Morgunblaðið - 17.01.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Friedel Kötter-heinrich fæddist í
Lengerich í West-
falen í Þýskalandi 30.
mars 1942. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 8. janúar
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Her-
mann Kötterhein-
rich, f. 18.4. 1909, d.
25.11. 1980, og Luise
Kötterheinrich, f.
11.8. 1908, d. 19.11.
1997. Friedel var átt-
undi í röð 11 systk-
ina. Syskini hans eru:
Helmut, f. 1930, Helga, f. 1932,
Hermann, f. 1933, Herbert, f.
1935, Gerda, f. 1937, Christel, f.
1938, Reinhard, f. 1940, Hartmut,
f. 1944, Rolf, f. 1948, og Klaus, f.
1952.
Friedel kvæntist 27. nóvember
1971 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Sveinsdóttur snyrti-
fræðingi, f. 23.1.1945, hún starfar
nú í Íslandsbanka. Foreldrar
hennar voru Sveinn Þórðarson,
22.8. 1898, d. 27.11. 1982, og
Kristín Guðmundsdóttir, f. 14.9.
1909, d. 9.1. 1998.
Bróðir Ingibjargar
er Atli Heimir.
Friedel og Ingi-
björg eiga tvö börn:
Kristín Luise, MA í
þýsku og kennari við
Menntaskólann í
Reykjavík, f. 22.4.
1973, og Markús
Sveinn, nemi í tölv-
unarfræði við Há-
skóla Íslands, f.
12.11. 1978.
Friedel gekk í
skóla í Lengerich og
Münster og gegndi
herskyldu í Rheine. Hann lauk
iðnnámi í tæknifræði hjá fyrir-
tækinu Bischof&Klein í Lengerich
og starfaði þar í nokkur ár eða til
ársins 1967. Í desember 1967 flutti
Friedel til Íslands og starfaði til
ársins 1980 sem sérfræðingur hjá
Pappír & plasti. Frá árinu 1980
starfaði Friedel hjá Íslensk-amer-
íska, fyrst sem framleiðslustjóri
og síðustu ár sem sölumaður.
Útför Friedels verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
Ég kynntist Friedel fyrst þegar
hann kvæntist Ingibjörgu systur
minni. Það var árið 1971 en þá hafði
hann búið á Íslandi í fjögur ár.
Með okkur tókst strax góður
kunningsskapur og vinátta sem aldr-
ei bar skugga á.
Friedel var Þjóðverji, fæddur og
alinn upp í borginni Lengerich sem
er í Westfalen. Hann var áttundi í
hópi ellefu systkina, sem öll eru á lífi.
Ættin var upprunnin úr héraðinu.
Mér veittist sú ánægja að kynnast
foreldrum hans, Luise og Hermanni,
systkinum hans, mökum þeirra og
börnum; gott fólk og grandvart,
trygglynt og samheldið.
Friedel var 25 ára þegar hann
settist hér að. Hann átti auðvelt með
að aðlaga sig nýju umhverfi; hann
varðveitti reglusemi og nákvæmni
Þjóðverja, en var um leið vel mót-
tækilegur fyrir hinum frumlega og
óvanalega hugsunarhætti okkar Ís-
lendinga; þeirri ævintýramennsku,
sem hefur hjálpað okkur að lifa af í
særoki aldanna.
Hann var duglegur að hverju sem
hann gekk, nokkuð ákaflyndur. Var
oftast mættur fyrstur á vinnustað og
fór heim síðastur að kveldi. Hann
gerði allt vel sem honum var trúað
fyrir. Hann gat verið nokkuð strang-
ur en alltaf réttlátur.
Friedel var einstaklega laghentur
maður. Allt sem laut að smíðum og
viðgerðum lék í höndum hans. Hann
átti góð verkfæri og hafði þau alltaf í
röð og reglu. Með árunum standsetti
hann og prýddi húsið við Túngötu,
þar sem systir mín og hann bjuggu,
og á síðari árum skrýddi hann garð-
inn. Allt var þetta gert með einstakri
snyrtimennsku og smekkvísi.
Ungur gegndi hann herþjónustu
fyrir land sitt, og í hernum lærði
hann eldamennsku og var snillingur
að útbúa veislumat. Honum þótti
gaman að eldhússtörfum og hann gaf
íslenskum fyrirmyndarhúsmæðrum
ekkert eftir í skrautkökubakstri.
