Morgunblaðið - 20.01.2003, Page 2

Morgunblaðið - 20.01.2003, Page 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÝST Á ÍRAKA Í rétta átt miðaði á fundi sem yf- irmenn vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna áttu með ráðamönnum í Bagdad í gær. Greindu Írakar þar frá því að þeir hefðu fundið fjóra tóma efnavopnaodda til viðbótar við þá sem vopnaeftirlitsmenn fundu á fimmtudag. Bandaríkjastjórn hefur nú lýst yfir vilja til að sjá til þess að Saddam Hussein Íraksforseti fái öruggt hæli í öðru landi, afsali hann sér völdum í Írak. Samherji í samstarf Samherji hefur gert víðtækan samstarfssamning við norska sjáv- arútvegs- og fiskeldisfyrirtækið Fjord Seafood ASA. Samherji hefur einnig keypt 2,6% eignarhlut í fyr- irtækinu, sem er þriðja stærsta fyr- irtæki í heiminum í laxeldi. Eldar brenna í Canberra Fjórir hafa týnt lífi og allt að 400 heimili eyðilagst í miklum kjarreld- um í Canberra í Ástralíu undanfarna daga. Þúsundir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Óttast er að eldar eigi enn eftir að breiðast út. Adolf í fimmta sæti Átök urðu á kjördæmisráðsfundi sjálfstæðismanna í Norðvest- urkjördæmi en kjósa þurfti á milli Adolfs H. Berndsen framkvæmda- stjóra og Jóhönnu E. Pálmadóttur bónda um fimmta sæti á framboðs- lista vegna þingkosninga í vor. Adolf hafði betur og verður í fimmta sæt- inu en Jóhanna tekur sjötta sætið. Erfitt lagapróf Af þeim sem þreyttu próf í al- mennri lögfræði við lagadeild Há- skóla Íslands á haustmisseri féllu 145. 28 stóðust prófið. Þetta þýðir að 84% fall var í prófinu. Máttu ekki skoða póstinn Stjórnendum fyrirtækis var ekki heimilt að skoða einkabréf sem einn starfsmanna fyrirtækisins hafði sent og móttekið í tölvupósti þess, að mati Persónuverndar. Lögfræð- ingur Verslunarmannafélags Reykjavíkur telur niðurstöðuna for- dæmisgefandi. Ísólfur fékk þriðja sæti Ísólfur Gylfi Pálmason, þingmað- ur Framsóknarflokksins, hafði sigur í kjöri um þriðja sætið á framboðs- lista framsóknarmanna í Suður- kjördæmi vegna kosninganna í vor. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra tryggði sér fyrsta sæt- ið örugglega og Hjálmar Árnason verður í öðru sæti. 2003  MÁNUDAGUR 20. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÆFT Í HERMANNABRAGGA Í PORTÚGAL /B12 BÍLDSHÖFÐI 510 8020 SMÁRALIND 510 8030 SELFOSS 480 7000 WWW.INTERSPORT.IS Jóhannes sagði við Morgunblaðiðí gær að málið væri í höfn og það eina sem gæti stöðvað það úr þessu væri ef forráðamönnum Real Betis snerist hugur á síðustu stundu. „En ég á alls ekki von á því og geri ráð fyrir því að skrifa undir á morgun (í dag) og að leikheimildin verði jafnframt tilbúin strax,“ sagði Jóhannes. „Þetta er mikill léttir fyrir mig eftir að hafa fengið fá tækifæri á Spáni. Ég er fenginn hingað með það fyrir augum að spila inni á miðj- unni. Forráðamenn Villa ætla að byggja upp ungt lið og segjast vera hættir að kaupa til félagsins rán- dýra leikmenn, enda hafi slíkt hreinlega sökkt mörgum enskum félögum að undanförnu. Nú er það mitt að standa mig, grípa tækifærið báðum höndum og festa mig í sessi. Það hefur alltaf verið mitt takmark að komst í ensku knattspyrnuna og nú er það hægt og rólega að verða að veruleika.