Morgunblaðið - 20.01.2003, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.01.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ PERSÓNUVERND telur að vinnuveitanda hafi ekki verið heimilt að skoða einkabréf starfsmanns síns sem send voru og móttekin í tölvupósti fyr- irtækisins. Lögfræðingur Verslunarmannafélags Reykjavíkur telur niðurstöðuna fordæmisgefandi, vinnuveitendum sé óheimilt að skoða tölvupóst starfsmanna nema skýrar reglur séu til um það eða málefnalegar ástæður krefjist þess. Þá megi ekki skoða einkabréf. Vegna málaferla sem risu vegna greiðslu van- goldinna launa á uppsagnarfresti starfsmanns sem sagt hafði verið upp lögðu stjórnendur fyr- irtækisins fram 158 tölvupóstbréf sem starfsmað- urinn og fyrrverandi samstarfsmaður hans, sem kominn var í samkeppni við fyrirtækið, höfðu sent sín í milli. Raunar töldu stjórnendur fyrirtækisins að í fimm þeirra mætti finna efni sem teldist brot á trúnaði starfsmannsins og átaldi dómarinn þá fyr- ir að leggja fram bréf sem snúast um persónuleg málefni og snertu ekki deiluefni málsins. Lögmaður VR óskaði eftir áliti Persónuverndar á þessu framferði. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að skoðun tölvupóstsam- skiptanna og notkun þeirra í dómsmáli hafi verið vinnsla persónuupplýsinga. Að mati Persónu- verndar hefði átt að stöðva skoðun tölvupóstsins um leið og ljóst var að um einkamálefni var að ræða og eyða þeim skeytum sem þegar höfðu ver- ið skoðuð. Er það mat Persónuverndar að með því að halda áfram að skoða umrædd einkabréf og leggja þau síðan fram í dómsmáli hafi verið farið gegn meginreglum 7. greinar laga um persónu- vernd og meðferð persónuupplýsinga. Telja tilganginn ekki málefnalegan Byggst niðurstaðan meðal annars á því að ekki verði séð að skoðun umræddra einkaskeyta hafi farið fram í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum tilgangi. Einnig á því að við vinnsluna skuli aðeins nota nægilegar og viðeigandi persónuupplýsingar. Þá er vakin athygli á því að gefa hefði átt starfs- manninum kost á að eyða einkatölvupósti við starfslok. Persónuvernd telur þó ekki vera efni til þess að beita stjórnendur fyrirtækisins refsiákvæðum. Að því er fram kemur í úrskurðinum byggist það mat meðal annars á því að hér sé um nýtt mat að ræða og að enn hafi ekki almennri fótfestu í huga manna hvernig skuli bera sig að. Fleiri atriði voru nefnd, svo sem að einkaskeytin hafi ekki verið aðgreind frá öðrum tölvupóstbréfum og að um hafi verið að ræða allmikil samskipti um búnað atvinnurekanda við keppinaut hans. Verslunarmannafélag Reykjavíkur fagnar áliti Persónuverndar í fréttatilkynningu sem send var út í gær og telur hann eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur um notkun tölvupósts í fyrirtækjum. Jafn- framt hvetur félagið fyrirtæki til að setja sér skýr- ar reglum um tölvupóstnotkun starfsmanna. Guðmundur B. Ólafsson hdl. sem rak málið fyrir VR telur að niðurstaðan sé fordæmisgefandi og leiðbeinandi fyrir stjórnendur fyrirtækja. Þeim sé óheimilt að skoða tölvupóst starfsmanna nema um það séu skýrar reglur eða málefnalegar ástæður, svo sem grunur um refsivert athæfi. Þá megi ekki skoða einkabréf starfsmanna. Vinnuveitendum óheimilt að skoða einkabréf starfsmanna Þörf á sam- ræmingu vinnutíma flugáhafna EVRÓPUSAMTÖK flugáhafna vekja um þessar mundir athygli á ör- yggismálum er varða vinnutíma flugáhafna. Félag íslenskra atvinnu- flugmanna er aðili að Evrópusam- tökunum en 21. janúar hefur verið valinn til að vekja athygli