Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 6
Fjöldi fólks fagnaði komu forsætisráðherra og fylgdarliðs hans til ráðhúss Saitama-fylkis vestan við Tókýó. Fánar Íslands og Japans blöktu þar hlið við hlið. „SKÖMMU áður en við Ástríður komum í höllina hafði keisarinn skrifað undir skjöl sem færðu Nar- uhito krónprinsi keisaraleg réttindi, tímabundið, á meðan á sjúkrahúsvist keisarans stendur,“ segir Davíð Oddsson við Morgunblaðið um áheyrn þeirra hjóna hjá krónprins- inum, en keisarinn mun dvelja í mánuð á sjúkrahúsi vegna krabba- meins í blöðruhálskirtli. „Að taka á móti okkur var fyrsta verkefni hans eftir að hann tók við þeim skilmálum. Við hittum krón- prinshjónin í höllinni og ræddum við þau í 35 mínútur. Heimsókn okkar var augljóslega vel undirbúin, þau voru afskaplega vel að sér og vissu allt það um Ísland er kom til um- ræðu. Þetta var mjög formlegt og kurteislegt og ekki leyft að teknar væru myndir eða fjölmiðlar væru viðstaddir. En móttökurnar voru mjög hlýlegar og hátíðlegar. Það er sérkennilegt að það hittist svo á að við komum sama dag og keisarinn leggst á sjúkrahús. Við vottuðum þeim hluttekningu og ósk- uðum keisaranum góðs bata,“ segir Davíð. Hann segir krónprinsinn hafa spurt mikið um samskipti þjóðanna og hann hafi fagnað sérstaklega opn- un sendiráðanna, sem hann taldi mjög mikilvæga. Ástríður ræddi við krónprinsess- una. „Hún er sérstaklega aðlaðandi og vel að sér. Ég hreifst mjög af henni,“ segir Ástríður. Breytingar hjá fjölskyldunni Krónprinsinn er menntaður í Ox- ford. Hann er mjög áhugasamur um tónlist, ekki síst frá Mið-Evrópu, og leikur á fiðlu og knéfiðlu. Þá er hann fjallgöngumaður og meðlimur í Jap- anska Alpaklúbbnum. Fjölmiðlar heimsins hafa fjallað töluvert um Japanskeisara síðustu dagana sök- um veikinda hans. Japanska keisarafjölskyldan er fræg fyrir að forðast sviðsljósið. Ólíkt konungsfólki Evrópu, sem iðu- lega er í fjölmiðlum, heyrir til und- antekninga ef myndir af meðlimum keisarafjölskyldunnar eru í fréttum. Þannig hafa fjölmiðlar ekki aðgang að því þegar erlendir fyrirmenn fá áheyrn hjá keisaranum. Undantekn- ingar frá leyndinni eru ákveðnar fornar hefðir, eins og sú frá sjöttu öld þar sem árlegur keisaralegur ljóðaupplestur er í höllinni, en hann var haldinn í fyrradag og var sjón- varpað. Þar voru flutt ljóð eftir tíu ljóðskáld á öllum aldri, ort í fornum waka-hirðstíl, og að auki ljóð eftir keisara- og krónprinshjónin. Þrátt fyrir leyndina sem ríkir í kringum keisarafjölskylduna þykir Akahito keisari hafa breytt embætt- inu mjög í frjálsræðisátt. Hann kvæntist konu af óbreyttum ættum, rétt eins og sonur hans síðar, og það vakti mikla athygli á dögunum að hann skyldi ganga fram og greina frá því að hann væri með krabba- mein í blöðruhálskirtli. Að lokinni áheyrninni í höll krón- prinshjónanna hélt forsætisráðherra í hádegisverðarboð sem SH í Japan hélt fyrir helstu viðskiptavini og Veitt áheyrn í höll krónprins og krónprinsessu Japans dreifingaraðila þess í landinu og var boðið haldið í sendiráði Íslands. Davíð ávarpaði gestina og lýsti yfir ánægju sinni með að hitta þá, þar sem hlutverk þeirra við að koma ís- lenskum afurðum á markað væri mjög mikilvægt. Hann sló líka á létta strengi þegar hann sagði: „Við hjónin dveljum hér í Japan í eina viku, sem er vandamál. Það er sagt að gestir séu alveg eins og fisk- ur; þeir séu bara ferskir í þrjá daga! En það er líklega ekki vandamál, því við komum eins og frosinn fiskur.