Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. TIL&LBOÐ N O N N I O G M A N N I I Y D D A LÆKNASTÉTTIN er haldin streitu – hvernig er unnt að viðhalda ánægju lækna? var yfirskrift umræðufundar á læknadögum í gær. Fjölluðu læknar þar um streituvalda í starfi sínu og hvernig unnt er að viðhalda starfsánægju. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Lækna- félags Íslands, sagði í samtali við Morgun- blaðið þarft að ræða um streitu og leiða og sagði hann þessa þætti vera vaxandi vanda- mál meðal íslenskra lækna. Þeim fyndist þeir að nokkru leyti vera að missa tökin á faglegri stjórnun til annarra stétta. Þetta hefði verið að þróast síðustu árin og ylli þeim streitu. Sigurbjörn flutti nokkur inngangsorð og vitnaði til frétta frá Bretlandi þar sem læknar hefðu á liðnu ári fellt nýja kjara- samninga. Sagði hann það ekki hafa verið vegna óánægju með laun heldur að færa hefði átt meiri völd til stjórnenda í heil- brigðiskerfinu, fólks sem ekki væri treyst eða virt. Streita vax- andi vanda- mál lækna „MEÐ þessari sölu má segja að af- skiptum ríkisins af viðskipta- bankastarfsemi sé lokið.“ Þetta sagði Geir H. Haarde fjármálaráð- herra á fréttamannafundi í gær í framhaldi af því að undirritaður var kaupsamningur um kaup S-hópsins svokallaða auk þýsks fjárfestingarbanka á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Hann sagði jafnframt að ríkissjóð- ur ætti nú einvörðungu litla hluti í Landsbankanum og Búnaðarbank- anum eftir þessi viðskipti og að það hefði verið löngu orðið tímabært fyrir ríkissjóð að draga sig út úr þessari starfsemi. Eignarhlutur ríkisins í Búnaðar- bankanum eftir viðskiptin í gær er 9% en hlutur ríkisins í Landsbank- anum er 2,5%. Kaupendur 45,8% hlutar ríkisins í Búnaðarbankanum eru Egla hf., Vátryggingafélag Íslands hf., Sam- vinnulífeyrissjóðurinn og Eignar- haldsfélagið Samvinnutryggingar. Egla er hlutafélag í eigu þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers, Kers hf. og VÍS. Hlutur þýska bankans í Búnað- arbankanum eftir kaupin er 16,3%, hlutur Kers er 16,1%, samanlagður hlutur VÍS er 6,0%, hlutur Sam- vinnulífeyrissjóðsins 3,9% og Eignarhaldsfélagsins Samvinnu- trygginga 3,5%. Kaupendur munu fá 27,48% hlutafjár afhent að fengnu sam- þykki Fjármálaeftirlitsins. Rúm- lega 18,32% hlutabréfanna verða svo afhent eigi síðar en 20. desem- ber 2003. Kaupverð Búnaðarbankans er að tveimur þriðju hlutum greitt í Bandaríkjadölum og segir í frétta- tilkynningu að það verði einkum nýtt til greiðslu erlendra skulda ríkissjóðs. Hlutabréf sem nema þriðjungi heildarhlutafjár í Búnaðarbankan- um er kaupendum samkvæmt kaupsamningnum óheimilt að selja fyrr en 21 mánuði frá undirritun kaupsamningsins nema að fengnu skriflegu samþykki seljanda. Michael Sautter, frá franska bankanum Société Générale, var ráðgjafi kaupendanna við kaupin. Hann segir að sérfræðiþekking þýska bankans muni nýtast honum vel sem og tengingin við VÍS. „Þá er ljóst að það verða samrunar á fjármálamarkaði á Íslandi í fram- tíðinni. Bankarnir eru of margir. Búnaðarbankinn verður heppileg- ur kostur í því sambandi,“ segir Sautter. Afskiptum ríkisins af bankastarfsemi lokið Ríkið seldi í gær S-hópnum og þýskum fjárfestingar- banka 45,8% hlut í Búnaðarbanka Íslands  Ríkið selur/12 RÍKIÐ hefur haft afskipti af bankarekstri