Naut fjölskyldan öll góðs af þessu
áhugamáli hans.
Friedel var kátur og léttur í skapi.
Í kunningjahóp var hann gjarnan
æringinn, brandarakallinn, der
Spaßmacher. Samt virtist mér hann
dulur, talaði furðulítið um sjálfan sig.
Hann rækti samband við ættingja
sína í Þýskalandi og þeir komu oft
hingað til lands.
Hann var fyrir löngu orðinn ís-
lenskur. Samt hélt hann fast, en
áreynslulaust, í uppruna sinn. Í því
fólst engin mótsögn: hann var sonur
tveggja landa og þótti jafnvænt um
þau bæði.
Hann reyndist foreldrum mínum
frábær tengdasonur, sparaði ekki
sporin til að létta þeim lífið í ellinni.
Fyrir það á ég honum þökk að
gjalda.
Andlát hans bar nokkuð skjótt að;
ég hafði vonast til að njóta samfylgd-
ar hans í lífinu enn um sinn.
Fjölskylda mín og ég kveðjum
Friedel Kötterheinrich með ást og
virðingu.
Atli Heimir Sveinsson.
Fregnin um að hann Friedel væri
látinn kom eins og reiðarslag. Fried-
el var giftur frænku minni Ingi-
björgu og kynni okkar af Friedel
hófust eiginlega þegar við hjónin
fluttumst á Miklubrautina í hús við
hliðina á Friedel og Ibý. Þá fórum
við að hafa meira samband en áður
hafði verið.
Friedel var mjög ljúfur og elsku-
legur maður. Góður nágranni, mikill
vinur í raun og gott að leita til hans.
Ég man alltaf þegar kom að ferm-
ingu elsta sonar okkar. Þá leitaði ég
til Friedels um hjálp við tilbúning á
matnum sem ég ætlaði að hafa. Ég
vissi að hann var afbragðs kokkur.
Friedel tók til hendinni og gerði fyrir
mig allan matinn og þvílíkar krásir
sem hann galdraði fram úr erminni.
Fermingarkökuna bakaði hann og
skreytti. Svo fór að hann hjálpaði til
við allar þrjár fermingarnar hjá okk-
ur.
Hann var orðin hluti af fjölskyld-
unni og ég veit að allir synir mínar
kunnu að meta það sem hann gerði
fyrir þá. Og svona var alltaf þegar
maður leitaði til hans, allt var alveg
sjálfsagt og ekkert nema elskuleg-
heitin.
Það voru góðar stundir á Miklu-
brautinni með þeim hjónum og börn-
um þeirra.Því miður þegar við flutt-
um í sitt hvora áttina leið lengra á
milli að hittast og nú á tímum þykist
maður hafa svo mikið að gera að það
gleymist að leggja meiri rækt í
frændsemina og vinskapinn.
Ég hafði talað við Friedel í end-
aðan nóvember, hann kom að heim-
sækja okkur hjónin. Mikið var gam-
an að hitta hann aftur og sitja við
eldhúsborðið og spjalla eins og í
gamla daga. Hann var svo hress og
reytti af sér brandarana. Við kvödd-
umst með ætlun um að hafa meira
samband, ekki láta líða of langt á
milli heimsókna. Ekki hvarflaði að
okkur að það gæti orðið bið á því að
við hittum þig aftur Friedel minn, en
það kemur að því síðar.
Elsku Ibý mín, Markús og Kristín.
Við Gunnar og synir okkar, vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og Guð
gefi ykkur styrk á þessari erfiðu
stund.
Blessuð sé minning um góðan vin,
og hafðu þökk fyrir allt sem þú gerð-
ir fyrir okkur.
Anne Helen Lindsay.
Friedel Kötterheinrich lést
fimmtudaginn 8. janúar sl. eftir til-
tölulega stutt en erfið veikindi.
Friedel giftist Ingibjörgu föðursyst-
ur minni árið 1971 og varð sam-
stundis mikilvægur hluti af allri fjöl-
skyldunni, sannur tengdasonur,
mágur, frændi. Greiðvikni hans og
gestrisni var aðdáunarverð og fjöl-
skyldan á Túngötunni var samheldin
og sönn. Friedel var staðfastur mað-
ur, einn af þeim mönnum sem ganga
fumlaust til allra verka, og gerði allt
vel sem hann tók sér fyrir hendur.