“ Jóhannes Karl er 22 ára en Aston Villa verður þó hans fimmta félag á erlendri grundu. Hann lék fyrst með meistaraflokki KA 1997, þá 17 ára, og lék síðan hálft tímabil með ÍA í úrvalsdeildinni 1998. Þá gekk hann til liðs við Genk í Belgíu, var þar eitt tímabil og lék 5 leiki í efstu deild. Hann spilaði síðan í rúm tvö ár í Hollandi með úrvalsdeildarlið- unum MVV Maastricht og RKC Waalwijk. Með þeim lék hann sam- tals 55 leiki í úrvalsdeildinni og skoraði 11 mörk. Real Betis keypti Jóhannes frá Waalwijk í september 2001 fyrir 350 milljónir króna og hann spilaði 10 leiki með liðinu í spænsku deilda- keppninni á síðasta tímabili. Í vetur hefur hann aðallega verið á vara- mannabekknum eða þá utan hans og aðeins komið við sögu í tvær mínútur í einum deildaleik, gegn meisturum Valencia í nóvember. Jóhannes Karl leikur væntanlega sinn fyrsta leik í búningi Aston Villa á miðvikudaginn en þá mætir vara- lið félagsins Sheffield Wednesday. „Ég hef ekkert æft hjá félaginu og hitti beint á smá frí sem leikmenn aðalliðsins fengu þar sem þeir spila ekki í bikarkeppninni um næstu helgi. Ég æfi því sjálfur fram á mið- vikudag og verð þá líklega með í þessum varaliðsleik,“ sagði Jóhann- es Karl Guðjónsson. Alltaf verið takmark að leika í Englandi JÓHANNES Karl Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, geng- ur í dag frá samningi við enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa, út þetta keppnistímabil. Forráðamenn Aston Villa náðu um helgina samkomulagi við Real Betis, félag Jóhannesar Karls á Spáni, um að taka hann á leigu til vorsins. Villa hefur síðan forkaupsrétt á Jó- hannesi að þessu tímabili loknu. Landsliðsmaðurinn Jóhannes Guðjónsson semur í dag við Aston Villa HILDUR Ómarsdóttir, Skauta- félagi Reykjavíkur, og Audrey Freyja Clarke, Skautafélagi Ak- ureyrar, sigruðu í sínum flokkum á Íslandsmeistaramótinu í listhlaupi á skautum sem fram fór í Skauta- höllinni á Akureyri um helgina. Alls mættu 13 stúlkur frá þremur félögum, SA, SR og Birninum, til leiks og sýndu þær oft á tíðum glæsileg tilþrif á svellinu. Keppt var í tveimur aldurs- flokkum, Novice-flokki 14 ára og yngri og Junior-flokki 13–18 ára en stúlkurnar þurfa þó að hafa náð ákveðinni færni til að geta tekið þátt. Á laugardag var keppt í skylduæfingum, sem gilda þriðjung af heildareinkunn og í gær sunnu- dag var keppt í frjálsum æfingum. Tíu stúlkur mættu til leiks í Nov- ice-flokknum þar sem Hildur sigr- aði en í öðru sæti varð Íris Kara Heiðarsdóttir, SR, og í þriðja sæti Kristín Helga Hafþórsdóttir, SA. Aðeins þrjár stúlkur kepptu í Jun- ior-flokknum þar sem Audrey Freyja sigraði. Systir hennar Helga Margrét Clarke, SA, hafnaði í öðru sæti og Katrín Björgvinsdóttir, Birninum, í því þriðja. Íslandsmeistaramót í listhlaupi Morgunblaðið/Kristján Hildur Ómarsdóttir í snúningi á svellinu í frjálsu æfingunni. Glæsileg til- þrif á svellinu Morgunblaðið/Kristján Audrey Freyja Clarke í frjálsu æfingunni. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 26 Viðskipti 11 Bréf 26 Erlent 12/13 Dagbók 28 Listir 14/15 Leikhús 30 Umræðan 16/17 Fólk 30/33 Forystugrein 18 Bíó 30/33 Minningar 20/25 Ljósvakar 34 Staksteinar 24 Veður 35 * * * ADOLF H. Berndsen, framkvæmdastjóri á Skagaströnd og varaþingmaður, verður í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi við komandi þingkosningar, sætinu sem Vilhjálm- ur Egilsson lenti í eftir umdeilt prófkjör flokksins í nóvember sl. Tillaga kjörnefndar um Adolf var samþykkt í gærkvöldi á fundi kjördæmisráðs í Búðardal. Ekki kom til atkvæðagreiðslu heldur handauppréttingar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins urðu