Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gestur Þorgríms-son myndhöggv- ari fæddist í Laugar- nesi við Reykjavík 27. júní 1920. Hann lést á heimili sínu í Hafnar- firði, aðfararnótt miðvikudagsins 8. janúar síðastliðins. Gestur var sonur hjónanna Þorgríms Jónssonar, bónda í Laugarnesi og söðla- smiðs, f. 1873, d. 1943, og konu hans, Ingibjargar Krist- jánsdóttur, f. 1877, d. 1952. Systkini Gests voru Jón Kristján, f. 1899, d. 1952, Ólafur Þorsteinn, f. 1902, d. 1989, Pétur, f. 1906, d. 1934, Ragn- ar, f. 1908, d. 2000, Guðrún Sigríð- ur, f. 1911, d. 1972, og Þorbjörg, f. 1915, d. 1941. Eftirlifandi eiginkona Gests er Sigrún Guðjónsdóttir myndlistar- kona, Rúna, f. 1926. Foreldrar hennar voru Guðjón Guðjónsson, skólastjóri í Hafnarfirði, og Ragn- heiður Jónsdóttir rithöfundur. Gestur og Rúna gengu í hjóna- band árið 1946. Börn þeirra eru: Þorgrímur, blaðamaður og rithöf- undur, f. 1947, kvæntist Guðbjörgu Hafnarfjarðar og Flensborgarskóla í nokkur ár. Á sjötta áratugnum var hann landsþekktur skemmtikraftur og gerði einnig allmarga útvarps- þætti á þeim árum. Frá 1956 starf- aði hann við Fræðslumyndasafn ríksisins en gerðist myndlistar- kennari við Kennaraskóla Íslands árið 1963 og varð lektor árið 1977, þegar Kennaraháskólinn var stofn- aður og starfaði þar óslitið til ársins 1984 nema 1967–68 þegar hann starfaði að kynningarmálum vegna breytingar í hægri umferð. Á ár- unum 1963–70 starfaði hann við kvikmyndagerð. Gestur starfaði alla tíð að mynd- list jafnframt öðrum störfum og þau Rúna tóku upp þráðinn við leir- munagerð árið 1968. Eftir að hann hætti kennslu sneri hann sér ein- vörðungu að listinni og sinnti mest höggmyndagerð. Hann hélt fjöl- margar sýningar hér á landi og er- lendis, m.a. í Japan, og tók þátt í samsýningum. Gestur vann nokkuð við listskreytingar opinberra bygg- inga ásamt Rúnu og höggmyndir hans eru við nokkrar opinberar byggingar. Fjölskyldan byggði hús á Laugarásvegi 7 árið 1957 og bjó þar til ársins 1981 þegar Gestur og Rúna fluttu ásamt yngsta barni sínu á Austurgötu 17 í Hafnarfirði. Útför Gests verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Hafnar- firði. Árnadóttur (þau skildu); börn þeirra: Þuríður Björg, barn: Þorgrímur Erik, og Sigrún Vala; Ragnheið- ur, rithöfundur og myndlistarmaður, f. 1953, gift Birni Þór Sigurbörnssyni lækni; börn þeirra: Kolbrún Anna, maki Viðar Þor- steinsson; börn þeirra: Þórdís Ylfa og Elín Ylfa; Kári Freyr, Kjart- an Yngvi og Kolbeinn Ingi; Guðjón Ingi, hug- búnaðarfræðingur, f. 1957, kvæntur Auði Óskarsdóttur Vatnsdal rönt- gentækni; þeirra börn: Óskar, Sig- rún og Ragnheiður; barn Guðjóns: Þorkell, Ingibjörg Þóra fatahönnuð- ur, f. 1965, gift Gylfa Birni Hvann- berg matreiðslumanni; þeirra börn: Gestur, Gylfi og Diljá. Gestur stundaði nám við Handíða- og myndlistarskólann 1944–46 og Konunglega listaakademíið í Kaup- mannahöfn 1946–47. Hann og Rúna ráku leirbrennsluna Laugarnesleir frá 1948 til 1952. Árið 1953 lauk Gestur teiknikennaraprófi frá Hand- íða- og myndlistaskólanum og kenndi eftir það við Barnaskóla Veturinn fyrir áttræðisafmæli pabba unnum við Þorgrímur bróðir minn að gerð bókarinnar um hann sem kom út á afmælisdaginn. Líkam- leg heilsa hans var þá tekin að bila þótt andlegur þróttur væri óskertur og stundum sótti að mér efi um að hann myndi fá að lifa afmælið sitt, stóru sýninguna sem ráðgerð var og útkomu bókarinnar. En lífsviljinn var sterkur og við fengum ekki bara að hafa pabba hjá okkur fram yfir af- mælið, heldur auðnaðist okkur að njóta dýrmætra samverustunda við hann í tvö og hálft ár í viðbót. Bókina skildi hann aldrei við sig, hún