Morgunblaðið - 17.01.2003, Page 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 19
TILBOÐ
Á SJÁLFSRÆKTARBÓKUM
Gerðu það bara Lögmál andans Fyrirgefningin Hjálpaðu
sjálfum þér
RÉTT MATREIÐSLA
FYRIR ÞINN BLÓÐFLOKK
Jafnvægi í gegnum
orkustöðvarnar
Handbók fyrir konur á öll-
um aldri sem fjallar um
ýmsar aðferðir og leiðir til
að öðlast ánægjulegra og
innihaldsríkara líf.
Höf.: Guðrún
G. Bergmann.
Tilboð:
kr. 1.590.
Fullt verð kr.
1.990.
Þú getur öðlast dýpri
merkingu, tilgang og
tengingu við sköpunar-
verkið með því að taka
eitt skref; opna þessa bók
sem þú munt lesa aftur
og aftur.
Höf.: Dan Millman.
Tilboð:
kr. 1.590.
Fullt verð:
kr. 1.990.
Nútíma læknavísindi hafa
gert sér grein fyrir því að
fyrirgefningin getur haft
áhrif á heilsu og andlega
líðan fólks og er því
heimsins fremsti heilari.
Höf.: Gerald Jampolsky
MD.
Tilboð:
kr. 1590.-
Fullt verð:
kr. 1990.-
Besta sjálfshjálparbók
allra tíma sem hefur verið
í stöðugri sölu í mörg ár.
Ráðin í henni eru samt
jafnfersk og þau hefðu
verið skrifuð í gær.
Höf.: Louise L. Hay.
Tilboð:
kr. 1.990.
Fullt verð:
kr. 2.490.
EINSTAKT TILBOÐ!
Blóðflokkamataræðið hefur löngu
sannað sig sem frábær leið til að bæta
heilsuna, ná kjörþyngd á heilbrigðan
máta og hámarka lífsgæðin.
Matreiðslubókin býr yfir öllum þeim
uppl. sem fylgja blóðflokkalíferninu,
auk fjölbreyttra uppskrifta og fæðu-
lista fyrir alla blóðflokka.
Höf.: Peter D’Adamo N.D.
Tilboð: kr. 1.990.
Fullt verð: kr. 3.490.
Mál og menning: Laugavegi, Síðumúla 11, Hlemmi, Mjódd
og Hamraborg.
Penninn-Eymundsson: Reykjavík - Kringlunni,
Austurstræti, Smáralind, Hafnarfirði, Akureyri.
Betra líf: Kringlunni.
Upplýsingar um sjálfsræktarnámskeið á:
www.blodflokkar.is og www.hellnar.is
Með því að velja sjálfsaga, þrautseigju og þolin-
mæði fram yfir skammtíma glaum og gleði hafa
andlegir meistarar í aldanna rás náð að uppskera
innri ró og sæluástand án þess að þurfa ytra áreiti
til að öðlast það.
Höf. Guðjón Bergmann.
Tilboð: kr. 1.100.
Verð áður: kr. 1.390.
TVÆR aukasýningar verða á
Keflavíkurrevíunni sem Leik-
félag Keflavíkur sýndi fram til
jóla við góða aðsókn. Sýning-
arnar verða í kvöld og á sunnu-
dagskvöld,klukkan 20.
Revían er eftir Ómar Jó-
hannsson og heitir „Í bænum
okkar er best að vera“. Hún
fjallar á gamansaman hátt um
mannlífið í Reykjanesbæ.
Um 2000 manns hafa séð
þessa sýningu, að því er fram
kemur á heimasíðu Leikfélags
Keflavíkur, en þeir sem hafa
ekki séð hana fá þetta síðasta
tækifæri til þess að sjá sýn-
inguna.
2.000 hafa
séð bæjar-
revíuna
Keflavík
HÚSANES ehf. hefur hafið
framkvæmdir við byggingu fjög-
urra fyrstu íbúðanna af átján
sem fyrirtækið byggir fyrir
Fasteignir Reykjanesbæjar ehf.
á þessu ári. Fyrstu skóflustung-
una tók Ragnar Jónasson, faðir
framkvæmdastjórans.
Fasteignir Reykjanesbæjar
eru einkahlutafélag í eigu
Reykjanesbæjar sem stofnað
var til þess að hafa eignarhald
og annast rekstur á félagslegu
íbúðarhúsnæði bæjarins. Félag-
ið bauð út byggingu átján nýrra
félagslegra íbúða og samið var
við Hússanes ehf. um að annast
verkið fyrir um 170 milljónir.
