Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HANS Blix, formaður vopnaeftirlits- nefndar Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að Írakar hefðu ekki gert nóg til að sanna að þeir ættu ekki lengur gereyðingarvopn. Blix kvaðst ætla að segja íröskum embættismönn- um þegar hann fer til Bagdad um helgina að Íraks- deilan væri komin á „mjög hættu- legt“ stig þrátt fyrir tilraunir grann- ríkja Íraks til að koma í veg fyrir stríð. Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar (IAEA), kvaðst ætla að fara þess formlega á leit við öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna að eftirlitsmenn fengju nokkra mánuði til viðbótar til að ljúka leitinni að gereyðingarvopn- um í Írak. Blix kvaðst hins vegar vera svartsýnn á að öryggisráðið samþykkti þetta. „Skilaboðin sem við ætlum að færa ráðamönnum í Bagdad eru þau að ástandið er þrungið mikilli spennu og mjög hættulegt,“ sagði Blix við fréttamenn í Brussel eftir að hafa rætt við embættismenn Evrópusam- bandsins. Olíuverð hækkar Hann sagði að deilan yrði annað- hvort leidd til lykta með eftirliti og afvopnun eða valdbeitingu. Hann kvaðst telja að fyrri leiðin væri enn möguleg en bætti við: „Við teljum að Írakar verði að gera meira en þeir hafa gert til að þessi leið geti talist trúverðug.“ Blix á að afhenda öryggisráðinu fyrstu ýtarlegu skýrslu sína um vopnaeftirlitið 27. þessa mánaðar en hann kvaðst í gær búast við því að öryggisráðið myndi óska eftir einni skýrslu til viðbótar í næsta mánuði. Heimsmarkaðsverð á olíu hækk- aði í gær vegna ummæla Blix sem þóttu benda til þess að líkurnar á stríði hefðu aukist. Verð Brent-hrá- olíu úr Norðursjó hækkaði úr 31,22 dölum á fatið í 31,70 dali og hefur ekki verið jafnhátt í tvö ár þótt aðild- arríki OPEC, samtaka olíuútflutn- ingsríkja, hafi samþykkt um helgina að auka olíuframleiðslu sína veru- lega. Tyrkir hyggjast bjóða ráðamönn- um í Egyptalandi, Íran, Jórdaníu, Sádi-Arabíu og Sýrlandi til fundar í Ankara í næstu viku til að reyna að finna friðsamlega lausn á Íraksdeil- unni. Alexander Saltanov, aðstoðarut- anríkisráðherra Rússa, sem eru and- vígir hugsanlegum hernaði í Írak, ræddi málið við ráðamenn í Bagdad í gær og fer síðan til Líbanons og Jórdaníu. Ígor Ívanov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði að Rússar hefðu „áhyggjur af vaxandi þrýstingi Bandaríkjamanna á eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna“. „Við teljum að þetta samræmist ekki anda álykt- unar Sameinuðu þjóðanna [um af- vopnun í Írak],“ sagði Ívanov. Inn á heimili embættismanna Eftirlitsmenn SÞ í Írak rannsök- uðu í gær tvö hús í Bagdad sem sögð eru vera heimili tveggja íraskra embættismanna. Daginn áður rann- sökuðu eftirlitsmennirnir eina af höllum Saddam Husseins í Bagdad og Írakar lýstu rannsókninni sem „augljósri ögrun“. Blix segir Íraka ekki gera nóg til að afstýra stríði Brussel, Bagdad. AFP, AP. Telur að deilan um vopnabúr Íraka sé komin á hættulegt stig Hans Blix GIULIO Andreotti hlýðir á vitnis- burð Antonios Giuffre, fyrrverandi liðsmanns ítölsku mafíunnar, í rétt- arsal í Mílanó í gær. Hélt Giuffre því fram að Andreotti hefði haft tengsl inn í mafíuna, en þessi vitn- isburður þykir ekki styrkja stöðu forsætisráðherrans fyrrverandi í áfrýjunarréttarhöldum sem hófust í desember. Andreotti, sem er 83 ára, var í nóvember dæmdur til 24 ára fangelsisvistar en hann var fundinn sekur um að hafa látið myrða blaðamanninn Mino Pecor- elli árið 1979. Hann neitar öllum ásökunum um að hann hafi átt sam- vinnu við mafíuna. Reuters Andreotti í vondum málum SLÖKKVILIÐSMENN slökkva eld sem kom upp aðfara- nótt fimmtudagsins í þaki Regensen, húsakynna hinnar fornfrægu heimavistar við Kaupmannahafnarháskóla, skammt frá Sívalaturni. Rúmlega hundrað stúdentum var bjargað út úr húsinu sem var reist árið 1623. Slökkviliðið var kallað út laust fyrir klukkan þrjú um nóttina og var þá mikill eldur í þakinu sem snýr út að Kristalsgötu. Um 40 slökkviliðsmenn glímdu við eldinn. Enginn slasaðist alvarlega. Fjöldi íslenskra námsmanna bjó á Regensen er Ísland heyrði undir Danakonung. AP Eldur í Kaupinhöfn FULLTRÚAR bæjar- og sveitar- stjórna í Danmörku hafa farið fram á það við stjórnvöld að þau leggi fram lagafrumvarp sem veiti heimild fyrir því að sektum verði beitt gegn foreldrum, sem ítrekað koma of seint að sækja börn sín á barnaheimili. Haft er eftir Bjørn Dahl, for- manni félagsmálanefndar sam- bands danskra sveitarfélaga, að það hafi færst mjög í vöxt að for- eldrar mæti allt að klukkustund of seint til að sækja börn sín á leik- skólana. Vilja sveitarfélögin þess vegna að danska þingið samþykki lög sem heimili þeim að sekta for- eldrana um 500 danskar krónur, u.