Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 45
KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 45 JAMAL Jeffries er óhemju sjálfs- ánægður körfuboltaspilari, sem orð- inn er forríkur og frægur á því að spila í bandarísku NBA-körfubolta- deildinni. Hann er dáður af öllum, nema þeim sem þekkja hann. Sér í lagi er liðsfélög- unum í nöp við Jamal enda notar hann hvert tæki- færi sem gefst til að gera lítið úr þeim auk þess sem hann leyfir þeim sjaldan að fá boltann í kapp- leikjum. Dag einn kem- ur að því að Jam- al fær það sem flestir telja hann eiga skilið, lífstíðarbann frá körfu- boltanum. Fljótt missir hann frægðina og peningana og endar heima hjá frænku sinni sem býr í litlum bæ. Jamal hefur samt ekki lært af reynslunni og ætlar sér að spila aftur, hvað sem það kann að kosta. Frænku hans dettur það snjallræði í hug að Jamal gæti skapað sér annan persónuleika. Hann yrði bara að taka upp per- sónuleika, sem enginn myndi þekkja. Með nýju nafni, hárkollu og farða gæti hann látist vera kona og sú kona gæti til dæmis heitið Juw- anna Mann. Jamal gengur í kven- körfuboltalið sem Juwanna Mann og verður fljótt eins vinsæll og hann var sem karlmaður, en lífið verður ekki allt dans á rósum því að hann verður mjög hrifinn af einni konunni í liðinu. Og það sem meira er, rapparinn Puff Smokey Smoke verður mjög hrifinn af hon- um í kvengervinu. Handrit að myndinni skrifuðu Bradley Allenstein og Mark Brown, en leikstjórn var í höndum Jesse Vaughan. Framleiðendur eru James G. Robinson, Steve Oedekerk og Bill Gerber. Karl skapar sér frægð sem kona Leikarar: Miguel A. Núñez Jr., Vivicia A. Fox, Kevin Pollak, Tommy Davidson, Ginuwine og Kim Wayans. Leikstjórn: Jesse Vaughan Handrit: Bradley Allen- stein. Jamal gengur í kvenkörfuboltalið sem Juwanna Mann og verður fljótt vinsæll. Miguel A. Núñez Jr. og Jesse Vaughan í kvikmyndinni Juwanna Mann. Sambíóin frumsýna Juwanna Mann. 8 MILE er fyrsta myndin, sem rapp- arinn Eminem leikur í enda er hún að hluta til byggð á hans eigin ævi. Myndin fékk mjög góðar viðtökur í Bandaríkjunum. Hún halaði inn 58 milljónir dala yfir frumsýningarhelg- ina, sem er næst besti árangur mynd- ar sem ber aldurstakmarkið R, eða er óheimil öllum innan 17 ára nema í fylgd með fullorðnum, en einungis Hannibal hefur farið betur af stað af myndum með R stimpilinn. Söguhetja 8 mílna er Jimmy Smith (Eminem), ungur tónlistarmaður í bílaborginni Detroit, sem er fullur af heift og hatri út í samborgarana. Hann býr ásamt Stephanie (Kim Bas- inger) móður sinni í niðurníddu og vafasömu fátækrahverfi. Smith vill komast í burtu úr borginni, en nafn myndarinnar er gælunafn sem dregið er af þvermáli hennar. Utan þessara mílna býr frelsið, álítur hin beiska og þjáða sál þannig að nafnið stendur einnig fyrir þann tilfinningalega þröskuld sem Jimmy Smith telur óyf- irstíganlegan. Smith á sér eina von, eina flóttaleið sem er tónlistin. Innst inni elur hann með sér drauminn um að hún eigi eftir að gera hann frægan og ríkan og að tónlistin verði farseðill mæðginanna út úr borginni og basl- inu til nýs og hamingjusamara lífs. Handritið skrifaði Scott Silver, en leikstjóri 8 mílna er Curtis Hanson, sem vakti mikla athygli fyrir The Hand That Rocks the Cradle (1992). Kunnastur er hann þó fyrir L.A. Confidential, sem naut mikilla vin- sælda og færði honum mikið lof og fjölda verðlauna. Sjálfur hlaut Han- son m.a. Óskarsverðlaunin fyrir handritið að þeirri mynd ásamt Brian Helgeland, og Kim Basinger, sem leikur annað aðalhlutverkið í 8 Mile, fékk þau fyrir bestan leik í auka- hlutverki. Síðasta mynd Hansons á undan 8 mílum var svo hin rómaða Wonder Boys með Michael Douglas. Hvert augnablik er nýtt tækifæri Háskólabíó, Laugarásbíó og Sambíóin frumsýna 8 Mile. Leikarar: Eminem, Kim Basinger, Britt- any Murphy, Mekhi Phifer og Eugene Brady. 8 Mile er fyrsta myndin sem rapparinn Eminem leikur í enda er hún að hluta til byggð á hans eigin ævi. Hér er hann ásamt Brittany Murphy. Hljómsveit Hjördísar Geirs Allir velkomnir leika fyrir dansi í Húnabúð, Skeifunni 11, í kvöld frá kl. 22-02

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.