í tæp 118 ár. Landsbankinn er elstur banka, stofnaður haustið 1885 með því að Landssjóður lagði fram ákveðna fjárhæð. Landsbankinn tók til starfa 1. júlí 1886. Markmið hans var að viðhalda vexti og viðgangi atvinnuvega landsmanna. Útvegs- bankinn var stofnaður 1930 úr rústum gamla Íslandsbanka og lánaði aðallega til útvegsins. Bún- aðarbankinn var stofnaður 1929 og tók til starfa 1930. Hann var fyrst og fremst lánasjóður land- búnaðarins. Síðasti ríkisbankinn, Fjárfestingarbanki atvinnulífsins, var stofnaður 1997. Fram kom í gær, að ríkið hefur selt hluti í bönkunum þremur, FBA, Landsbanka og Bún- aðarbanka, fyrir um 50 milljarða króna. Bankarekstur í tæp 118 ár SYSTURNAR voru sælar með fyrsta snjó árs- ins. Þær léku sér í frímínútum fyrir utan Smáraskóla í Kópavogi í gær. Félagar þeirra undu sér einnig vel í brekkunum við skólann og halda vafalaust í vonina um að fönnin hald- ist á jörð um sinn. Búist er við stormi á Austfjörðum og mið- hálendinu með morgninum en hægum vindi sunnanlands og stöku éli. Morgunblaðið/RAX Í frímínútum við Smáraskóla í Kópavogi ♦ ♦ ♦ TÖLUVERÐ gróska er í íslenskri fatahönnun og hafa hönnuðir í æ ríkari mæli freistað þess að koma fatnaði með eigin vörumerki á framfæri hér heima og erlendis. Fjármögnun við mark- aðssetningu í útlöndum er Þrándur í götu flestra, enda viðbúið að pantanir að utan hljóði upp á fleiri hundruð stykki af hverri flík. Sérstaða íslenskra hönnuða er ekki aðeins vegna smæðar þjóðar- innar, heldur speglast í hönnun hvers og eins. Í hópnum hefur hver sinn stíl, sín sérkenni, óháð tískuformúlum að utan. Gróska í fatahönnun Samkvæmisklæðn- aður hannaður af Ásdísi Jónsdóttur.  Íslensk flík engri lík/B4 BIFVÉLAVIRKI, sem greindist með hættulegan erfðagalla, vél- stjóri á frystitogara, sem varð fyrir vinnuslysi, og kona, sem vann við heimilishjálp, en var úrskurðuð ör- yrki vegna ofnæmis og psoriasis, stóðu skyndilega frammi fyrir því að geta ekki unnið sitt gamla starf. Ástæður þess að margir standa í sömu sporum eru mismunandi, en þeim eru þó ekki endilega allar bjargir bannaðar. Þremenningarnir eru meðal margra þátttakenda í Janus end- urhæfingu, tilraunaverkefni með styrk frá heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytinu, þar sem heilbrigðis- og menntakerfi er tengt. Mark- miðið er að aðstoða fólk við að kom- ast aftur út í atvinnulífið og eru áherslurnar einkum heilsuefling, sjálfstyrking, félagsfræði, tölvur, íslenska, hönnun og líkamsrækt. Nú er sjöundi tólf manna hóp- urinn að byrja í atvinnuendurhæf- ingu og hefur tilraunin gengið von- um framar, að sögn Kristínar Siggeirsdóttur, verkefnastjóra. Úrræði fyrir fólk í atvinnuendurhæfingu Ekki allar bjargir bannaðar  Bjargirnar/B6 STEFNT er að því að fjórfalda línuppskeru hér á landi á þessu ári, en í fyrrasumar var lín ræktað á 90 hekturum á Suður- og Vest- urlandi sem gáfu 550 tonn af hör. Vinnsla hörsins, svokölluð vatnsfeyging, hefst bráð- lega í vatnsfeygingarstöð við Þorlákshöfn. Þrír til fjórir starfsmenn munu starfa við vatnsfeygingu í vetur, en ef línræktunin og feygingin gefur góða raun er talið að um 20– 30 manns geti unnið við verkun hörs í fram- tíðinni, til viðbótar við bændurna sem rækta hörinn. Möguleikar í línrækt  Hyggjast fjórfalda/20 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.