meðal al- mennings á málinu í Evrópu. Jóhann Þ. Jóhannsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að ólíkar reglur hafi gilt um vinnutíma flugáhafna í Evrópu. Fyrir liggur að Evrópusambandið gefi út samræmdar reglur um vinnu- tíma flugáhafna sem munu gilda á Íslandi eins og aðrar reglur sem ganga yfir evrópska efnahagssvæð- ið. Flugmenn í Evrópusamtökum flugmanna fagna þessu því þeir telja að þetta muni jafna samkeppnis- stöðu flugrekstraraðila innan evr- ópska efnahagssvæðisins. Samræmist Norðurlöndum Á Íslandi gilda reglur sem sam- gönguráðherra setti árið 1997 sam- kvæmt tillögu Evrópuþingsins. Íslensk flugmálayfirvöld hafa eng- ar gildandi samevrópskar reglur til að styðjast við og þykir Jóhanni und- arlegt að Ísland skuli ekki fylgja Norðurlöndunum í þeim samræmdu vinnutímareglum sem þar gilda. „Norðmenn, Svíar og Danir hafa töluvert strangari reglugerð en gild- ir hér, sérstaklega hvað varðar vinnutíma á nóttunni. Þó svo að ákveðnar r reglur séu í gildi hér þá vinna ekki öll flugfélög eftir henni út í hörgul. Við hjá Flugleiðum erum með strangari reglur í gegnum kjarasamninga okkar og það helgast af því að þeir eru mun eldri en reglu- gerðin,“ sagði Jóhann og bætti við að ósk flugmanna væri að koma meira að reglugerðasmíðinni á Íslandi líkt og gert er á Norðurlöndum. HUNDRUÐ manna komu saman á Lækjartorgi í Reykjavík á laug- ardag til að mótmæla hugsanlegu stríði við Írak og heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Á skiltum mótmæl- enda var m.a. minnt á að ofbeldi getur ekki skapað frið. Meðal þeirra sem ávörpuðu hóp- inn var séra Örn Bárður Jónsson, prestur í Neskirkju, en hann kvaðst þess fullviss að mótmælendahóp- urinn hefði getað fyllt þá kirkju þrisvar til fjórum sinnum, svo marg- ir hefðu komið saman til að „halda á lofti kyndli friðar“, eins og hann orðaði það í ávarpi sínu. Hann sagð- ist telja ástæðu til að setja spurning- armerki við utanríkisstefnu „hins volduga ríkis í vestri… sem vill fara sínu fram án samráðs við ríki Sam- einuðu þjóðanna.“ Benti hann á að víða um heim hefði fólk mótmælt undir slagorðinu Ekki í okkar nafni og kvaðst telja að Íslendingar ættu að gera slíkt hið sama. „Við viljum ekki að þjóðin okkar taki beinan þátt í hernaði eða styðji við hern- aðinn með nokkru móti,“ sagði séra Örn Bárður við kröftugar und- irtektir friðarsinna á Lækjartorgi. Morgunblaðið/Kristinn Hundruð manna mótmæltu Kolbeinn efstur hjá VG í Suður- kjördæmi KOLBEINN Óttarsson Proppé, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi í Reykjavík, mun skipa efsta sætið á framboðslista Vinstri hreyfingarinn- ar – græns framboðs, VG, í Suður- kjördæmi fyrir komandi þingkosn- ingar. Gengið var frá listanum á fundi kjördæmisráðs í Fljótshlíð um helgina. Listinn er annars þannig skipaður hjá VG í kjördæminu: 2. Þórunn Friðriksdóttir, fram- haldsskólakennari, Reykjanesbæ. 3. Ólafía Jakobsdóttir, fv. sveit- arstjóri, Skaftárhreppi. 4. Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir, Selfossi. 5. Finnbogi Vikar Guðmundsson, sjómaður, Hveragerði. 6. Björn Dúason, sjómaður, Sand- gerði. 7. Jóhanna Njálsdóttir, kennari, Vestmannaeyjum. 8. Sigurjón Einarsson, bílstjóri, Hornafirði. 9. Jóhann Óli Hilmarsson, ljós- myndari og fuglafræðingur, Stokkseyri. 10. Arndís Soffía Sigurðardóttir, há- skólanemi, Rangárþingi eystra. 11. Þorvaldur Örn Árnason, líffræð- ingur og kennari, Vogum. 12. Svanborg R. Jónsdóttir, kennari, Gnúpverjahreppi. 13. Klara Haraldsdóttir, húsfreyja, Rangárþingi vestra. 