“ Mikilvægur markaður fiskafurða Jón Magnús Kristjánsson, annar framkvæmdastjóra SH í Japan, seg- ir gestina hafa komið frá sex af þeirra helstu viðskiptafyrirtækjum. „Þeir hafa verslað við okkur flest- ir alveg síðan við byrjuðum hér árið 1968,“ segir Jón, „fundurinn með forsætisráðherra treystir þessi sterku viðskiptatengsl enn frekar.“ Velta SH á Japansmarkaði var um átta milljarðar króna í fyrra, eða rúmlega helmingur af útflutningi Ís- lands til Japan. Að sögn Jóns eru þetta um 20% af veltu SH og því mikilvægur markaður fyrir fyr- irtækið. Mest er selt af karfa og grá- lúðuafurðum, og síðan loðna, loðnu- hrogn, rækja og síld. Þá flytur SH einnig inn hrossakjöt með flugi aðra hverja viku. Seinnipartinn í gær var haldið til Saitama-fylkis vestan við Tókýó en þar býr á áttundu milljón manna. Þar tók á móti forsætisráð- herrahjónunum gamall vinur þeirra, fylkisstjórinn Yoshihiko Tsuchiya. Þegar ekið var að þinghúsi fylkisins tók á móti bílalestinni stór hópur fólks með íslenska og japanska fána. Fylkisstjórinn fagnaði Davíð og Ástríði, Ingimundi Sigfússyni sendi- herra og eiginkonu hans, Valgerði Valsdóttur, með miklum virktum og kynnti þau fyrir helstu ráðamönnum fylkisins. Fánahylling hjá fylkisstjóra Að ræðuhöldum loknum sýndi Tsuchiya gestum skrifstofu sína. Þar gefur að líta ljósmyndir af honum með mörgum helstu fyrirmönnum heimsins á liðnum áratugum og ýmsa minjagripi. Þá eru þar orður sem mörg lönd hafa veitt honum. Tsuchiya sat lengi á japanska þinginu og var forseti öldungadeild- ar þess. Hann heimsótti Ísland árið 1984, fyrstur japanskra þingmanna, og hitti Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóra. „Ég lít á fylkisstjórann sem per- sónulegan vin minn og Íslands,“ seg- ir Davíð. „Hann hefur lengi verið lykilmaður í að bæta og auka tengsl landanna. Ég heimsótti hann í þingið hér árið 1989. Þá var hann forseti öldungadeildarinnar og ég fékk höfðinglegar móttökur. Hann er mikill áhrifamaður, núverandi for- maður samtaka fylkisstjóra. Hann stofnaði Vináttufélag japanskra og íslenskra þingmanna, þar sem hann er nú heiðursfélagi. Fyrir nokkru kom einmitt hópur þingmanna á vegum þess til Íslands og þar á með- al dóttir Tsuchiya sem situr á þingi. Hún hefur komið fjórum sinnum til Íslands. Hann nýtur mikillar hylli í fylkinu, fékk um áttatíu prósent at- kvæða í síðustu kosningum. Hann er orðinn fullorðinn, er um áttrætt, en er fullur af krafti og ætlar að bjóða sig aftur fram að ári.“ Hittir forsætisráðherrann í dag Að lokinni heimsókninni í ráð- húsið var haldið á hótel þar sem á annað hundrað manns sátu hátíð- arkvöldverð til heiðurs íslensku for- sætisráðherrahjónunum. Í dag á forsætisráðherra fundi með Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japan og Ohgi samgöngu- ráðherra. Þá heimsækir hann höf- uðstöðvar ríkissjónvarps Japan, sækir heim kunna hönnunarstofu og borðar kvöldverð með félögum í Vin- áttufélagi japanskra og íslenskra þingmanna. Heimsókninni til Japan lýkur á laugardag. Morgunblaðið/Einar Falur YOSHIHIKO Tsuchiya, fylkis- stjóri Saitama-fylkis, og Davíð Oddsson slá á létta strengi er fylkisstjórinn sýnir ljósmyndir, viðurkenningar og minjagripi í skrifstofu sinni. Þar eru margar orður sem þessi fyrrverandi for- seti japanska þingsins hefur þeg- ið frá ýmsum þjóðum. Tsuchiya hefur heimsótt Ísland og stofnaði m.a. Japansk-íslenska þing- mannasambandið. Slegið á létta strengi með Íslandsvini FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Heimsókn Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra til Japans hélt áfram í gær. Að lokinni áheyrn í höll Naruhitu krónprins og Masako krónprinsessu snæddi Davíð, ásamt föruneyti, hádegisverð með viðskiptavinum SH í Japan og heim- sótti mikinn Íslandsvin, fylkisstjórann í Sait- ama. Einar Falur Ing- ólfsson var með í för. efi@mbl.is HÁKON Aðalsteinsson, vatnalíf- fræðingur hjá Orkustofnun og verkefnisstjóri rannsókna vegna vatnsaflsvirkjana, segir að það sé fjarri sanni sem hafi komið fram í ræðu Guðmundar Páls Ólafssonar náttúrufræðings á baráttufundi í Borgarleikhúsinu í fyrrakvöld, að „einu íslensku sumri“ hafi verið varið í rannsóknir vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Rannsóknir á svæðinu hafi farið fram í áratugi á vegum Orkustofnunar og Lands- virkjunar. Hákon segir að ítarlegar rann- sóknir hafi farið fram á svæðinu á árunum 1978 og 1979. Löngu fyrr hafi verið hafnar jarðfræðirann- sóknir. Þá hafi ítarlegar rannsókn- ir farið fram á hreindýrastofninum árin 1979–1981 og frá 1993 hafi verið fylgst náið með dreifingu dýranna á Vesturöræfum yfir burðartímann. Að sögn Hákons hófust mæl- ingar á svifaur í Jökulsá á Dal við Hjarðarhaga árið 1965 og síðan þá hafi verið tekin rúmlega 800 sýni. Við Brú á Jökuldal hafi sýnataka hafist árið 1970 og þar sé nú búið að taka hartnær 250 sýni. Viðbót- arrannsóknir hafi hafist árið 1996 og verið stundaðar af krafti frá 1998. Hákon segir það eflaust rétt hjá Guðmundi Páli að mælingar á botnskriði hafi tekið fimm daga sumarið 2000 en þær hafi haldið áfram síðan. Mestu máli skipti þó að nærri fjögurra áratuga sam- felldar mælingar hafi verið gerðar á framburði aurs í Jöklu. Fyrstu niðurstöður gefi strax hugmyndir um stærðargráðu botnskriðs og með því að gera ráð fyrir óvissu og bæta henni við útreiknaðan fram- burð, verði matið viðunandi. Verkefnisstjóri hjá Orkustofnun Áratuga- rannsóknir við Kára- hnjúka BÆJARRÁÐ Akureyrar sam- þykkti í gær að leggja til við bæjarstjórn að veitt verði eig- endaábyrgð vegna Kára- hnjúkavirkjunar í samræmi við eigendasamkomulag og lög um Landsvirkjun. Mun bæj- arstjórn væntanlega afgreiða málið á fundi sínum nk. þriðju- dag. Valgerður H. Bjarnadóttir, áheyrnarfulltrúi VG, lét bóka að flokkurinn væri andvígur fyrirhugaðri stórvirkjun við Kárahnjúka. Annars vegar sé um að ræða stórfelld óaftur- kræf náttúruspjöll og hins vegar virðist ekki hafa verið hugað að varhugaverðum efnahagslegum áhrifum. Auk þessa sé um að ræða fjárhags- lega áhættu fyrir Akureyr- arbæ. Bæjarráð Akureyrar Mælir með ábyrgð til Lands- virkjunar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur frestaði í gær beiðni kjúklingabúsins Móa hf. um að greiðslustöðvun fyr- irtækisins yrði framlengt. Málið verður næst tekið fyrir á mánudag. Beiðni Móa frestað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.