Morgunblaðið - 17.01.2003, Side 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 15
Léttu þér lífið
– með gómsætum léttum ostum
Útsala
50-70%
afsláttur
Opnunartími
miðvikudag kl. 14-18 • fimmtudag kl. 14-18 og 20-22
föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14
Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi • sími 577 4949
Næs
NORÐMENN geta ekki vænst
neins stuðnings frá Svíum í þeim
viðræðum, sem nú standa yfir milli
EFTA-ríkjanna og Evrópusam-
bandsins, ESB, vegna stækkunar
sambandsins. Þeir munu því ekki
styðja kröfur Norðmanna um minni
fjárframlög en ESB gerir kröfu til.
Kemur þetta fram í svari Görans
Perssons, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, við þeirri málaleitan Kjell
Magne Bondeviks, forsætisráð-
herra Noregs, að Svíar hjálpi til við
að fá fjárkröfuna lækkaða en ESB
krefst þess, að Norðmenn greiði
um 40 milljarða ísl. kr. árlega fyrir
áframhaldandi aðgang að markaði
ESB eftir stækkunina. Var skýrt
frá þessu í norska blaðinu Aften-
posten.
Persson segir í bréfinu til Bonde-
viks, að það sé undarlegt, að rík-
asta þjóð í Evrópu skuli ekki vilja
greiða jafnmikið fyrir markaðsað-
ganginn og Svíar, Danir og Finnar,
sem hafi þó ekki af sömu sjóðum að
ausa og Norðmenn.
Viðræður um endurnýjun samn-
ingsins um Evrópska efnahags-
svæðið, EES, standa nú yfir og
ESB krefst þess, að framlög
EFTA-ríkjanna verði stórhækkuð
og verði í líkingu við það, sem að-
ildarríki sambandsins greiða. Norð-
menn telja það hins vegar fjarri
lagi þar sem þeir eru ekki aðilar að
ESB. Miklir hagsmunir eru aftur á
móti í húfi þar sem er tollfrjáls að-
gangur þeirra að innra markaði
ESB.
Svíar styðja
ekki Norðmenn
Segja ríkustu þjóð í Evrópu geta
greitt meira fyrir EES
ÞÓTT klofningur hafi komið upp milli tveggja
stærstu flokkanna í færeysku landstjórninni, er
Þjóðveldisflokkurinn ákvað á þriðjudag að stuðla
að því að Jörgen Niclasen úr Fólkaflokknum
neyddist til að segja af sér sem sjávarútvegsráð-
herra, er nú ekki útlit fyrir að upp úr stjórnarsam-
starfinu slitni.
Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, hafði í
Lögþinginu reynt fram á síðustu stundu að afstýra
því að Niclasen segði af sér. Fyrir umræðuna í
Lögþinginu á þriðjudag hótaði hann Þjóðveldis-
flokknum hörðu ef hann styddi vantrauststillögu
stjórnarandstöðunnar á flokksbróður sinn Nicla-
sen og gaf þá í skyn að landstjórnin yrði að öðrum
kosti leyst upp. Kallsberg tók ekki eins djúpt í ár-
inni í viðtölum um málið í færeyskum fjölmiðlum í
gær og fyrradag.
„Við í Fólkaflokknum hörmum mjög þá stöðu
sem komin er upp. Við höfum ekki sagt stjórn-
arsamstarfinu upp, en nú hefur Þjóðveldisflokk-
urinn átt þátt í því að Jörgen Niclasen er ekki
lengur ráðherra og það rýrir traust á stjórnar-
heimilinu,“ hefur færeyska blaðið Sosialurin eftir
Kallsberg á miðvikudag.
Borin var upp vantrauststillaga á Jörgen Nicla-
sen í Lögþinginu á þriðjudag eftir að hann hafði
neitað að verða við kröfum um að hann segði af
sér. Niclasen hafði verið sakaður um að brjóta lög
í sambandi við skuldbreytingu hjá útgerðum
þriggja rækjutogara og lögfræðinganefnd, sem
Lögþingið skipaði til að fara ofan í málið, komst að
þeirri niðurstöðu, að hann hefði ekki farið eftir
settum reglum. Eftir að þessi niðurstaða lá fyrir
valdi Kallsberg lögmaður að láta nægja að ávíta
Niclasen, en vildi ekki að hann segði af sér. Þá
ákvað stjórnarandstaðan – jafnaðarmenn og sam-
bandsmenn – að bera upp vantrauststillögu á ráð-
herrann. Eftir að ljóst varð að þingmenn Þjóðveld-
isflokksins myndu styðja tillöguna átti Niclasen
ekki annars úrkosta en segja af sér embætti.
Þetta er í annað sinn það sem af er kjörtíma-
bilinu að alvarlegur brestur kemur í samstarf
stóru stjórnarflokkanna, Fólkaflokksins og Þjóð-
veldisflokksins. Auk þeirra eiga smáflokkarnir
Sjálfstjórnarflokkurinn og Miðflokkurinn aðild að
landstjórninni. Strax eftir að gengið hafði verið frá
myndun landstjórnarinnar í apríl í fyrra lýsti Tór-
björn Jacobsen, umdeildur stjórnmálamaður úr
röðum Þjóðveldisflokksins, því yfir að Anfinn
Kallsberg og Jörgen Niclasen ættu of flekkaða
fortíð til þess að verðskulda að halda um stjórn-
artaumana í Færeyjum. Þá hótaði lögmaðurinn að
segja stjórnarsamstarfinu upp, drægi Jacobsen
orð sín ekki til baka. Jacobsen gerði það á síðustu
stundu. Eftir hina þvinguðu afsögn Niclasens hafa
samskiptin milli flokkanna tveggja versnað enn,
og efasemdir eru uppi um að samstarfið haldi
miklu lengur.
Stjórnarslit ekki lengur tal-
in yfirvofandi í Færeyjum
Jörgen Niclasen sagði af sér á þriðjudag.
Þórshöfn. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Þorkell
LÖGREGLA í Bandaríkjunum
handtók í fyrrakvöld prófessor
við Tækniháskólann í Texas og
hefur hann verið sakaður um að
gefa alríkislögreglunni (FBI)
rangar upplýsingar um sýni er
höfðu að geyma svartadauða-
bakteríur. Mikill ótti hafði gripið
um sig fyrr um daginn þegar
fréttir bárust af því að sýnunum
hefði hugsanlega verið stolið.
Sýnin voru geymd í húsa-
kynnum læknadeildar Tæknihá-
skólans í Texas. Var óttast að
hryðjuverkamenn hefðu rænt
þeim og hófst því umfangsmikil
rannsókn á málinu. Í ljós kom
hins vegar að sýnin voru ekki
týnd eftir allt saman, heldur
hafði maðurinn sem tilkynnti
hvarf þeirra, Thomas C. Butler,
sjálfur eytt þeim.
Sögðu yfirvöld að Butler, sem
er yfirmaður smitsjúkdóma-
deildar læknaskólans, hefði ver-
ið fullljóst að sýnunum hafði
ekki verið stolið. Hann hefði því
verið handtekinn fyrir falskan
vitnisburð og var meiningin að
hann kæmi fyrir dómara í gær.
Eyddi
sjálfur
sýnunum
Lubbock í Texas. AP.
ATVINNA
mbl.is
DILBERT
mbl.is