Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 25 HINN 17. desember sl. ritaði Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt og formaður Landverndar, grein í Morgunblaðið sem nefndist „Vont fyrir Ísland“. Í upphafi greinarinnar segir hún: „Landsvirkjun og ís- lenska ríkisstjórnin eru með áform um virkjanir og stóriðju sem einung- is vanþróuð lönd mundu láta sér detta í hug að framkvæma.“ Af greininni sést að þau áform sem vís- að er til eru Kárahnjúkavirkjun og álver á Reyðarfirði. En er það nú svo að ekki hafi verið ráðist í slíkar framkvæmdir í iðnríkj- um á undanförnum árum? Lítum nánar á það. Álframleiðsla í verksmiðjum innan vébanda Alþjóðlegu álstofnunarinn- ar (International Aluminium Instit- ute, IAI), en það eru velflest álver heims, jókst úr 9,1 milljón tonna árið 1972 í 20,6 milljónir tonna árið 2001. Árið 1972 voru 91,7% af álframleiðsl- unni í iðnríkjum en 77,6% 2001. Þótt hlutur iðnríkjanna hafi dregist sam- an á þessu tímabili standa þau þann- ig enn fyrir yfirgnæfandi meirihluta allrar álvinnslu í heiminum og juku framleiðslu sína úr 8,4 milljónum tonna 1972 í 16 milljónir tonna 2001. Ekki hefur öll sú aukning orðið í verksmiðjum sem reistar voru fyrir 1972 heldur hafa margar þeirra verið endurnýjaðar og nýjar komið til. Staðhæfing Guðnýjar um að ekkert iðnríki láti sér detta í huga að reisa álver á borð við Reyðarfjarðarálver- ið stenst því engan veginn. Til skamms tíma var meirihluti þeirrar raforku sem notuð var til ál- vinnslu í heiminum framleiddur úr vatnsorku. Á árinu 2001 fór hlutur vatnsorkunnar í fyrsta sinn undir 50%, en hann hafði farið lækkandi nokkur ár á undan, en hlutur kola og jarðgass farið hækkandi. Kolin eru næststærsti orkugjafinn til raforku- vinnslu vegna álframleiðslu í heim- inum með 35,8% hlut 2001, borið saman við 48,9% hlut vatnsorkunnar það ár. Í grein sinni segir Ólöf Guðný enn- fremur: „Þessar framkvæmdir eru ekki í anda þeirrar sjálfbæru þróun- ar sem þjóðir heims hafa komið sér saman um og forsætisráðherra Ís- lands skrifaði undir í Jóhannesar- borg í byrjun september fyrir hönd Íslands og byggist á jafnvægi milli efnahags- og félagslegra þátta og náttúruverndar.“ Á ráðstefnunni í Jóhannesarborg var metið hvernig hafði miðað að þeim markmiðum sem sett voru á ráðstefnunni í Ríó de Janeiro tíu ár- um áður, þar sem gróðurhúsaáhrif voru mjög á dagskrá og þjóðir heims voru hvattar til að nýta aðrar orku- lindir en eldsneyti úr jörðu í því skyni að hamla gegn þeim áhrifum. Með álverinu á Reyðarfirði, sem fær orku frá vatnsaflsstöð við Kára- hnjúka, hamla Íslendingar gegn vax- andi hlutdeild kola í raforkuvinnslu til álframleiðslu í heiminum og leggja með því fram sinn stærsta skerf til þessa til að vinna gegn gróð- urhúsaáhrifum frá þessari raforku- vinnslu. Vissulega hefur Kára- hnjúkavirkjun áhrif á umhverfið eins og vatnsaflsstöðvar hafa hvarvetna í heiminum, og raunar öll orku- vinnslumannvirki. Hún neyðir þó engan til að flytja frá heimkynnum sínum eins og vatnsaflsstöðvar í mörgum öðrum löndum gera, en harðasta andstaðan gegn virkjunum í þeim löndum kemur skiljanlega einmitt frá fólki sem þarf að flytja. Slíkir þvingaðir brottflutningar hafa sumsstaðar leitt af sér alvarleg fé- lagsleg vandamál sem við erum laus við. Svo er forsjóninni fyrir að þakka. Gagnstætt því sem Ólöf held- ur fram eru Kárahnjúkavirkjun og Reyðarfjarðarálverið því í besta samræmi við áðurnefnt markmið Ríó-ráðstefnunnar að nýta aðrar orkulindir en eldsneyti úr jörðu, sem einnig var markmið ráðstefnunnar í Jóhannesarborg. Meginástæðan fyrir rýrnandi hlut vatnsorku í raforkuvinnslu til ál- framleiðslu er sú, að í mörgum helstu iðnríkjunum, þar sem stærsti hlutinn af þeirri framleiðslu fer nú fram, er efnahagsleg vatnsorka víða nú þegar nýtt að því marki sem um- hverfisáhrif eru talin leyfa. Til dæm- is voru yfir 90% hennar fullnýtt 1997 í