Morgunblaðið - 17.01.2003, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kringlan 6 - Stóri Turn - 550 2000 www.sphverdbref.is
Besta ávöxtun skuldabréfasjóða 2002
Skuldabréfasjóður SPH Verðbréfa, skv. Lánstrausti hf.
13,2%
Í GÆR var undirritaður kaup-
samningur um kaup S-hópsins svo-
kallaða auk þýsks fjárfestingar-
banka á 45,8% hlut ríkisins í
Búnaðarbanka Íslands. Kaupverðið
er um 11,9 milljarðar króna en nú-
virt meðalgengi hlutabréfa í bank-
anum í viðskiptunum er 4,81.
Eftir viðskiptin er eignarhlutur
ríkisins í Búnaðarbankanum um
9%. Kaupendur eru Egla hf., Vá-
tryggingafélag Íslands hf., Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Eignar-
haldsfélagið Samvinnutryggingar.
Egla er hlutafélag í eigu þýska
bankans Hauck & Aufhäuser
Privatbankiers KGaA, Kers hf. og
VÍS.
Kaupsamningurinn, sem var
undirritaður í höfuðstöðvum Bún-
aðarbankans á fjórða tímanum eftir
hádegi í gær, er gerður á grund-
velli samkomulags aðila frá 15.
nóvember 2002.
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra og Geir H. Haarde
fjármálaráðherra undirrituðu
kaupsamninginn fyrir hönd ís-
lenska ríkisins.
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hafði umsjón með sölunni
af hálfu ríkisins. Aðalráðgjafi
nefndarinnar var enski bankinn
HSBC, sá hinn sami og var að-
alráðgjafi ríkisins við söluna á
45,8% hlut ríkisins í Landsbanka
Íslands hf. til Samsonar ehf., en
samningur þar um var undirritaður
á síðasta degi ársins 2002.
Aðalráðgjafi kaupenda var
franski bankinn Société Générale.
Óheimilt að selja
í 21 mánuð
Afhending og greiðsla hlutabréf-
anna verður tvískipt. Annars vegar
verða 27,48% hlutafjár afhent í
kjölfar undirritunar kaupsamnings-
ins og að fengnu samþykki Fjár-
málaeftirlitsins. Hins vegar verða
rúmlega 18,32% hlutabréfanna af-
hent eigi síðar en 20. desember
2003.
Kaupverð Búnaðarbankans er að
tveimur þriðju hlutum greitt í
Bandaríkjadölum og segir í sam-
eiginlegri fréttatilkynningu selj-
anda og kaupenda, að það verði
einkum nýtt til greiðslu erlendra
skulda ríkissjóðs.
Hlutabréf, sem nema þriðjungi
heildarhlutafjár í Búnaðarbankan-
um, eru bundin þeim kvöðum að
kaupendum er óheimilt að selja
þau í 21 mánuð frá undirritun
kaupsamningsins nema að fengnu
skriflegu samþykki seljanda. Sam-
kvæmt samningnum koma kaup-
endur fram sem einn hluthafi.
Hlutur þýska bankans
og Kers stærstur
Eignarhlutir samkvæmt samn-
ingnum skiptast milli kaupenda
með eftirfarandi hætti:
Egla hf. 71,2%,
Vátryggingafélag Íslands hf.
12,7%.
Samvinnulífeyrissjóðurinn 8,5%.
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar 7,6%.
Hlutur Eglu skiptist þannig að
Hauck & Aufhäuser Privatbankiers
KGaA á 35,6%, Ker á 35,2% og Vá-
tryggingafélag Íslands 0,4%.
Hlutur þýska bankans í Búnað-
arbankanum er því 16,3%, hlutur
Kers er 16,1%, samanlagður hlutur
VÍS er 6,0%, hlutur Samvinnulíf-
eryissjóðsins 3,9% og Eignarhalds-
félagsins Samvinnutrygginga 3,5%.