þ.b. 5.500 íslenskar krónur, sem er sama upphæð og danskir öku- menn þurfa að borga ef þeir fá stöðumælasekt. „Það vantar mikið upp á að for- eldrar sýni sömu ábyrgð gagnvart börnum sínum og áður,“ segir Dahl. „Við erum ekki að tala um að fólk sé seint af því að lestin var ekki á áætlun, eða vegna óvæntr- ar snjókomu. Gjarnan er um að ræða foreldra sem sitja á fundum sem dragast á langinn, og í stað þess að biðjast velvirðingar og yfirgefa fundinn, til að komast í tæka tíð á leikskólann, situr þetta fólk fundinn á enda.“ Henriette Kjær félagsmálaráð- herra er sögð hafa tekið dræmt í tillöguna og hvetur hún til að mál- ið verði einfaldlega tekið upp við kærulausa foreldra. Leikskólar fái að sekta foreldrana Kaupmannahöfn. AFP. MILAN Milutinovic, fyrrverandi forseti Serbíu, mun innan fárra daga gefa sig fram við fulltrúa stríðs- glæpadómstólsins í Haag í Hollandi í því skyni að svara ákærum er tengj- ast atburðum í Kosovo 1998–1998. Þetta fullyrti Zoran Djindjic, for- sætisráðherra Serbíu, á frétta- mannafundi í Belgrað í gær. Djindjic sagði það vilja Milutin- ovic sjálfs að gefa sig fram við rétt- inn. Upplýsti Djindjic að serbnesk stjórnvöld hefðu heitið Milutinovic því að hann fengi að fara frjáls ferða sinna þar til réttarhöld yfir honum hæfust. Fara þau fram á að dómstóll- inn heimili þetta fyrir sitt leyti, enda hafi Milutinovic sýnt fullan sam- starfsvilja. Þá sé hann ekki heilsu- hraustur. Kjörtímabili Milutinovics sem for- seti Serbíu lauk um áramótin en yf- irvöld í Júgóslavíu, sem er sam- bandsríki Serbíu og Svartfjallalands, höfðu litið svo á að hann nyti frið- helgi á meðan hann gegndi embætt- inu. Tóku þau aldrei í mál að senda hann til Haag á meðan hann væri forseti. Milutinovic er sakaður um að hafa verið einn þeirra sem skipulagði ofsóknir gegn Kosovo-Albönum á ár- unum 1998–1999. Milutin- ovic senn til Haag? Belgrað. AFP. FYRRVERANDI umboðsmaður popphljómsveitarinnar Bay City Rollers, Tom Paton, og vinsæll sjón- varpsmaður, Matthew Kelly, hafa bæst við á listann yfir þekkta Breta sem hafa verið handteknir fyrir kyn- ferðislega misnotkun á börnum eða kaup á barnaklámi. Breski rokktónlistarmaðurinn Pete Townshend, sem fór fyrir hljómsveitinni The Who, var hand- tekinn á mánudag vegna gruns um að hafa barnaklám í fórum sínum, en var látinn laus gegn tryggingu og ekki ákærður. Lögreglan segir að mál Patons og Kellys, sem voru handteknir seint í fyrrakvöld, tengist ekki rannsókn á máli Townshends. Þeir hafi verið sakaðir um kynferðislega misnotkun á drengjum á áttunda áratugnum. Kelly, sem er 52 ára, er kynnir vin- sæls sjónvarpsþáttar, „Stars in Their Eyes“, þar sem óþekkt fólk fær tækifæri til að syngja og herma eftir uppáhaldssöngvurum sínum. Paton, sem er fast að sextugu, var umboðsmaður skosku hljómsveitar- innar Bay City Rollers, sem var stofnuð árið 1970 og starfaði í átta ár. Hún naut mikilla vinsælda beggja vegna Atlantshafsins. Trommu- leikari hljómsveitarinnar, Derek Longmuir, var dæmdur til 300 klukkustunda samfélagsþjónustu ár- ið 2000 fyrir að hafa safnað klám- myndum af börnum. Ári síðar var breski söngvarinn, útsetjarinn og útvarpsmaðurinn Jon- athan King, sem aðstoðaði Bay City Rollers á fyrstu árum hljómsveitar- innar, dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir kynferðislega árás á fimm drengi. Gary Glitter, önnur poppstjarna frá áttunda áratugnum, afplánaði í fyrra fjögurra mánaða fangelsi fyrir að safna barnaklámmyndum og hon- um var vísað frá Kambódíu í síðasta mánuði eftir að fréttir um að hann dveldi þar höfðu valdið miklu upp- námi meðal landsmanna. Lögreglan handtekur fleiri þekkta Breta London. AFP. Liggja undir grun um að vera barnaníðingar RÉTTAÐ verður yfir John Lee Malvo, táningnum sem ákærður hef- ur verið vegna leyniskyttumorðanna svokölluðu í Bandaríkjunum í haust, sem hann væri fullorðinn. Dómari í Virginíu ákvað þetta í fyrrakvöld en Malvo er aðeins sautján ára gamall. Malvo og félagi hans, John Mu- hammad, eru sakaðir um að hafa banað þrettán manns með riffli í ná- grenni Washington-borgar í septem- ber og október. Þeir eru einnig grun- aðir um morð í Louisiana, Alabama, Georgíu og í Washington-ríki. Ákvörðunin í gær gæti orðið til þess að Malvo hlyti dauðadóm, verði hann fundinn sekur um aðild að morðunum. Malvo telst fullorðinn Washington. AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.