Morgunblaðið - 17.01.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁBYRGÐIN SAMÞYKKT
Meirihluti borgarstjórnar Reykja-
víkur samþykkti í gær að ábyrgjast
að sínum hluta lán vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Var það samþykkt
með níu atkvæðum, fimm voru á
móti en einn sat hjá. Nokkur hundr-
uð manns efndu til mótmæla utan og
innan Ráðhússins og fjarlægði lög-
reglan einn mann.
Búnaðarbanki seldur
Í gær var undirritaður samningur
um kaup S-hópsins og þýsks fjár-
festingarbanka á 45,8% hlut ríkisins
í Búnaðarbanka Íslands. Er kaup-
verðið 11,9 milljarðar kr. Hlutur
S-hópsins er 29,5% en þýska bank-
ans 16,3%.
Davíð í Japan
Davíð Oddsson forsætisráðherra
átti í gær fund með krónprinsi og
krónprinsessu Japans en opinberri
heimsókn hans til landsins lýkur á
morgun. Hafa viðskiptamálin verið
ofarlega á baugi enda er Japan mik-
ilvægur markaður fyrir íslenskar
sjávarafurðir.
Handtaka í Bretlandi
Lögreglan í Bretlandi hefur hand-
tekið mann frá Alsír og er hann tal-
inn tengjast hryðjuverkahópum,
sem höfðu eiturefnið rísín í fórum
sínum. Telja sumir, að þeir tengist
al-Qaeda.
Fölsunarmálið
Málverkafölsunarmálið var þing-
fest fyrir héraðsdómi í gær en ákært
er vegna 103 verka, sem ýmist eru
fölsuð eða eignuð öðrum. Er um að
ræða viðamestu og dýrustu lögreglu-
rannsókn hér á landi en áætlað er, að
hún hafi kostað 40–50 millj. kr.
Efnavopnaoddar
Vopnaeftirlitsmenn SÞ í Írak
fundu í gær 11 efnavopnaodda, sem
ekki hefur verið gerð grein fyrir.
Hans Blix, formaður vopnaeftirlits-
nefndarinnar, sagði í gær, að Íraks-
deilan væri komin á hættulegt stig.
2003 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HAUKAR SIGRUÐU NJARÐVÍKINGA Í FJÓRÐA SINN / C2
STAÐARBLAÐIÐ Budstikka í Nor-
egi segir í ítarlegri umfjöllun sinni
um Marel Baldvinsson að hann hafi
aldrei náð sér á strik á þeim 50
klukkustundum sem hann var inni á
vellinum með norska úrvalsdeildar-
liðinu Stabæk. Marel skoraði 10
mörk og segir norska blaðið að félag-
ið hafi borgað um 70 milljónir ísl. kr.
í heildarkostnað vegna Marels og
eru laun hans hjá félaginu tekin með
í reikninginn. Gaute Larsen, þjálfari
Stabæk, segir að vissulega sé slæmt
að sjá á eftir leikmanni – segir jafn-
framt að Marel hafi í raun aldrei sýnt
hvað í honum bjó frá því að hann var
keyptur árið 1999 frá Breiðablik fyr-
ir um 35 millj. ísl. kr. Í vikunni var
Marel seldur til belgíska liðsins
Lokeren fyrir um 25 millj. ísl. kr.
„Marel nýtti færin sín ekki nógu
vel. Ég veit hins vegar að það býr
meira í honum en hann sýndi hjá
okkur. Hann var meiddur nánast allt
fyrsta keppnistímabilið og átti í kjöl-
farið í ýmsum meiðslum og það hafði
veruleg áhrif á hann. Ég stend hins
vegar við það sem ég hef sagt áður
að Marel getur orðið ótrúlega góður.
Í UEFA-leik gegn Anderlecht hér í
Ósló sýndi hversu hann er megnugur
í leik gegn sterku evrópsku liði,“ seg-
ir Larsen og hann tekur það fram að
hann hafi ekki dottið aftur fyrir sig
er hann frétti af sölunni á Marel.
„Það þurfti að skera niður kostnað
hjá félaginu og fá inn tekjur. Það er
veröld sem við þurfum að sætta okk-
ur við og ég vissi að Marel gæti farið
frá okkur á næstunni.“
Marel náði sér
ekki á strik
EINAR Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Íslands, hefur mikið að
gera þessa dagana við undirbúning
landsliðsins fyrir HM í Portúgal.
