Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 42

Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Detti- foss og Brúarfoss koma og fara í dag. Trinket og Danica Violet koma í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin mið- vikud. kl. 14–17. Flóa- markaður, fataútlutun og fatamóttaka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277 Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Bún- aðarbankinn, kl. 13–16.30 spiladagur, brids/vist, kl. 13–16 gler- list. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leikfimi, kl.14.30–15 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hár- greiðslustofan opin kl. 9–16.45 nema mánu- daga. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9 silki- málun, kl. 13–16 körfu- gerð, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta Bún- aðarbanka. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Postulíns- málun kl. 9–16.30, mód- elteikning kl. 13–16.30, hárgreiðslustofan opin kl. 9–14, fótaaðgerð- arstofan opin kl. 9–16.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11.30 hádegisverður, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrj- endur, kl. 14.30 kaffiveit- ingar. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 9.30, 10.15 og 11.10 leikfimi, kl. 13 bridsnámskeið, kl. 13.30 trésmíði, veislubakkar og gert við notað, kl. 14. handavinnuhornið. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Bingó verður spilað í Gullsmára 13 föstudaginn 13. janúar kl. 14. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–14, línudans kl. 11, pílukast kl. 13.30, kóræf- ing kl. 16.30. Skoðunarferð á Suð- urnesin fimmtudag 23. janúar, skrásetning í Hraunseli í síma 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöð- in og matur í hádegi. Miðvikudagur: Göngu- hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 9.45. Línu- danskennsla Sigvalda kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45 umsjón Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. almenn handavinna, umsjón Eliane Hommersand, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá hádegi spila- salur opinn, kl. 14 kór- æfing. Allar upplýsingar um starfsemina á staðn- um og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 9.30 boccia, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 13 glerlist, kl. 16 hringdansar, kl. 17. bobb. Fyrirhuguð er kennsla í spænsku í byrjun febrúar. Upplýs- ingar og skráning í síma 554 3400. Einnig eru iðk- endur kínverskrar leik- fimi sem vilja halda áfram hvattir til að hafa samband við afgreiðslu Gjábakka sem fyrst. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaum- ur, útskurður, hár- greiðsla og fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 13 bridge. Fræðsla. Föstu- daginn 17. janúar kl. 14, kemur Svala, verk- efnastjóri Gigtarfélags- ins, með fræðslu um gigt. M.a. verður fræðst um hvort gigt er einn sjúkdómur. Kaffiveit- ingar. Allir velkomnir, óháð aldri. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur og jóga, kl. 10 jóga, kl.13 dans- kennsla framhalds- hópur, kl. 14 línudans, kl. 15 frjáls dans. Fóta- aðgerðir og hársnyrting. Allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður. Vitatorg. Kl. 8. 45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband og bútasaumur, kl. 11.30 matur, kl. 13 handmennt – almennt, kl. 13.30 bók- band, kl. 12.30 versl- unarferð kl. 14.30 kaffi. Félag eldri borgara, Suðurnesjum Selið, Vall- arbraut 4, Njarðvík. Í dag. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10– 11 samverustund, kl. 9– 16 fótaaðgerðir, kl. 13– 13.30 banki, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi, verðlaun. Messa á morgun fimmtudag kl. 10.30 prestur sr. Kristín Páls- dóttir. Barðstrendingafélagið. Félagsvist í Konnakoti, Hverfisgötu 105, kl. 20. 30 í kvöld. Allir vel- komnir. Kvenfélagið Aldan. Fundur verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 15. janúar, kl. 20.30 í Borg- artúni 18, 3. hæð. Spiluð verður félagsvist. Takið með ykkur gesti. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú í kvöld kl. 20 á Bókasafni Kópa- vogs. Dagskrá: Sjálf- valið efni, starfið fram á vor og 20 ára afmæli Hana-nú á árinu 2003. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19.30 félagsvist. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Norðurlandi: Á Blönduósi: blómabúð- in Bæjarblómið, Húna- braut 4, s. 452-4643. Á Sauðárkróki: í Blóma- og gjafabúðinni, Hóla- vegi 22, s. 453-5253. Á Hofsósi: Íslandspóstur hf., s. 453-7300, Strax, matvöruverslun, Suð- urgötu 2–4, s. 467-1201. Á Ólafsfirði: í Blóma- skúrnum, Kirkjuvegi 14b, s. 466-2700 og hjá Hafdísi Kristjánsdóttur, Ólafsvegi 30, s. 466-2260. Á Dalvík: í Blómabúð- inni Ilex, Hafnarbraut 7, s. 466-1212, og hjá Val- gerði Guðmundsdóttur, Hjarðarslóð 4e, s. 466- 1490. Á Akureyri: í Bókabúð Jónasar, Hafn- arstræti 108, s. 462-2685, í bókabúðinni Möppu- dýrinu, Sunnuhlíð 12c, s. 462-6368, Pennanum Bókvali, Hafnarstræti 91–93, s. 461-5050 og í blómabúðinni Akur, Kaupvangi, Mýrarvegi, s. 462-4800. Á Húsavík: í Blómabúðinni Tamara, Garðarsbraut 62, s. 464- 1565, í Bókaverslun Þór- arins Stefánssonar, s. 464-1234 og hjá Skúla Jónssyni, Reykjaheið- arvegi 2, s. 464-1178. Á Laugum í Reykjadal: í Bókaverslun Rann- veigar H. Ólafsd., s. 464- 3191. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu félagsins í Suðurgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552- 2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofu- tíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586- 1088. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Í dag er miðvikudagur 15. janúar, 15. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós. (Lúk. 8, 17.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 þreifa á, 4 andspænis, 7 undirokað, 8 álitleg, 9 eldstæði í smiðju, 11 ský, 13 urgur, 14 bjarta, 15 þakklæti, 17 vitleysa, 20 reiðikast, 22 meyr, 23 hár, 24 glatað, 25 sveiflu- fjöldi. LÓÐRÉTT: 1 sverleiki, 2 skips, 3 ójafna, 4 endaveggur, 5 borguðu, 6 dregur, 10 hróður, 12 ílát, 13 óhrein- indi, 15 nafntogað, 16 hella, 18 heimild, 19 skil eftir, 20 hlassið, 21 slæmt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 afturhald, 8 vakur, 9 langt, 10 als, 11 lónar, 13 teina, 15 hjall, 18 saggi, 21 orm, 22 liðug, 23 ámuna, 24 manngildi. Lóðrétt: 2 fákæn, 3 urrar, 4 helst, 5 lindi, 6 hvel, 7 átta, 12 afl, 14 efa, 15 hóll, 16 auðna, 17 login, 18 smári, 19 grund, 20 iðan. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... ÞAÐ fór náttúrlega eins og Vík-verji spáði í pistli sínum á föstudaginn. Um leið og svolítillar hálku gætti í höfuðborginni fór allt á annan endann í umferðinni. Í pínulítilli brekku sem Víkverji þurfti að aka í gærmorgun voru tveir bílar á sumardekkjum spól- andi, komnir þversum á götunni og tefjandi morgunumferðina. Þegar Víkverji kom með barnið sitt í skólann blasti við óvenjuleg sjón; þegar bjallan hringdi inn stóðu ekki u.þ.b. 200 börn í röð utan við skólann eins og vanalega, heldur kannski svona tuttugu. Það er greinilegt að þau viðbrigði að þurfa að koma afkvæmunum í kuldagalla, skafa af bílrúðunum og aka svo hægt í hálkunni höfðu sett morg- unáætlunina úr skorðum hjá mörg- um foreldrum. En nú er sem sagt kominn vetur og fljótlega kemst það líklega upp í vana að gera ekki lengur ráð fyrir sumarveðri í jan- úar. x x x VÍKVERJI las frétt í norskablaðinu Aftenposten um að verzlunareigendur í Ósló væru orðnir svo hvekktir á að þurfa að borga alls konar gjöld til rétthafa tónlistar að þeir væru einfaldlega hættir að spila tónlist í búðunum. Verzlunareigendur eru ekki sér- lega ánægðir, en í blaðinu birtist hins vegar viðtal við viðskiptavini í verzlunarmiðstöð í Ósló sem voru himinlifandi yfir því að hafa loksins þögn á göngunum. Mikið vildi Víkverji að hið ís- lenzka STEF herti sig nú heldur í baráttunni gegn gjaldfrírri tónlist í verzlunum – þá yrði kannski slökkt á hljómflutningstækjunum víðar en þegar er orðið. Það er fullkomlega óþolandi að heyra varla mannsins mál fyrir graðhestatónlist þegar verið er að verzla. Þegar STEF verður búið að ganga