Um leið var hann ávallt ungur í anda,
bæði starfi og leik. Þeir sem kynnt-
ust Friedel eiga lifandi minningu um
traustan og skemmtilegan mann
sem auðgaði umhverfi sitt með verk-
um sínum og háttum. Þannig lifir
hann áfram.
Fráfall Friedels Kötterheinrich er
fjölskyldu hans og vinum harmdauði,
ótímabær og óskiljanlegur, eins og
jafnan þegar menn í blóma lífsins
hverfa úr lífi okkar fyrirvaralítið. Við
Sigga og Illugi sendum frændfólki
okkar á Túngötunni einlægar sam-
úðaróskir frá Bandaríkjunum.
Auðunn Atlason.
Látinn er heiðursmaðurinn Fried-
el Kötterheinrich. Okkur varð bilt
við þegar Markús sonur hans
hringdi fyrir þrem vikum og greindi
frá því að Friedel hefði fengið heila-
blæðingu. Lengi lifðum við í voninni
um að hann mundi ná bata en sú varð
ekki raunin og nú er hann allur langt
fyrir aldur fram.
Við Friedel höfðum spjallað sam-
an nokkrum sinnum sama dag og
hann veiktist og ekki bar á öðru en
að hann væri við ágæta heilsu og
hann lék á als oddi eins og oftast.
Þetta sýnir okkur í raun hve getur
verið skammt á milli lífs og dauða.
Kynni okkar Friedels hófust árið
1969 í gegnum sameiginlegan kunn-
ingsskap. Það var löngu seinna að
kynni okkar endurnýjuðust þegar
hann kom til starfa hjá því fyrirtæki
sem hann vann hjá lengst af starfs-
ævinnar, Íslensk-ameríska verslun-
arfélaginu. Þannig atvikaðist það að
við vorum að leita að stjórnanda í
snyrtivöruverksmiðju sem við rák-
um. Friedel hafði þá í nokkur ár séð
um rekstur Pappírspokagerðarinn-
ar, en hann var tæknimenntaður frá
heimalandi sínu Þýskalandi á því
sviði.
Friedel var fljótur að koma sér inn
í alla þætti reksturs snyrtivöruverk-
smiðjunnar og þá kom í ljós færni
hans og nákvæmni sem skiptir miklu
máli í rekstri sem þessum. Undir
hans stjórn störfuðu nokkrar konur
og tókst honum að skapa mjög góðan
starfsanda og meðan verksmiðjan
var starfandi vann við hana nánast
alltaf sama fólkið. Síðan gerist það
að ytri aðstæður urðu þess valdandi
að ekki svaraði kostnaði að framleiða
snyrtivörur hér á landi. Var ákveðið
að leggja verksmiðjuna niður. Þá tók
við nýr kafli í starfsævi Friedels.
Ákveðið var að bjóða honum starf í
fyrirtækinu sem sölumaður og óhætt
er að fullyrða að á þeim vettvangi
hafi hann blómstrað. Hann var ein-
staklega þjónustulundaður og fátt
var það sem hann var ekki tilbúinn
að gera fyrir viðskiptavini fyrirtæk-
isins. Þetta voru eflaust ekki auðveld
umskipti fyrir Friedel en hann tókst
á við breytingarnar með einstaklega
jákvæðu hugarfari og lærði á
skömmum tíma að tileinka sér sölu-
mannsstarfið.
Ef eitthvað sérstakt stóð til í fyr-
irtækinu var hann fremstur meðal
jafningja að framkvæma það sem
gera þurfti. Hjá Íslensk-ameríska
verslunarfélaginu er mikið um mót-
tökur innlendra og erlendra við-
skiptavina. Þar eð Friedel var margt
til lista lagt og eitt af því er að hann
var ákaflega góður kokkur, þá leit-
uðum við alltaf til hans þegar þurfti
að útbúa veitingar fyrir þessa hópa.
Það sem gerði það svo ánægjulegt að
vinna með Friedel var að hann gerði
þetta og annað með mikilli ánægju
og af stakri smekkvísi.
Það hefur verið hefð í fyrirtæki
okkar að halda upp á starfsafmæli og
stórafmæli einu sinni ári, rétt fyrir
jólin. Fyrir nýliðin jól héldum við
upp á sextugsafmæli Friedels. Kom
þá vel í ljós hversu vinsæll og ein-
staklega vel liðinn hann var í fyrir-
tækinu. Ætlaði lófaklappinu aldrei
að linna þegar hann stóð upp og tók á
móti heillaóskum og gjöf frá fyrir-
tækinu.