Einar er jafnframt aðstoðarmaður
Guðmundar Þ. Guðmundssonar
landsliðsþjálfara.
Einar fór degi seinna til Svíþjóð-
ar en landsliðshópurinn, þar sem
hann varð að ganga frá ýmsum mál-
um í sambandi við HM. „Ég er ekki
sáttur við hvernig byrjunin er hjá
okkur við komuna til Viseu í Portú-
gal. Við höfum verið settir á hótel
sem við þurfum síðan að yfirgefa
eftir eina nótt og fara á annað.
Þetta er óþolandi, þar sem við erum
með það mikinn farangur með okk-
ur og þurfum að koma okkur sem
best fyrir strax fyrir átökin, heldur
en að þurfa að vera að koma okkur
fyrir á keppnisstað í tvo daga. Það
skapar óstöðugleika og er ekki boð-
legt fyrir þátttöku í heimsmeist-
arakeppni,“ sagði Einar.
Íslenska landsliðið æfir tvisvar í
Svíþjóð í dag – heldur síðan til
Portúgals á morgun. Fyrsti leikur
liðsins á HM verður gegn Ástralíu á
mánudag.
Landsliðið
þarf að
skipta
um hótel
Scanpix
Stefan Lövgren, lykilmaður sænska landsliðsins í handknattleik, skorar gegn Íslandi í vináttuleik þjóðanna í Landskrona í gærkvöld
án þess að Rúnar Sigtryggsson og Sigfús Sigurðsson fái nokkuð að gert. Svíar unnu nauman sigur, 27:26. Sjá nánar C3.
Jóhannes Karl hefur fengið fátækifæri hjá spænska 1. deild-
arliðinu Real Betis frá því að hann
var keyptur frá hollenska liðinu
RKC Waalwijk í október árið 2001
fyrir um 350 milljónir ísl. kr.
„Það sem hangir á spýtunni er
leigusamningur á milli liðanna og ef
allt gengi upp myndi Aston Villa
kaupa mig í lok leiktíðarinnar. Ég er
spenntur fyrir þessu en þori ekki að
ganga að neinu vísu fyrr en allt er
klappað og klárt. Ég og unnusta mín,
Jófríður Guðlaugsdóttir, eigum von
á frumburði okkar eftir um átta vik-
ur. Við erum því að falla á tíma ef við
ætlum að fara að rífa okkur upp frá
Spáni og flytja áður en barnið kemur
í heiminn. Við verðum hér í Birm-
ingham fram á sunnudag og sjáum
Aston Villa taka á móti Tottenham í
deildakeppninni á laugardag. Á
sunnudag munu forráðamenn lið-
anna funda og taka endanlega
ákvörðun um framhaldið. Það mun
því eitthvað gerast á sunnudaginn.
Öll umgjörð Aston Villa er til fyr-
irmyndar. Ég yrði mjög glaður ef ég
fengi tækifæri hjá þessu liði,“ sagði
Jóhannes
Aston Villa og Real Betis taka ákvörðun á sunnudag um
framtíð landsliðsmannsins Jóhannesar Karls Guðjónssonar
„Er spenntur en
bíð enn rólegur“
„ÉG er búinn að hitta Graham Taylor knattspyrnustjóra liðsins
og við ræddum saman stuttlega og það er hans mat að Aston Villa
þurfi leikmann með svipaða hæfileika og ég bý yfir. Það er hins-
vegar næsta skref í málinu að Real Betis og Aston Villa þurfa að
komast að samkomulagi um sín mál. Þangað til verð ég bara að bíða
rólegur,“ sagði landsliðsmaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson við
Morgunblaðið í gær. Hann er staddur í Birmingham á Englandi en
úrvalsdeildarliðið Aston Villa hefur áhuga á að fá hann í sínar raðir.
FRAMHERJINN okkar Georgi Bujuliev fór í
jólafrí og átti að koma 29. desember en hann
hefur ekki enn látið sjá sig. Því höfum við feng-
ið framherja í hans stað,“ sagði Bárður Eyþórs-
son, þjálfari úrvalsdeildarliðs Snæfells í körfu-
knattleik, í gær en Selwin Conrad Reid mun
leika sinn fyrsta leik með Snæfelli í kvöld er lið-
ið fær Skallagrím í heimsókn í úrvalsdeildinni.