var allt- af innan seilingar svo hann gæti hand- fjatlað hana og skoðað þótt sjónin leyfði ekki lengur lestur. Þetta litla minningarbrot úr bókinni okkar sem hér fer á eftir er ekki kveðja, því hann pabba minn kveð ég aldrei, hann er og verður hluti af lífi mínu. Það er snjór úti, almennilegur snjór sem hægt er að hnoða úr snjó- bolta og sem tollir utan á boltanum þegar honum er velt eftir jörðinni. Snjórinn rúllast upp eins og þykkt, hvítt teppi og skilur eftir grænleita rák á blettinum. Við erum öll úti, krakkarnir, og reynum að koma okk- ur saman um hvernig eigi að nýta þennan fjársjóð; ef til vill að byggja risastórt snjóhús eða gera heila snjó- karlafjölskyldu. Áformin reynast eins og oft áður stærri en kraftarnir leyfa og við erum farin að draga í land með herbergjafjöldann í snjóhúsinu þegar pabbi kemur út til okkar. Hann virkjar okkur við að draga að efnivið og við rogumst með stóra snjó- köggla til hans þar sem hann hefur valið stað á stéttinni við hliðina á hús- inu. Forviða fylgjumst við með hon- um hlaða upp snjónum, þjappa og þétta og byrja svo að skera og móta með skóflublaði. Smátt og smátt tek- ur snjórinn á sig form, þéttur búkur á gildum snjófótum losnar frá skaflin- um, hálsinn teygir sig upp í kalt loftið og ber uppi höfuð sem hröð handtök móta; nasir, augu. Pabbi er niðursokkinn í verkið, andardrátturinn hægur þótt hend- urnar vinni hratt, móti og klappi, hann veit varla af okkur sem stöndum í kring um hann opinmynnt og hreyf- um okkur ekki nema til að strjúka sultardropann af nefinu með blautum vettlingi. Svo er hann tilbúinn, snjóhestur- inn. Okkur sem höfum orðið vitni að umbreytingunni finnst hann næstum geta stokkið af stað, viljum helst henda okkur á bak þótt við samtímis þorum varla að snerta hann með köld- um fingurgómunum. Svo fer fullorðið fólk að drífa að – nágrannar og veg- farendur koma og líta á hestinn og hika ekki við að klappa kumpánlega á snjólendar hans með stórum og hversdagslegum höndum. Einhver kemur út með myndavél og tekur mynd af okkur við hliðina á snjóhest- inum. Hann er orðinn raunverulegur. En í næsta hlákukasti stekkur hann inn í eilífðina þar sem hann á heima. (Úr bókinni Steinsnar – Gestur Þorgrímsson myndhöggvari.) Ragnheiður Gestsdóttir. Þú varst blóm sem fölnaði. Þú varst tré sem féll. Þú varst steinn sem hafið gerði að sandi. Þú varst sólargeisli sem eitt sinn brotnaði á vatni. En þótt þú sért horfinn af þessari jörð varir hlýja þín og minning ætíð í hjörtum okkar. En þú ert ekki horfinn, því lífið heldur áfram. og dauðinn er ekki endir heldur hlekkur í hringrás heimsins. Sigrún Vala Þorgrímsdóttir. Í barnæsku var heimsmynd okkar krakkanna mjög einföld. Það var full- orðna fólkið sem siðaði okkur til og sussaði á okkur þegar lætin urðu of mikil – það voru stóru krakkarnir sem við þurftum að vara okkur á – það vorum við krakkarnir – og svo voru það litlu krakkarnir sem við þurftum að vernda. Það var bara eitt vandamál og það var Gestur, hann passaði hvergi inn í þessa mynd. Hann var ekki fullorðinn þótt hann hefði aldur til, því hann sussaði aldrei á okkur, sama hvernig við létum – hann bætt- ist bara í hópinn og ærslaðist með okkur. Sennilega var hann næst því að vera einn af okkur krökkunum, og þó – aldurinn og stærðin pössuðu illa. En svo bar það til tíðinda að Gestur kom með stelpu heim í Laugarnes. Við Böggý vorum að leik í stofunni og okkur rak í rogastans. Þessu hefðum við aldrei trúað upp á hann Gest. Við áttuðum okkur á að eignarrétti okkar var ógnað og fórum strax í stríð, réð- umst til atlögu og hrópuðum sem mest við máttum: Hí á Gest, Gestur með stelpu, hí á Gest. Atgangur okkar var svo mikill og harður að það endaði með því að amma tók okkur og henti GESTUR ÞORGRÍMSSON ✝ Lilja Björnsdóttirfæddist á Neðri- Þverá í Vesturhópi í Vestur-Húnavatns- sýslu 12. mars 1921. Hún lést á elliheim- ilinu Grund 3. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Jónína Bjarnadótt- ir, f. 25. september 1892, d. 18. júlí 1979, og Árni Björn Jak- obsson, bóndi Neðri- Þverá, f. 1. septem- ber 1889, d. 30. júní 1938. Systkini Lilju eru: Ágúst Bjarni, f. 1922, d. 1988, Jakob Bragi, f. 1929, Hreiðar, f. 1930, Sigurbjörg, f. 1933 og Björn Skafti, f. 1936. Sumarið 1945 giftist Lilja Þor- grími Guðmundi Guðjónssyni, tré- smíðameistara og heildsala, f. 18. nóvember 1920, d. 14. apríl 1985. Þorgrímur var fæddur í Saurbæ á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatns- sýslu. Lilja og Þorgrímur eignuð- ust þrjú börn. Þau eru: 1) Ragn- heiður, hjúkrunarfræðingur, búsett í Svíþjóð, f. 2. janúar 1946, gift Mats Andersson, afgreiðslu- manni, f. 5. nóvember 1943. Dóttir þeirra er Kala María. 2) Hrafn- hildur, kennari í Reykjavík, f. 3. mars 1949, gift Rafni Kristjánssyni, bygg- ingartæknifræðingi, f. 6. febrúar 1948. Börn þeirra eru: Ás- dís Margrét og Ólaf- ur Þór. 3) Björn Ingi, verslunarmaður á Hvammstanga, f. 1. apríl 1958, kvæntur Jóhönnu Kristínu Jósefsdóttur, sjúkra- liðanema, f. 19. febr- úar 1961. Börn þeirra eru: Lilja og Þorgrímur Guðni. Barnabarnabörn Lilju, börn Ás- dísar M. Rafnsdóttur og manns hennar Njáls Líndals Marteins- sonar, eru Alexander og Dóra. Lilja ólst upp í foreldrahúsum á Neðri-Þverá í Vesturhópi og síðan með móður sinni og systkinum eft- ir andlát föður hennar til ársins 1944 er móðir hennar flutti ásamt systkinunum til Reykjavíkur. Lilja gekk í farskóla í Þverárhreppi auk þess sem hún fór einn vetur til náms í Héraðsskólann í Reykholti. Lilja bjó ásamt Þorgrími í mörg ár í Árbæjarhverfinu og dvaldi síðustu árin á elliheimilinu Grund. Útför Lilju verður gerð frá Ár- bæjarkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Elsku systir. Það sannaðist sann- arlega fyrir mér að maður skyldi aldr- ei geyma til morguns það sem maður getur gert í dag. Þegar sonur þinn hringdi í mig og sagði mér frá andláti þínu, datt mér þetta spakmæli í hug. Ég vil hér með þakka þér fyrir að hafa mig sem heimagang hvenær sem mér datt í hug að knýja á þínar dyr. Mér finnst ég hafi átt að vera dug- legri við að heimsækja þig eftir að þú fluttir á Grund, það var of sjaldan síð- asta árið. Ég votta börnum, tengdabörnum og barnabörnum samúð mína. Hvíl í friði, elsku systir. Sigurbjörg (Stella). Ég minnist ömmu minnar frá því að hún bjó í Rofabænum með afa. Mér finnst ég í raun ekki hafa kynnst ömmu nógu vel fyrr en afi var dáinn og við heimsóttum hana í Rofabæinn og síðan á Elliheimilið Grund. Ég átti eftir að kynnast henni miklu betur og sá þá að hún var m.a. mjög skemmti- leg, hress, nýjungagjörn (upp að ákveðnu marki) og með mikla kímni- gáfu. Hér á eftir koma nokkrar sögur af henni ömmu. Einu sinni keypti hún sér ham- borgara úti í búð og eldaði hann. Við, krakkarnir, spurðum hana hvernig hann hefði smakkast og sagði hún að henni hefði nú ekki þótt hann neitt sérstakur. Þá spurði ég hvernig hún hefði matreitt hann og hún sagði að hún hefði steikt hann. Hún hafði ekki einu sinni kryddað hann, hvað þá sett tómatsósu eða annað, hann hafði sem sagt bragðast eins og þurr skósóli. Við hlógum að henni og sögðum ömmu að venjan væri nú að krydda borgarann, setja sósu o. fl. á milli og hló hún þá með okkur. Dag einn keypti amma sér happa- þrennu því að hún varð vör við að þær væru vinsælar. Við krakkarnir