Þýski bankinn Hauck & Aufhäs-
er Privatbankiers KGaA er að 70%
í eigu einstaklinga og 30% í eigu
stofnfjárfesta. Hann var stofnaður
fyrir 206 árum og er meðal annars
með starfsemi í Sviss og Lúxem-
borg auk Þýskalands. Höfuðstöðv-
ar bankans eru í Frankfurt í
Þýskalandi. Bankinn sérhæfir sig í
sjóða- og eignastýringu fyrir stofn-
anir og einkaaðila, umsjón verð-
bréfa fyrir sjóði og fjármálastjórn
fyrirtækja og einstaklinga.
Fram kemur í tilkynningu vegna
kaupanna að í árslok 2001 hafi
Hauck & Aufhäser Privatbankiers
KGaA farið með stjórn eigna og
sjóða að andvirði 12 milljarða evra,
sem svarar til um þúsund milljarða
íslenskra króna. Brúttó heildar-
eignir í samstæðurreikningi bank-
ans námu 1.694 milljónum evra,
jafnvirði um 143 milljarða íslenskra
króna, og eigið fé nam 107 millj-
ónum evra, um 9 milljörðum ís-
lenskra króna. Til samanburðar má
geta þess að á sama tíma, þ.e. í
árslok 2001 voru heildareignir sam-
stæðu Búnaðarbankans um 200
milljarðar króna og eigið fé um 13
milljarðar. Samkvæmt tilkynning-
unni hefur þýski bankinn á síðustu
þremur árum skilað nærri 30%
arðsemi á eigið fé eftir skatta.
Mikil tíðindi að erlendur
banki taki þátt
Í fréttatilkynningu frá kaupend-
um á 45,8% hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum segir að það séu
mikil tíðindi að traustur, erlendur
banki taki þátt í að fjárfesta í ís-
lenskri fjármálastofnun. Búnaðar-
bankinn komi til með að njóta
þekkingar, reynslu og viðskipta-
sambanda þýska bankans í starf-
semi sinni. Enn mikilvægara sé að
með eignarhaldi þýska bankans í
Búnaðarbankanum skapist tengsl
sem íslensk fyrirtæki geti notfært
sér til að styrkja starfsemi sína og
sókn á erlendum mörkuðum. Þetta
sé afar mikilvægt þegar haft sé í
huga að möguleikar íslenskra fyr-
irtækja til að vaxa verulega og
dafna tengist fyrst og fremst al-
þjóðlegri starfsemi.
Ríkið selur 45,8% í
Búnaðarbankanum
Þýskur banki
kaupir 16,3% hlut
og félögin sem
standa að S-hópn-
um kaupa 29,5%.
Kaupverðið er
11,9 milljarðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gert grein fyrir sölu á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands. Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa og formælandi S-hópsins, og Peter Gatti,
framkvæmdastjóri þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA.
PETER Gatti, framkvæmdastjóri
og meðeigandi þýska fjárfesting-
arbankans Hauck & Aufhäuser
Privatbankiers KGaA, segir að
Búnaðarbankinn sé vænleg fjár-
festing. Þá telji hinn þýski banki
einnig að hann hafi hag af því að
miðla af sérþekkingu sinni. „Bún-
aðarbankanum svipar mjög til
okkar banka og við höfum góðan
skilning á því sem hann gerir,“
segir hann.
Gatti segir að bankinn hafi fjár-
fest í mörgum miðlungsstórum
einkafyrirtækjum og einnig náð
góðum árangri við samruna og yf-
irtökur á síðustu fjórum árum.
Bankinn hafi sjálfur mjög jákvæða
reynslu af samruna við Bankhaus
Aufhäuser í München, sem áður
var í eigu Bayerishe Landesbanke.
Starfsmenn Hauck & Aufhäuser
Privatbankiers eru um 450 að tölu.
Helstu viðskiptavinir bankans eru
tryggingafélög og lífeyrissjóðir.
Gatti segir að bankinn muni
halda eignarhlut sínum í Búnaðar-
bankanum í a.m.k. tvö ár, eins og
kveðið er á um í kaupsamningnum.
Að þeim tíma liðnum verði ávöxt-
unin metin og fjárfestingin endur-
skoðuð.
