Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 43 DAGBÓK LJÓÐABROT Þögn fylgir morgni, þunglyndi degi, söknuður kvöldi, sár tár nóttu. Sælt er því að sofna, sárt að vakna, langt að lifa. Líður allt um síð. Páll Ólafsson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú nýtur þín í sviðsljósinu en leitar þess á milli í ein- veruna. Þú hefur góða dóm- greind en mátt efla sjálfs- traustið. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur mikla orku og mættir nota hana til þess að ljúka ákveðnum verkefnum, sem þér hefur ekki tekist að sinna eins vel og þú vildir. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að forðast að eyða of miklum peningum þegar fjárútlát eru annars vegar. Hugsaðu málið áður en þú lætur til skarar skríða. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft tíma út af fyrir þig, en það getur reynst erfitt því margir hafa óskað eftir þínum starfskröftum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hlustaðu á eðlisávísun þína, þegar kemur að máli sem snertir þig og þína nánustu. Mundu bara að þú verður að vera sjálfum þér sam- kvæmur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú stendur frammi fyrir svo mörgum möguleikum að það er úr vöndu að ráða. Skoðaðu málið frá öllum hliðum áður en þú tekur ákvörðun. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Lífið er ekki alltaf leikur og stundum verður þú að ljúka því sem hefur setið á hak- anum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þér kæmi til með að miða betur áleiðis í starfi ef þú reyndir að koma skipulagi á hlutina. Þannig gætir þú öðlast aukið sjálfstraust. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Varastu að láta tilfinning- arnar hlaupa með þig í gön- ur. Leitaðu ráða hjá öðrum ef með þarf. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Oft getur reynst nauðsyn- legt að hafa þolinmæði í samskiptum við fólk. Ekki grípa frammi í fyrir öðrum ræðumönnum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gagnrýni frá vini þínum kemur þér úr jafnvægi og dregur úr sjálfstrausti. Ekki láta skoðanir annarra koma þér á óvart. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gættu þess að vanrækja ekki þína nánustu, sérstak- lega börnin þín, því tíminn með þeim er dýrmætur og kemur ekki aftur. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu ekki aðra koma þér í vont skap. Sýndu öðrum næga tillitssemi, sérstak- lega þar sem um sameig- inleg fjárhagsmálefni er að ræða. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6 4. Bf4 Bb7 5. e3 Be7 6. Rc3 Rh5 7. Bg3 d6 8. Bd3 Rd7 9. Dc2 g6 10. 0-0-0 f5 11. h3 Rxg3 12. fxg3 Bg5 13. Kb1 Df6 14. Rb5 Ke7 15. e4 a6 16. Rc3 f4 Staðan kom upp á Rilton Cup sem lauk fyrir skömmu í Stokkhólmi. Jens- Ove Fries Nielsen (2.444) hafði hvítt gegn Hannesi Hlíf- ari Stefánssyni (2.566). 17. e5! dxe5 18. dxe5 Rxe5 19. Rxe5 Dxe5 20. Hhe1 Dc5 21. De2 Hhe8 22. h4 Bh6 23. Bxg6! Kf8 svartur var einnig varnar- laus eftir 23. … hxg6 24. Dxe6+ Kf8 25. Df6+ Kg8 26. Dxg6+. 24. Bxe8 Hxe8 25. gxf4 Bg7 26. Re4 Db4 27. Rg5 h6 28. Rxe6+ Hxe6 29. Hd8+ og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. AÐ lokinni spennandi lokaumferð á miðviku- dagskvöldið stóð hin sterka sveit Subaru uppi sem sigurvegari í Reykja- víkurmótinu, eftir harða baráttu við sveitir Guð- mundar Hermannssonar og Orkuveitu Reykjavík- ur, sem urðu jafnar í 2.–3. sæti, aðeins þremur stig- um á eftir sigurvegurun- um. Reykjavíkurmótið er sannkallað maraþonmót, eiginlega nokkurs konar „Reykjavíkurmaraþon“ bridsspilara, sem spila nánast daglega í rúma viku. Sextán sveitir hófu keppnina 7. janúar og spiluðu allar innbyrðis 16 spila leiki. Subaru-sveitin hlaut 289 stig, eða 19.27 stig að meðaltali úr leik. Sveitirnar í öðru og þriðja sæti voru með 286 stig, eða 19.07 að jafnaði. Í Subaru- sveitinni spila: Jón Bald- ursson, Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson og Ragnar Hermannsson. Norður ♠ Á1098 ♥ 108432 ♦ 2 ♣943 Vestur Austur ♠ 7 ♠ D6542 ♥ K965 ♥ DG7 ♦ D10875 ♦ 964 ♣G108 ♣52 Suður ♠ KG3 ♥ Á ♦ ÁKG3 ♣ÁKD76 Í tæplega 20 ár voru Ás- mundur Pálsson og Hjalti Elíssson nánast ósigrandi í mótum hérlendis og ótví- rætt sterkasta par lands- ins. Þeir eru báðir á miðjum áttræðisaldri og spila sem aldrei fyrr – Ás- mundur er í sveit Guð- mundar