nokkur átök á fundinum, sem hófst á hádegi í gær, en áður en tillaga kjörnefndar var samþykkt hafði verið felld framkomin tillaga um að Jóhanna E. Pálmadóttir, bóndi á Akri í A-Húnavatnssýslu, skipaði 5. sætið og Birna Lárusdóttir, bæjar- fulltrúi á Ísafirði, það sjötta. Þær urðu í sjötta og sjöunda sæti í prófkjöri flokksins. Alls greiddu 134 fundarmenn atkvæði um þá tillögu, 52 sögðu já eða 39% en 81 nei eða 60%. Einn seðill var ógildur. Umræður á fundinum urðu langar og strangar. Fram komu fleiri breytingartillögur, m.a. um að kjósa sérstaklega um 5. sætið og færa alla á list- anum upp um eitt sæti sem lentu fyrir neðan 5. sæti í próf- kjörinu, en þær voru dregnar til baka og hlutu ekki þinglega meðferð. Jóhanna Pálmadóttir samþykkti á endanum að taka 6. sætið eins og tillaga kjörnefndar gerði ráð fyrir og Birna Lárusdóttir verður í 7. sæti. Í próf- kjörinu höfnuðu í fjórum efstu sætunum þeir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og þing- mennirnir Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Kristjánsson og Guðjón Guðmundsson. „Engin eftirmál“ Jóhanna sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að fundur kjördæmisráðs hefði tekið þannig á mál- um að hægt væri að snúa sér að framtíðinni. Eng- in eftirmál yrðu af hennar hálfu, hún myndi hlíta niðurstöðunni sem náðst hefði með lýðræðisleg- um hætti. Það hefði skipt mestu máli í hennar huga. Aðspurð hvort það ætti eftir að bitna á flokknum í kjördæminu að karlmenn skipuðu fimm efstu sætin sagði Jóhanna að það yrði bara að koma í ljós. Adolf sagði niðurstöðu vera fengna og nú væru allir einbeittir í því að vinna flokknum sem best í kosningabaráttunni. Samkennd hefði ríkt undir lok fundar í Búðardal og samstaða skapast um endanlegan lista. Aðspurður taldi Adolf ekki að það sem á undan hefði gengið í framboðsmálum flokksins í kjördæminu ætti eftir að hafa neikvæð áhrif á fylgið. Hann hefði þá trú að góður árangur ætti eftir að nást í vor. Menn væru vonandi búnir að slíðra sverðin og horfðu fram á veginn. Adolf tekur sæti á Alþingi þegar það kemur saman til fundar á morgun, sem varamaður Vilhjálms Eg- ilssonar, en hann hefur sem kunnugt er ráðist til starfa hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Wash- ington og sagt af sér þingmennsku. Átök á kjördæmisráðsfundi sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Adolf verður í fimmta sæti og Jóhanna í sjötta Adolf H. Berndsen Jóhanna E. Pálmadóttir ÞÓRHILDUR Þorsteinsdóttir, fyrrverandi pró- fastsfrú á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, er 100 ára í dag. Hún hélt upp á afmæli sitt á Grand hóteli í gær. Þórhildur fagnaði í hópi tæplega 200 vina og ætt- ingja. Þórhildur spilaði sjálf á flygil fyrir gesti sína. Hún fæddist í Vestmannaeyjum en fór 17 ára til Reykja- víkur til að stunda nám við Kvennaskólann. Maður hennar var Sveinbjörn Högnason, prófastur og al- þingismaður. Mestan hluta ævi Sveinbjarnar bjuggu þau í Fljótshlíðinni en hann lést 1966. Þórhildur og Sveinbjörn eignuðust fjögur börn, Ragnhildi, Sváfni, Elínborgu og Ástu. Þórhildur á 67 afkomendur í 5 ættliðum. Hún var ekki lengi að finna ástæðu langlífisins. „Það er af því að það hafa allir verið svo góðir við mig,“ sagði Þórhildur, sem hefur lifað mjög heilbrigðu lífi. Hún var húsmóðir í földamörg ár og sum sumrin voru 18–20 manns í heimili hjá þeim hjónum. Þórhildur var lengi organisti og er mikil