Morgunblaðið - 17.01.2003, Síða 20
LANDIÐ
20 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
utan af trefjunum, þá koma út
hreinar trefjar sem henta beint
inn í spuna hjá spunaverksmiðjum
úti í heimi,“ segir Þórður.
Erlendis sé feygingin nátt-
úruleg, hörinn sé látinn liggja úti á
akrinum og veður og vindar látnir
sjá um feygingarferlið. Sú aðferð
gefi misjöfn gæði. Á Íslandi verði
jarðhiti notaður til verksins og að
auki séu engin vandamál með frá-
rennsli. Úrgangur frá framleiðsl-
unni sé lífrænn og fari mikið
þynntur beint út í sjó.
„Hér getum við stýrt öllum
þessum þáttum nákvæmlega eins
og kaupandinn vill, bæði varðandi
hreinleika og lit. Það er t.d. mikil
eftirspurn eftir smjörlit sem fæst
einmitt við vatnsfeygingu. Til að
VINNSLA á 550 tonnum af hör,
sem ræktaður var í sumar á Suð-
ur- og Vesturlandi, hefst bráðlega
í feygingarstöð í nágrenni Þorláks-
hafnar og verður framleiðslan síð-
an seld til Evrópu. Línræktunin er
tilraunaverkefni en ræktunin þótti
takast með ágætum í sumar.
Stefnt er að því að fjórfalda upp-
skeruna á þessu ári. Ef allt gengur
að óskum gætu um 20–30 manns
haft atvinnu við að vinna úr hrá-
efninu auk bændanna.
Línræktunin er þróunarverkefni
sem hófst fyrir fjórum árum. Þórð-
ur Hilmarsson, starfandi fram-
kvæmdastjóri Feyginar ehf., sem
var stofnað um tilraunir með lín-
rækt og vinnslu hörs hér á landi,
segir að aðstæður til svokallaðrar
vatnsfeygingar séu mjög góðar á
Íslandi.
„Málið snýst um að rækta hör
og verka hann með heitu og köldu
vatni þannig að stöngulhýðið rotni
ná þeim lit erlendis þarf að bleikja
hörinn sem er bæði mengandi og
kostnaðarsamt,“ segir Þórður.
Íslenskur hör í
hæsta gæðaflokki
Mikil eftirspurn sé eftir há-
gæðalíni í heiminum, sem helgist
af því að svo lítill hluti uppsker-
unnar erlendis nái í þann flokk.
„Við teljum að með vatnsfeyging-
unni nái svo til öll okkar fram-
leiðsla í hæsta gæðaflokk.“
Bráðlega er gert ráð fyrir að
vatnsfeyging hefjist í feygingar-
stöð sem reist verður í nágrenni
við Þorlákshöfn á næstunni. Þrír
til fjórir muni hafa atvinnu af því í
vetur að feygja þau 550 tonn sem
ræktuð voru hér í sumar. Að lok-
inni verkun verði framleiðslan
send út til Evrópu. Framhald lín-
ræktunar og framleiðslu hér á
landi verði síðan metið af viðtökum
kaupenda.
Tíu bændur, sjö undir Eyjafjöll-
um og þrír á Vesturlandi, ræktuðu
lín í sumar. Þórður segir að að-
stæður til línræktunar virðist góð-
ar hér á landi. „Það tókst með
miklum ágætum að rækta þennan
hör núna í sumar. Við ræktuðum á
um 90 hekturum og náðum upp-
skeru af 75 hekturum. Það má
segja að allur sá hör sem náðist
upp sé mjög góður.“
Stefnt er að því að fjórfalda
uppskeruna í ár. Í sumar verður
ræktað á um 400 hekturum sem
vonast er til að gefi 2–3.000 tonn.
Þórður segir að vel megi gera ráð
fyrir því að fleiri bændur hefji
kornrækt í framtíðinni, gefi verk-
efnið góða raun. Línrækt henti t.d.
mjög vel á móti kornrækt.
Hyggjast fjórfalda lín-
uppskeru næsta sumar
Telja mikla möguleika
til línræktar á Íslandi
www.nowfoods.com
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
41
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opið: Mán. - föst. 9-18,
Laugardaga í des. 10-16
• Sturtuklefar
• Sturtuhorn
• Baðkarshlífar
Baðkarshlíf, h140 L85 cm.
