Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 49 BANDARÍSKI kvikmyndaleikarinn Tom Cruise fékk dæmdar 10 milljónir dala, um 800 milljónir króna í miskabætur frá klámmynda- leikara, sem sagði franska tímaritinu Actustar að hann hefði átt í kynferðislegu sambandi við Cruise. Umræddur maður, Chad Slater, hef- ur síðar sagt að hann hafi aldrei hitt Cruise. Hann mætti ekki fyrir dóm í ágúst 2001 þegar skaðabótamál Cruise var þingfest. „Ég vona, að hr. Cruise telji sig hafa náð því fram sem hann sækist eftir, fyrst ég reyni ekki að halda uppi vörnum í málinu, og að ég geti komið lífi mínu á ný á réttan kjöl,“ sagði Slater þá í yfir- lýsingu. Ricardo Cestero, lögmaður Cruise, sagðist ekki vita hvort Slater gæti greitt bæt- urnar, en niðurstaðan skipti öllu máli og því ætti mönnum að vera ljóst að það borgaði sig ekki að reyna að sverta mannorð Cruise. Cestero bætti við, að ef Cruise fengi einhverja peninga í hendur vegna dómsins, myndi hann gefa þá til góðgerðamála …Sony útgáfufyr- irtækið hefur sagt upp samningi sínum við rapparann Will Smith þar sem hann þykir of gamall til að höfða til ungu kynslóðarinnar. Fyrir nokkrum árum seldust plötur Smith í milljónum eintaka en einungis 100.000 eintök seldust af safnplötu hans sem kom út í nóv- ember á síðasta ári. Smith, sem er 34 ára, er sagður hafa tekið tíðindunum vel en hann hef- ur einnig komið sér vel áfram í kvikmynda- heiminum og m.a. leikið í kvikmyndunum Ali, Men In Black og Independence Day … Bras- ilíska fyrirsætan Gisele Bundchen hefur hafnað tilboði Raelians-sértrúarsafnaðarins um að verða andlit Clonaid-fyrirtækisins en söfnuðurinn er sagður hafa boðið fyrirsætunni nokkur hundruð milljónir íslenskra króna fyr- ir að ljá Clonaid ímynd sína. Talsmenn Clon- aid, sem er í Kanada, segja fyrirtækið hafa staðið að einræktun fyrsta barnsins en það hefur þó ekki lagt fram sannanir fyrir því. „Ég vil ekki hafa neitt með þá að gera og ég vil sannarlega ekki láta klóna mig,“ segir Bundchen. Hún sleit nýlega sambandi sínu við kvikmyndaleikarann Leonardo DiCaprio og er nú í tygjum við leikarann Rodrigo Sant- oro … Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur bandaríska söngvaranum Bobby Brown eftir að hann mætti ekki til rétt- arhalda í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Þá er hann sagður hafa rofið skilorð með því að fara frá Georgíu en því til sönnunar er vísað til sjónvarpsmynda sem sýna hann í Kaliforníu. Lögfræðingur Browns segir að hann muni gefa sig fram við yfirvöld á morgun. Brown var handtekinn í Atlanta í nóvember og þá kom í ljós að hann var eftirlýstur vegna ölv- unaraksturs og annarra umferðarlagabrota í ríkinu árið 1996 …Eric Clapton og eiginkona hans Melia McEnery eignuðust dóttur á þriðjudag. Clapton, sem er 57 ára, og Mc- Enery, sem er 26 ára, gengu í hjónaband fyrir rúmu ári og eiga fyrir eina dóttur, Juliu Rose. Þá á Clapton sautján ára dóttur, Ruth, en sonur hans Conor lést af slysförum fyrir tólf árum en hann var þá fjögurra ára … Pamela Anderson og Tommy Lee hafa loks náð samkomulagi um forræði tveggja sona sinna. Smáatriði samkomulagsins hafa ekki verið gefin upp en Suzanne Harris, lögfræð- ingur Pamelu, segir að drengirnir muni að mestu búa hjá móður sinni. Þá segir hún að í samkomulaginu sé farið út í öll smáatriði varðandi uppeldi Brandons, sex ára, og Dyl- ans, fjögurra ára. Pamela og Tommy sömdu um sameiginlegt forræði drengjanna er þau skildu árið 1998 en ári síðar sakaði rokkarinn Pamelu um vanrækslu og krafðist í kjölfarið forræðis yfir drengjunum. FÓLK Ífréttum Reuters ReutersReuters Kvikmyndir.is HL MBL E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I Sýnd kl. 5 Ísl. tal./Sýnd kl. 6 enskt tal. Vit 468 Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential þar sem rapparinn EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta hlutverki. ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI KRINGLAN AKURE./KEFLAV.  ÓHT Rás 2 Hún var flottasta pían í bænum  1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 8 og 10.20 / Sýnd kl. 6. / Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKURE./KEFLAV. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5, 7, 8, 9 og 11. / Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8 og 10.20. B. I. 16. / / Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 14. Sýnd kl. 3.45 ísl. tal. / Sýnd kl. 5 og 6 ísl. tal. / Sýnd kl. l. 6 ísl. tal. Langbesti leikmaður NBA deildarinnar fær ævilangt bann frá deildinni og dettur það „snjallræði“ í hug að dulbúa sig og keppa í kvennadeildinni. Bráðskemmtileg gamanmynd! tt logo 210TAK tt logo 4336TON tt logo 645BIO Til a› fá tákn e›a tón í símann sendir›u SMS, dæmi: tt logo 961BIO í 1848. tt logo 4616GLE tt logo 6775AST tt logo 6753AST tt logo 2060TAK tt logo 20312ANN tákn skammval ÉG SJÁLF Írafár DILEMMA Nelly ásamt Kelly Rowland Á N†JUM STA‹ Sálin hans Jóns míns tt ton 75ISL tt ton 112POP tt ton 76ISL tónn skammval N‡justu tónar og tákn N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 8 3 5 2 / sia .is tt logo 105TEI tt logo 1639KRU LIFE IS LIFE Hermes House Band & DJ Ötzi CLEANING OUT MY CLOSET Eminem RIGGA ROBB Paparnir JUST LIKE A PILL Pink tt ton 117POP tt ton 48GAM tt ton 4RAP tt ton 114POP fiessir tónar og tákn eru eingöngu fyrir Nokia-síma. Hver sending kostar 59 kr. Kíktu á vit.is til a› sjá fleiri tóna og tákn. Ná›u flér strax í heitustu táknin og svölustu tónana í GSM-símann flinn. Í hverri viku bætast vi› n‡ tákn og n‡ir tónar. CARELESS WHISPER George Michael tt ton 115POP IN MY PLACE Coldplay tt ton 119POP THERE’S A STAR Ash tt ton 118POP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.