Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 15. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 mbl.is
Veisla í
Veislunni
Veislan vettvangur afmælis
Arnars Jónssonar Fólk 46
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
sýnir í Berlín Daglegt líf B2
Rakstur
á sviði
Leikrit Ólafs Jóhanns Ólafssonar
frumsýnt í kvöld Listir 21
Kynjahlutir
í Berlín
ELLEFU tómir efnavopnaoddar fundust í
gær við leit vopnaeftirlitsmanna Samein-
uðu þjóðanna í Írak. Var þeirra ekki getið
í skýrslu Íraksstjórnar til samtakanna.
Efnavopnaoddarnir 11 fundust í skot-
færageymslum fyrir sunnan Bagdad og
einnig sá tólfti en hann var tekinn til nán-
ari skoðunar. Richard Boucher, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði í
gær, að fundur efnavopnaoddanna kæmi
ekki á óvart en einn sérfræðinga SÞ vildi
þó ekki gera of mikið úr fundinum.
Mohammad Amin, fulltrúi Íraka gagn-
vart vopnaeftirlitinu, sagði í gær, að odd-
arnir væru eins konar eldflaugar, sem
skotið væri úr fallbyssum. Hefðu þeir ver-
ið orðnir úreltir fyrir sjö eða tíu árum.
Bandaríkjastjórn hvatti í gær til þess í
öryggisráði SÞ, að þrýst yrði á Íraka að
hafa fullt samstarf við eftirlitsmennina en
gerði hins vegar ekki ágreining um tíma-
mörk eftirlitsins eins og þó hafði verið bú-
ist við.
Efnavopna-
oddar fund-
ust í Írak
Bagdad. AP, AFP.
Blix/14
YFIRVÖLD í Noregi eru að velta því fyrir
sér að veita skattafslátt þeim, sem hjóla í
vinnuna og skilja bílinn eftir heima. Er
samgönguráðuneytið að vinna að þessu og
kallar „samræmdu reiðhjólaáætlunina“.
„Hugmyndin er að gera hjólreiðar eft-
irsóknarverðar og öruggar,“ sagði Anders
Dalen, starfsmaður ráðuneytisins, en auk
þess að lækka skatta á hjólreiðafólki á að
afnema virðisaukaskatt af reiðhjólum.
Áætlað er, að lagning hjólreiðastíga verði
stóraukin, þeir merktir vel og ruddir taf-
arlaust á veturna. Þá á að verða nóg af
stæðum fyrir hjólin og hjólreiðafólki jafn-
vel gefinn aukinn réttur í umferðinni.
Hjólreiðafólk
fái skattafslátt
Ósló. AFP.
SKÖMMU áður en Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Ástríður Thor-
arensen, eiginkona hans, hlutu
áheyrn hjá Naruhito krónprins Jap-
ans og Masako krónprinsessu í gær-
morgun, undirritaði keisarinn skjöl
sem færðu prinsinum í fyrsta sinn
keisaraleg réttindi. Keisarinn mun
dvelja á sjúkrahúsi í mánuð vegna
krabbameins í blöðruhálskirtli.
„Að taka á móti okkur var fyrsta
verkefni hans eftir að hann tók við
þeim skilmálum,“ segir Davíð. „Við
hittum krónprinshjónin í höllinni og
ræddum við þau í 35 mínútur. Þau
voru afskaplega vel að sér og vissu
allt það um Ísland er kom til um-
ræðu. Þetta var mjög formlegt og
kurteislegt og ekki leyft að teknar
væru myndir eða fjölmiðlar væru við-
staddir. En móttökurnar voru mjög
hlýlegar og hátíðlegar. Það er sér-
kennilegt að það hittist svo á að við
komum sama dag og keisarinn leggst
á sjúkrahús. Við vottuðum þeim hlut-
tekningu og óskuðum keisaranum
góðs bata.“ Davíð segir krónprinsinn
hafa spurt mikið um samskipti þjóð-
anna og hann hafi fagnað sérstaklega
opnun sendiráðanna, sem hann taldi
mjög mikilvæg.
„Hann þekkir vel til þeirra við-
skipta sem fara fram milli landanna
og spurði síðan talsvert um landið,
orkugetu þess og hitann í iðrum jarð-
ar. Ég skýrði honum meðal annars
frá því að hvaða leyti við værum sjálf-
bær í orkunotkun, sem honum fannst
mjög áhugavert, og hvaða væntingar
við hefðum um framtíðina hvað það
varðar. Ég gat ekki fundið annað en
hann væri mjög spenntur að líta
þetta land augum,“ segir Davíð.
Í dag fundar Davíð Oddsson með
Koizumi forsætisráðherra Japans og
Ohgi samgönguráðherra.
Davíð Oddsson átti fund
með krónprins Japans
Davíð Oddsson Naruhito prins
Veitt áheyrn/6
LÖGREGLAN í Bretlandi hefur
handtekið 32 ára gamlan karlmann
frá Alsír og er hann grunaður um
tengsl við hryðjuverkahópa músl-
íma.