5mm öryggisgl., hvítt/króm
Verð frá kr. 14.900,-
Þrískipt baðkarshlíf,
h140 L125 cm.
5 mm öryggisgl., hvítt
Verð kr. 16.900,-
Baðkarshlíf milli veggja,
h140 L160-200 cm.
4 mm öryggisgl., hvítt
Verð frá kr. 26.850,-
Sturtuklefar, rúnnaðir
með eða án nudds. 80-90 cm.
4mm öryggisgl., hvítt/króm
Verð frá kr. 65.750,-
Sturtuhorn, 80-90 cm.
4-6mm öryggisgl., hvítt/króm
Verð frá kr. 19.750,-
Rúnnað sturtuhorn, 80-90 cm.
4-6mm öryggisgl., hvítt/króm
Verð frá kr. 35.800,-
Sturtuklefi, frístandandi
eða í horn, 70-90 cm.
4mm öryggisgl., hvítt
Verð frá kr. 48.950,-
Við látum verðið tala!
•Rýmingasala
Sýningainnréttingar
fyrir baðherbergi
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Höttur á
Fljótsdalshéraði heiðraði ný-
verið afburðasnjalla íþrótta-
menn úr sínum röðum.
Íþróttamaður Hattar árið
2002 var kjörin Arna Óttars-
dóttir. Hún hlaut einnig útnefn-
ingu sem besti íþróttamaður
frjálsíþróttadeildar. Eftir sigra
Örnu á árinu, m.a. í 100 og 200
m hlaupi í 17 til 18 ára flokki á
landsmóti, er hún nú meðal 12
bestu spretthlaupskvenna
landsins. Þá hefur Arna æft
knattspyrnu með meistara-
flokki kvenna samhliða frjáls-
um íþróttum.
Sigríður Ásta Vigfúsdóttir
var kjörin fimleikamaður Hatt-
ar, besti handknattleiksmaður-
inn Huginn Rafn Arnarson, í
körfunni þótti Hannibal Guð-
mundsson standa fremstur í
flokki og skíðamaður Hattar er
Sara Þöll Halldórsdóttir.
Íþróttafélagið Höttur hefur
innan sinna vébanda ríflega
fimm hundruð iðkendur og eru
flestir þeirra yngri en 18 ára.
Félagið býður vikulega um 60
klukkustundir af skipulögðu
íþróttastarfi fyrir börn og ung-
linga. Formaður Hattar er
Helgi Sigurðsson.
Morgunblaðið/Steinunn
Arna Óttarsdóttir er íþrótta-
maður Hattar árið 2002. Hún
er nú meðal tólf bestu sprett-
hlaupskvenna landsins og var
einnig kjörin besti frjáls-
íþróttamaður félagsins.
Höttur
heiðrar bestu
íþróttamenn
sína
Egilsstaðir
BYGGINGARFRAMKVÆMDUM
er að mestu lokið við nýtt lönd-
unarhús við loðnuverksmiðju
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar en
um 700 tonnum var landað úr
Júpíter á þriðjudagskvöld í gegn-
um nýtt löndunarkerfi. Vel gekk
að landa og aðeins komu upp
óverulegir byrjunarörðugleikar
sem fljótt leystist úr en um 300
tonn fóru í gegn á klukkustund.
Hráefninu er dælt úr skipunum
beint inn í löndunarhúsið og það-
an inn í hráefnistanka en hægt er
að fylgjast með ferlinu á tölvu-
skjá.
Þetta nýja löndunarhús er eitt
það fullkomnasta á landinu en
byrjað var á byggingu þess í
ágúst síðastliðinn eftir sum-
arvertíð. Á verktímanum var
landað um 12 þúsund tonnum
gegnum löndunarkerfi frystihúss-
ins.
Öll aðstaða til loðnu- og síld-
armóttöku er því orðin mjög góð
en auk þess er nú unnið að dýpk-
un í höfninni til að meira at-
hafnarými fáist fyrir skipin.
Dýpkað verður niður í 8,60 metra
á stórstraumsfjöru og það dýpi er
nú þegar komið í eldri hluta
hafnarinnar.
Nýtt lönd-
unarhús
tekið í
notkun
Þórshöfn