Selwin er 26 ára gamall og leikur í stöðu fram-
herja. „Hann kemur frá eyju í Karíbahafinu,
sem ég veit ekki hvað heitir. Hann lofar góðu
og á eftir að auka breiddina í okkar liði. Banda-
ríkjamaðurinn Clifton Bush er að ná sér eftir
handarbrot og hefur sýnt fádæma hörku í þeim
meiðslum. Það eru ekki margir sem leika á
sunnudegi eftir að hafa losnað við gifsumbúðir
tveimur dögum fyrr,“ sagði Bárður.
Conrad Reid í
raðir Snæfells
F Ö S T U D A G U R 1 7 . J A N Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B
KYNJAHLUTIR KRISTÍNAR/2 LEIT AÐ HVERSDAGSLEGUM UPPLÝS-
INGUM/2 LEIKFIMI Í HUGANUM/3 ÍSLENSK FLÍK ENGRI LÍK/4
BJARGIRNAR SEM HVER BÝR YFIR/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
STRÁKAR hafa ekki alltaf verið gefnirfyrir skartgripi en það virðist af semáður var. Þeir eru nú farnir að skreytasig með hringjum, hálsfestum, lokkum,
armböndum og ólum ýmiskonar. Að sögn Örnu
Pétursdóttur, verslunarstjóra í Kiss í Kringl-
unni, virðist sem strákar séu síður feimnir við
að skreyta sig núorðið eftir að stelpuskartið
hefur verið svo vinsælt og algengt að stelpur
skreyti sig mikið. „Það er eins og þeir verði
móttækilegri og geti leyft sér meira.“
Lokkar í tungu, augnabrúnir, neðri vör, nef
og nafla eru vinsælir hjá ungu fólki en tvennt
það síðastnefnda eru staðir sem strákar setja
síður lokka í. Neðri vörin og augnabrúnir eru
vinsælustu staðirnir fyrir lokka hjá þeim.
Eva Ýr Cilwa Gunnarsdóttir, sem starfar í
Rhodium í Kringlunni, segir að vinsælustu jóla-
gjafirnar til unglingsstráka og upp fyrir tví-
tugt frá kærustunum hafi verið stálarmbönd
með áletrun. Armböndin eru yfirleitt grófar
keðjur með plötu úr möttu eða glansandi stáli.
Ofan á plötuna er oftast ritað nafn viðtakand-
ans og undir er letruð ástarkveðja frá þeirri
sem gefur.
Hringurinn eini sanni var líka mjög vinsæll,
þ.e. hringurinn sem Fróði er að koma á áfanga-
stað í Hringadróttinssögu. Eva Ýr segir að
strákar á aldrinum 18–25 ára noti helst skart-
gripi. Þeim yngri finnist þeir stundum „stelpu-
legir“ en bæði
yngri og eldri
strákar noti
þó ýmiskonar
skart.
Arna segir
að strákar á
aldrinum 13–
30 ára noti
skartgripi og
bendir á
margt vin-
sælt. Hringir
eru bæði úr stáli og silfri og oft eru strákar
með upp í fimm hringi í einu. Kannski þrjá á
annarri hendinni og tvo á hinni og yfirleitt á
þumli og litlafingri.
Hálsfestar eru yfirleitt úr stáli og er matt
stál vinsælla en glansandi. Alls konar merki er
hægt að festa á keðjurnar og skipta þeim út að
vild: fiskar, slöngur, plöntur eða mynstur.
Einnig eru festar og armbönd úr tréperlum og
Arna segir að ljósir litir séu vinsælir, ljósbrúnt
og hvítt. Strákar eru yfirleitt bara með eina
hálsfesti í einu en stundum með tvö mismun-
andi armbönd. Leðurólar, ein eða nokkrar,
svartar og brúnar, eru líka vinsælar hjá
strákum. Arna nefnir líka gaddabeltin sem
strákarnir skreyta sig nú með í meira mæli en
stelpurnar.
Arna segir að sumir hafi verið hræddir við
tungulokka vegna þess að þeir geti brotið tenn-
ur. Hún segir að nú séu komnir tungulokkar úr
plasti og lyftir einum grænum upp og beygir
hann sundur og saman. Lokkar sem strákar
velja til að setja í neðri vörina eru yfirleitt lát-
lausir en hægt er að skipta um haus á þeim og
setja eitthvað meira áberandi eins og gulan
broskarl eða annan skrautlegan haus með
texta eða táknum.