hannyrðakona. Morgunblaðið/Kristinn Þórhildur Þorsteinsdóttir er 100 ára í dag. Hún hélt upp á afmælið sitt í gær. Meðal gesta voru Karl Sig- urbjörnsson, biskup Íslands, Kristín Guðjónsdóttir, kona hans, og Vigdís Finnbogadóttir. Laðaði að sér fólk ALLS voru seld um 90.600 tonn af fiski á fiskmörkuðum landsins á síð- asta ári, fyrir rúma 13,8 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Íslandsmarkaði. Það er nokkuð minna magn en fór um fiskmark- aðina árið 2001 þegar þar voru seld um 95 þúsund tonn fyrir um 14,6 milljarða króna. Meðalverð allra tegunda á fisk- mörkuðunum á síðasta ári var tæpar 152,6 krónur en meðalverðið var um 154 krónur í fyrra. Mest fór af fiski um fiskmarkaðina í mars, alls 12.649 tonn fyrir um 1.920 milljónir króna. Minnst var selt í ágústmánuði, um 5.287 tonn og var verðmæti þess um 748 milljónir króna. Meðalverðið var hæst í janúarmánuði á síðasta ári eða tæpar 196 krónur en lægst í sept- ember, tæp 141 króna. Meðalverð á slægðum þorski í beinum viðskiptum hækkaði um rúm 23% á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs í samanburði við sama tímabil ársins 2001, úr rúmum 103 krónum í tæpar 128 krónur, samkvæmt upplýsingum frá Verðlagsstofu skiptaverðs. Verð á slægðum þorski á fiskmörkuðum stóð hinsvegar í stað á tímabilinu, var rúmar 190 krónur. Þá hækkaði verð á slægðri ýsu um 14% í beinum viðskiptum, úr 97 krónum í rúmar 110 krónur. Athygli vekur að mun meira var selt af slægðri ýsu í bein- um viðskiptum á síðasta ári en árið 2001 eða rúm 8 þúsund tonn sem er nærri 80% aukning. Meðalverð á slægðri ýsu lækkaði hinsvegar lítil- lega á fiskmörkuðunum á tímabilinu frá janúar til nóvember á síðasta ári, var tæpar 173 krónur. Meira af ýsu fór einnig um fiskmarkaðina í fyrra en árið áður, alls tæp 9.600 tonn á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs en 7.923 tonn á sama tímabili árið 2001. Minna gegnum fiskmarkaði                         !!"  !! !! "#! "!! #! !              $     %      !!" !! &' !! "#! "!! #! ! $      &' %   !!" !! !!" !! !!" !! Fiskverð hækkar í beinum viðskiptum Diplómanám lagt niður við lagadeild HÍ EKKI verður tekið við nemendum í dipl- ómanám við lagadeild Háskóla Íslands næsta haust en ákveðið hefur verið að leggja námið niður við deildina. Um 20 nemendur eru skráðir í diplómanám og segir Eiríkur Tómasson, deildarforseti lagadeildar, að þeir muni að sjálfsögðu geta lokið sínu námi. Eiríkur sagði námið ekki eiga heima í lagadeildinni en telur það þó tvímælalaust eiga rétt á sér og vonast til að finna því rétt- an vettvang í framhaldinu. Diplómanám er hagnýtt þriggja missera nám, ætlað aðstoðarmönnum lögmanna, dómara og lögfræðinga. Eiríkur sagði flesta nemendur hafa verið í vinnu meðfram námi og því tekið námið á lengri tíma en ætlað var. Því væru fáir í hverri einingu og þ.a.l. dýrt að halda kennslunni uppi. HAFIÐ, kvikmynd Baltasars Kormáks, hlaut áhorfendaverðlaun á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Tromsö í Noregi. Þetta var tilkynnt í gær en um er að ræða eina stærstu kvikmyndahátíð Norðmanna sem haldin er ár hvert. Uppselt var á allar sýn- ingar myndarinnar og fékk hún góðar við- tökur, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum Hafsins. Þá var myndin sýnd á kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum um helgina við mikla aðsókn og athygli. Hafið fær verð- laun í Noregi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.