Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 13
Nú er tækifærið!
Brandt - Blomberg
Seljum nokkra ofna, helluborð, viftur, háfa og uppþvottavélar úr
útstillingareldhúsum með verulegum afslætti, því nýja Brandt-Blomberg
línan er komin, glæsilegri en nokkru sinni fyrr!
Opið laugardag frá kl. 10 - 14
FBA Holding hefur selt allt hlutafé
sitt í Íslandsbanka, 12,5%, og er sal-
an gerð samkvæmt samningi milli
Íslandsbanka og FBA Holding og
fleiri aðila sem gerður var í ágúst í
fyrra. FBA Holding er dótturfélag
Orca og helstu hluthafar Orca eru
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri
Baugs og Þorsteinn Már Baldvins-
son forstjóri Samherja.
Íslandsbanki hefur um leið keypt
eigin hlutabréf og á nú 17,1% eigin
bréfa, en átti áður 7,6%. Kaup Ís-
landsbanka fóru fram á genginu
5,175 og var markaðsverðið 4,9 millj-
arðar króna. Að auki hefur Íslands-
banki keypt 0,8% af eigin hlutafé
framvirkt.
Mestu viðskipti frá upphafi
Fyrrgreind viðskipti áttu sér stað
í fyrradag og samkvæmt Morgun-
punktum Kaupþings hafa aldrei áður
verið jafn mikil viðskipti með hluta-
bréf í Kauphöll Íslands, en alls námu
viðskiptin 9,6 milljörðum króna.
Næstmest voru viðskiptin hinn 29.
desember árið 2000, 8,0 milljarðar
króna og í þriðja sæti er 6. septem-
ber í fyrra, en þá námu viðskiptin 7,4
milljörðum króna.
Átta af tíu stærstu viðskiptadög-
um frá upphafi voru í fyrra og met-
velta var með hlutabréf það ár, eða
321 milljarður króna.
Mikil viðskipti með
Íslandsbanka
FBA Holding
ekki lengur
hluthafi
lokið uppeldi fjögurra barna sinna.
Það yngsta var komið í nám í Há-
skóla Íslands þegar Jórunn byrjaði
að starfa hálfan daginn hjá kaup-
manni sem rak sex verslanir í borg-
inni. Smám saman fækkaði hann
verslunum, allt þar til verslun hans
við Grundarstíg var ein eftir og
starfaði Jórunn þar. Eftir lát eig-
andans keypti Jórunn þá verslun af
erfingjunum árið 1974, ásamt einni
dóttur sinni. Eftir að dóttirin flutti
út á land, rak Jórunn verslunina ein
í nokkur ár en seldi hana að lokum
að áeggjan fjölskyldunnar – sem
Jórunn segir hafa tjáð sér að hún
SVAVA Johansen, eigandi NTC-
verslanakeðjunnar, hlaut í gær við-
urkenningu Félags kvenna í at-
vinnurekstri, FKA. Jórunn Brynj-
ólfsdóttir verslunareigandi hlaut
þakkarviðurkenningu félagsins og
Helga Ingimundardóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðaþjónustu Suð-
urnesja, hvatningarviðurkenningu
FKA.
Svava hóf verslunarrekstur árið
1981, ásamt Ásgeiri Bolla Krist-
inssyni. Svava var þá sautján ára og
ennþá nemandi í Verslunarskóla Ís-
lands. Verslunin var á Laugavegi
51 og auk Svövu og Ásgeirs Bolla
voru þar tveir aðrir starfsmenn.
Árið 1984 var verslunin stækkuð og
þremur árum seinna var Verslunin
17 einnig opnuð í Kringlunni. Það
sama ár hleypti Svava versluninni
Smash í Kringlunni af stokkunum.
Sautján verslunarhús var síðan
opnaðvið Laugaveginn 1991 og ári
síðar Sautján skór (nú GS-skór) í
Kringlunni. Á árunum 1996 til 2000
bættust við Deres og Morgan í
Kringlunni, Eva/Gallerí bættist við
verslanir Svövu og Ásgeirs Bolla,
InWear var opnuð í Kringlunni og
Outlet 10 í Faxafeni. Auk versl-
ananna er starfrækt saumastofa og
NTC-heildsala með fatnað og skó.