Þýskalandi, Bandaríkjunum, Frakklandi, Spáni og Sviss. Önnur iðnríki, svo sem Kanada, Nýja-Sjá- land, Austurríki, Ítalía, Portúgal og Japan, höfðu nýtt sína efnahagslegu vatnsorku milli 60 og 90% 1997. Á Íslandi höfðu 15% efnahagslegr- ar vatnsorku (fastaorku) verið nýtt 2001 og enn minni hluti jarðhitans. Kárahnjúkavirkjun hækkar það hlutfall í 26%. Óvirkjuð vatnsorka og jarðhiti Íslands verða ekki fullnýtt til almennra nota um fyrirsjáanlega framtíð. Á Íslandi hafa allir rafmagn nú þegar. Því er öðruvísi farið í mörgum fjölmennum og vatnsorku- ríkum þróunarríkjum, þar sem mik- ill meirihluti íbúanna hefur ekki einu sinni rafmagn til heimilisnota. Þau ríki munu í framtíðinni hafa mikla þörf fyrir orkulindir sínar til brýnni þarfa en álframleiðslu. Ef ekki á að framleiða ál á Íslandi hvar á þá fremur að gera það? Á ekki að framleiða ál á Íslandi? Eftir Jakob Björnsson „Til skamms tíma var meirihluti þeirrar raf- orku sem notuð var til álvinnslu í heiminum framleiddur úr vatnsorku.“ Höfundur er fv. orkumálastjóri. Að UNDANFÖRNU hefur orðið mikil umræða um völd, átök og yf- irráð í viðskiptalífinu í kjölfar úttekt- ar Agnesar Bragadóttur á valda- brölti einstakra manna og hópa í tengslum við stærstu fjármálafyrir- tæki landsins. Skiljanlega hefur sjón- um einkum verið beint að stórmeist- urunum sem sátu við taflborðið og helstu ráðgjöfum þeirra. Einnig hafa verið uppi nokkrar vangaveltur um hagsmuni hins almenna hluthafa, en minna hefur farið fyrir umræðu um peðin, hrókana og biskupana, þ.e. starfsmennina, sem teflt var fram og aftur og vissu ekki hvenær þeim yrði hrókerað eða þeir jafnvel „drepnir“ (lesist sagt upp). Með aukinni samkeppni, fjölgun fyrirtækja á verðbréfamarkaði og þar með auknum líkum á eignahalds- breytingum fer öryggi hins almenna starfsmanns dvínandi. Enginn veit hver er annars eign í dagslok. En fyr- irtæki án starfsmanna eru lítils virði og því ættu stjórnendur að gæta þess að gleyma ekki starfsmönnum sínum í kapphlaupinu um völd og yfirráð. Í þessu valdatafli var að vísu ekki um bein kaup á milli eigenda að ræða, en það leiðir eigi að síður hugann að vel- ferð starfsmanna. Hvað verður um mig? Í könnun um líðan, vinnuumhverfi og heilsu starfsmanna, sem Vinnueft- irlitið lagði fyrir alla starfsmenn í útibúum banka og sparisjóða vorið 2002 í samvinnu við Samband ís- lenskra bankamanna, kom fram að um 13% starfsmanna sögðu að orð- rómur um fyrirhugaðar breytingar á vinnustaðnum gengi oft eða alltaf og 33% sögðu stundum. Séu prósenturnar yfirfærðar á manneskjur þýðir þetta, að 850 af tæplega 1.900 starfsmönnum útibúa banka og sparisjóða voru líklegir til að finna fyrir andlegum eða líkamleg- um einkennum vegna óvissu í kjölfar orðróms um fyrirhugaðar breyting- ar. Leiða má líkur að því að þetta eigi við um mun fleiri starfsmenn banka og sparisjóða því könnunin náði ein- ungis til starfsmanna á útibúasviði. Þeir starfsmenn sem urðu varir við orðróm um fyrirhugaðar breytingar höfðu fundið fyrir meiri streitu en aðrir. Þeir voru oftar andlega úr- vinda og fannst starfið oftar erfitt en hinir sem sögðu að orðrómur um fyr- irhugaðar breytingar gengi sjaldan eða aldrei. Ennfremur höfðu þeir oft- ar leitað læknis vegna svefnerfið- leika og voru auk þess óánægðari með upplýsingaflæðið en hinir sem urðu sjaldnar varir við orðróm. Könnunin sýndi jafnframt fram á að starfsmenn sem upplifðu oftar streitu í starfi og voru oftar andlega úrvinda í lok vinnudags voru líklegri til að hafa leitað læknis vegna ýmissa líkamlegra og andlegra einkenna en hinir sem fundu minna fyrir streitu. Bæta þarf upplýsingaflæðið Nú er það svo að fyrirhuguð kaup á fyrirtækjum eða breytingar á eign- araðild fara oft leynt eða að minnsta kosti vilja menn fara leynt með fyr- irætlanirnar þangað til kaupin eru frágengin. Oftar en ekki hafa starfs- menn þó einhvern nasaþef af því að eitthvað sé á seyði og því er