Í okkar huga var Friedel ekki að-
eins frábær starfsmaður heldur góð-
ur vinur sem reyndist alltaf vel, hans
verður sárt saknað.
Friedel sagði okkur oft stoltur frá
fjölskyldu sinni, góðri eiginkonu og
börnum sem bera foreldrum sínum
gott vitni. Söknuður þeirra er
stærstur og vottum við þeim okkar
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
hans.
Bert Hanson og
Egill Ágústsson.
Þó við vitum öll að það er bara eitt
sem allir eiga víst, þá er það svo að
alltaf kemur það okkur í opna
skjöldu þegar kallið kemur fyrir-
varalaust. Það er erfitt að sætta sig
við og í raun óskiljanlegt að hress og
lífsglaður maður á besta aldri, sé
hrifinn burt frá okkur án nokkurar
sýnilegrar ástæðu.
Friedel hefur verið sem ómissandi
hluti af fyrirtækinu frá því hann kom
fyrst til starfa hjá Íslensk-Ameríska.
Fljótlega kom í ljós að þar var ein-
stakur maður á ferðinni, sem bjó yfir
þeim fágætu eiginleikum að geta
gert nánast allt og úr allra vanda
leyst. Það sem einkenndi hann þó
mest var einstök trúmennska gagn-
vart fyrirtækinu og samstarfsmönn-
um að ógleymdri snyrtimennsku,
smekkvísi og nákvæmni í hverju því
sem hann tók sér fyrir hendur.
Við leiðarlok koma margar minn-
ingar upp í hugann, og þær eiga allar
eitt sammerkt, mannkosti þessa
mæta starfsfélaga.
Þar sem framkvæmda var þörf,
var Friedel réttur maður á réttum
stað. Ef hneggjandi hlátur heyrðist á
göngum, þá var jafnvíst að þar væri
hann nálægur með léttan húmor. Ef
aðstoðar var þörf þá var hann alltaf
tilbúinn.
Og aðlögunarhæfnin var einstök,
um margra ára skeið stjórnaði hann
snyrtivöruframleiðslu fyrirtækisins,
en þegar hún var aflögð þá gekk
hann til liðs við söludeildina, þá kom-
inn á miðjan aldur. Á þeim vettvangi
vann hann sér trúnað viðskiptavin-
anna og vináttu fulltrúa erlendra
birgja, náði frábærum árangri og
hafði augsýnilega mikla ánægju af
starfinu.
Við kveðjum kæran vin og starfs-
félaga með þökk fyrir allar ánægju-
stundirnar á liðnum áratugum, hans
skarð verður vandfyllt og minningin
um hann mun lifa með okkur áfram.
Ingibjörgu, Kristínu og Markúsi
sendum við hugheilar samúðar-
kveðjur. Missir ykkar er mikill, megi
minningin um einstakan maka og
föður styrkja ykkur um alla framtíð.
Starfsfélagar hjá
Íslensk-Ameríska.
Mig setti hljóðan er ég heyrði af
veikindum og síðar andláti einstaks
vinar míns Friedels.
Árið 1996 hóf ég störf hjá Íslensk-
ameríska þar sem Friedel var allt í
öllu. Hann var jú sannarlega allt í
öllu, því hann kom bókstaflega að öll-
um mögulegum hlutum hjá fyrir-
tækinu. Hann eldaði fyrir stórveisl-
ur, sá um ýmiskonar viðhald og
viðgerðir, ásamt því að framleiða
vörur.
Einnig sinnti hann viðskiptavinum
fyrirtækisins af fádæma einurð og
samviskusemi.
Samviskusemi, vandvirkni og
hjálpsemi var honum í blóð borin og
þó nóg væri á dagskránni hjá Friedel
taldi hann aldrei eftir sér að rétta
öðrum hjálparhönd.
Okkur varð virkilega vel til vina og
þar sem ég bý á Seltjarnarnesi og
Friedel á Túngötunni ákváðum við
að verða samferða til vinnu og voru
það virkilega skemmtilegar stundir.
Í þeim ferðum var ævinlega töluð
þýska og jafnvel tekið lagið þegar sá
gállinn var á okkur og þá oftast
sungið á þýsku. Eftir að ég hætti hjá
Íslensk-ameríska fyrir 2 árum höf-
um við haldið reglulegu sambandi og
stundum hist yfir kaffibolla. Þær
stundir voru dýrmætar því alltaf var
gaman og gefandi að hitta Friedel.