Peter Gatti
Fjárfestingin
endurskoðuð
eftir tvö ár
ÓLAFUR Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, sem hefur verið formælandi
S-hópsins, segist mjög ánægður með
að þeim áfanga sé náð að samningur
um kaup á 45,8% hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum hafi verið undirritað-
ur. Hann segir að kaupsamningurinn
sé í meginatriðum í samræmi við það
sem farið hafi verið af stað með þeg-
ar fyrst var rætt um kaupin.
„Nokkrir bankar sýndu því áhuga
að taka þátt í þessu með okkur,“ seg-
ir Ólafur. „Við völdum þýska bank-
ann úr þeim hópi, að undangenginni
skoðun, því við töldum hann heppi-
legastan fyrir Búnaðarbankann og
okkar starf.“ Ólafur segir að franski
bankinn Société Générale, sem var
aðalráðgjafi kaupendanna, verði það
áfram. Bankinn muni einnig koma að
fjármögnun kaupanna, að því marki
sem þörf verði á, en hann segist ekki
telja það aðalatriði.
Ólafur Ólafsson
Í samræmi
við það sem
lagt var af
stað með
SÓLON Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbanka Íslands, segir að
stjórnendum bankans lítist mjög vel á
söluna á hlut ríkisins í bankanum.
Hann segist vona að það sama muni
og eiga við um starfsmenn bankans.
Þá sé ánægjulegt að þessu ferli sé
lokið og hægt verði að takast á við
önnur verkefni, bankanum til fram-
dráttar.
„Það er sérstaklega áhugavert að
fá þýska bankann inn,“ segir Sólon.
„Athugað verður hvar hægt er að
vinna með honum og vonandi verður
líka hægt að læra af honum.“
Sólon segist gera ráð fyrir að við-
skiptavinir Búnaðarbankans muni
njóta vaxtar bankans og þess að hann
muni verða enn hagkvæmari en nú er.
Sólon Sigurðsson
Áhugavert
að fá þýska
bankann inn
„ÞETTA er stór stund því þetta er
búið að taka mikinn tíma og orku,“
segir Valgerður Sverrisdóttir um
söluna á 45,8% hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum. „Samningurinn er
góður því verðið er gott, auk þess
sem það er áhugavert að fá erlend-
an banka inn í kaupin. Að því hef-
ur ríkisstjórnin stefnt allt frá
árinu 1995. Vel hefur því tekist til
í þessum viðskiptum.“
Hún segir að samningurinn sé í
takt við tímann. Sá tími sé liðinn
að það sé skortur á fjármagni til
útlána. Við slíkar aðstæður hafi
kannski þurft pólitískt vald til að
hafa stjórn á þeim málum. Þá falli
það mjög vel að stefnu ríkisstjórn-
arinnar að vera ekki í atvinnu-
rekstri þar sem einkaaðilar geti
spjarað sig jafn vel ríkið.
Valgerður segir að ekki sé hægt
að útiloka að framundan séu sam-
einingar á fjármálamarkaði. Mögu-
leikarnir í þeim efnum séu hins
vegar ekki miklir. Einhver þróun
muni þó væntanlega eiga sér stað.
„Ég sé ekki að það muni verða
stórar sameiningar á fjármála-
markaði, enda held ég að það væri
ekki æskilegt fyrir neytendur.“
Hún segir að það geti ekki ann-
að en verið neytendum í hag að fá
erlendan banka til landsins. Það
auki samkeppnina sem talað hafi
verið um að hafi vantað.
Í samningnum um sölu ríkisins á
45,8% hlut í Landsbankanum, sem
undirritaður var á gamlársdag á
síðasta ári, er ákvæði þar sem
Samson ehf. áskilur sér rétt til að
endurskoða samninginn ef S-hóp-
urinn, eða annar aðili í hans stað,
nær hagstæðari greiðslukjörum
um kaup á hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum.
Valgerður segir að samningarnir
tveir um söluna á hlut ríkisins í
Búnaðarbankanum, annars vegar,
og á hlut ríkisins í Landsbank-
anum, hins vegar, séu mjög áþekk-
ir. Ekkert tilefni sé því til að end-
urskoða samninginn um söluna á
Landsbankanum.
Valgerður
Sverrisdóttir
Samningur-
inn er
í takt við
tímann