sáum að amma átti happaþrennu uppi á borði þegar við heimsóttum hana. Við spurðum hana þá hvort hún ætlaði ekki að skafa af henni en þá sagðist hún vera að bíða eftir að dregið yrði í happadrættinu. Þetta eru bara tvö dæmi sem lifa í minningunni um ömmu sem sýna hversu skemmtileg hún var og hversu mjög hún var tilbú- in í að prófa hlutina. Amma var löngu tilbúin að deyja og var hún búin að bíða lengi eftir því. Hún sagði reyndar við mig 10 ára gamla að hún ætlaði nú að deyja fljót- lega fyrst afi væri dáinn. Síðan eru liðin sautján ár og upplifði hún meira en hún hefði nokkurn tíma búist við. Hún var himinlifandi þegar ég út- skrifaðist stúdent út Verzló og gaf mér mjög fína gjöf, ég yrði nú fyrsta barnabarnið og eina sem myndi út- skrifast á meðan hún væri á lífi en hún lagði alltaf mikla áherslu á menntun. Síðan þá hefur hún þurft að fjárfesta í fleiri útskriftargjöfum og meira að segja fylgst með tveimur barnabarna- börnum og því þriðja sem er á leið- inni. Hún var yfirleitt glöð þegar ég kom í heimsókn á Grund. Vaninn var að heimsækja hana og herbergisfélag- ann, Herdísi, einu sinni í viku. Þegar ég gekk með fyrra barnið mitt þá var hún viss um að barnið mitt myndi nú þekkja röddina í sér þegar það fædd- ist. Hún yngdist síðan um mörg ár þegar Alexander, sonur minn, fædd- ist og kom í heimsókn til hennar. Þær fylgdust spenntar með öllu sem hann gerði og var merkilegt, hvað hún sá allt í einu vel og heyrði þegar við kom- um í heimsókn. En á þessum tíma var hún orðin nærri heyrnarlaus, með heyrnartæki og mjög lélega sjón þó að hún væri eldklár í kollinum og fylgdist vel með. Þegar ég eignaðist dóttur mína, Dóru, ári seinna var hún ekki síður glöð. Vinkona mín, Júlíana, sagði hana mjög líka ömmu og var hún mjög montin með það að hún væri svona sæt og líka svona lík sér og með nefið sitt. Einnig var hún ánægð með nafnið Dóra því hún átti svo erfitt með að muna nafnið Alexander. Með þessum fáu orðum kveð ég ömmu mína og get vel sagt að ég hafi haft ánægju af að eiga hana að sem ömmu og þekkja hana. Að lokum vil ég þakka starfsfólki Grundar og Herdísi, herbergisfélaga ömmu, fyrir óbilandi þolinmæði og hjálpsemi í garð ömmu. Ásdís Margrét Rafnsdóttir. LILJA BJÖRNSDÓTTIR ✝ Lovísa GuðrúnJónsdóttir fædd- ist á Ísafirði 19. apríl 1924. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jón Pálsson Andrésson bóndi, f. 1889, ættað- ur frá Kleifum í Kald- baksvík í Stranda- sýslu og Þorgerður Kristjánsdóttir frá Súðavík, f. 1888. Þau bjuggu lengst af á Hlíðarenda á Ísafirði. Lovísa var fjórða yngst tíu systkina. Þau voru auk hennar Björg Aðalheiður, f. 1915, d. 1998, maki Einar Ingiberg Guðmundsson, Kristján Jón Mark- ús, f. 1916, dó ungur, Kristján Jón Magnús, f. 1918, d. 2002, maki Jóna Örnólfsdóttir, Tryggvi Andrés, f. 1920, d. 2002, Guðbjörg Rósa Jóns- dóttir, f. 1921, maki Óskar Pétur Einarsson, Þorgerður Sigríður, f. 1922, maki Adolf Hafsteinn Magnús- son, Margrét Anna, f. 1925, maki Sigurður Gunnsteinsson, Sig- urbjörg Ásta, f. 1926, maki Þormóður Stef- ánsson og Valdimar Sigurbjörn, f. 1928, d. 2001, sambýlis- kona Helga Alberts- dóttir. Móður sína missti Lovísa árið 1935 og tók þá móð- ursystir hennar Guð- rún Margrét Krist- jánsdóttir við heimilinu og giftist hún föður Lovísu árið 1939. Sambýlismaður Lovísu var Bergþór Jónsson, f. 1909, d. 2001. Þau voru barnlaus. Lovísa var húsmóðir, en jafn- framt starfaði hún sem verslunar- maður alla tíð. Útför Lovísu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með þessum orðum vil ég kveðja elskulega frænku mína, Lovísu, og LOVÍSA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.