Hann hafði góða nærveru og
skemmtilegan húmor og alltaf í góðu
skapi.
Það er mér ómetanlegt að hafa átt
Friedel að vini og vinnufélaga. Allir
hans eiginleikar sem persónu og já-
kvætt viðhorf til lífsins eiga eftir að
fylgja mér um ókomin ár og reynast
mér dýrmætt veganesti ævilangt.
Hugur minn og fjölskyldu minnar
er hjá Ingibjörgu, Kristínu og Mark-
úsi að ógleymdum vinnufélögum
Friedels og vonum við að góður Guð
veiti ykkur styrk á erfiðum tímum.
Guð geymi minningu góðs vinar.
Þór Sigurgeirsson.
Aldrei kom mér það til hugar að
ég þyrfti að setjast niður á nýju ári
til að skrifa kveðju til hans Friedels.
Ég hef ekki meðtekið fráfall hans
enn og efast um að ég eigi nokkur
tímann eftir að sætta mig við það.
Hann Friedel var einstakur. Ein-
stakur á allan hátt. Hann hafði alla
þá kosti sem hægt er að óska sér í
einum manni en fyrst og fremst hafði
hann þá fallegustu sál sem ég hef
kynnst. Hann hafði yndislega kímni-
gáfu, hann kom fram við alla sem
jafningja, náði sambandi við fólk af
ólíkum aldurshópum, hann var já-
kvæður á alla hluti og lét ekkert
koma sér úr jafnvægi, en mætti öllu
með þessu frábæra glaða fasi sem
hann hafði. Þær minningar sem ég á
og mun alltaf geyma í mínu hjarta
eru of margar til að rifja upp hér og
þótt heilt Morgunblað væri til boða,
þær eru allar svo góðar og skemmti-
legar enda bar aldrei skugga á okkar
vinskap. Friedel var einn minna
besti vina, ég treysti honum fullkom-
lega og hann var mér ætíð stoð og
stytta. Það var ekkert sem ekki var
hægt að leita til hans með. Og hann
tók mig svo sannarlega í gegn þegar
hann var að „ala mig upp“ eins og
hann sagði svo oft við mig. Ég get
ekki sleppt því að minnast á hans
góða mat, meistarakokkurinn klikk-
aði aldrei, hann minnti mig reyndar
reglulega á að ég borðaði of mikið
hjá honum en ekki hefði ég viljað
sleppa einni einustu máltíð. Ég var
alltaf velkomin á yndislegt og hlýlegt
heimili þeirra Ingibjargar, hvort
sem ég dró þangað kærasta eða vini
og seinna börn og buru, alltaf var
okkur vel tekið.
Friedel var lánsamur í sínu einka-
lífi, átti glæsilega og góða konu sem
stóð með honum í einu og öllu og
voru þau hjónin sérstaklega sam-
hent. Þau áttu tvö vel heppnuð og
góð börn sem þeim er sæmd af og
ekki af tilefnislausu var Friedel mjög
stoltur af þeim. Þeim sendi ég og
dætur mínar okkar dýpstu samúð,
elsku Ingibjörg, Kristín og Markús,
við misstum öll mikið en þið lang-
mest og hugsanir okkar og bænir
eru hjá ykkur, kæra fjölskylda.
Friedel minn, við elskum þig og
munum alltaf gera. Þakka þér fyrir
að hafa verið til og að hafa verið þú.
Friedel minn. Við elskum þig og
munum alltaf gera. Þú verður alltaf í
okkar hjarta og lífi. Þetta er þung-
bærara fyrir mig en tárum tekur.
Hvíldu í friði elsku vinur.
Ragnheiður Hanson.
FRIEDEL
KÖTTERHEINRICH
Fleiri minningargreinar
um Friedel Kötterheinrich bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
AFMÆLIS- og minningar-
greinum er hægt að skila í
tölvupósti (netfangið er minn-
ing@mbl.is, svar er sent sjálf-
virkt um leið og grein hefur
borist), á disklingi eða í vélrit-
uðu handriti. Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að
fylgja.
Nauðsynlegt er að símanúmer
höfundar og/eða sendanda
(vinnusími og heimasími) fylgi
með. Bréfsími fyrir minningar-
greinar er 569 1115. Ekki er
tekið við handskrifuðum grein-
um.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina