Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
DV
Sýnd kl. 5.45.
Yfir 57.000 áhorfendur
Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 12.
H.K. DV
GH. VikanSK RadíóX
SV. MBL
GH. Kvimyndir.com
Sýnd kl. 8.10 og 10.10.
Robert DeNiro, Billy Crystal
og LisaKudrow(Friends)
eru mætt aftur
í frábæru
framhaldi
af hinni
geysi
vinsælu
gamanmynd
Analyze
This.
Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
H.TH útv. Saga.
HL MBL Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. ísl tal.
ÓHT Rás 2 E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
DV
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
/ / /
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 8.
/ /
/ /
SÍÐAN fyrstu Músíktrilraunir
Tónabæjar voru haldnar árið 1982
hafa þær verið einn allra mikilvæg-
asti vettvangur ungsveita til að sýna
sig og láta í sér heyra. Hafa sig-
urvegararnir oft og tíðum fleytt sér
langt og iðulega gefið út plötu í kjöl-
farið (t.d. XXX Rottweiler, Maus,
Botnleðja, Mínus).
6. mars verður tuttugustu til-
raununum hleypt af stokkunum
(þær féllu niður árið 1984 vegna
kennaraverkfalls) og verða þær í
nokkuð breyttri mynd frá því sem
verið hefur.
Morgunblaðið ræddi við Steinar
Júlíusson, verkefnastjóra tilraun-
anna hjá Tónabæ, vegna þessa.
„Það eru ennþá ýmis atriði sem á
eftir að fínpússa,“ segir Steinar.
„Það sem hefur hins vegar verið
ákveðið er að Tónabær mun ganga í
samstarf við Hitt húsið með Mús-
íktilraunir. Kvöldin munu þá verða
haldin til skiptis í Tónabæ og í Hinu
húsinu en úrslitakvöldið fer svo
fram í Austurbæ (gamla Bíóborgin).
Ég er verkefnistjóri keppninnar hér
á bæ en Þorvaldur Gröndal kemur
að þessu frá Hinu húsinu. Ástæðan
fyrir þessu er m.a. út frá hag-
kvæmnissjónarmiðum þar sem
Tónabær er fyrst og fremst almenn
félagsmiðstöð. Tíminn sem fer í
skipulagningu Músíktilrauna ár
hvert er þannig gríðarlegur. Þá hef-
ur Hitt húsið komið sterkt inn und-
anfarin ár á þessum vettvangi með
kvöldum eins og Fimmtudagsforleik
þar sem ungar sveitir hafa fengið
tækifæri á því að spreyta sig.“
Steinar segir að hugsanlega muni
yngri aldurshópur keppa í Tónabæ
en sá eldri í Hinu húsinu og svo
verði sameiginlegt úrslitakvöld
blandað úr báðum hópum.
„Það er samt enn verið að skoða
útfærsluna á þessu. En við höfum
fundið fyrir því að margir af þessum
kornungu hafa verið ragir við að
taka þátt og keppnin vaxið þeim í
augum. Skiptingin gæti hjálpað
þeim sem yngstir eru að koma sínu
efni á framfæri, og þeir finni sig þá
á jafningjagrundvelli. Einnig er á
það að líta að þeim, sem eru rúm-
lega tvítugir, finnst þeir kannski
ekki eiga samleið með þrettán ára
guttum.“
Steinar ítrekar að lokum að
markmiðið með þessum breytingum
sé fyrst og fremst að gera keppnina
áhugaverðari, jafnt fyrir keppendur
sem áhorfendur.
Músíktilraunir verða haldnar í 20. sinn í marsmánuði
Breytingar
á Músíktilraunum
Búdrýgindi, sigurvegarar Músíktilrauna 2002.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Berlín
verður haldin 6. til 16. febrúar.
Meðfram hátíðinni er keyrð
ákveðin dagskrá sem kallast „Rís-
andi stjörnur“ eða „Shooting
Stars“. Þar eru ungir og efnilegir
leikarar frá hinum ýmsu Evr-
ópulöndum sérstaklega kynntir
fyrir fjölmiðlum og kvikmynda-
framleiðendum.
Leikkonan Nína Dögg Filipp-
usdóttir, sem fór með stórt hltu-
verk í Hafinu, var valin í þetta
sinnið sem fulltrúi Íslands og
slæst hún í hóp átján annarra
ungleikara.
Nína er fimmti Íslendingurinn
sem er valin sem „rísandi stjarna“
og önnur konan. Þeir sem hafa
áður farið eru þeir Ingvar E. Sig-
urðsson, Hilmir Snær Guðnason,
Baltasar Kormákur og Margrét
Vilhjálmsdóttir. „Ég er mjög upp-
numin yfir þessu og hlakka mikið
til,“ segir Nína, auðheyranlega af-
ar sátt. „Ég varð hreinlega orð-
laus þegar ég fékk fréttirnar. Mér
finnst þetta mikill heiður.“
Nína segist alls ekki hafa átt
von á þessu og að hún hlakki mik-
ið til að fara út.
„Það verður mjög gaman að
hitta hina leikarana og fá að
heyra hvað þeir eru að pæla.
Þetta er víst full dagskrá þarna,
blaðamannafundir og læti.“
Nína hlær þegar hún er spurð
hvort þetta sé fyrsta skrefið að
frekari frægð og frama.
„Þetta er fyrst og fremst frá-
bært tækifæri til að hitta fólk sem
er að gera svipaða hluti og ég.
Svo er þetta ákveðin lífsreynsla
og þetta stækkar aðeins sviðið hjá
manni. Ef það gerist eitthvað er
það bara bónus.“
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona valin á „Shooting Stars“
„Orðlaus“
Morgunblaðið/Þorkell
Nína Dögg Filippusdóttir.
Líklega hefur ekkert fjall veitt listamönnum viðlíka innblástur og þjóðarfjall
Japana, Fuji. Um aldir hafa skáldin velt því fyrir sér, eins og lesendur hæka
eftir skáld á borð við Basho, Buson og Issa þekkja, og myndlistarmenn hafa
dregið upp mynd þess. Fólk fer pílagrímsferðir að Fuji og fyrir nokkrum ár-
um hitti ég hér á flugvellinum æði vonsvikinn Bandaríkjamann sem eyddi
tveimur vikum á hóteli við rætur fjallsins en sá það aldrei. Þessi fjalladrottn-
ing er feimin og hjúpar sig oft skýjum dögum saman. En í morgun, þegar sól-
in reis upp á himinninn og flugstjórinn tilkynnti í kallkerfi flugvélarinnar að
skammt væri til lendingar í Tókýó, þá stakk fjallið tignarlegum tindinum upp
úr skýjunum og heilsaði ferðalöngunum. Að hætti förumunka fyrri alda varð
þá þessi hæka til: Fjall í skýjunum/ - Fuji móment - / 17 mínútur til Tókýó...
Dagbók ljósmyndara
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjallið í skýjunum
Tókýó, Japan, 13. janúar, 2003.