Halldór Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Húsaness, segir
að fjórar íbúðanna séu í húsi
sem byggt verður við Þórustíg 6
í Njarðvík og hófust fram-
kvæmdir við þær í gær. Á næst-
unni hefst síðan bygging
tveggja húsa við Framnesveg í
Keflavík en í þeim verða 14
íbúðir. Halldór segir að fyrir-
tækið muni skila íbúðunum
fullfrágengnum í október.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Viðar Már Aðalsteinsson, Reykjanesbæ, Halldór Ragnarsson og Ellert
Eiríksson, formaður Fasteigna Reykjanesbæjar ehf., fylgjast grannt
með Ragnari Jónassyni þegar hann tekur fyrstu skóflustunguna.
Hefja byggingu átján
félagslegra íbúða
Njarðvík
HÚSNÆÐI gömlu loðnubræðslunnar í miðbæ Reykja-
nesbæjar iðar brátt af lífi á nýjan leik. Þar er verið að
setja upp hjólabrettaaðstöðu og mótorsmiðju auk þess
sem gestir geta fræðst um víkingaskipið Íslending sem
þar er geymt.
Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanes-
bæjar (MÍT) hefur fengið til bráðabirgða afnot af hús-
næði loðnuverksmiðju Fiskiðjunnar sem staðið hefur
ónotað um tíma. Húsin eru á mörkum Njarðvíkur og
Keflavíkur, skammt frá Hafnargötu 88 þar sem komið
verður upp margháttaðri félagsaðstöðu fyrir börn og
ungt fólk.
Víkingaskipið Íslendingur er geymt í aðalsal hússins
og þar vinnur Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri þess
og skipasmiður, að viðhaldi skipsins. Hann er að skrapa
af því málninguna og olíubera timbrið að nýju. Að sögn
Stefáns Bjarkasonar, framkvæmdastjóra MÍT, hefur
verið ákveðið að bjóða fólki að skoða skipið og fræðast
um leið um sögu þess og þátt víkingaskipanna í landa-
fundunum hjá Gunnari Marel. Þessi fræðslustarfsemi
verður hafin fljótlega, að sögn Stefáns.
Hjólabretti og vélar
Verið er að koma upp hjólabrettaaðstöðu hinum meg-
in í húsinu. Stefán segir að erfitt sé að leika sér á hjóla-
brettum og línuskautum úti yfir veturinn og einnig þeg-
ar rigni á
sumrin. Ef þessi
tilraun takist vel
geti áhugamenn
um þessar
íþróttir stundað
þær allt árið.
Loks hefur verið ákveðið að koma upp vísi að mót-
orsmiðju í öðrum enda hússins. Kristján Jónsson, Stjáni
meik, hefur verið ráðinn til að annast þá starfsemi og
hafa jafnframt eftirlit með hjólabrettapöllunum. Hann
tekur með sér vélar og dót sem hann er nú með í Rock-
ville.
Stefán segir að ætlunin sé að hann fái til liðs við sig
unglinga sem hafa áhuga á þessu sviði. Einnig geti
krakkar fengið aðstoð við að gera sjálf við biluð reið-
hjól og mótorhjól.
Þá mun Kristján aðstoða við að innrétta aðstöðu fyrir
tómstundastarf unglinga í félags- og menningar-
miðstöðinni í Hafnargötu 88 en sú vinna hefst á næstu
vikum. Segir Stefán að hugmyndin með starfsemi í
Fiskiðjuhúsunum sé að virkja ungmenni sem að jafnaði
taki ekki þátt í hefðbundinni starfsemi félagsmiðstöðva.
Líf og fjör er að færast á ný í gömlu loðnubræðsluna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gunnar Marel Eggertsson skrapar gamla málningu.
Unglingar og
Íslendingur í
eina sæng
Reykjanesbær
„ÉG verð hér til að fræða fólk
um Íslending og hinn mikla
þátt víkingaskipanna í landa-
fundunum,“ segir Gunnar Mar-
el Eggertsson, skipstjóri Ís-
lendings. Hann er að dytta að
skipinu í húsnæði gömlu Fisk-
iðjunnar.
Gunnar Marel segir að hver
sem er geti komið til að skoða
skipið og fræðast um sögu þess.
Hann hefur fengið tæki til að
sýna myndband um ferð hans í
fótspor Leifs heppna árið 2000
og annað fræðsluefni og segist
síðan geta miðlað af þeim fróð-
leik sem hann hafi aflað sér í
tengslum við byggingu skipsins
og ferðina vestur um haf.
Víkingaskipstjórinn segir að
Íslendingur sé í góðu standi.
Komið sé að viðhaldi. Búið sé að
bera svo oft á skrokkinn að
málningin sé farin að flagna.
Hann er því að skrapa máln-
inguna af til að geta borið fern-
isolíu á timbrið á nýjan leik.
Fyrirhugað er að Íslending-
ur verði sjósettur í lok apríl eða
í maí og verði í sumar í Kefla-
víkurhöfn. Jafnframt er unnið
að undirbúningi þess að koma
upp varanlegri sýningarað-
stöðu fyrir skipið í Njarðvík.
Skipið er í
góðu standi