frá tónlistarflutningi í búð- um mætti það gjarnan snúa sér að krám og kaffihúsum. Víkverji kann vel við skvaldrið, sem ævinlega er á slíkum stöðum, en finnst tónlistin yfirleitt óþörf og truflandi. Hann leitar uppi staði sem spila enga tónlist, því að það er of mikil vinna og gerir fólk líka óvinsælt hjá veit- ingamönnum að klippa á hátal- arasnúrur til að geta talað saman. x x x ER aldurstakmark í Þjóðarbók-hlöðunni? Er bókmenntaarf- urinn bannaður börnum? Víkverji hefur fregnað að í Þjóðarbókhlöð- unni á Melunum hafi verið sett upp skilti, sem banna börnum og ung- lingum úr skólum í Vesturbænum aðgang að þessu musteri íslenzkrar menningar. Víkverji getur nú alveg skilið að háskólastúdentar hafi t.d. forgang að lesplássum í Þjóðarbók- hlöðunni, enda er hún öðrum þræði háskólabókasafn, en það er auðvit- að alveg fráleitt að banna eða tak- marka aðgang barna og unglinga að bókasafninu yfirleitt. Þetta er sá aldurshópur, sem er að læra að nota bókasöfn og rafræn gagnasöfn til að afla sér heimilda vegna náms og auðvitað almenns fróðleiks og skemmtunar. Þetta fólk á að vera velkomið í höfuðbókasafni þjóðar- innar, að sjálfsögðu með því skil- yrði að það hagi sér vel eins og miklum meirihluta þessa aldurs- hóps er vel treystandi til. KRISTÍN Rós er fötluð og mér finnst það frábært af henni að hún skuli stunda íþróttir. Hún er afreks- íþróttamaður í hópi fatl- aðra. En það að hún hefði átt að vera valin íþrótta- maður ársins en ekki Ólaf- ur Stefánsson á ekki við rök að styðjast. Ástæðan er m.a. þessi: 1) Í íþróttum fatlaðra er fullt, fullt af flokkum þar sem fötlun hvers einstaklings er flokkuð í sérstakan hóp, þ.a.l. er mun auðveldara að verða afreksmaður í íþrótt- um fatlaðra sem Kristín Rós er í. 2) Kristín Rós set- ur 10 heimsmet á hverju ári, segir það ekki eitt- hvað? Hún væri þá íþrótta- maður ársins, ár eftir ár! 3) Ólafur er einn albesti handboltamaður í heimi, hann var og er aðalvít- amínsprautan í íslenska landsliðinu sem varð í 4. sæti á EM síðasta vetur. 4) Ólafur var markahæsti leikmaður keppninnar og var valinn í úrvalslið móts- ins. 5) Ólafur varð Evrópu- meistari með handboltaliði sínu, Magdeburg, og hann gegnir lykilhlutverki í lið- inu sem er eitt það besta í heiminum. Kristín Rós er afreks- kona en Ólafur er líka af- reksmaður, ef ekki meiri. Hann átti titilinn skilinn af því að hann þarf að leggja mun meira af mörkum til þess að verða afreksmaður í íþróttum en Kristín Rós þarf að gera því það er auð- veldara að verða afreks- maður í íþróttum fatlaðra! Einn sáttur. Athugasemd ÉG vil gera athugasemd við grein Sævars Péturs- sonar í blaðinu föstudaginn 10. janúar. Þar fullyrðir hann að ekki séu prufutímar í boði hjá World Class. Það er ekki rétt, það er hægt að fá stundaskrá þar sem einn frír prufutími er á flipa sem hægt er að rífa af. Ég varð að gera athugasemd við þetta, rétt skal vera rétt. Eftir einn slíkan prufutíma í World Class skipti ég um líkamsrækt- arstöð fyrir 6 árum. Guðný Aradóttir, Úthlíð 6. Tapað/fundið Giftingarhringur í óskilum GIFTINGARHRINGUR fannst fyrir utan Árbæjar- bakarí í sumar. Upplýsing- ar í síma 587 5193. Svartar skíðabuxur í óskilum SVARTAR skíðabuxur (útivistarbuxur), nánast nýjar, fundust við Leik- skólann Hraunborg sl. föstudag. Upplýsingar í síma 575 7720. Guðrún. Rautt reiðhjól í óskilum RAUTT reiðhjól með barnasæti er í óskilum í Seljahverfi. Upplýsingar í síma 587 7828. Silfurhringur í óskilum SILFURHRINGUR fannst á bílastæðinu við Bónus á Smáratorgi 13. janúar sl. Upplýsingar í síma 897-3095. Lyklar týndust LYKLAR á kippu með grænum fíl úr plasti týnd- ust, sennilega í kringum jólin. Skilvís finnandi hafi samband í síma 552 4456 og 698 9371. Dýrahald Kettling vantar heimili KETTLINGUR, 8 vikna fress, bröndóttur, óskar eftir góðu heimili. Upplýs- ingar í síma 587 0343. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Ólafur átti titilinn skilinn Morgunblaðið/Kristinn Félagarnir Bjarki Pálsson og Eysteinn Már Kristjánsson í Kópavogslaug.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.