Maðurinn gaf sig sjálfur fram í
Manchester á miðvikudag,
skömmu eftir að lögreglumaðurinn
Stephen Oake var stunginn til
bana í borginni er verið var að
handtaka þrjá meinta hryðju-
verkamenn, einnig frá Norður-Afr-
íku. Heimildarmenn segja að þessi
mál tengist ekki beint handtökum í
London í liðinni viku og eiturefninu
rísín sem fannst í fórum hópsins
þar í borg.
Bandarískur embættismaður
segir að mennirnir í London teng-
ist hópi í Írak sem grunaður er um
tengsl við al-Qaeda og ef til vill
stjórn Saddams Husseins Íraksfor-
seta. Dagblaðið The Guardian segir
hins vegar að lögreglan telji menn-
ina ekki vera í beinum tengslum við
al-Qaeda en hafa hugsanlega hug-
myndir sínar þaðan.
Talið er að nota hafi átt rísínið í
London til hryðjuverka en það er
um 6.000 sinnum öflugra en blá-
sýra. Dagblaðið The Times segir
að banamaður Oake hafi verið
efnafræðingur er stýrt hafi fram-
leiðslunni á efninu. The Guardian
vitnaði í ónafngreinda embættis-
menn í gær er segðu að hryðju-
verkahópar frá Alsír með tengsl
við al-Qaeda væru mesta hættan
sem vofði yfir í Evrópu „að al-
Qaeda sjálfum undanskildum“.
Rísín-hópurinn
tengdur al-Qaeda?
London, Manchester. AP, AFP.
♦ ♦ ♦
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum í gær-
kvöldi með níu atkvæðum gegn
fimm að samþykkja beiðni Lands-
virkjunar um ábyrgðir vegna lán-
töku til Kárahnjúkavirkjunar.
Borgin er sem kunnugt er eigandi
að 45% hlut í Landsvirkjun. Einn
borgarfulltrúi sat hjá en meirihluti
Reykjavíkurlistans klofnaði í af-
stöðu sinni.
Fundurinn fór fram við óvenju-
legar aðstæður þar sem fjöldi
fólks, hátt í þúsund, safnaðist sam-
an í og við Ráðhús Reykjavíkur til
að mótmæla virkjunarfram-
kvæmdum. Mótmælaspjöld voru á
lofti fyrir utan, grjótvarða var
hlaðin við innganginn og svo hávær
urðu frammíköll og hróp á áhorf-
endapöllum að lögreglan var kvödd
á vettvang. Á endanum var einum
manni vísað út úr Ráðhúsinu.
„Leggjum ekki landið undir,“
var meðal þess sem mótmælendur
hrópuðu en flestir söfnuðust sam-
an við tjörnina fyrir utan Ráðhúsið
þannig að þeir sæjust úr borgar-
stjórnarsalnum. Einna mest var
púað þegar borgarstjóri gerði
grein fyrir atkvæði sínu og ætt-
jarðarljóð voru sungin við það
tækifæri.
Heitar umræður
Umræður í borgarstjórn voru
heitar og stóðu yfir í alls sex
klukkustundir. Þeir borgarfulltrú-
ar sem samþykktu ábyrgðarbeiðn-
ina voru Björn Bjarnason, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Guðlaugur Þór
Þórðarson og Kjartan Magnússon
frá Sjálfstæðisflokki, Alfreð Þor-
steinsson og Anna Kristinsdóttir,
fulltrúar Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurlistanum, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Á
móti beiðninni voru Ólafur F.
Magnússon, fulltrúi F-lista frjáls-
lyndra og óháðra, og Árni Þór Sig-
urðsson, Stefán Jón Hafstein og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir af
Reykjavíkurlista. Dagur B. Egg-
ertsson, R-lista, sat hjá.
Ingibjörg Sólrún hóf umræðuna
í borgarstjórn. Hún sagðist hafa
skoðað málið mjög ítarlega, eink-
um skýrslu eigendanefndarinnar
sem teldi mjög litlar líkur á að á
ábyrgð eigenda Landsvirkjunar
reyndi þó að aldrei mætti útiloka
það. Ingibjörg sagði að fara hefði
mátt þá leið að stofna sérstakt fyr-
irtæki um framkvæmdina og fjár-
magna það á hlutabréfa- og lána-
markaði án ábyrgða ríkis og
sveitarfélaga. Borgarstjóri sagðist
í tvígang hafa rætt við Valgerði
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um
að taka „þennan kaleik“ frá
Reykjavíkurborg en ekki haft er-
indi sem erfiði.
Björn Bjarnason, oddviti sjálf-
stæðismanna, sagði upplausn ríkja
innan R-listans í málinu. Listinn
hefði enga burði til að takast á
herðar meirihlutaábyrgð á stjórn
borgarinnar. Hag hennar væri
meiri hætta búin af stjórnleysi
R-listans en því að axla ábyrgðina
vegna lántöku Landsvirkjunar.
Ábyrgðin samþykkt und-
ir háværum mótmælum
Morgunblaðið/Golli
Fjöldi manns var fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur í gær og mótmælti á meðan fundur borgarstjórnar fór fram.
Reykjavíkurlist-
inn klofnaði í
afstöðu sinni
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerir
grein fyrir atkvæði sínu er hún
samþykkti ábyrgðina.
Hiti í mótmælendum/10
Deilt um/26–27