Arna segir frá því að strákar allt niður í 10
ára hafi komið og valið sér lokka í augnabrún
eða neðri vör sem þeir ætla að nota þegar
foreldrarnir gefa leyfi, en krakkar yngri en 16
ára þurfa að fá leyfi hjá foreldrum fyrir því að
fá göt á líkamann.
Strákaskart
Morgunblaðið/Golli
Atli Arnar, viðskiptavinur Kiss í Kringlunni,
með hring á öðrum hverjum fingri, hálsmen og
armband úr tréperlum og stálarmband að auki.
Hringir úr stáli eða silfri og með einhvers konar
mynstri eru vinsælir.
Atli Arnar er einn af mörgum strákum sem eru
með gat í augnabrún.
Armbandið vinsæla frá Rhodium
í Kringlunni og dæmi um háls-
keðju og hringi fyrir stráka.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 30/37
Viðskipti 12/13 Staksteinar 38
Erlent 14/16 Bréf 40
Höfuðborgin 17 Skák 57
Akureyri 18 Dagbók 42/43
Suðurnes 19 Brids 43
Landið 20 Leikhús 44
Listir 21/24 Fólk 44/49
Umræðan 24/25 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Viðhorf 30 Veður 51
* * *
GANGI veðurspá eftir verður
skíðasvæðið í Bláfjöllum hugs-
anlega opnað um helgina, að sögn
Grétars Halls Þórissonar, forstöðu-
manns skíðasvæðisins.
Bláfjallanefnd sér nú um allan
rekstur á svæðinu en áður voru
verktakar með skíðaleiguna og
veitingasöluna. Frá áramótum hafa
10 manns unnið að undirbúningi
opnunar svæðisins og verið í við-
bragðsstöðu.
Grétar Hallur segir að heimasíða
skíðasvæðanna, skidasvaedi.is, sé
uppfærð reglulega og þar séu nýj-
ustu upplýsingar um stöðu mála og
auk þess sé lesið inn á símsvara Blá-
fjalla daglega. „Fjallið er mjög bert
á að líta en það hefur skafið í lægð-
ir, ákveðinn grunnur er að myndast
og við erum í viðbragðsstöðu,“ seg-
ir hann.
„Skíðasala hefur gengið nokkuð
vel hjá okkur en brettasala síður,“
segir Halldóra Blöndal, versl-
unarstjóri í útivistarversluninni
Everest. Hún segir að þó að snjóinn
hafi vantað hérlendis sé stöðugur
straumur fólks í skíðaferðir til út-
landa fyrstu mánuði ársins og bún-
aðurinn sé ódýrari hér en erlendis
vegna hagstæðari tolla.
Helgi Benediktsson, deildarstjóri
í skíðadeild Útilífs, segir að vegna
snjóleysis innanlands hafi skíðasala
verið frekar dræm undanfarin þrjú
ár en með minnsta móti nú í vetur.
„Það helsta sem hefur verið að gera
hjá okkur í skíðasölu er til þeirra
sem hafa verið að fara í skíðaferðir
til útlanda og sú sala heldur okkur
gangandi,“ segir hann.
Morgunblaðið/Golli
Krakkar í Breiðholtinu kunnu vel að meta snjóinn í gær og léku sér á meðan birtan entist.
Starfsfólk í Bláfjöllum
er í viðbragðsstöðu
RÆKJUKVÓTI íslenskra skipa á Flæmingja-
grunni á árinu 2003 verður ríflega 13.500 tonn
eða 4.500 tonnum meiri en á síðasta ári. Ætla má
að afurðaverðmæti kvótaaukningarinnar nemi
um 600 milljónum króna. Íslendingar hafa þó
ekki náð að veiða kvóta sinn á Flæmingjagrunni
á undanförnum árum.
Heildarkvóti Íslendinga á Flæmingjagrunni
var rúm 9 þúsund tonn á síðasta ári en kvótinn
er nú aukinn í kjölfar þess að vísindamenn ráð-
lögðu á síðasta ári að heildarkvóti í rækju á
svæðinu yrði aukinn úr 30 þúsund tonnum í 45
þúsund tonn. Ísland hefur frá árinu 1995 mót-
mælt sóknarstýringu við stórn rækjuveiða á
Flæmingjagrunni og stjórnað veiðum íslenskra
skipa einhliða með aflamarki. Því verður kvóti
Íslendinga á árinu 2003 aukinn hlutfallslega jafn-
mikið og aukning vísindamannanna gerir ráð
fyrir.
