjölda hljóðritana bæði á gamalli og ekki síður nýrri tónlist, sem þá oftar en ekki hefur verið samin fyrir tilstilli Sumartónleikanna. Skálholtsmessa Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar var samin árið 2000 að beiðni Helgu Ingólfsdóttur fyrir Sumartónleika í Skálholti og hefur Smekkleysa nú gefið verkið út í hljóðritun í fyrsta sinn. Tónskáldið segir svo frá tilurð verksins í meðfylgjandi bæklingi að hann hafi langað til að semja hefðbundna messu en viljað, að gefnu tilefni, tengja hana Skál- holtsstað sérstaklega. Því hafi hann, í bland við latneskan messu- texta, notast við íslenska sálma úr fornum sálmabókum og í stað hins hefðbundna Credos hafi hann not- að latneska þýðingu á trúarjátn- ingu Martins Luthers. Eini hluti verksins sem er ekki frumsaminn af Hróðmari Inga er lokakaflinn, Epilogus: Beata nobis gaudia, sem kemur úr skólakveri Skálholtsskóla frá 17. öld. Tón- skáldið hefur hér gert sérlega fal- lega útsetningu á sálminum fyrir kammersveit og söngraddir. Tónsmíðastíll Hróðmars Inga er persónulegur og nokkuð auðþekkj- anlegur. Tónvefurinn í Skálholts- messu er gegnsær og skýr og tón- málið algerlega án tilgerðar, engar brellur notaðar til að villa hlust- endum sýn. Hróðmar Ingi gerir sér far um að koma skilaboðum tónlistarinnar á framfæri á auð- skiljanlegan hátt og er ekki ein- göngu að semja fyrir þröngan hóp fagfólks sem hefur ómældan tíma og þolinmæði. Þessi tónlist nær til okkar allra því hér ríkir látleysið og einlægnin. Varla verður sagt að í Skálholtsmessu kveði við sérstak- an, íslenskan tón nema þá helst í hinu fallega Agnus Dei þar sem hending úr Ísland farsælda Frón kemur sterkt fram. Verkið gæti hafa verið samið hvar sem er og t.d. í hressilegum, nýklassískum Gloríu-kaflanum er ekki laust við að Stravinsky komi upp í hugann. Í verkinu lítur Hróðmar Ingi því bæði til tónmáls fyrri alda og seinni tíma. Yfirbragðið kann að vera „nútímalegt“ á yfirborðinu en messan stendur þó á traustum fót- um í evrópskri tónlistarhefð lið- inna alda. Hljóðfæraleikurinn í Skálholts- messu er hér fluttur af Caput- hópnum sem bætir hér við enn einni rós í hnappagat sitt. Flutningur þeirra er í alla staði til fyrirmyndar hér sem endranær. Ein- söngvarahópurinn er traustur, en hann skipa þau Marta Guðrún Halldórs- dóttir, Benedikt Ing- ólfsson og Finnur Bjarnason. Hlutverk þeirra er að mörgu leyti vandasamt en þau skila sínu á óað- finnanlegan hátt. Ekki fer á milli mála að innblásin stjórn Gunnsteins Ólafsson- ar hefur skilað sér í tónlistarflutningi á heilsteyptu verki sem gengur hér fullkomlega upp. Að lokum skal Smekkleysu hrós- að fyrir fallegan frágang á umbúð- um en hönnun þeirra er skrifuð á aðila sem í bæklingi er nefndur Goddur. Á þessum nýjustu og verstu tím- um hins tæknivædda tónlistar- þjófnaðar fer að skipta miklu máli hvernig gengið er frá vöru sem þessari. Geisladiska þarf að gera þannig úr garði að þeir séu ekki eingöngu ákveðinn mínútufjöldi af tiltekinni tónlist heldur einnig fal- legur gripur sem gott er að hand- fjatla og gaman er að eiga. Og víst er þessi nýi geisladiskur með Skálholtsmessu Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar góð eign hvort sem litið er til innihalds eða útlits. Ein fögur söngvísa TÓNLIST Geislaplötur Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson: Skálholts- messa fyrir sópran, tenór, bassa og kammersveit. Söngur: Marta Guðrún Halldórsdóttir (sópran), Finnur Bjarna- son (tenór), Benedikt Ingólfsson (bassi). Hljóðfæraleikur: CAPUT-hópurinn. Stjórn- andi: Gunnsteinn Ólafsson. Upptaka, hljóðblöndun og eftirvinnsla: Sveinn Kjartansson, Stafræna upptökufélagið ehf., september 2001. Útgefandi: Smekkleysa SMK25, 2002. SKÁLHOLTSMESSA Valdemar Pálsson Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson Skaftfell, menningar- miðstöð á Seyðisfirði Sýning Rúríar ,,Tímans rás“ er framlengd til 27. jan- úar. Sýningin er opin alla daga kl. 13–17. Lesa má um sýninguna á www.sfk.is/skaftf-menn- midst.htm. Sýning framlengd SÝNING á ljósmyndum Ragnars Th. Sigurðs- sonar verður opnuð í Norðurlandahúsinu í Þórs- höfn í Færeyjum á laugardag og mun hún standa í u.þ.b. mánuð. Þar verða 48 ljósmyndir af fólki, menningu og náttúru landanna þriggja á Vest- norræna-svæðinu þ.e. Grænlands, Færeyja og Ís- lands. Texta á sýningarbækling skrifar Ari Trausti Guðmundsson rithöfundur og jarðeðl- isfræðingur. Myndirnar eru allar úr ferðum þeirra beggja um norðurheimskautssvæðið og útnorðrið og er þeim komið fyrir í 16 þriggja mynda röðum þar sem ein mynd frá hverju landi lýtur að tilteknu þema og er þeim ætlað að kynna löndin innbyrðis. Sýningin verður sett upp í Reykjavík á vori komanda og fer þaðan í Norræna húsið (Katuaq) í Nuuk á Grænlandi í haust. Ragnar Th. og Ari Trausti hlutu styrki frá Samstarfsnefnd vestnorrænu höfuðborganna og SAMIK (samstarfsnefnd um aukin samskipti og ferðaþjónustu Grænlendinga og Íslendinga). Íslensk farand- sýning í þremur löndum Ein myndaraða Ragnars Th. Sigurðssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.