Hermannssonar, en Hjalti í sveit Skeljungs, sem endaði í 5. sæti. Í þessu spili frá miðviku- deginum urðu þeir báðir fyrir barðinu á sagnhörku félaga sinna og enduðu í sjö laufum! Hjalti spilar við son sinn Eirík og þeir melduðu þannig: Vestur Norður Austur Suður – Pass Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf Pass 4 tíglar Pass 7 lauf Pass Pass Pass Opnun Hjalta á tveimur laufum er alkrafa og svar- ið á tveimur hjörtum sýndi tvö „kontról“ og Hjalti sá strax að þar var spaðaás- inn á ferðinni (kontról eru talin þannig að í ásnum eru tvö, en eitt í kóng). Hjalti sýndi laufið og Ei- ríkur stökk í fjóra tígla til að sýna þar stuttlit og samþykkt á laufi. Sem er hörð sögn og Hjalti sagði auðvitað alslemmuna. Ás- mundur spilar við dálka- höfund og sagnir gengu nánast eins, nema hvað norður sagði fyrst tvo tígla við alkröfunni, sem er bið- sögn, og Ásmundur spurði því um ása eftir „splinter“- sögnina á fjórum tíglum. Bæði Ásmundur og Hjalti fengu útspil í laufi. Þeir trompuðu tvo tígla og stóðu svo frammi fyrir því að finna spaðadrottn- inguna. Einfalt mál fyrir vana menn. Það kom fljót- lega í ljós að vestur var með átta spil í tígli og laufi, en austur aðeins fimm. Þar með var spaðadrottn- ingin líklegri í austur og gömlu makkerarnir tóku því spaðaásinn og svínuðu gosanum. Þrettán slagir. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Myndrún ehf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Akureyrarkirkju 20. júlí sl. af séra Pálma Matth- íassyni þau Antonía María Gestsdóttir og Guðmundur Óskar Guðmundsson. Heim- ili þeirra er í Reykjavík. Svipmyndir – Fríður BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. júlí 2002 í Viðeyj- arkirkju af sr. Bjarna Karls- syni þau Bergþóra Fjóla Úlfarsdóttir og Kristmann Einarsson. Heimili þeirra er í Klukkurima 81, Reykjavík. Skugginn, Barbara Birgis BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst 2002 í Dóm- kirkjunni í Reykjavík af sr. Halldóri Reynissyni þau Þórný Una Ólafsdóttir og Ingólfur Rögnvaldsson. 60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 17. jan- úar, er sextug Sigríður Friðþjófsdóttir, hár- greiðslumeistari, Glæsibæ 14, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Viðar Óskarsson, járnsmiður. Þau verða heima til kl. 18 í dag. Árnað heilla Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á tíu borðum mánu- daginn 13. janúar sl. Miðlungur 168. Beztum árangri náðu: NS Sigurjón H. Sigurj. – Haukur Bjarnas. 185 Auðunn Bergsv. – Sigurður Björnsson 183 Bargi Melax – Andrés Bertelsson 182 AV Kristinn Guðm. – Kristján Guðmundss. 205 Valdimar Lárusson – Einar Elíasson 199 Sigurpáll Árnason – Sigurður Gunnl. 197 Eldri borgarar spila brids í Gull- smára kl. 13 alla mánu- og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Bridsfélag Hreyfils Nú er lokið þremur umferðum af fimm í aðaltvímenningi bílstjóranna og hafa Daníel Halldórsson og Ragn- ar Björnsson örugga forystu en þeir eru með 107 stig yfir meðalskor. Staða efstu para er annars þessi: Einar Gunnarss. - Ágúst Benediktss. 62 Flosi Ólafsson - Sigurður Ólafss. 59 Skafti Björnss - Jón Sigtryggss. 56 Arnar Arngrímss. - Valdimar Elíass. 47 Spilað er í Hreyfilshúsinu á mánu- dagskvöldum kl. 19.30. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Harpa Helgadóttir, sjúkraþjálfari B.Sc., MTc hefur hafið störf hjá Hreyfigreiningu ehf. við greiningu og meðferð háls- og bakvandamála. Höfðabakka 9, 110 Rvík, sími 511 1575 á öllum vörum verslunarinnar ATH aðeins á laugardag kl. 12-18 og sunnudag kl. 13-17 Allt fyrir börnin, m .a.: Barnarúm •Kerrur • Bílstólar • Matarstólar Baðborð • Allskonar smávörur. Fatnaður: Nike, Confetti, OshKosh. Stærðir fyrir 0-8 ára. Staf ræ na hu gm yn da sm ið ja n/ 27 55 Tilboðsdagar 20-60% afsláttur Opið kl. 10-18 lau. kl. 11-14 Rúmfatnaður; Damask og bómullarsatín 40% afsláttur Barnafatnaður, barnasloppar, baðmottur Njálsgötu 86 - sími 552 0978 Mörg fleiri tilboð Skráning og upplýsingar í síma 562 1132 og 562 6632 og á www.samskipti.org Hugo Þórisson Wilhelm Norðfjörð Nú er að hefjast nýtt námskeið fyrir foreldra í samskiptum foreldra og barna. Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð. www.samskipti.org Nýtt námskeið að hefjast!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.