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í rækju á
Flæmingjagrunni á árinu 2003 til íslenskra
skipa, samtals 13.567 tonnum. Alls fá 15 skip út-
hlutað kvóta, mest fær Pétur Jónsson RE eða
samtals 3.833 tonnum. Þá fær Sunna SI úthlutað
samtals 2.965 tonnum, Hjalteyrin EA um1.742
tonnum og Kópanes RE um 1.554 tonnum. Önn-
ur skip fá mun minna.
Heildaraflamark íslenskra skipa á síðasta ári
var 9.067 tonn en aflinn varð 5.795 tonn. Aðeins
stunduðu þrjú íslensk skip veiðar á Flæmingja-
grunni á síðasta ári, enda er afurðaverð á rækju
lágt um þessar mundir og því hefur dregið úr
arðsemi veiðanna. Pétur Jónsson RE fékk mest-
an afla á síðasta ári, alls 3.139 tonn, Sunna SI
veiddi 1.970 tonn og Rauðinúpur ÞH um 687
tonn.
Rækjukvóti á Flæmingja-
grunni aukinn um 4.500 tonn
Verðmæti aukn-
ingarinnar er um
600 milljónir króna
ÞORRINN hefst eftir viku, á bónda-
degi föstudaginn 24. janúar. Þegar
eru farnar að sjást í verslunum
ýmsar kræsingar, sem yfirleitt sjást
ekki á öðrum tímum ársins. Veit-
ingamaðurinn í Veislusmiðjunni
tók forskot á sæluna í gær er hann
gerði þorramatinn kláran.
Forskot
á sæluna
Morgunblaðið/Júlíus
BORGARSTJÓRN samþykkti í gær
ráðningu Þórólfs Árnasonar í emb-
ætti borgarstjóra. Ráðningin var
samþykkt með 8 atkvæðum borgar-
fulltrúa Reykjavíkurlistans.
Einnig var samþykkt með 8 at-
kvæðum borgarfulltrúa Reykjavík-
urlistans að Steinunn Valdís Óskars-
dóttir fengi sæti í borgarráði.
Að auki var samþykkt með 15 at-
kvæðum að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir léti af störfum 1. febrúar.
Ráðning
Þórólfs
samþykkt
♦ ♦ ♦
Á PRÓFATÍMA við Háskóla Ís-
lands (HÍ) hafa nemendur skólans
forgang í lestraraðstöðu Þjóðarbók-
hlöðunnar, Landsbókasafns Íslands
– Háskólabókasafns.
Nemandi við Háskólann á Akur-
eyri, sem fær fjarkennslu í hjúkrun-
arfræði þar sem hann býr í Reykja-
nesbæ, fékk að reyna þetta er
honum var vísað frá lestrarborði í
Þjóðarbókhlöðunni síðastliðið vor
þar sem það reyndist vera frátekið
fyrir nemanda við Háskóla Íslands.
Nemandinn, Guðbjörg Sigurðardótt-
ir, segist vera ósátt við þessa tak-
mörkun, háskólanemum sé þarna
mismunað. Hún viti ekki betur en að
Þjóðarbókhlaðan sé fyrir alla þjóð-
ina.
Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir
landsbókavörður segir að þessi regla
gildi aðeins á prófatíma þegar mikil
ásókn sé í lestraraðstöðu í húsinu.
Því miður sé aðeins aðstaða fyrir 600
manns í húsinu og því séu tíu há-
skólastúdentar um hvert sæti. Sig-
rún segir Þjóðarbókhlöðuna hafa
ákveðnum skyldum að gegna gagn-
vart HÍ þar sem skólinn greiði til
bókhlöðunnar, einn háskóla hér á
landi.
Hún segir það leitt ef nemendur
annarra háskóla hafi lent í vandræð-
um með að fá aðstöðu í Þjóðarbók-
hlöðunni. Vilji þeir fá aðstöðu, eink-
um á prófatíma, geti þeir leitað til sín
og reynt verði eftir megni að koma
til móts við þá.
Lestraraðstaða Þjóðarbókhlöðunnar
Nemendur HÍ hafa
forgang á prófatíma