Enn í verslunarrekstri 92 ára gömul
Jórunn Brynjólfsdóttir hóf fyrst
störf við verslun þegar hún hafði
væri orðin alveg nógu gömul til
þess að setjast í helgan stein og
eiga náðuga daga.
Áttatíu og tveggja ára hóf hún
rekstur á Verslun Jórunnar Brynj-
ólfsdóttur þar sem hún leggur
áherslu á að bjóða upp á gæðavöru í
sængurfatnaði og borðdúkum.
Ferðaþjónusta á Suðurnesjum
Helga Ingimundardóttir hóf störf
við ferðaþjónustu fyrir alvöru árið
1992 þegar hún tók að sér móttöku
erlendra ferðamanna í flugstöðinni
á Keflavíkurflugvelli fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn. Fram til árs-
ins 1997 starfaði Helga við móttöku
erlendra gesta og sem leið-
sögumaður fyrir Sérleyfisbifreiðar
Keflavíkur sem voru með sérstakar
kynnisferðir um Suðurnesin, auk
þess að starfa á ferðaskrifstofu
Varnarliðsins. Árið 1997 var Helga
ráðin í starf forstöðukonu Fræða-
setursins í Sandgerði og gegndi
hún því starfi í tvö og hálft ár, eða
þar til hún fór í samstarf með Bláa
lóninu um hvalaskoðunarferðir á
Suðurnesjum. Fljótlega fór Bláa
lónið út úr þeirri útgerð, en Helga
hélt henni áfram í samstarfi við
bátseiganda.
Þrjár athafnakonur fá viður-
kenningu FKA fyrir störf sín
Morgunblaðið/Júlíus
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, afhenti viðurkenningar FKA. Auk hennar eru á myndinni Jórunn Brynj-
ólfsdóttir verslunareigandi, Elín Hirst fréttastjóri sem stjórnaði athöfninni, Svava Johansen verslunareigandi,
Helga Ingimundardóttir, Ferðaþjónustu Suðurnesja, og Dagný Halldórsdóttir, formaður FKA.
ÁRLEGUR fundur sjávarútvegs-
ráðherra Íslands og Færeyja var
haldinn í Reykjavík fyrir skömmu.
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, fór fyrir íslensku sendi-
nefndinni en Jørgen Niclasen, lands-
stjórnarmaður, fór fyrir þeirri
færeysku. Á fundinum var farið yfir
veiðar Færeyinga í íslenskri lögsögu
á síðasta ári, og veiðar Íslendinga í
færeyskri lögsögu á sama tíma.
Ræddar voru botnfiskveiðiheimildir
Færeyinga í íslenskri lögsögu og
ákveðið að færeyskum skipum verði
heimilt að veiða samtals 5.600 tonn
árið 2003 innan íslensku lögsögunn-
ar, þar af 1.200 tonn af þorski og 80
tonn af lúðu, sem er sama magn og
þeim var heimilt að veiða á síðasta
ári. Rætt var um veiðar á uppsjáv-
artegundum og ákveðið að halda
veiðiheimildum í þeim óbreyttum.
Innan færeysku lögsögunnar er Ís-
lendingum því heimilt að veiða 2.000
tonn af annarri síld en þeirri norsk-
íslensku og 1.300 tonn af makríl.
Heimildir færeyskra skipa til loðnu-
veiða á vertíð 2003/2004 verða áfram
30.000 tonn, enda breytist forsendur
ekki í verulegum atriðum, auk 10.000
tonn af þeim heimildum sem Fær-
eyjar fá af veiðiheimildum Græn-
lands. Þá verða gagnkvæmar heim-
ildir til kolmunnaveiða og síldaveiða
úr norsk-íslenska síldarstofninum
inna lögsagna landanna óbreyttar á
árinu 2003. Einnig var samið um
gagnkvæmar heimildir til veiða á
túnfiski innan lögsagna landanna.
Eins og greint hefur verið frá hef-
ur Jørgen Niclasen sagt af sér emb-
ætti sjávarútvegsráðherra, eftir að
lögð var fram vantrauststillaga á
hann í færeyska Lögþinginu.
Afsögn Niclasen er talin geta haft
áhrif á viðræður Færeyinga við
Norðmenn um veiðiheimildir, sem
fram áttu að fara í þessari viku, enda
óljóst hver leiða muni viðræðurnar.