hlutverk stjórnenda mikilvægt, meðal annars með því að koma tilhlýðilegum upp- lýsingum á framfæri. Í könnun meðal bankamannanna kom fram að ýmsir þættir í starfsum- hverfinu virtust hafa áhrif á andlega líðan starfsmanna bæði til hins betra og hins verra, svo sem ákveðnir stjórnunarhættir og fyrirtækja- menning. Í þeim tilvikum þar sem stjórnendur geta ekki gefið upplýs- ingar um fyrirhugaðar breytingar hafa þeir möguleika á að ýta undir betri líðan starfsmanna með öðrum hætti. Þeir þættir sem voru líklegir til að draga úr andlegu álagi starfs- manna voru til dæmis stuðningur, umbun fyrir vel unnin störf, um- hyggja yfirmanns fyrir heilsu og líð- an starfsmanna og hvetjandi, styðj- andi, þægilegur og afslappaður starfsandi. Þættir sem voru líklegir til að auka andlegt álag voru til dæm- is stífur og formfastur starfsandi, lé- legt upplýsingaflæði, orðrómur og áreitni. Skilaboðin til stjórnenda eru þessi: Skákborð án taflmanna er lítils virði. Stórmeistarar skákarinnar mega ekki gleyma að huga að starfsmönn- um fyrirtækja þegar breytingar eru í vændum, því jafnvel peðin gegna ákveðnu hlutverki í leiknum. Hér eins og annars staðar skiptir traust á milli yfirmanna og starfsmanna máli. Í baráttunni um völd og áhrif Eftir Hildi Friðriksdóttur Höfundur er félags- og atvinnulífs- fræðingur. „Stjórn- endur ættu að gæta þess að gleyma ekki starfsmönnum sínum í kapphlaupinu um völd og yfirráð.“ ÉG var rétt í þessu að lesa grein í Mbl. í dag, 7. jan, eftir Björgvin Guð- mundsson fyrrv. borgarfulltrúa Al- þýðuflokksins, þar sem hann telur að gott samkomulag hafi verið milli þrí- flokksins eins og þeir voru kallaðir á kjörtímabilinu 1978–’82. Þar er rétt að samkomulag var sennilega gott með foringjum þrí- flokksins en ýmsir í liðinu voru óánægðir og þurfti oft marga fundi í borgarmálaráði hvers flokks til að ná sameiginlegri lausn. Mál töfðust oft lengi á leið um ráðin þrjú. Þeir réðu „ópólitískan“ borgarstjóra, sem vissulega var vandaður maður, sem rak sitt starf eins og pólitískar að- stæður leyfðu, en ég er sannfærður um að hlutverk hans var oft erfitt. Borgarbúar vissu það líka, það var fullt út úr dyrum hjá þremenning- unum, sem réðu, en fáir sóttu borg- arstjóra til ráða. Ég var á þessum tíma í forustu fyrir skáta á Íslandi. Hér í Reykjavík var haldin ráðstefna íslenskra skáta, það er til siðs að sveitarfélags staðarins bjóði upp á veitingar síðdegis. Ég hringdi í borg- arstjóra, Egil Skúla Ingibergsson, þann ágæta mann og spurði hvort þetta væri hægt. Egill Skúli svaraði hóglega „ég skal tala við Sigurjón“. Mér fannst þetta vera niðurlæging fyrir borgarstjórann. Þannig var þetta á mörgum svið- um, málin tóku langan tíma og fram- kvæmdir líka. Ég man eftir því, hve Guðrún Helgadóttir var sárreið þeg- ar í ljós kom að ekki hafði tekist að nýta allt það fé, sem ekki var mikið, til að koma upp barnaheimili, þar sem slælega hafði verið staðið að málum hjá barnaverndarnefnd. En þetta er langt síðan. Best er að hafa einn flokk ábyrgan, stundum tvo en afleitt þrjá. Reynsla af dreifðri ábyrgð, hver sem er, hefur ekki reynst vel. Enda má segja að vinstri meirihlutinn 1978–’82 hafi þrátt fyrir góðan ásetning ekki náð árangri og gefist upp. Það er því þægilegt að geta gleymt því sem miður fór og mistókst. Gleymska getur verið góð! Eftir Pál Gíslason „Best er að hafa einn flokk ábyrg- an.“ Höfundur er fv. borgarfulltrúi. ILLUMINATION Einstök nýjung: Endurvarpandi eiginleikar örsmárra eininganna, sem draga fram ljós og gera það geislandi, hafa stórkostleg áhrif. FARÐI MEÐ SJÓNRÆNU ENDURVARPI DRAUMKENND FEGURÐ www.helenarubinstein.com MEIRA EN GEISLANDI Réttur farði skiptir öllu varðandi förðunarárangurinn. Í dag og á morgun, laugardag, verða sérfræðingar HR hjá okkur. Fagleg þjónusta og flottir kaupaukar. Kringlan - Smáralind s.533 4533 s. 554 3960

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.