14. Heimir Þór Gíslason, kennari, Hornafirði. 15. Gyða Sigfinnsdóttir, háskólanemi, Selfossi. 16. Jóhann Þórsson, háskólanemi, Reykjanesbæ. 17. Jón Traustason, verkamaður, Vestmannaeyjum. 18. Sævar Bjarnason, bæjarstarfs- maður, Reykjanesbæ. 19. Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi, Selfossi. 20. Karl G. Sigurbergsson, skipstjóri, Reykjanesbæ.ÍSÓLFUR Gylfi Pálmason alþing- ismaður hafði sigur í kosningu um þriðja sætið á framboðslista Fram- sóknarflokksins í Suðurkjördæmi á kjördæmisþingi á Selfossi um helgina. Fimm frambjóðendur gáfu kost á sér í þriðja sætið og hlaut Ís- ólfur Gylfi afgerandi kosningu strax í fyrstu umferð, eða rúm 64% greiddra atkvæða. Kosið var um sex efstu sætin. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð- herra og varaformaður Framsókn- arflokksins, leiðir listann og Hjálm- ar Árnason þingmaður verður í öðru sæti en engir buðu sig fram í þeirra sæti. Guðni fékk 97% at- kvæða í fyrsta sætið og Hjálmar fékk 94% atkvæða í annað sætið. Á kjörskrá voru 387 þingfulltrúar. Auk Ísólfs Gylfa sóttust eftir þriðja sætinu þau Eygló Harðardóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Drífa Sigfúsdóttir og Baldur Kristjáns- son. Drífa tók svo heiðurssæti listans. Ísólfur Gylfi sagðist í samtali við Morgunblaðið vera „himinlifandi glaður“ með úrslitin og þakklátur fyrir þann mikla og ótvíræða stuðn- ing sem hann hefði fengið. Sótt hefði verið að sér um tíma, enda fimm manns gefið kost á sér í þriðja sætið. Ísólfur Gylfi sagði kjördæm- isþingið hafa farið vel fram og ein- ing og baráttuhugur einkennt þing- störfin. Listinn væri vel skipaður og valinn maður í hverju rúmi. Guðni Ágústsson segir skemmti- lega baráttu öflugra frambjóðanda hafa farið fram á glæsilegu kjör- dæmisþingi. Mikil samstaða hafi verið um sex efstu sætin en end- anlegur listi sé sterkur og nái einn- ig vel yfir allt kjördæmið. „Ég er bjartsýnn á framhaldið. Staðan í kjördæminu er góð og ég lít á mig sem skipstjóra á „kútter Fram- sókn“ í Suðurkjördæmi. Ég trúi því að þetta verði gott aflaskip og að við fáum mikið fylgi í vor,“ segir Guðni. Hann segist vera þakklátur fyrir þann stuðning sem hann fékk, 97% greiddra atkvæða. Það sé gott vega- nesti í baráttuna um stærsta flokk kjördæmisins. Ísólfur Gylfi hafði sigur í kjöri í þriðja sætið Kjördæmisþing framsóknarmanna í nýju Suðurkjördæmi sóttu á laug- ardag nærri 400 manns. Fremstir sitja hér við háborðin alþingismennirnir Guðni Ágústsson, oddviti listans, og Ísólfur Gylfi Pálmason, sem sigraði í kosningu um þriðja sætið, ásamt fleiri frambjóðendum. Gengið frá framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi Jarðskjálfti á Norðurlandi JARÐSKJÁLFTI, sem mældist 3,2 á Richterkvarðan- um, varð rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun við Tröllaskaga. Upptök skjálftans voru um 18 km vestan við Siglufjörð. Nokkrir skjálftar urðu í vest- anverðum Mýrdalsjökli aðfara- nótt sunnudags, en voru þeir allir innan við 3 stig á Richter að stærð. Útafakstur á Jökuldal BÍLL lenti út af þjóðveginum í svo- kölluðum Múla efst í Jökuldal á laug- ardagskvöld. Í bílnum voru hjón með son sinn. Feðgarnir sluppu að mestu ómeiddir en konan handleggsbrotn- aði og var flutt á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum til að- hlynningar. Bíllinn er mikið skemmdur að sögn lögreglu og var mesta mildi að ekki fór verr því gífurleg hálka var á veginum og mikill bratti þar sem slysið varð. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.