Nýr sjávarútvegsráðherra hefur
ekki verið skipaður og engin nöfn
verið nefnd í því sambandi.
Samið um óbreyttar
veiðiheimildir STJÓRN Sparisjóðs Reykjavíkur ognágrennis hefur sent frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu:
„Vegna fréttar í Morgunblaðinu 15.
janúar 2003 um að endurskoðunar-
fyrirtækið Deloitte & Touche hafi að
beiðni Búnaðarbankans metið virði
Frjálsa fjárfestingarbankans hf. og
komist að þeirri niðurstöðu, að verð-
mæti bankans sé verulega lægra en
SPRON greiddi fyrir hann á liðnu ári,
svo og viðtals í sama blaði við Pétur
Blöndal alþingismann, vill stjórn
sparisjóðsins taka eftirfarandi fram:
1. Liðið ár er eina árið sem Frjálsi
fjárfestingarbankinn hefur verið rek-
inn í því formi sem hann var í, þegar
sparisjóðurinn keypti hann. Áætlað
er að hagnaður bankans á árinu verði
um 485 millj.kr. Kaupverðið var 3.844
millj.kr. Fjárflæði til eigenda er um
12,6%, sem er mjög nálægt þeirri
ávöxtunarkröfu, sem Deloitte &
Touche telur viðunandi, sem er
13,32% samkvæmt því, sem kemur
fram í Morgunblaðinu.
2. Áætlað er skv. yfirliti í Viðskipta-
blaðinu 15. janúar 2003, að hagnaður
Búnaðarbankans á liðnu ári hafi verið
2.269 millj.kr. Markaðsverðmæti
bankans var um áramótin um 24,9
milljarðar kr. Hagnaður Búnaðar-
bankans er því mjög langt frá þeirri
ávöxtunarkröfu, sem Deloitte &
Touche telur eðlilega, eða 9,1%.
3. Skv. frétt Morgunblaðsins segir í
greinargerð Deloitte & Touche, að sé
miðað við samanburð á kennitölum
komi fram verðbil frá 2,2–4,8 millj-
arðar kr. eftir því hvaða aðferð er not-
uð. Sýnir þetta hversu örugg þessi
samanburðarvísindi eru. Hins vegar
má benda á, að sé t.d. miðað við svo-
nefnt virðishagnaðarhlutfall, þ.e.
þann tíma sem það tekur að endur-
greiða kaupverð með hagnaði, var
hlutfallið á Frjálsa fjárfestingarbank-
anum 8,8 m.v. 30. september 2002,
þegar kaupin voru gerð, en þá var
virðishagnaðarhlutfall Búnaðarbank-
ans 9,6. Kaupendur Búnaðarbankans
eru því lengur að fá kaupverðið end-
urgreitt en eigandi Frjálsa fjárfest-
ingarbankans. Hafi Frjálsi fjárfest-
ingarbankinn verið keyptur á
yfirverði á það miklu frekar við um
söluna á Búnaðarbankanum, en tæp-
lega hefur það verið tilgangur stjórn-
enda Búnaðarbankans að draga það
fram.
4. Í viðtalinu segir Pétur Blöndal að
SPRON hafi tapað um 1 milljarði kr.
á þessum viðskiptum. Samkvæmt
framangreindu stenst þetta ekki. Af-
koma liðins árs er í samræmi við
væntingar og rennir það stoðum und-
ir það, að kaupverðið hafi verið eðli-
legt.
5. Stjórn sparisjóðsins stóð að
kaupum á Frjálsa fjárfestingarbank-
anum vegna þess, að hún taldi þau
vera hagstæð fyrir sparisjóðinn.
Stjórnin gerði sér grein fyrir því, að
sparisjóðsstjóri væri í þeirri við-
kvæmu stöðu, að vera jafnframt for-
maður stjórnar Kaupþings og var
þess gætt við meðferð málsins. Fjár-
málaeftirlitið fékk kaupsamninginn
til skoðunar og hefur veitt samþykki
sitt fyrir honum. Stofnfjáreigendum
verður að sjálfsögðu gerð frekari
grein fyrir þessu máli á aðalfundi
sparisjóðsins, sem haldinn verður í
marsmánuði.
Reykjavík, 15. janúar 2003
Stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis.“
Yfirlýsing frá stjórn SPRON